Morgunblaðið - 26.01.1960, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 26.01.1960, Qupperneq 17
Þriðjudagur 26. jan. 1959 MORGUlSItLAÐlÐ 17 Sigurður Magnússon fyrrum bóndi Borgarhofn — Kveðja F. 9. 6. 1898 — D. 20. 12. 1959. Nú sé ég eftir þér, Siggi minn í svörtu moldina niður, og samt ertu horfinn heim til guðs í himininn fallega og góða — Sjávarutvegurinn Framh. á bls. 17. um það hverja mynd sú þróun kann að fá, sem hér hefir átt upp haf sitt. ★ Allt frá árinu 1951 hefir af- koma bátaflotans verið með þeim hætti, að hann hefir orðið að njóta sérstakrar fyrirgreiðslu ríkisvaldsins til þess að geta starfað með eðlilegum hætti. Undanfarin ár hefir hið sama átt sér stað með togaraflotann og raunar allar framleiðslugreinar sjávarútvegsins, sem og aðra framleiðslu til útflutnings. Ráð- stafanir þær, sem ríkisvaldið hefur gert á hverjum tíma í því skyni að tryggja rekstur sjávar- útvegsins hafa verið með marg- víslegu móti og verður því ekki neitað, að allmikillar hugkvæmni hefir þar oft gætt. Sameiginlegt þeim öllum hefir þó verið það, að til þeirra hefir verið gripið í því skyni að bæta útflutnings- framleiðslunni það upp, að henni var meinað að fá það verð fyrir þann gjaldeyri, sem hún aflaði, sem það kostaði að afla hans við þær aðstæður, sem framleiðsl- unni voru búnar. Vantar ekki mikið upp á, að helmingur afla- andvirðis sé nú greiddur í gegn- um útflutningsuppbætur. Þetta fyrirkomulag, sem eins og áður segir, hefir nú verið við líði í ýmsum mismunandi myndum í níu ár, hefir að visu fleytt út- gerðinni áfram en jafnframt hefir sá hugsunarháttur gripið um sig meðal þjóðarinnar, að sjávarútvegurinn væri orðirjn styrkþegi, sem þjóðin yrði að fórna miklum fjármunum til að halda gangandi. I tvennum skiln- ingi er þetta slæmt. 1 fyrsta lagi er sá misskilningur hættulegur, ef hann nær að festa rætur, að sá atvinnuvegur sem hefir verið ein meginundirstaða* undir efnahagslegri uppbyggingu í landinu í næstliðna hálfa öld og ennfremur ein helzta forsendan fyrir þvi, að þjóðin geti haldið þeim lifnaðarháttum, sem nú eru, sé rekinn með styrkjum. í öðru lagi er það miður hollt fyr- ir þá, sem þennan atvinnuveg reka, að starfa í slíku andrúms- lofti, sem hér hefir verið að myndast á undanförnum árum. Smám saman leiðir það til þess að ábyrgðinni af rekstri fyrir- tækjanna er af þeim létt og er þá skammt í það, að áhuginn fyr- ir því að haga framleiðslunni og rekstrinum á þann hátt, sem hag- kvæmast væri, sljóvgist. Ýmsar aðrar ástæður m. a. fjárhagslegs eðlis liggja einnig til þess, að nauðsyn ber til að breyta um stefnu og gera ráðstafanir til þess að koma sjávarútveginum í það horf, að hann geti staðið á eigin fótum. Ríkisstjórnin hefir nú um skeið unnið að undirbúningi slíkra ráð stafana og senn mun líða að þvx, að fyrirætlanir hennar verði gerðar heyrum kunnar. Markmið þeirra ráðstafana hlýtur að vera að skapa starfsgrundvöll fyrir út- flutningsframleiðsluna þannig að hún geti starfað með eðlilegum hætti, endurnýjað atvinnutækin og aukið framleiðsluna. Væri það ekki aðeins til hagsbóta þeim, sem útflutningsframleiðsl- una stunda heldur mundi leiða til bættra lífskjara allrar þjóð- arinnar. Þú skildir svo vel hvað amaði að og áttir svo góðar hendur, sem tóku mig upp í þinn trausta faðm og tárin af kinnunum struku. Ég man að þú kunnir svo merki- leg orð svo mildur og hægur í tali og sagðir mér hvernig sveitin er og sýndir mér stjörnugeiminn. Og þú varst alltaf svo hljóðlega hlýr og hugur þinn mjúkur og gætinn, þú gafst mér ýmislegt gott og fínt úr gömlu kistunni þinni. En þetta er kveðjan frá mömmu og mér og minning um góðar stundir, því ljóðið er bara lítið tár af litla vanganum mínum. Kveðja frá Jórunni litlu. ★ Ég hitti þig Siggi minn í fyrsta sinn á köldum haustdegi og þá til að fala húsnæði hjá .þér. Þú sagðir ekki margt, en af því hvernig þú horfðir á barnið mitt, vissi ég að okkur yrði ekki synj- að. Ég dvaldi með þér og fjöl- skyldu þinni um nokkurn tíma og mig langaði bara með þessum fátæklegu orðum að þakka fyrir hverja stund. Hafi nokkur maður átt göfuga sál, þá áttir þú hana. Það fylgdi þér alltaf friður og ró. Aldrei man ég eftir því, að hafa heyrt þig hallmælanokkrum manni, en lagðir gott til allra mála og ef skoðanir þínar voru á öndverðum meiði við þann, sem þú talaðir við, hækkaðir þú aldrei róminn, en fastur og ákveð inn varðirðu þínar skoðanir um menn og málefni og færðir rök fyrir þínu máli, enda vel lesinn og fróður. Fáa hefi ég þekkt, sem töluðu fegurra mál, enda alinn upp á þeim slóðum, sem talað er hvað fegurst mál á íslandi. — Heimili þitt var alltaf opið þeim mörgu vinum, sem þú áttir og gestkvæmt mjög og alltaf bættist við vinahópinn, því þú hafðir allt af tíma til að tala við og liðsinna, einnig þeim yngstu og elztu, sem stundum er gengið fram hjá. Þið hjónin voruð samhent í öllu og votta ég Guðnýju konu þinni mína dýpstu samúð, einnig börn- um, tengda- og barnabörnum, ásamt aldraðri tengdamóður og öðrum ættingjum, þau hafa misst mest. En okkur vinum þínum finnst líka, að við höfum misst mikið. Skörð eftir menn eins og þig verða seint fyllt. Við, sem þekktum þig, vitum öll hve mikið þú máttir líða áður en yfir lauk og enginn hefði get- að tekið því með slíku æðruleysi, nema eiga þá öruggu trúarvissu, sem þú varst svo hamingjusamur að eiga, og með hana í vegar- nesti og ævi eins og þína að baki hlýtur förin um ókunnu heimana að verða þér greið. Guð veri með þér Th. Th. IR ^ STERKIR PÆGILEGIR ffrn Hafnarfjörður Stúlka óskast í matvctruverzlun strax. Uppl. í síma 50379 og 23425. Sendisveinn óskast hálfan eða allan daginn, Upplýsingar á skrifstofu vorri. Hlutafélagið Hamar Keflavík - Njarðvík Hefi kaupanda að 3ja herb. íbúð, má vera ófullgerð. Annast hverskonar lögfræðistörf. Aðstoða við skatta framtöl. — Til viðtals daglega kl. 6—8 e.h. eða eftir samkomulagi. STEFAN GUÐJÓNSSON lögfræðingur Hringbraut 77, Kefiavík. sími 1827 Sigurður Olason Hœstarcltarlögmaður Þorvaldur Lúðvíksson Héraðsdómslögmaður Málflutningsskrifstofa Austurstræti 14. Sími 1 -55-35 Samkomut KFUK, ad. Fundur í kvöld kl. 8,30. — Biblíulestur, Bjarni Eyjólfsson, ritstjóri. Allt kvenfólk velkom- 34-3-33 Þungavinnuvélar ið. — Fíladelfía Vakningarsamkoma hvert kvöld M. 8,30. Ræðumenn f kvöld: Einar Gíslason og Jóhann Pálsson. Allir velkomnir. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í bókaverzlun, ekki yngri en 25 ára. — Tilboð merkt „Bókaverzlun — 9419“, send- ist afgr. Mbl. fyrir 30. þ.m. Einbýlishús í smíðum sem er 2 hæðir og kjallari, 70 ferm. að flatarmáli til sölu á góðum stað í Kópavogi. Útborgun aðeins rúml. 100 þús. Mjög hagstætt verð, ef samið er strax. Geta verið 2 íbúðir. STEINN JÓNSSON, hdl. Lögfræðistofa — Fasteignasala Kirkjuhvoli — Símar 1-4951 og 1-9090. Heima- og Vogabúar athugið Skóverzlun og skóvinnustofa Gísla Ferdinantssonar Heimaveri, Álfheimum 4 annast móttökur á skyrtum fyrir okkur. Leggjum áherzlu á vandaða og örugga afgreiðslu með fullkomnustu vélum og vönu starfsfólki. Festum á tölur. Eftirtaldir staðir annast ennfremur móttöku á skyrtum fyrir okkur. Efnalaugin Hjálp Bergstaðastr. 28A, Simi 11755 Verzlunin Skeifan, Blönduhlíð 35. sími 19177 Efnalaug Kópavogs (sækir, sendir) Kársnesbraut 49. Sími 18580 Gunnarssundi 2. Sími 50389. Efnalaugin Hjálp Grenimel 12. Sími 11755 Skátabúðin Snorrabr. 58—62. Sími 15484 Búðin Ingólfsstræti 7. Efnalaug Hafnarfjarðar Og í afgreiðslu Skyrtunnar, Iiöfðatúni 2. ^SKYRTAN Sími 24866. Smábátavélar Fljót afgreiðsla — Hagstætt vetrð Skandiaumboðið Bjarni Pálsson Austurstræti 12 Símar 14869 — 12059

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.