Morgunblaðið - 26.01.1960, Qupperneq 24
VEÐRIÐ
Sjá veðurkort á bls. 2.
20. tbl. — Þriðjudagur 26. janúar 1960
Sjávarútvegurinn
Sjá bls. 13.
’^'vVÍi
S
Vörubíll
valt — lá
v/ð
stórslysi
SELFOSSI, 25. jan. — Á tólfta
tímanum sl. sunnudag varð al-
varlegt umferðarslys á Sel-
fossi. Vöruflutningabifreið frá
Efra-falli, X-1183, teg. Seania-
Vabis, ók með allmiklum
hraða niður Eyrarveg og lenti
utan í moldarbing, sem er þar
við veginn — tókst bíllinn á
loft, með þeim afleiðingum að
bæði framhjólin og fjaðrirnar
brotnuðu undan honum, þegar
hann lenti á veginum aftur,
en hann valt síðan út af og
hvolfdi þar. Einn farþegi var
í bílnum, auk bílstjórans, og
köstuðust þeir báðir út, áður
en bílnum hvolfdi.
Bílstjórinn lá undir palli
bifreiðarinnar, er að var kom-
ið, en farþeginn gat strax stað
ið á fætur, en mun hafa togn-
að í baki. Bílstjórinn höfuð-
kúpubrotnaði og er mikið
skrámaður um allan líkamann.
Leið honum vel eftir atvik-
um í kvöld, er fréttaritarinn
hafði tal af héraðslækninum.
Er mikið mildi að ekki skyldi
hljótast af stórslys. Báðir
mennirnir eru frá Eyrarbakka,
Guðjón Guðmundsson og Erl-
ingur Ævar. — GG.
Skákþing Reykjavíkur
hófst í fyrradag
SKÁKÞING Reykjavíkur hófst í
gær í Þjóðleikhúskjallaranum.
Þátttakendur eru 72, 18 í meist-
araflokki, 20 í 1. flokki og 34
í öðrum flokki.
í meistaraflokki er teflt í
tveimur 9mannariðlum og þrir
efstu í hvorum komast í úrslita-
keppni. Þeir tefla svo ásamt
Friðrik Ólafssyni um titilinn
„Skákmeistari Reykjavíkur.“
Meistaraflokkur
1 1. umferð meistaraflokks
urðu úrslit þessi:
í A-riðli: Sigurður Jónsson
vann Eið Gunnarsson, Eggert
Ótíð hamlar
veiðiim
HAFNARFIRÐI — Enn er tregt
fiskirí hjá línubátunum óg sja’i
an hægt að vera að sökum veð-
urs. Eitthvað mun þó hafa verið
betra hjá þeim bátum, sem eru
í útilegu, en það eru Haförnin,
Fákur og Fagriklettur. Flóa-
klettur og Faxaborg voru á sjó
í gær og höfðu um 6 lestir hvor.
Annars voru bátarnir yfirleitt
ekki úti, og reiknað var með því
í gærkvöldi, að ekki yrði sjó-
veður í dag.
Togaramir Júní, Bjami riddari,
Surprise og Ágúst, hafa allir selt
afla sinn á erlendum markaði
uýlega og náð fremur góðum
6Ölum. Röðull er á veiðum.
—G.E.
Drakk hairn undir
borð - stal bíínuin
Á SUNNUDAGSMORGUNINN
var hringt til lögreglunnar úr
húsum við Hjallaveg og vakm
athygli á því, að þar sæti stúlka
undir stýri á sendiferðabíl og
virtist sofandi.
Lögreglumenn komu á vett-
vang. Var þá klukkan farin að
halla í 12 á hádegi.
Stúlkan sagði frá því, að hún
hefði á laugardagskvöldið og að-
faranótt sunnudagsins, setið að
sumbli hjá kunningja sínum. —
Virðist sem stúlkan hafi drukkið
kappann undir borðið. Húr.
skýrði frá því, að hann heíði
sofnað meðan á drykkjunni stóð.
Hafði hún þá farið í vasa hans
tekið bíllyklana og tekið bílinn,
sem maðurinn átti ekki, en hafði
umráð yfir. Ekkert hafði komið
fyrir hana á ökuferðinni um bæ-
inn og hún sofnaði loks undir
stýri bílsins.
Árshátíð nk.
laugardag
I HAFNARFIRÐI. — Árshátíð/
) Sjálfstæiisfélaganna verður/
) haldin í Góðtemplarahúsinu;
\næstkomandi laugardagskvöldl
íog hefst með sameiginlegriV
kaffidrykkju kl. 8,30. Verðurt
' þá jafnframt haldið upp á(
)30 ára afmæli Stefnis. Nánar/
) verður skýrt frá árshátíðinni/
\ síðar hér í blaðinu.
Gilfer vann Daníel Sigurðsson.
Biðskák varð hjá Jónasi Þor-
valdssyni og Benóný Benedikts-
syni, einnig hjá Guðmundi Lár-
ussyni og Gylfa Magnússyni, en
Bjarni Magnússon sat yfir.
1 B-riðli: Grímur Ársælsson
vann Hauk Sveinsson, Bragi
Þorbergsson gerði jafntefli við
Karl Þorleifsson. Biðskák var hjá
Birni Þorsteinssyni og Halldóri
Jónssyni, en Ólafur Magnússon
sat yfir.
Fyrsti og annar flokkur
1 1. fl. er teflt í tveimur 10
manna riðlum. Yngsti þátttak-
andi mótsins, Jón Hálfdánarson,
12 ára, vann sína fyrstu skák.
í 2. fl. eru tefldar 9 umferðir
eftir svissneska kerfinu og er
yngsti þátttakandinn þar 11 ára.
Tvær umferðir verða tefldar á
þriðjudagskvöld og hefst taflið
kl. 8,15 í Breiðfirðingabúð. Síðan
verða umferðir tefldar á sunnu-
dögum og þriðjudögum og bið-
skákir á fimmtudögum, jafnan í
Breiðfirðingabúð.
Togarasölur
FYLKIR seldi í gær i Bremer-
haven 148 lestir á 91.300 mörk.
Einnig seldli vélbáturinn Sigur-
karfi frá Njarðvík 83 lestir á
4813 sterlingspund.
Kastaði steini
AKUREYRI, 25. jan. — Um kl.
1,15 sl. laugardagskvöld var lög-
reglan kölluð á hótel KEA á Ak-
ureyri, en þar hafði verið brotin
rúða í snyrtiklefa karla.
Hafði allstórum steini, 4—5
punda verið kastað inn um rúð-
una. Lögreglan hóf þegar leit
að sökudólgnum og fann fyrir
utan hótelið ungan mann, all-
ölvaðan og handtök hann. Játaði
hann að vera valdur að þessu
og greiddi sektina fyrir rúðu-
brotið.
Lokað gluggum
HÖFN, Hornafirði, 25. jahúar —
Síðdegis í gær létti hér til með
hægri vestanátt. Lagði þá mjög
sterka brennisteinsfýlu frá Skeíð
ará yfir kauptúnið. Loka varð
öllum gluggum vegna fýlu þess-
arar. — Gunnar.
Adeins hluti verka-
manna hefur kosn-
ingarétt í Dagsbrún
STJÓRNARKJÖRIÐ í Dagsbrún um sl. helgi leiddi í ljós, að aðeins
hluti af starfandi verkamönnum í Reykjavík, Kópavogi og Sel-
tjarnarnesi, sem er á félagssvæði Dagsbrúnar, nýtur réttinda til
að kjósa í félaginu.
Úrslit kosninganna urðu þau,
að A-listinn hlaut 1369 atkvæði
en B-listinn 627 atkvæði. Enn
færri voru á kjörskrá nú en í
fyrra og færri greiddu einnig at-
kyæði. Urslit kosninganna 1
fyrra voru þau að A-listinn hlaut
1268, en B-listinn 793 atkv.
íbúafjöldinn á félagssvæði
Dagsbrúnar mun vera um 80.000,
en á kjörskrá voru um 2300. Til
samanburðar má geta þess, að í
Verkamannafélaginu Hlíf í Hafn-
arfirði, sem er um 7000 manna
bær, eru um 700 félagar, og svip-
að hlutfall mun vera í Verka-
mannafélagi Akureyrarkaupstað-
ar. Miðað við þessi tvö félög,
ættu félagsmenn Dagsbrúnar að
vera a. m. k. 7000—8000.
Þessi samanburður sýnir, svo
ekki verður um villzt, að komm-
únistar halda völdum í Dagsbrún
með því að útiloka meirihluta
starfandi verkamanna frá rétt-
indum í félaginu. Þessi vinnu-
brögð eru algert einsdæmi í ís-
lenzkri verkalýðshreyfingu og
margfalt brot á öllum lýðræðis-
reglum.
Jafnframt því að útiloka þenn-
an stóra hóp verkamanna frá því
að geta neytt atkvæðisréttar,
halda kommúnistar ýmsum
flokksgæðingum á kjörskrá, svo
sem verkstjórum og mönnum úr
öðrum starfsgreinum og láta þá
greiða atkvæði.
Þess skal jafnframt getið, að
Framsóknarmenn studdu komm-
únista í kosningunum í félaginu
eftir föngum.
Frímerkjamálið:
*
IJrskurðaður
É gæzluvarðhald
YFIRHEYRSLUM hefur veri®
haldið áfram síðustu daga í rann-
sókn frímerkjamálsins. Síðast-
liðið laugardagskvöld var skrif-
stofustjóri Landssímans, Einar
Pálsson, úrskurðaður í gæzlu-
varðhald. Aðrar fregnir af rann-
sókn málsins lágu ekki fvrir í
gærkveldi.
Bókmennlakvöld
í ameríska bóka-
safninu
NÆSTA bókmenntakvöldið í
amersíka bókasafninu að Lauga-
veg 13 verður haldið í kvöld,
þriðjudag 26. janúar og hefst kl.
8,30 e.h. Hafa nokkur slík bók-
menntakvöld verið haldin und-
anfarið í vetur og reynzt mjög
vinsæl. Er þá lesið upp úr verk-
um enskra og amerískra höfunda
og sum verkin skýrð að nokkru.
í þetta sinn verða lesnar nokkrar
smásögur eftir enska höfunda,
og fjalla þær allar um hafið og
nefnast einu nafni „Stories of
the Sea“.
Öllum er að sjálfsögðu heimilt
að sækja þessi bókmenntakvöld.
Hlaut
verðlaun
/VOICE of America útvarpið')
)efndi í nóvember sl. til könn-i
)unar á því hverjir hlustuðu á\
) útvarpssendingar þess. —C
^Fengust rúml. 65.000 bréf frá/
.öllum löndum heims nema/
' Norður-Kóreu, Norður-Viet-
) nam og Albaníu. Dregin voru'j
lút nöfn 15 bréfritara, sem fá\
)í verðlaun „transistor“ útvarps(
i tæki. Meðal þeirra heppnu var (
. einn íslendingur, Ragnar Þor-
. steinsson, kennari við Reykja-/
' skóla.
• SKÁK •
EINS og skýrt var frá í sunnu-
dagsblaðinu hefst nú skákkeppni
á tveim borðum hér í blaðinu.
Á öðru borðinu keppa Keflavík
og Hafnarfjörður, en á hinu
Akranes og Keflavík. Sveitirnar
hafa nú leikið byrjunarleikina
og eru þeir þannig.
HAFNARFJÖRÐUR
Stígur Herlufsen
Sigurgeir Gíslason
ABCDEFGH
ABCDEFGH
KEFLAVÍK
Páll G. Jónsson
Borgþór H. Jónsson
1. d2—d4 Rg8—f6
2. c2—c4 e7—e6
★
Á hinu borðinu er byrjunin
þannig:
KEFLAVÍK
Ragnar Karlsson
Hörður Jónsson
ABODEFGH
mxm, mm,a
ABCD EFGH
AKRANES
Guðni Þórðarson
Guðmundur P. Bjarnason
1. e2—e4 c7—c5
2. Rgl—f3 d7—d6
3. d2—d4