Morgunblaðið - 04.02.1960, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.02.1960, Blaðsíða 15
Fimmtuðaerur 4. febrúar 1960. M a n c ri \ n r 15 ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA SJÁL FSTÆÐISMANNA RITSTJÖRI: BJARNI BEINTEINSSON Stjórn og varastjórn F.U.S. í Vestmannaeyjum. — Efri röð frá vinstri: Jón Pálsson, varaform., Theódór Georgsson, ritari, Sigurgeir Sigurjónsson, Júlíus Magnússon. Neðri röð: Ueifur Ársæls- son, Brindís Einarsdóttir, Sigfús J. Johnsen, formaður, Sigrún Þorsteinsdóttir, gjaldkeri og Ey- jólfur Marteinsson. Aldargömul rödd i útvarpinu Fjölbreytt félags líf FUS í Vest- mannaeyjum A onnað hundrað nýir félagsmenn AÐALFUNDUR FUS í Vest- mannaeyjum var haldinn 8. des. sl. Fóru þar fram venjuleg aðal- fundarstörf og auk þess urðu miklar umræður um málefni fé- lagsins og framtíðarstarf. f>órarinn Þorsteinsson, sem verið hefur formaður félagsins að undanförnu, lét af því starfi, þar sem hann hefur náð aldurs- hámarki. Formaður var kjörinn Sigfús J. Johnsen, og aðrir í stjórn: Theódór Georgsson, Eyj- ólfur Marteinsson, Jón B. Páls- son, Sigrún Þorsteinsdóttir og Leifur Ársælsson. í varastjórn voru kosin: Brimdís Einarsdótt- ir, Júlíus Magnússon og Sigur- geir Sigurjónsson. Skemmtikvöld Á þrettándanum gekkst félag- ið fyrir því, að haldinn var grímudansleikur. Var hann hald- inn í tvennu lagi fyrir unglinga og eldri félagsmenn. Grímudans- leikurinn var mjög vel sóttur og hinn ánægj ulegasti í alla staði. Ákveðið hefur verið að halda skemmtikvöld annað hvert mið- vikudagskvöld og verða þá höfð ýms skemmtiatriði eins og t. d. bingóspil, félagsvist og að lok- um dans. sæti: Loftur Magnússon, Lárus Long, Árni B. Johnsen, Stefanía Guðmundsdóttir og Stefanía Þorsteinsdóttir. Stjórnmálanámskeið Síðastliðið fimmtudagskvöld var stjórnmálanámskeið sett í Samkomuhúsinu, en þátttakend- ur eru um 40. Flutti Bragi Hann- esson, lögfræðingur, þá erindi um ræðumennsku. Fundarstjóri var Sigfús J. Johnsen, en fundarrit- ari Júluís Magnússon. Á eftir voru umræður um staðsetningu sundhallar í Eyjum. A föstudags- kvöldið ræddi Bragi Hannesson um fundarsköp. Fundarstjóri var Sigurður Hallvarðsson, en Júlíus Magnússon fundarritari. Auk þess mætti á fundinum Ársæll Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, og flutti hann fróðlega ræðu um Vestmannaeyj- ar fyrr og síðar. Á eftir voru umræður. Stjórnmálanámskeiðinu hefur verið haldið áfram og hafa ýms bæjarmál verið rædd. 1 stjórnmálanámskeiðsnefnd F.U.S. í Vestmannaeyjum eiga sæti: Sigurður Hallvarðsson, Arn ar Sigurmundsson, Erling Gunn- laugsson og Laufey Einarsdóttir. Næstu verkefni Unnið er að því að endur- skipuleggja spjaldskrá félagsins. Auk þess hefur félagið fengið til afnota fyrir starfsemi sína her- bergi, þar sem leshringir geta starfað og nefndir félagsins. Áformað er að farnar verði stuttar ferðir um Eyjarnar í sum- ar á vegum félagsins, auk ferða- lags um kjördæmið. Hafa ungir Sjálfstæðismenn í Vestmanna- eyjum mikinn áhuga fyrir því að kynnast starfsemi annarra fé- laga ungra Sjálfstæðismanna í Suðurlandsk j ördæmi. Þá mun félagið gangast fyrir vormóti um hvítasunnuna. Er þess vænzt, að þar verði fjöl- mennt. í ferðanefnd F.U.S. í Vest- mannaeyjum eiga sæti: Dorothea Einarsdóttir, Kjartan Úlfarsson, Elisabet Arnoddsdóttir, Guðni Grímsson og Jóhann Guðmunds- son. Á annað hundrað nýir félags- menn hafa gengið í félagið að undanförnu. Eins og sjá má af þvi, sem sagt hefur verið, er starfsemi F.U.S. í Vestmannaeyjum mjög þrótt- mikil og stjórn félagsins og for- manni, Sigfúsi J. Johnsen til mikils sóma. ÞÁTTURINN „Spurt og spjallað í útvarpssal", sem útvarpað var sl. sunnudag vakti mikla athygli hlustenda. Rætt var um hvort breytinga væri þörf á launakerfi okkar. Stjórnandi þáttarins hafði að venju valið þáttakendur úr ýmsum áttum og komu í þess- um þætti fram verkfræðingur, verkamaður, atvinnurekandi og iðnverkamaður. Umræður urðu allskemmtilegar, en aldrei þessu vant urðu þrír þátttakendur sammála um nokkur meginatnði, t. d. um það,að rétt sé að launa menn misjafnlega vel miðað við menntun launþegans, ábyrgðina sem fylgir starfinu o. s. frv. — Einnig voru þeir sammála um að launa bæri að öðru jöfnu betur þau störf, sem væru sérstaklega hættuleg eða erfið. Einn þátttakandi skar sig þó algerlega úr og var ekki sam- mála hinum um neitt, sem máli skipti. Var það iðnverkamaður- inn, sem er þekktur ungkomm- únisti. Enda þótt hann hafi eigi komið þarna formlega fram sem fulltrúi kommúnista, túlkaði hann þó hina opinberu stefnu þess flokks í launamálum, sem sé, að laun allra þjóðfélagsþegna skuli vera hnífjöfn, án nokkurs tillits til sérstakra aðstæðna. Kenningu þessa settu upphafs- menn kommúnismans fram fyrir um það bil 100 árum og hafa kommúnistaflokkarnir eigi fallið frá því opinberlega, að þetta sé það mark, sem keppa beri að. Aðspurður lýsti þessi ungi fulltrúi kommúnista margsinnis yfir því, að regla þessi ætti að gilda undantekningarlaust. Tók hann m .a. fram í þessu sam- bandi að hann sæi enga ástæðu til þess að laúna betur þá, sem ynnu sérstaklega hættuleg eða erfið störf, svo sem sjómenn. Hins vegar yrðu slíkir menn að vera vel tryggðir ef þeir fær- ust við vinnu sína! Þótti spjall- mönnum öðrum lítil huggun af því fyrir hinn látna. Yfirlýsihgar þessa unga manns vöktu hina mestu athygli og jafnframt undrun annarra þátt- takenda svo og að sjálfsögðu út- varpshlustenda. Héldu menn að þessi aldargamla kenning komm- únista væri löngu dauð og úrelt og mörkuðu það m. a. af því; að launamismunur er hvergi í heim- inum meiri en í Rússlandi. En íslenzkir kommúnistar virðast nú hafa dustað rykið af Marx gamla og Engels og flytja hinar fjarstæðukenndustu kenningar þeirra ómengaðar í ríkisútvarp- inu. Með því að hálærður marxisti stjórnar æskulýðssíðu Þjóðvilj- ans væri ekki úr vegi að þar yrði upplýst hvort þetta er enn yfirlýst stefna kommúnista í launamálum. Þætti m. a. sjó- mönum fengur að því að fá af- dráttarlausar skýringar komm- únista í þessum efnum. Heimdallarfundur i kvöld kl. 8,30 Kætt verður um fræðslulöggjöfina. Framsögumenn: Jakob R. Möller, Haraldur Gíslason, Lúðvík Karlsson og Stefán Snæbjörnsson. Ritgerðasam• keppni Heimdallar HEIMDALLUR hefur ákveðið að efna til ritgerðasamkeppni um efnið „Samrýmist þjóðnýting lýðræðisþjóðfélagi?“ Eftirfarandi reglur gilda um samkeppnina: Ritgerð- irnar skulu vera 1500—6000 orð. Rétt til þátttöku hefur allt ungt fólk í Reykjavík á aldrinum 16—25 ára. Ritgerðirnar mega ekki hafa birzt áður opinberlega. Stjórn Heimdallar áskilur sér rétt til birtingar innsendra ritgerða. Ritgerðirnar skulu hafa borizt til skrifstofu félagsins í Valhöll við Suður- götu eigi síðar en 15. apríl nk. Ritgerðunum skal skilað í handriti undirrituðu dulnefni, en nafn höfundar og heimilis- fang fylgi með í lokuðu umslagi, merktu dulnefninu. Fimm manna dómnefnd dæmir ritgerðirnar. Verðlaun fyrir beztu ritgerð að áliti dómnefndar er ferð með Gullfossi til Kaup- mannahafnar og heim aftur. Dómnefndinni er heimilt að veita fleiri ritgerðum verðlaun eða viðurkenningu. Einnig er heimilt að verðlauna sérstaklega ritgerðir eftir höfunda á aldrinum 16—20 ára. 1 skemmtinefnd félagsins eiga Mynd af nokkrum þátttakendum á stjórnmálanámskeiðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.