Morgunblaðið - 24.02.1960, Side 2

Morgunblaðið - 24.02.1960, Side 2
2 MORCJITSHJ.AÐlh Miðvikudagur 24. febrúar 1960 80-90 þús. sparisjoðs bækur í einum banka Er vaxtahækkunin í þagu „hinna ríku“ eða hins almenna sparifjáreig anda ? FÓSTBRÆÐURNIR, kommún istar og Framsóknarmenn, á- saka núverandi ríkisstjórn fyrst og fremst fyrir tvennt. I fyrsta lagi fyrir, að hún hafi fellt gengi krónunnar alltof mikið. I öðru Iagi áfellast þeir rík- isstjórnina fyrir vaxtahækk- unina, sem þeir segja, að fyrst og fremst sé gerð í þágu „hinna ríku“. Það er rétt að athuga þessi tvö atriði nokkru nánar. Ef gengisfelling sú, sem rík- isstjórnin beitti sér fyrir eða réttara sagt viðurkenndi að orðin var, var of mikil, hvers vegna fluttu þá ekki stjórnar- andstæðingar breytingartil- Iögu um það, að hún skyldi vera minni? ♦ Bjöm stóð einn! Kommúnistar fluttu enga tillögu, er gengi í þá átt. Fram sóknarflokkurinn ekki heldur. En einn Framsóknarþingmað- ur, Björn Pálsson, flutti þó breytingartillögu um það, að gengislækkunin skyldi vera nokkru minni en lagt var til í efnahagsmálafrumvarpi rik- isstjórnarinnar. Hann Iagði til, að einn dollar skyldi jafngilda 30 kr. í stað 38 kr., eins og gert var ráð fyrir í stjómarfrum- varpinu. En greiddu Framsóknar- menn og kommúnistar þá ekki atkvæði með þessari breyt- ingartillögu Björns Pálssonar? Nei, það gerðu þeir sannar- lega ekki. Tillaga hans fékk aðeins eitt einasta atkvæði — hans sjálfs — á Alþingi! Þegar á þetta er litið, virð- ist árásir stjórnarandstæðinga á rikisstjórnina fyrir að hafa fellt gengi krónurnar of mikið, ekki hafa við mikil rök að styðjast. ♦ Aumleg sjálfhelda Um hitt árásaratriði stjóm- arandstöðmnnar, að vaxta- hækkunin sé fyrst og fremst framkvæmd í þágu „hinna ríku“ og bitni harkalega á öll- um almenningi, er það að segja, að bæði kommúnistar og Framsóknarmenn hafa hald ið því fram af miklu offorsi, að það séu einmitt „hinir ríku“, sem njóti þeirra for- réttinda" að ráða yfir öllu láns fé bankanna. Þeir hafi á und- anförnum árum fengið að hrúga upp skuldum og bruðlað með fjármagn þjóðarinnar. Ætlast nú kommúnistar og Framsóknarmenn til þess, að almenningur trúi því, að vaxta hækkunin sé aðallega í þágu „hinna ríku“, ef það er rétt að það séu fyrst og fremst þeir, sem sktuldi og ráði yfir lánsfé bankanna? Sjá ekki stjórnarandstæðing ar, í hve aumlega sjálfheldu þeir eru komnir með þessum málflutningi? En ef það er rétt að hinir ríku hafi fyrst og fremst setið að lánsfé bankanna, hvers vegna eru Framsóknarmenn og kommúnistar þá á móti vaxtahækkuninni? Eru þeir þá allt í einu farnir að standa vörð um hagsmuni efnamann- anna í þjóðfélaginu? ♦ 80—90 þús. sparis j óðsbækur En athugum svo aðra hlið á málinu. Hverjir eru það, sem átt hafa þá peninga, sem bankar og aðrar lánastofnanir hafa verið að lána út á undanförn- um árum? Það eru allir þeir mörgu, sem hafa sparað, þeir sem nafa lagt spariskildinga sína ínn í lánastofnanir í þeirri trú að þeir væru að tryggja með því framtíð sína. Til dæmis um það, hve stór hópur sparifjár- eigendur í landinu eru, má nefna það, að í einum bank eru 80—90 þús. sparisjóðsbæk- ur. Þetta sýnir fyrst og fremst að það er almenningur í land- inu, sem á spariféð. En hvernig hefur verið far- ið með þetta fólk, sem staðið hefur undir Iánsfjárþörf at- vinnuveganna og uppbygging- ar og framkvæmda í landiau? ♦ Fengu enga vexti í 10 ár Það hefur verið farið þannig með það, að það hefur á sl. 10 árum ekkert fengið í vexti af sparife sínu Verðbólgan hefur stöðugt verið að éta upp spari- skildinga þess. Það er hlutur þessa fólks, sem er verið að rétta moð vaxtahækkuninni og með við- leitninni til þess að skapa jafn vægi í efnahagsmálum lands- manna. ♦ Sparsemi og ráðdeild Núverandi ríkisstjórn hefur með viðreisnarráðstöfunum sínum til sköpunar jafnvægis í efnahagsmálum þjóðarinnar viljað gera sparsemi og ráð- deild að grundvelli heilbrigðs efnahagslífs. Allir íslendingar, hvar í stétt og stöðu, sem þeir standa, hvort sem þeir eru launþegar eða framleiðendur, bændur eða sjómenn, iðnaðar- menn, atvinnurekendur eða verzlunarmenn eiga mikið und ir þvl komið, að þessar tillög- ur komist í framkvæmd og nái tilgangi sínum. Heiðarnar færar í GÆR var unnið að því að hreinsa þjóðveginn í Öxnadaln- Dagskrá Alþingis í DAG er boðaður fundur í sam- einuðu Alþingi á venjulegum tíma. Fjórtán mál eru á dagskrá. 1. Fjarskiptastöðvar í íslenzk- um skipum, þáltill. Hvernig ræða skuli. 2. Lögreglumenn, þáltill. Hvernig ræða skuli. 3. Bygging- arsjóðir, þáltill. Ein umr. 4. Hafn arstæði við Héraðsflóa, þáltill. Frh. einnar umr. 5. Jarðboranir í Krýsuvík og á Reykjanesi, þál- till. Ein umr. 6. Hagnýting far- skipaflotans, þáltill. Ein umr. 7. Vinnsla sjávarafurða á Siglu- firði, þáltill. Ein umr. 8. Fisk- veiðasjóður íslands, þáltill. Ein umr. 9. Veðdeild Búnaðarbank- ans, þáltill. Ein umr. 10. Siglu- fjarðarvegur, þáltill. Ein umr. 11. Samstarfsnefndir launþega og vinnuveitenda, þáltill. Ein umr. 12. Raforkumál, þáltill. Ein umr. 13. Þjóðháttasaga íslendinga, þál- tiU. Fyrri umr. 14. Bústofnslána- deild, þáltill. Fyrri umr. um og var orðið fært alla leið norður til Akureyrar fyrir stóra bíla. Snjór var einkum í Öxna- dal og á Öxnadalsheiði, og mun hafa verið þung færð þar. Á mánudag lagði áætlunarbíll af stað suður frá Akureyri og komst þann dag að Blönduósi. í fyrradag var farið í Bröttu- brekku og lagað það, sem laga þurfti og er því fært í Dalina. Þeir heiðarvegir, sem yfirleitt eru færir að vetrinum, eru fær- ir eins og stendur, samkvæmt upplýsingum frá Vegamálaskrif- stofunni. Leiðrétting I BLAÐINU í gær var þess get- ið, að flugmálastjóri, Agnar Kofoed-Hansen, hefði nýlega verið heiðraður. Var hann gerð- ur að heiðursfélaga Flugvisinda- félags Indlands, en ekki íslands, eins og stóð í fréttinni. Þess má og geta, að tiltölulega fáir menn utan Indlands hafa hlotið þenn- an heiður. Eisenhower í Brazilíu BRAZILÍU 23. febrúar. — Eisen- hower forseti kom í dag til Braz- ilíu, hinnar nýju höfuðborgar Brazilíu. Kubichek, forseti, tók á móti honum. Þeir Eisenhower gáfu út sameiginlega yfirlýsingu þar sem lögð var áherzla á aukið efnahagssamstarf frjálsra þjóða. til Brazilíu kom Eisenhower frá Puerto Rico. Síðan heldur hann til Argentínu, Chile og Uruguay, en i þessari ferð fer forsetinn um 15,000 mílur. Japanir fagna TOKYO, 23. febrúar. — Tokyo- borg ómaði óvænt af fagnaðar- látum í dag, því Michiko prins- essa ól frumburð sinn í morgun. Fréttin kom óvænt, því búizt hafði verið að fæðingunni eftir viku. Ekki varð gleðin hvað minnst vegna þess, að prinsessan eignaðist son. Heillaóskir bárust hvaðanæva að og tveimur stund- um eftir fæðinguna varð jarð- skjálfti í borginni. Slík var gleði manna, að verðbréf stigu í kaup- höllinni. • Fjórir prestar húsnœðis- lausir í brauðum sínum NU er svo komið að í fjórum prestaköllum hér á landi eru prestarnir húsnæðislausir. Fyrir nokkrum árum var sera Öskar Finnbogason kosinn prest- ur vestur á Staðarhrauni. Hann er ekki enn farinn að geta flutzt þangað. Bóndinn á prestsjörðinni hefur lífstíðaráburð þar. í hinni litlu og fámennu sókn hefur ekki tekizt að fá húsnæði handa sókn- arprestinum. Af þessum sökum Stanzlaus bylur á Ströndum GJÖGRI, Ströndum, 23. febrúar. — Stanzlaus norðanbylur hefur verið hér síðastliðna viku. — I morgun stytti upp og var sólskin fram yfir hádegið. Síðdegis skall aftur á norðanbylur og sést ekki húsa á milli. En við hefur rekið hér á ströndina það sem af er þessum vetri og er það mikill búhnykk- ur fyrir bændur, því bændur á Ströndum hafa haft góðar tekjur að rekavið. —Regína. Tvö slys á mánudag TVÖ slys urðu hér í bænum á mánudag. Árdegis varð árekstur á horni Vesturgötu og Ægisgötu. Bíll kom Ægisgötuna, en á þess- um gatnamótum er skilyrðislaus biðskylda, — ók inn á gatnamót- in og rakst þar á bíl. Við árekst- urinn snerisfr bíllinn til. Höggið kom aftan til á bílinn, sem er VW. — Þegar bíllinn snerist, rakst hann á ljósastaur. Rak bíl- stjórinn, Hafsteinn Sæmundsson Háuhlíð 10, höfuðið í gegnum framrúðuna og skarst við það á höfði. Bíllinn hafði stórskemmzt. Maðurinn var fluttur í slysavarð stofuna. Hitt slysið varð laust fyrir klukkan 1 á gatnamótum Laug- arnesvegar og Sunglaugavegar. Ung súlka, Jenný Leifsdóttir Laugamesvegi 62, ætlaði að ná í strætisvagn. Gæti hún sín ekki sem skyldi og hljóp fyrir bíl. Hún meiddist lítils háttar. Kveikt í heystabba f GÆR kl. 16.36, var Slökkvi- liðið hvatt að túni innarlega við Miklubrautina. Hafði kviknað þar í heystabba, eign Þórhalls Jóhannssonar í Glaðheimum 14. Er talið líklegt að krakkar hafi kveikt þarna í. Urðu miklar skemmdir á heyinu. hefur sr. Öskar setið hér í Reykja vík og orðið að þjóna prestakall- inu héðan. Tveir búsettir í Reykjavík Presturinn á hinum sögufræga stað Borg á Mýrum, hefur einnig orðið að flytjast á brott úr sókn sinni. Pressetrið á Borg brann í fyrra. Hefur presturinn, séra Leó Júlíusson, hvergi fengið inni í sókninni. Hann hefur lengst af a.m.k. haft aðsetur hér í Reykja- vík þar sem tekizt hefur að út- vega honum íbúð. Nývígður prestur til Brjáns- lækjar, séra Sigurjón Einarsson, getur ekki sezt að á prestsetrinu, því þar er ekki húsnæði fyrir hann, en búið er á prestsetrinu. Mun séra Sigurjón eins og starfs- bræður hans á Staðarhrauni og Borg, verða að þjóna brauði sínu með „aðsetri I Reykjavík". Húsin í niðurníðslu Loks er svo Mosfell í Gríms- nesi. — Nýkosinn prestur þar, sr. Rögnvaldur Finnbogason, hefur ekki talið sér fært að setjast að á prestsetrinu vegna þess hve húsið er lélegt orðið. Var það óyggt fyrir 40 árum, er séra Ingi mar Jónsson, síðar skólastjóri, var þar prestur. Sama máli gegnir um útihús prestsetursins. Presturinn telur þau þurfa sem og íbúðarhúsið, — gagngerrar endurbóta við, áður en þau eru tekin í notkun. Sr. Rögnvaldur á nú heima á Selfossi. Við borð mun liggja að víðar á landinu sé svo ástatt í húsnæð- ismálum presta þjóðkirkjunnar, að svo geti farið að þeir verði að yfirgefa prestsetrin vegna þess hve léleg þau eru. Vnæ^jule^ir hátíðatónleikar HÚSFYLLIR var á hátíðatónleik um þeim í Þjóðleikhúsinu í fyrra kvöld, sem Sinfóníuhljómsveit íslands hélt í tilefni 150 ára af- mælis pólska tónsnillingsins Frederic Chopins. Stjórnandan- um Bohdan Wodiczko frá Varsjá og einleikurunum, Jórunni Viðar og Rögnvaldi Sigurjónssyni var afbuiða vel tekið og þau kölluð fram hvað eftir annað. í upphafi tónleikanna rakti dr. Páll Ísólfs- son æviatriði og listaferil Ohop- ins. Á efnisskránni voru tvö verk eftir pólska tónskáldið og sam- tíðarmann Chopins, Moniuszko og eftir Chopin sjálfan voru leik- in tvö verk: Grande Polonaise Briilante og Píanókonsert nr. 1 í e-moll. Meðal gesta voru for- seti islands og frú Var mikill hátíðablær yfir hinum fjölmennu tónleikum. Z' NA /Shnútor y SV 50 hnútor ¥: Snjókoma 1 V Skúrir 9 OSi 1 K Þrumur miz. Kuldoskil ^ Hitoskt/ H HaS L LctgS HÆÐ yfir Grænlandi, en lægð um 700 km. suður af Vesc- mannaeyjum. Veðurhorfur kl. 22 í gær- kvöldi: Suðvesturland, Breiða fjarða og SV-mið—Breiða- fjarðarmiða: NA-stinnings- kaldi, skýjað með köflum. Vestfirðir til Austfjarða, Vestfjarðamið til SA-miða: NA-kaldi eða stinningskaldi, smáél. Suðausturland: NA- stinningskaldi, skýjað með köflum. Horfur á fimmtudag: Aust- an og NA-átt, hvasst og slydda eða rigning við Suðurströnd- ina, en frost og víða él norðan- lands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.