Morgunblaðið - 24.02.1960, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.02.1960, Blaðsíða 20
20 MORGVNBLÁÐIÐ Miðvikudagur 24. febrúar 1960 Ég hlýt að hafa hrópað eins hátt og ég gat, því að ég fann að Condor greip með heljarafli um handlegginn á mér. „Reynið að stilla yður, í ham- ingjunnar bænum“. Hann hljóp að kveikjaranum og kveikti aft- ur ljósið. Aðeins lampinn á borð- inu varpaði fölri Ijóskeilu und- an gulum skerminum. „Fjandinn hafi það. Maður verður að fara með yður eins og sjúkling. Þarna — setjist þér nú aftur. Það hafa miklu alvarlegri mál verið rædd á þessum stól.“ Hann færði sig nær mér: „Og gerið þér svo vel að hafa hljótt um yður. Æsið yður um fram allt ekki upp. Þér komið og kvein- ið: „Ég þoli það ekki“. En slíkt veitir mér ekki næga vitneskju. Ég verð að vita, hvað það er sem þér þolið ekki. Hvað er það, sem yður finnst svo skelfilegt við þá staðreynd, að þetta veslings barn skuli vera dauðástfangið?“ Ég dró andann djúpt að mér og ætlaði að svara, en Condor hélt áfram: „Verið þér ekki að flýta yður neitt. Og um fram allt, blygðist yðar ekki. Ég get vel skilið það, að maður verði skelfdur þegar ástríðufullri ástarjátningu er dembt yfir mann. Það eru eins bjánar, sem hafa ánægju af að vera svokölluð „kvennagull“ að- eins fífl. Sannur karlmaður verð- ur miklu fremur skelfdur við þá vitneskju, að kona hafi fellt til hans sjúklegan ástarhug, ef hann getur ekki endurgoldið tilfinn- ingar hennar. Ég get skilið það allt. En þar sem þér eruð svo æstur, svo mjög æstur, þá hlýt ég að spyrja hvort hér sé ekki um eitthvað alveg sérstakt til- felli að ræða . . .“ „Hverskonar tilfelli? “ „Ja . . . sú staðreynd, að Edith . . . Það er erfitt að koma orðum að slíku . . . ég á við . . . fyllir . . . fyllir líkamslýti hennar yður sérstökum viðbjóði?" „Nei, alls ekki“, sagði ég með ákafa. Hafði það ekki einmitt Ég skal fleygja vistum niður til ykkar á morgun, Markús. Ágætt. Og Súsanna, hugsaðu vel um Baldu.r verið vanmáttur hennar og varn- arleysi, sem laðaði mig svo ómót- stæðilega að henni. Og þegar það kom fyrir, að tilfinningar mínar til hennar nálguðust á einhvern dularfullan hátt blíðu elskhugans, þá var það einungis vegna þess, að þjáningar hennar einstæðings- skapur hrærðu mig til meðaumk unar. „Nei, alls ekki“ endurtók ég. — „Hvernig getur yður dott- ið slíkt í hug?“ , „Gott og vel. Sannfærir mig að nokkru leyti. Sem læknir fær maður tækifæri til að athuga slíkar sálfræðilegar hindranir hjá fólki, er virðist fullkomlega heil- brigt. Ég verð að viðurkenna, að ég hefi aldrei getað skilið þá menn, sem hafa látið hvert minnsta líkamlegt afbrigði kon- unnar fylla sig viðbjóði, en það eru margir menn sem líta slíkt svo aívarlegum augum, að um ástamök verður alls ekki að ræða. Því miður sigrast enginn á þessarri óbeit, fremur en flest- um öðrum eðlishvötum — og þess vegna gleður það mig alveg sér- staklega mikið að heyra, að það skuli ekki vera lömun hennar, sem veldur áhyggjum yðar. Þess vegna get ég aðeins ýmyndað mér . . . má ég segja alveg eins og mér býr í brjósti?" „Að sjálfsögðu". „Að það sé ekki staðreyndin, sjálf, sem vekur hrylling yðar, heldur hugsunin um afleiðingarn ar ... ég á við, að þér séuð ekki hræddur við ást aumingja stúlk- unnar, heldur hitt, að fólk kunni að frétta það og hæðast að því . . . Að mínum dómi eru þessar öfgafullu áhyggjur yðar ekkert nema sérstakur ótti — ef ég má orða það svo — við að verða hlægilegur í augum annarra, í augum herfélaga yðar“. Mér fannst því líkast, sem Condor hefði stungið mig í hjart- að með einni af hinum fínu, beittu nálum sínum. Því að í und irmeðvitundinni hafði ég fyrir löngu fundið það, sem hann var nú að segja, en aldrei leyft mér Ég verð sú bezta hjúkrunar- kona sem hann hefur nokkurn tíma haft. Veizt þú það Markús, að hugsa það. Alveg frá byrjun hafði ég verið hræddur við það, að félagar mínir, liðsforingjarn- ir, myndu hæðast að þessu undar lega sambandi mínu við bækluðu stúlkuna og henda gaman að því, á þann góðlátlega hátt, sem sér- staklega einkennir Austurríkis- menn. Ég vissi allt of vel. hvern- ig þeir gerðu gys að hverjum þeim, sem þeir mættu í fylgd með ófríðri og óaðlaðandi konu. Það var af þessum sökum einum, sem ég hafði ósjálfrátt dregið markalínu í lífi mínu, milli þess- arra tveggja heima, herdeildar- innar annarsvegar og Kekesflava hinsvegar. Condor hafði hitt nagiann á höfuðið. A því augna- b’iki, sem mér urðu Ijósar til- finningar hennar, hafði ég skammazt mín, eingöngu vegna þess, hvað annað fólk myndi hugsa — faðir hennar, Ilona, Josef, félagar mínir — hafði jafn vel skammast mín fyrir hina skaðvænlegu meðaumkvun mína. Allt í einu fann ég hina segul- mögnuðu snertingu Condors á hné mér. „Nei, þér þurfið ekki að blyðgð ast yðar fyrir neitt. Ef nokkur getur skilið ótta yðar. við aðhlát- ur félaga yðar, þá er það ég. Þér hafið séð konuna mína, er ekki svo? Enginn gat skilið hvers- vegna ég kvæntist henni. Allt í þessu lífi, sem víkur frá hinni beinu og, ef svo mætti segja, venjulegu linu, vekur fyrst undr- un fólks og síðan hneykslun. Það barst samstundis út meðal em- bættisbræðra minna, að ég hefði beitt við hana rangri læknisað- gerð og kvænst henni af einskær- um ótta. Hinir svokölluðu vinir mínir breiddu það hinsvegar út, að hun ætti mikla peninga, eða ættí von á arfi. Móðir mín, mín eigin móðir, neitaði í tvö ár að taka á móti henni, því að húxi hafði ætlað sér annað kvonfang, — dóttur prófessors — eins fræg- asta sérfræðmgs síns tima — og ef ég hefði kvænzt henni, þá heíði ég ÍRuan þriggja vikna feng að í fyrstu hélt ég að Súsanna væri á eftir þér og ég var að verða afbrýðisöm. ið kennaraembætti við háskóla, orðið prófessor og getað lifað áhyggjulausu og góðu lífi, það sem eftir var æfinnar. En ég vissi, að það var úti um konuna mína, ef ég yfirgæfi hana. Hún trúði á mig — mig einan, og ef ég hefði svipt hana því trausti, þá befði hún ekki getað lifað lengur. Ég get líka viðurkennt það fyrir yður, að ég hefði aldrei séð eitir þcirri ákvörðun minni. . . . Trúið mér“ — og skyndilega fann ég hlýju og viðkvæmni, sem virtist streyma frá honum. — „Það er tilvinnandi að taka á sig þungt skyldustarf, og beita sjálf- an sig hörðu, ef maður íéttir ein- hverjum öðrum lífið með því“. Hinn djúpi, titrandi tónn í rödd hans snart mig. Ég fann veik- an sviða í brjósti mér, þennan þrýsting, sem ég var farinn að kannast svo vel við, eins og hjartað væri að þenjast út. Ég fann meðaumkvunina ólga fram í hugann, enn einu sinni, við hugsunina um hið vonlausa á- stand þessa ógæfusama barns. Ég vissi, að ofsaleg geðshræring, sem ég stóð algerlega vanmáttugur gagnvart, myndi brjótast fram innra með mér. En — „ekki að gefast upp“, sagði ég við sjálfan mig. „Láttu ekki flækja þér í þetta aftur.“ Ég leit því upp og sagði ákveðið: „Hr. læknir, hver maður þekk- ir takmörk sinnar eigin getu og máttar, betur en nokkur annar. Ég verð því að ráða yður ein- dregið frá að treysta á mig. Það er nú á yðar færi, en ekki mínu, að hjálpa Edith. Ég hefi þegar gengið miklu lengra, en í þessu máli en ég ætlaði mér í fyrstu og ég get sagt yður það hreinskiln- islega, að ég er ekki eins . . . eins góður og fórnfús og þér hald ið. Ég þoli ekki að vera tilbeð- inn, dýrkaður, þoli ekki að þurfa að haga mér eins og ég óskaði þess eða sætti mig við það. Það er betra að þér skiljið allar að- stæður nú, en að þér verðið fyr- ir vonbrigðum síðar. Ég fullvissa yður um, að mér er bláköld alvara, þegar ég vara yður við að treysta á mig, ofmeta mig“. Orð mín hljóta að hafa verið mjög sannfærandi, því að Condor leit á mig, rannsakandi og ekki laus við óróleika í svipnum. „Maður gæti næstum haldið, að þér væruð nú þegar búinn að taka einhverja fasta ákvörðun". Svo spratt hann skyndilega á fætur. „Ég vil heyra allan sannleik- ann, ekki hálfan. Eruð þér nú Þakka þér skjallið Sirrí. En ég býst við að Súsanna hafi önnur áhugamál núna. þegar búinn að stíga eitthvert . . . óafturkallanlegt skref?“ Ég stóð líka á fætur. „Já”, sagði ég og dró lausnar- beiðnina upp úr vasanum. — „Hérna. Gerið þér svo vel að lesa það sjálfur." Gordon tók hikandi við skjal- inu og gaf mér órólegt hornauga, áður en hann gekk að borðinu, þar sem birtan var meiri. Hann las það hægt og þegjandi. Svo braut hann það saman og sagði ofur rólega: „Ég þykist vita, eft- ir það sem ég hefi sagt við yður, að yður sé kunnugt um afleiðing- arnar. Við höfum komizt að þeirri niðurstöðu, að þau áhrif, sem brottför yðar hefði á barnið, rnyndu jafngilda morði — eða leiða til sjálfsmorðs . . . og þér vitið fyllilega, geri ég ráð fyrir, að . . . að flótti yðar fæli ekki einungis í sér afsögn yðar, held- ur og líka dauðadóm yfir vesl- ings barninu". Ég þagði. „Ég hefi lagt fyrir yður spurn- ingu, hr. liðsforingi, og ég end- urtek þá spurningu: Hafið þér gert yður fyllilega grein fyrir hinum óhjákvæmilegu afleiðing- um? Viljið þér taka alla ábyrgð- ina á samvizku yðar?“ Ég þagði enn. Hann kom nær með samanbrot- ið bréfið í hendinni — og rétti mér það. aiútvarpiö Miðvikudagur 24. febrúar 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik- ar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón- leikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50—14.00 „Við vinnuna": Tónleikar af plötum. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Utvarpssaga barnanna: „Marnrna skilur allt“ eftir Stefán Jónsson; VIII. lestur (Höfundur les). 18.55 Framburðarkennsla í ensku. 19.00 Þingfréttir. — Tónleikar. 19.35 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson cand. mag.). 20.35 Með ungu fólki (Jón R. Hjálm- arsson skólastjóri). 21.10 Kórsöngur: Lög úr óratóríunni ,Strengleikar“ eftir Björgvin Guð mundsson (Kantötukór Akureyr- ar og einsöngvarar syngja undir stjórn tónskáldsins). 21.30 ,,Ekið fyrir stapann", leiksaga eftir Agnar Þórðarson, I. kafli. Sögumaður: Helgi Skúlason. Leikendur: Ævar Kvaran, Her- dís Þorvaldsdóttir, Jón Aðils, Jónas Jónasson og Halldór Karls- son. höfundurinn stjórnar flutn- ingnum. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmur (8). 22.20 Leikhúspistill (Sveinn Einarsson) 22.40 Djassþáttur á vegum Jazzklúbbs Reykjavíkur. 23.20 Dagskrárlok. ð:o5ri.aume perj Fimmtudagur 25. febrúar. 8.00—10.00 Morgunútvarp. (Bæn. — 8.15 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregn ir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50—14.00 ,,A frívaktinni", sjómanna þáttur (Guðrún Erlendsdóttir). 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Fyrir yngstu hlustendurna (Mar- grét Gunnarsdóttir). 18.50 Framburðarkennsla 1 frönsku. 19.00 Þingfréttir. — Tónleikar. 19.30 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Þegar Islendingar brugð- ust Jóni Sigurðssyni (Lúðv. Krist jánsson rithöfundurh 20.55 Einsöngur: Hjálmar Kjartansson syngur lög eftir Schubert: Fritz Weisshappel likur undir á píanó. a) „An die Musik*. — d) „Der Tod und das Mádchen'*. c) ,,Die Stadt". — d) „Aufenthalt". — e) „Der Atlas“. 21.15 „Nótt", kvæði eftir Þorstein Erlingsson (Gerður Hjörleifsdótt ir les.) 21.30 Organtónleikar: Ragnar Björns son leikur verk eftir Bach. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmur (9). 22.20 Smásaga vikunnar: „Gamla kon an“ eftir Berthold Brecht, í þýð- ingu Bjarna Benediktssonar frá Hofteigi. (Þorsteinn Gunnarsson) 22.40 Sinfóníutónleikar: „Sinfonia antartica" eftir Vaug- han Williams. Flytjendur: Marga ret Ritchie sópransöngkona og kór ásamt Hallé sinfóníuhljóm- ■veitinni; Sir John Barbirolli stjórnar. 23.30 Dagskrárlok. Skáldið ocf mamma litla 1) Ég er búinn að leita að gras- klippunum hátt og lágt um allt húsið, í kjallaranum, háaloftinu, geymsl- unni og skúrnum! 2) Hvaða aulaháttur er þetta. Get- urðu ekki fundið klippurnar? Við vorum að nota þær í sumar! 3) . . . Hefurðu þá leitað í grasinu?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.