Morgunblaðið - 24.02.1960, Page 11

Morgunblaðið - 24.02.1960, Page 11
Miðvikudagur 24 fpVirúar 1960 MfíncrvnTAfíiÐ 11 Jöín skauta- keppni kvenna Yfir helgina fór fram keppni í þremur greinum í skauta- hlaupi kvenna, 500 m á laugardag, 1500 m á sunnudag og 1000 m á mánudag. Það var búizt við því að rússnesku konurnar væru ósigrandi í þessum greinum. Helzt óttuðust menn að þær hirtu alla verðlaunapeninga í skautahlaupi, líkt og i 10 km göngu kvenna. — En það fór á aðra leið. Að vísu voru þær rússnesku allsterkar, en það kom þægilega á óvart að þýzkar og pólskar konur og jafnvel ein bandarisk sýndu þeim harða keppni og höfðu betur. MENN óttuðust það mjög, að rússnesku skautaynjurnar myndu hirða alla peninga í 500 metra skautahlaupi kvenna, sem fram fór á laug ardaginn. Þarna var mætt fyr- ir þeirra hönd, sjálfur heims- methafinn Tamara Rylova og auk þess Natalia Donchenko og Klara Guseva, sem voru taldar einu hættulegu keppi- nautar Tamöru. En það fór á aðra lund. Heims- mer.hafinn varð að láta sér nægja fjóðra sæti og snúa heim peninga laus. Rússar fengu aðeins silfur- verðlaun og varð það mönnum mikið undrunarefni, að Þjóðverj- ar hrepptu þarna fyrsta gullpen- ing sinn og lítt þekkt bandarísk stúdína náði í bronzið. Austur þýzkur sigurvegari Sigurvegari varð Helga Haase. Hún átti 26 ára afmæli í Squaw Valley s.l. þriðjudag. Hún er bú- sett í Austur Berlín og er gift Helga Haase einum frægasta skíðaþjálfara Austur Þýzkalands, Helmut Haase. Hún náði hinum ótrúlega tíma, 45,9 sek., en heimsmet Rylovu er 45,6. Silfurpeninginn hlaut rúss- neska konan Natalia Danchenko, sem er 27 ára kennslukona í borg- inni Gorkí við Volgu. Hún hafði tímann 46 sekúndur sléttar. Bronzverðlaunin hlaut 21 árs stúdína frá Vermont í Bandaríkj- unum á 46,1 sekúndu. Tamara Rylova, heimsmethaf- inn varð fjórða á 46,2 sek. Von Svía hrasaði Svíar áttu eina von í þessari keppni. Það var Elsa Einarsson. Hún keppti á móti þýzku konunni Behrenz og var (20 m) á undan henni, þegar hana henti það óhapp að detta. Munaði minnstu að stórslys yrði af, því að hún var á fullri ferð og kastaðist af fleygiferð'upp í áhorfendasvæðið. Urðu menn slegnir skelfingu, en létt.i þegar Elsa klöngraðist aftur út með aðeins smávægilegar skrámur. Hún hætti keppni. Úrslit: 1. Helga Haase, Þýzkal.... 45,9 sek 2. Natalia Donchenko, Rússl. 46,0 — 3. Jeanne Ashworth, USA .... 46,1 — 4. Tamara Rylova Rússl. ~~.... 46,2 — 5. Takamizawa, Japan 46,6 — 6-7. Klara Guseva, Rússl.. 46,8 — 6-7. Elwira Seroczynska, Póll. 46,8 — Ferfaldur sigur Rússa RÚSSNESKU konum- ar unnu stórsigur í 10 km skíðagöngu, sem fram fór á laugardaginn. Þær áttu f jór- ar fyrstu í keppninni, en hvert land mátti aðeins hafa fjögurra manna keppnis- sveit. Það kom mönnum hins vegar nokkuð á óvart, að Kozyreva-Baranova, sem 8. Fumiekama, Japan ... 47,4 — Iris Sihvonen varð nr. 11 og setti nýtt Finnlandsmet 48,1 sek. og Christine Scherling varð nr. 15 og setti nýtt Svíþjóðarmet 48,7. 1500 m skautahlaup kvenna .. 11 Á SUNNUDAGINN fór fram 1500 metra skautahlaup kvenna. Þar tókst Rússum betur upp, því hin 21 árs gamla stúdína Lydia Skobli- kova frá Cheliafinnsk vann gullpeninginn og setti nýtt heimsmet 2 mín 25,2 sek, en það er 3/10 úr sekúndu betra en gamla heimsmetið. Þrátt fyrir það, að heimsmet væri þannig slegið, var það ekki þessi rússneski sigur sem vakti mesta athygli, heldur hitt, að tvær pólskar hústreyjur og 29 ára gamlar jafnóldrur Elvira Seroezyna og Helene Piljeczyk þrengau sér fram fyrir rússnesku skautaynjurnar Gusevu og Sten- inu og hirtu silfur og bronz. Eftir það fóru menn að tala um að rússneski stálhringurinn væri brotinn. Alveg eins og í 500 metra skautahlaupinu daginn áður var finnskt og sænskt met sett og af sömu konum og þar. ísinn var mjög góður, en það var allmikill vinöur og hefði tíminn orðið enn betri í logni. fjrslit: 1. Lydia Skoblikova, Rússl. 2:25,2 min 2. Elwira Seroczyna, P611. 2:25,7 — 3. Helene Piljeczyk, Póll. 2:26,1 — 4. Klara Guseva, Rússl.... 2:26,4 — 5. Valentina Stenina, Rússl. 2:29,2 — 6. Iris SUivonen, Finnl... 2:29,7 — 7. Cbristina Scherling Svíþ. 2:31,4 — 8. Helga Haase, Þýzkal... 2:31,7 — 9. Else Einarsson, Svíþj..2:32,6 — 10. Fumiekama, Japan ........ 2:33,1 — 1000 metra skautahlaup kvenna 1 SÖMU kvennanöfnin voru ennþá á vörum manna, er keppni fór fram í 1000 metra skautahlaupi í gær, mánudag. Þar tókst rúss- nesku skautaynjunum nokkuð betur upp, því þær hrepptu tvo verðlaunapeninga, gullið og bronzið. En jafnvel þar var ein- okun þeirra lokið, því að Helga Haase frá Þýzkalandi náði í silf- urpeninginn. Er það vissulega vel gert hjá Helgu, sem var lítt þekkt áður en hún kom til Squaw Framh. á bls. 22. vann gullverðlaun í Cortina 1956 varð að láta sér nægja annað sætið að þessu sinni. Önnur rússnesk kona Maria Gusakova varð 22 sekúnd- um fljótari. Sigurvegarinn, Gusakova, er 29 ára og er sagt, að hún starfi að kjólasaumi í Len- ingrad. Snemma varð sýnt um úrslit 24 konur frá 7 löndum höfðu tilkynnt þátttöku í 10 km göngu kvenna og mættu þær allar til keppni, sem hófst kl. 8 að morgni. Fyrst lagði af stað finnski þátt- takandinn Eeva Ruoppa. Færðin var hörð, glampandi sólskin en 13 stiga frost. Það varð strax Ijóst, þegar leiðin var hálfnuð, að rússnesku konurnar voru ósigr anlegar. Þá var Kozyreva-Bara- nova fremst og töldu menn þá að auðséð væri hver sigraði, því hún er talin gerð úr stáli. En svo fór á seinni hluta brautarinnar, sein er erfiðastur vegna mishæða, að' samlanda hennar fór fram úr henni. Gusakova dró sérstaklega Klas Lestander sigraði með miklum yfirburðum í skíða skotfimi. Það kom honum sjálfum mest á óvart. Mynd in var tekin er hann kom í mark. — Upphaflega var hann vænlegur skíðagöngu maður en fótbrotnaði og sneri sér þá að þessari nýju íþróttagrein. á Kozyrevu á síðustu 500 metr- jmrm. Keppnin í þessari grein hefur að jafnaði verið einskonar Eystra salts-einvígi, enda fór það enn svo, að einu konurnar, sem eitt- hvað stóðu í þeim rússnesku voru sænskar og finnskar. Sonja Edström frá Svíþjóð, sem varð þriðja í Cortina varð nú að láta sér nægja fimmta sætið og Siiri Rantanen frá Finnlandi, sem varð fimmta í Cortina gekk mjög illa og varð fimmtánda 1 röðinni. Geta Finnar enga skýr- ingu gefið á því aðra en þá, að þeir séu ekki vanir hinu þunna lofti. Önnur finnsk kona Eeva Ruoppa varð fyrir því óhappi að velta og varð hún þó 11 í röðinni. Úrslit: 1) María Gusakova, Rússlandi 39,42 min. — 2) Ljubova Kosireva- Baranova, Rússl. 40,04 mín. — 3) Rada Eroshina, Rússl. 40,06 mín. — 4) Balev- tjina Kolsheva, Rússl. 40,12 mín. — 5) Sonja Edström, Svíþ. 40,35 mín. — 6) Nini Poysti, Finnl. 40,51 mín. — 7) Bar- bro Martinson, Sviþ. 41,06 mín. — 8) Irma Johansson, Svíþ. 41,08 mín. — 9) Krastjana Stöva, Búlg., 41,44 mín. — 10) Barbro Strandberg, Sviþ. 42,03 min. Amazonurnor RÚSSNESKU íþróttakonurn- ar á Vetrarleikunum í Squaw * 1 2 3 4 5 6 7 8 Valley ganga almennt undir heitinu „Amazónurnar", en svo kölluðu Forn-Grikkir her- skáar konur, sem stjórnuðu heilum þjóðflokkum í löndum umhverfis Svartahafið. Hinir rússnesku kvenþátt- takendur í Olympkileikunum geta vel verið afkomendur hinna fornu Amazóna, sem bjuggu þar sem nú heitir Ukraina. Svo eru þær æði stæltar og karlmannlegar að sjá, svo að íþróttakonum frá öðrum löndum lízt ekkert á að keppa við þær. Hér á myndinni sjá lesendur fjórar rússneskar Amazónur, sem unnu frækilegan sigur í 10 km skíðagöngu kvenna. Þær unnu ferfaldan sigur og hrepptu alla verðlaunapen- inga í greininni. Þær eru taldið frá vinstri: Alevtina Kolchina, sem varð nr. 4, Marija Gaisakova (nr. 1), Ljubova Kozyreva-Baranova (nr. 2) og Radia Eroshina (nr. 3).— Happdrættisvinningur 20 skot í mark Á VETRAROLYPÍULEIKUNUM að þessu sinni var tekin upp ný keppnisgrein, svonefnd skíðaskot fimi, sem er í því fólgin að kepp- endur þreyta kappgöngu á skíð- um um ákveðinn veg, en nema síaðar á 20 stöðum á leiðinni, laka riffil af öxl sér og skjóta i roark. Verður sigur síðan mæld- ur bæði eftir liraða og skotfimi. Undir sól að sjá Það er mál margra, að þessi íþróttagrein sé í rauninni of mikið happdrætti til þess að vel fari á að hún sé á Olympíuleik- um. Er þess m.a. getið að í mörg rnörkin sé skotið undir sól að sjá, svo að það sé algerlega undir heppni komið hvort maður hittir. Enda kom það í ljós í þessari keppni. Svíar töldu sig eiga sigurvæn- legasta manninn í þessari grein og var það að vísu rétt, að þeir sigruðu og hlutu gullverðlaumn, en það var allt annar maður, sem færði þeim verðlaunin en þeir höfðu ætlað. I æfingum í Squaw Valley undanfarna daga hafði Svíinn Adolf Wiklund iðkað það, að hitta í 19 af 20 mörkum. En þeg- ar út í keppnina kom, missti hann strax af fyrsta og einu léttasta markinu og er hann missti annað mark skömmu síðar gafst hann upp. En þá kom maður í manns stað, 29 ára trésmiður norðan úr Lapplandi að nafni Klas Lestand er, vann það þrekvirki, að hitta í hvert einasta af hinum 20 mörk um. Það kom honum sjálfum og félögum hans algerlega á óvart. Það hæsta sem hann hefur kom- izt áður í þessari grein var að verða priðji á meistaramóti Sví- þjóðar. Þegar hann kom i mark var honum heilsað með miklum fagnaðar'átum, þvi að það má heita einstakt að hæfa í öll mörk in. En Klas sagði: Það er eins og vinna stærsta happdrættisvinn- inginn. Úrslit: 1. Klas Lestander, Svíþjóð — 2. Anttl Tyrvainen, Finnlandi — 3. Alexander Privalov, Rússlandi — 4. Vladimir Mel- anjin, Rússlandi — 5. Pshensitsin, Rúss- landi — 6. Sokolov, Rússlandi — 7. Ola Værhaug, Noregi — 8. Martti Meinila, Finnlandi — 9. Kuno Werner, Þýzka- landi — 10. Henry Hermansen, Noregi. Þátttakendur voru 27. □--------------------------□ ^/V/A

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.