Morgunblaðið - 24.02.1960, Síða 22
22
M O R c rnv n T, 4 Ð I Ð
MiíSvikudagur 24. febrúar 1960
Átti að sitja eftir heima
- en vann guliiö
Glæsilegur göngusigur
Brusveens Noregi í harðasta
göngueinvígi sögunnar
\
FYRIR keppnina í 15 km göngu strengdi ég þess heit að
sýna að ég var ekki sendur til Squaw Valley af einhverri
góðsemi við mig — sagði hinn hamingjusami sportvörusali,
Haakon Brusveen, er hann hafði tryggt Noregi fyrstu gull-
verðlaunin á þessum leikum, með glæsilegum sigri í 15 km
göngu — keppni, sem lýst er sem harðasta göngueinvígi
er fram hefur farið, þar sem 7 sek. skildu að gull- og
bronsvinnendur. —
Skíðasambandið norska hafði
fyrir sitt leyti valið Brusveen
til þátttöku í leikunum, en
Olympíunefndin norska felidi
haun af lista þátttakenda. En í
siðustu göngukeppni heima i
Noregi fyrir leikana sýndi
hann öilum þeim göngumönn -
um sem valdir höfðu verið tii
þátttöku fyrir Noreg, baksvip
sinn og sigraði glæsilega. Þá
komst nafn hans aftur á list-
ann yfir þátttakendur Noregs.
En það var svo seint, að hann
ferðaðist einn síns liðs til
Squaw Valley — hinir voru
allir á undan honum farnir.
Norðmennirnir flugu um háls
honum. Brusveen sagði að hann
heiði allan tímann nákvæmlega
viiað um tíma sinn og annara (en
það tilkynna aðstoðarmenn
göngugarpanna þeim gegnum
srnáhátalara).
— Oft sótti þreytan að mér í
göngunni. En þá frétti ég
hvernig stríðið um sekundurnar
stóð og góð staða mín í því stríði
gaf mér nýjan kraft. Og þegar
möguleikarnir opnuðust þá var
ekki um annað að gera en „vinda
kraftana úr líkamanum" og vona
að þeir myndu duga“, sagði gull-
drengurinn.
Svíar fyrstir . . .
Gangan var æsispennandi. Eft-
ir 5 km voru Svíarnir Stefans-
son, Ramgaard og Sixten Jern-
berg í fararbroddi. Brusveen var
14 sekundur á eftir Jernberg en
Norðmaðurinn Östby 26 sek á eft
ir honum. Hakulinen var sek-
undu á eftir Brusveen.
. . . en krafturinn dugði ekki
Svo kom svæðið með brekkun-
um sem klifra þurfti. Þá héldu
Sviarnir ekki ferðinni en Brus-
veen, Östby og Hakulinen sýndu
að þeir áttu kraft sem dugði.
Brusveen dró 30 sekundur á Stef-
anson frá 5—10 km mörkum göng
unnar, 12 sekundur á Jernberg,
sem þó hafði „það forskot“ að
vera ræstur á eftir Brus-
veen og þannig sjá til hans allan
tímann. Hakulinen hafði Hka
gengið vel frá 5—10 km mörkun-
um. Þegar 10 km voru gengnir
stóðu þeir mjög líkt, Bruveen,
Jernberg og Hakulinen.
Endaspretturinn
Endaspretturinn hófst — síð
ustu 5 km. Brusveen gekk af
feiknlegum krafti — en hann
fói fyrstur af þeim sem líkleg-
ir voru til sigur, svo að þegar
hann kora í mark á 51 mín 56
Vann með mest-
um yfirburðum
sek, hófst taugastríðið um það
hvort sá tími dyggði.
Norðmennirnir sem tii stað-
ar voru, voru aðframkomnir
af spenningi. Þá kom tími
Hakulinens, 7 sekundum lak-
ari en Brusveen. Aðeins Jern-
berg gat nú sigrað hann og
hann hafði haft 2 sekundna
forskot við 10 km markið. Bið-
in var sem eilífð. Hann vissi,
að hann varð að taka á öllu
sem hann átti til, af sigurinn
skyidi verða hans. Hann neytti
allra krafta er hann gekk í
mark. Dauðaþögn ríkti meðau
tímaverðir rýndu í klukkurn-
ar og reiknuðu. Svo kom tími
Jernbergs 51 mín 59 sek — 3
sek. lakari en Brusveens.
Þá brustu flóðgáttir norskrar
Framh. á bls. 23.
YTYNDIN hér fyrir ofan var
ekin af hinni fögru banda-
ísku íþróttakonu Carol Heiss,
r hún gekk fram fyrir fylk-
■ígar íþróttamanna í Squaw
/alley á setningardag Vetrar-
eikanna og vann Olympíueið-
:nn um drengilega keppni, fyr-
r hönd allra hinna 989 þátt-
akenda frá 31 þjóðríki.
Setningarathöfnin í Squaw
Valiey var virðuleg og fjöl-
breytileg. Nú stendur keppni
'’’~0 0 && 0 0 0' 0 & 0 0 0 0 * -0 «
yfir og er Olympíueiðurinn
um drengskap í keppni hvar-
vetna haldinn, nema ef helzt
skyldi vera í íshokkíinu. Þar
sýður stundum upp úr.
★
1 gærkvöldi var tilkynnt,
að Carol Heiss hefði fleira
gert en að vinna íþróttamanns
eiðinn í Squaw Valley. Hún
sigraði sem sé i listskauta-
hlaupi kvenna með þeim
mestu yfirburðum sem orðið
hafa á þessum leikum.
Keppnin stóð yfir marga
daga og Carol keppti í skyldu-
æfingunum þegar á laugardag
inn. Náði hún þegar góðum
árangri og komst engin keppi-
nauta hennar fram fyrir hana
næstu daga. En þegar keppni
fór fram í gær í frjálsum æf-
ingum voru allir sammála um,
að Carol hefði borið af í hreyf-
ingum og yndisþokka. Þannig
tryggði hún Bandaríkjunum
fyrstu gullverðlaunin.
Hún er margfaldur heims-
meistari í þessari grein og
sannkallaður arftaki hinnar
frægu Sonju Henie. Silfrið
vann Sjouhe Dijstra frá Hol-
iandi en bronzið Barbara Ann
Roles, bandarísk.
n sveif
Sslenzki fánin
í áttina heim
Ljósmyndarar bíða fœris við ,,fossinn44
EINN af íslenzku þátttakend-
unum í Vetrarolympíuleik-
unum hefur sent eftirfarandi
bréf heim:
Þið heima á íslandi hafið vafa
laust lesið lýsingu af opnunar-
hátíðinni. Hún var stórkostlegt
ævintýri. Við stóðum í röðum,
tilbúnir til að ganga inn í skauta
höllina, þar sem hátíðin skyldi
sett.
Það var mokandi logndrífa. —
Nixon varaforseti Bandaríkjanna
hafði orðið fyrir töfum og þegar
hann var loksins kominn í þyril-
vængju sinni, seztur í heiðurs-
stúkuna og inngangan hafin,
gerðist kraftaverk — sem menn
segja hér að Disney hljóti að hafa
ráðið. Élinu létti, myrkrið flýði,
en sólin skein frá bláum himni.
Þegar hátíðinni var að Ijúka,
skellti aftur saman í svartabyl.
Sumir flokkamir gleymdu af
einhvers konar klaufaskap að
ganga fyrir forsetastúkuna. Slíkt
henti þó ekki okkur. Virtist
okkur, að Nixon varaforseti og
hin bjartleita frú hans heilsuðu
okkur sérstaklega.
Hinu töfrandi ævintýri, opn-
unarhátíðinni var lokið og við
stikuðum út hrifnir og furðu
lpstnir. Þá sáum við íslenzka
fánann hefjast til lofts með loft-
belg. Disney lét hann svífa upp
ásamt öðrum þjóðfánum. Og
hann tók stefnuna í norðaustur,
— heim með kveðjur frá okkur.
Brunbrautin ágæt.
Við æfðum hér í Squaw Valley
níu daga fyrir leikana. Glamp-
andi sólskin var allan tímann,
logn og nýfallinn snjór. Þátttaka
okkar átti svo að hefjast í dag,
19. febrúar með kepppi í bruni,
en vegna fannfergis, sem fylgdi
hinni miklu snjókomu á opnun-
ardaginn var keppninni frestað
til mánudags. Var sú frestun okk-
ur til nokkurs ama.
Undanfarið höfum við einbeitt
okkur að brunæfingum, sem hafa
farið fram daglega með starfs-
liði leikstjórnar. Brautin er ágæt
af brunabraut að vera, ekkert
svell og minni hættur en verið
hafa oft áður. Troðið er upp i
hæstu tinda með vélknúnum
tækjum, en auk þess troða her-
menn, lausfóta og á skíðum. Á
nær tuttugu stöðum er 10—30
metra flug í brautinni, og kemur
sér því vel að hafa æft skíða-
stökk.
Myndin af Jóhanni Vilbergssyni
Hættulegasta torfæra brautar-
innar er „fossinn" svonefndi. Þar
húka myndtökumenn á veiðum
eftir góðri mynd fyrir blöðin.
Eina slíka „góða“ mynd gat að
líta í stórblaði á dögunum. Var
hún af íslendingi, sem „fór á
hausinn“ fram af „fossinum". —
(Þetta hefur líka hent Malterer
og aðra „stórmeistara"). Vissu
fætur upp, annað skíðið brotið
og hitt laust. Hefur myndin vak-
ið óblandna ánægju hjá okkur
hér í Olympíuþorpinu.
í veizlu hjá Brown.
Kvöldið fyrir opnunardag sátu
íslendingar ásamt Steingrími Þor
láksson konsúl og „attaehé“ okk-
ar stórveizlu í boði Browns ríkis-
stjóra í Sacramento ( þess manns
sem náðaði Ohessman) Nixon var
einnig í þessari veizlu og hrifu
þeir Nixon og Brown viðstadda
með alúðlegri framkomu og
skemmtilegum ræðum.
Hér í þorpinu er oft glatt á
hjalla. Á hverju kvöldi er
skemmtun fyrir keppendur og
starfsmenn í hinum gríðarlega
stóra matsal. í gærkvöldi var
hinn heimsfrægi gamanleikari
Danny Kaye aðalskemmtikraft-
urinn, en í kvöld eiga að koma
þar fram stjörnur eins og Bob
Mathias, Ester Williams og Sig-
ríður Þorvaldsdóttir.
Með beztu kveðjum.
NÚ HEFUR verið lokið keppnl
í 13 greinum á Vetrarleikun-
um. Verðlaunin skiptast þann-
ig milli landa:
Rússland
Þýzkaland
Svíþjóð
Sviss
Bandaríkin
Noregur
Frakkland
Kanada
Austurríki
Finniand
Pólland
Holland
Gull
4
2
2
2
1
1
1
1
Silfur
3
2
2
2
1
Bronz
5
— Skautahlaup
Framh. at bls. 11
Valley að snúa heim til sín með
einn gullpening og einn silfur-
pening.
Úrslit:
1. Klara Guseva, Kussl...1:34,1 mín
2. HeJga Haase, Þýzkal...1:34,3 —
3. Tamara Rylova, Itússl. 1:34,6 —
4. Lydija Skoblikova, Rússl. 1:35,3 —
5-6 Takamizawa, Japan ... 1:35,6 —
5-6 Helene Pilejczyk, Póll. 1:35,6 —
7. Fumiekawa, Japan ..... 1:36,1 —
8. Jeanne Ashworth, USA 1:36,5 —
9. Eevi Huttunen, Finnl.. 1:37,2 —
J0. Iris Sihvonen, Finnl.1:37,3 —