Morgunblaðið - 24.02.1960, Page 24
V E Ð R I Ð
Sjá veðurkijrt á bls. 2.
45. tbl. — Miðvikudagur 24. febrúar 1960
Snjólaust ísland
Sjá bls. 13.
Þessi mynd er tekin í sjúkrahúsinu á Patreks firði. í rúminu liggur Bergsteinn Þórarinsson,
togarasjómaður frá Vestmannaeyjum, er á dögunum missti hægri handlegginn um borð í tog-
aranum Þorsteini þorskabít. Bergsteinn er aðeins 26 ára gamall. — (Ljósm. T. A. Patreksfirði).
Ánœgðir með íslandsför
Chiume frá Njassalandi og félagar kveðja
40 þús. kr. stolið
Peningaskápur opnaður með lyklum
HINN útlægi þingmaður í Njassa
landi, N. W. Kanyama Chiume,
sem dvalizt hefir hér á landi
tæpa viku, heldur til Lundúna í
dag, ásamt brezka borgarráðs-
manninum Cheswort, sem var í
för með honum. Hinir brezku
lögfræðiráðunautar Chiume, —
Brown og Sheridan, eru þegar
farnir heimleiðis. — Chhime og
Cheswort ræddu stuttlega við
fréttamenn í gær og skýrðu frá
árangri heimsóknar sinnar.
★
Hinn hörundsdökki, afríski j
þingmaður hafði einkum orð fyr-
ir þeim félögum. — Hann rakti j
nokkuð sögu lands síns, sagði frá
frelsishreyfingu innborinna og
réttarkröfum og lýsti tilefni þess,
að hann kom hingað, ásamt fé-
lögum sínum til þess að leita lið-
sinnis íslendinga í máli dr.
Banda, leiðtoga þjóðfrelsishreyf-
ingarinnar í Njassalandi, sem
fangelsaður var án dóms og laga,
ásamt rúmlega 1300 öðrum á sl.
ári, og situr en» í fangelsi.
• Fyrirlitning og háð
Saga þessa máls var á dögun-
um rakin allnákvæmlega hér í
blaðinu, bæði í frásögn og sam-
tölum við Chiume þingmann, og
er því ekki ástæða til að endur
taka það hér. — Skal þess aðeins
getið, að hann lagði áherzlu á
það, að hann teldi að brezkur
Hækkun
á benzínverði
BENZÍN hefur hækkað í verði
um 34 aura líterinn vegna hækk-
unar á benzínskatti, skv. efna-
hagslögunum, en ekki af gengis-
lækkuninni. Hækkað' .enzin lít-
erinn þannig nú úr . 3,02 í kr.
3,36.
almenningur væri yfirleitt vin-
samlegur í garð Njasslendinga og
mundi kjósa, að þeir fengju rétt-
arbætur, en hins vegar hefðu
frelsiskröfur innborinna aldrei
mætt skilningi hjá brezkum
stjórnvöldum — þvert á móti
hefði þeim oftast verið tekið með
fyrirlitningu og háði. Mætti nokk
uð marka hina óbilgjörnu af-
stöðu stjórnarinnar af því, að
hún hefði látið skýrslu rannsókn-
arnefndar þeirrar, er hún sjálf
Chopintónleikar
Tónlistar í élagsins
TÓNLISTARFÉLAGIÐ heldur
píanótónleika fyrir styrktarfé-
laga sína í kvöld og annað kvöld
í Austurbæjarbíói. Eru þessir tón
leikar helgaðir 150 ára afmæli
pólska tónskáldsins og píanó-
snillingsins Fréderics Chopins,
en þessa afmælis er nú minnst
um allan heim.
Á efnisskránni eru eingöngu
verk eftir tónskáldið og flytja
þau þrír innlendir píanóleikarar.
Gísli Magnússon leikur Ballötu
í F-dúr op. 38, Noktúrnu, tvo
Mazúrka og Pólonesu í as dúr.
Rögnvaldur Sigurjónsson leikur
sónötu í h-moll og Asgeir Bein-
teinsson leikur Ballötu í g-moll,
fimm Etýður og Scherzo í cis-
moll.
Þetta eru 5. tónleikar Tónlistar
félagsins á þessu ári fyrir styrkt-
armeðlimi.
Stjórn FéL ísl,
rafvirkja
NÝLEGA var framboðsfrestur
útrunninn í Félagi íslenzkra raf-
virkja. Listi lýðræðissinna varð
sjálfkjörinn, þar sem kommúnist-
um tókst ekki að bjóða fram í
félaginu.
sendi til Njassalands í fyrra eftir
óeirðirnar þar, sem vind um eyr-
un þjóta — en í skýrslu þessari
voru dr. Banda og fylgismenn
hans raunverulega hreinsaðir af
öllum þeim sökum, sem bornar
höfðu verið á þá.
• Vinsamleg afstaða
Chiume kvað þá félaga hafa
hitt marga áhrifamenn á meðan
þeir dvöldust hér, og hvarvetna
hefðu þeir hlotið hinar beztu
viðtökur og erindi þeirra verið
vel tekið. Þeir hefðu rætt við
flesta ráðherra stjórnarinnar, á-
varpað fulltrúa þingfloíckanna á
sameiginlegum fundi, átt viðræð-
ur við biskupinn og ýmsa fleiri.
Kváðust þeir hafa feng.'ð lof-
orð um það, að málaleitan þeirra
um að skjóta máli dr. Banda til
mannréttindanefndar Evrópuráðs
ins í Strassborg, yrði rædd á rík-
isstjórnarfundi — væri það raun-
ar höfuðárangur fararinnar. Og
þótt peir vissu ekki, hvaða á-
kvörðun ríkisstjórnin mundi taka
í málinu, fögnuðu þeir hinni vin-
samlegu afstöðu þeirra stjórn-
málamanna, sem þeir hefðu rætt
við. Kváðust þeir félagar báðir
ánægðir með komuna hingað,
þótt ekki væri enn fyllilega séð,
hver yrði endanlegur árangur
hennar.
AÐFARANÓTT mánudagsins
var stolið innsigluðu áfengi í
klefa skipstjórans á norska skip-
inu Kyvik, sem lá hér í höfninni,
en skipstjórinn svaf í káetu sinni
er þjófnaðurinn var framinn.
Skipstjórinn á norska flutn-
ingaskipinu hafði gefið upp við
tollinn áfengi þetta, sem hann
ekki ætlaði að nota hér á landi,
og skápurinn því verið innsigl-
aður. •
Svaf hann vært í klefa sínum
aðfaranótt sunnudagsins og varð
STÖÐUGT eru menn að brenna
sig á sama soðinu: Gera það að
leik einum fyrir innbrotsþjófa
Kom ekki
að tómum
kofunum
í FYRRINÓTT tók maður
nokkur að áreita kvenfólk á
götu hér í bænum, en sú
fyrsta sem hann réðst að var
röskleika kvenmaður, sem
lamdi hann með veskinu
sínu, hringdi á lögregluna og
elti manninn í leigubíl, þang-
að til lögreglan kom á vett-
vang og handtók hann.
’Stúlka þessi var að bíða eftir
strætisvagni á Miklatorgi. Kom
þá maður nokkur, allskuggaleg-
ur, með hettuúlpuna dregna fram
á andlitið ofan úr Eskihlíðinni.
Greip hann í stúlkuna, sem vatt
sig af honum, og er hann réðist
aftur að henni, lamdi hún hann
með veskinu sínu og hljóp að
næsta bílasíma. Þar var leigubíll
staddur, og hringdi bílstjórinn á
lögregluna.
Fylgdust stúlkan og bílstjórinn
síðan með ferðum mannsins, sem
farinn var að áreita tvær kon-
ur, en gafst upp á því og elti
þá þriðju eftir Snorrabrautinni.
Voru bæði á harðahlaupum, er
hann kom auga á eina konu enn
á Eiríksgötunni. Sneri hann þá
við og elti hana, en hún rann
undan upp að Barónsstíg og gafst
hann þar upp, enda var sú, sem
hann hafði fyrst ráðizt á og leigu
bílstjórinn kominn á vettvang.
Fylgdust þau nú með mannin-
um og misstu ekki sjónar af hon-
um þar til lögreglan var búin að
hafa upp á þeim. Maðurinn, sem
reyndist vera drukkinn, var hand
tekinn.
Stjórnarkjör
í H.Í.P.
STJÓRNARKJÖR fór fram í
Hinu íslenzka prentarafélagi um
sl. helgi.*
Lýðræðissinnar unnu kosning-
arnar með miklum meiri hluta
atkvæða. Formaður var kjörinn
Magnús Ástmarsson og hlaut
hann 144 atkvæði, en formanns-
efni kommúnista hlaut 82 atkv.
Nánar verður sagt frá úrslit-
um kosninagnna er aðalfundur
félagsins verður haldinn.
þess ekki var er þjófurinn kom
þar inn, braut upp innsiglið á
skápnum og hafði á brott með
sér 7 flöskur af 96% spíritus og
tvær viskíflöskur.
Kærði hann stuldinn strax til
lögreglunnar, er hann vaknaði
um morguninn og varð hans var.
í klefanum hafði verið skilin
íslenzk gosdrykkjaflaska, sem
bendir til þess að þarna hafi ver-
ið á ferð maður úr landi.
Vaktmaður var í vélarrúmi, en
varð ekki mannaferða var.
að ræna fjárhirzlur. I fyrrinótt
var stolið um 40,000 krónum í pen
ingum í skrifstofum í gamla Ham
arshúsinu hér í Reykjavík.
Innbrotsþjófar fóru í skrifstof-
ur nokkurra fyrirtækja í þessu
gamla húsi: H. f. Kr. Ó. Skag-
fjörð, Kirkjusandur h.f. og h.f.
Steinvör. í þessum skrifstofum
öllum var stolið meira og minna
af peningum. Var farið í peninga-
skápa á tveim þeirra, og það tek-
ið sem í þeim var. Hefur komið
í ljós að alls hafa þjófarnir stolið
um 40,000 krónum í peningum.
Ekki þurftu þjófarnir að leggja
hart að sér við peningaskápana,
því lykill að öðrum þeirra var í
skúffu. Hinn var lokaður með
talnalás, en „lykillinn" var niðri
í skúffu. Málið er í rannsókn.
Kvillasamt
er í bænum
HEILSUFAR bæjarbúa er ekki
sem bezt um þessar mundir, en
þó mun það ekki vera lakara en
svona yfirleitt um þetta leyti árs.
Veðrið á skiljanlega sinn þátt í
þessu. Kuldinn, stormarnir og
moldbyljirnir sem þeim fylgja
eiga sinn þátt í þessu. Allmikið
ber á magakvillum, hálsbólgu og
kvefi, hvort inflúenzan hafi
stungið sér niður hér í bænum
er ekki enn fyllilega staðreynt,
að því að Mbl. hefur fregnað.
Helzti mælikvarði þess, er sá, að
þegar heil heimili, jafnvel allir
fjölskyldumeðlimirnir eru rúm-
liggjandi samtímis eða þar um
bil.
Bjarni Benediktsson
St]órnmálanám-
skeið Verkalýðs-
ráðs og Oðins
NÆSTI fundur á stjórnmála-
námskeiðinu um atvinnu- og
verkalýðsmál verður haldinn í
Valhöll í kvöld klukkan 8, stund
víslega.
Bjarni Benediktsson dómsmála
ráðherra flytur erindi um dóms
mál.
íþrótta-
fréttir
eru á bls. 11,
22 og 23
Stolið innsigluðu áfengi
frá sofandi skipstjóra