Morgunblaðið - 04.03.1960, Page 9
Föstudagtir 4. marz 1960
MORCl’ISBLAfílÐ
Frá atburðinum út af Snæfellsnesi. Á myndinni sjást brezki togarinn Arsenal, herskipið Undine
og varðskipið Ægir.
— Alþirtgi ræð/r ofbeldi Breta
meðan Genfarráðstefnan stæði
yfir gerðu þeir tilraunir til að
opna tvö ný verndarsvæði hér
við land. Ofbeldisaðgerðir þeirra
væru ekki aðeins ósvífnar, held-
ur furðuíegar.
Aukinn áróður
Benedikt Gröndal, 5. þm. Vest-
urlands, kvað nauðsynlegt að
beita auknum áróðri í sambandi
við landhelgismálið. Brezkir tog-
araeigendur hefðu nýlega ákveð-
ið að verja einni milljón króna
til áróðurs fram að þeim tíma
er Genfarráðstefnan kæmi sam-
an, en íslendingar hefðu til þessa
of litla rækt lagt við þessa hlið
málsins. Nefndi hann sem dæmi,
að fréttir af átökum á miðunum
hér við land bærust stundum til
blaða hér fyrir milligöngu Reut-
er, en okkur væri nauðsyn, að
koma íslenzku útgáfunni af frétt-
! unum á framfæri út um heim.
Frá bæjarstjórnarfundi
Rætt um barnaleik-
völl í bæjarstjórn
Genfarráðstefnunni stendur. —
Framtíðin ein fær úr því skorið,
hvort sú brottför Breta af mið-
unum verðúr endanleg eða ekki.
Ég á þó bágt með að trúa því,
að Bretar láti þá skömm henda
sig, að fara héðan af miðunum,
einungis meðan ráðstefnan stend
ur í því skyni að koma hingað
aftur. Þvílík framkoma virðist
með öllu óboðleg og ótrúleg.
Ég skal bó ekkert um það segja.
Kíkissjóður borgi tjónið Eins og ég segi: Framtiðjn ein
Framh. af bls. 1
Að öðru leyti verða frekari
ákvarðanir um meðferð máisins
að bíða þess, að fullnaðarskýrsl-
ur komi i hendur dómsmálaráðu-
reytisins. Að athugun lokinni
verða teknar ákvarðanir um,
hvað gera skuli til þess að reka
réttar þeirra manna, sem þarna
hafa orðið fyrir freklegri árás og
lögbrotum.
til bráðabirgða
Ég -vil þó skýra frá því nú þeg-
ar, að ég tel sjálfsagt, að þeim
mönnum, sem þarna hafa orðið
fyrir tjóni, verði það tjón bætt.
Fyrst og fremst ber að gera
kröfur um bætur á hendur þeim
aðilum, sem hér hafa brotið lög
Og við verðum að telja að brezka
rikisstjórnin beri ábyrgð á at-
hæfi þeirra. í blaði í morgun sá
ég, að jafnvel brezki sjóliðsfor-
ingihn hefði látið orð falla í þá
átt, að hið beina tjón mundi
bætt. Hvort þar er um nákvæma
frásögn að ræða, eða bindandi
skuldbindingu þessa yfirmanns í
brezka flotanum, get ég ekki
sagt um á þessu stigi, en það er
eitt af þeim atriðum sem skoða
verður. Hvað sem líður kröfu-
gerð á hendur Breta af þessum
sökum, þá tel ég það eðlilegt, að
rikissjóður Islands hlutist til um
það, að bætt verði hið beina tjón,
sem þessum aðiium hefur verið
rvaldið. Við vitum, að þessir
menn eru þarna útverðir, bæði
íslenzkra hagsmuna og íslenzks
réttar, og það væri algerlega
rangt, ef við létum það vera
komið undir vild ofbeldismanna,
hvort þeir fengju bætur.
Ég hef því talið það eðlilegt
og mun gera tillögu um það, að
ríkissjóður greiði til bráðabirgða
þessár bætur, auðvitað með end-
urkröfurétti gegn Bretum.
Landhelgisgæzlan gerði þegar
í gær það sem hún gat til þess
að koma í veg fyrir þetta ofbeldi,
og ég vona, að aðstoð hennar
hafl átt einhvern þátt í, að ekki
hlauzt þó verra af heldur en
varð. Hitt vitum við allir, að
skip okkar og flugvél mega sín
lítils gegn því ofurefli, sem við
er að etja, ef í beina valdbeit-
ingu á að fara.
Vitni ósigurs lireta
Það þarf ekki að fjölyrða um
það, hversu alvarlegur þessi at-
burður er. Eg hygg þó, að það sé
rétt, að það komi fram, að hann
er að vissu leyti vitni þess, að
Bretar finna til þess, að þeir eru
nú komnir að því að bíða ósigur
í þessari deilu. Skýrt hefur verið
frá því, að Bretar ætli að hverfa
héðan af miðunum á meðan á
fær úr því skorið. En um það
verður ekki deilt, að brotthvarf
Breta héðan, meðan á landhelgis-
ráðstefnunni stendur, sannar að
Bretar skilja það sjálfir, að þeim
er til skaða þessi vist þeirra hér.
Ef þeir álitu, að það gagnaði sin-
um málstað og styrkti þeirra rétt
arkröfur að vera innan íslenzku
fiskveiðilandhelginnar, m ð þeim
hætti, sem verið hefur, þá mundu
þeir allra sízt hverfa héðan með-
an á ráðstefnunni stendur. Þá
mundu þeir einmitt sýna meðan
á ráðstefnunni stendur, að þsir
vildu styrkja sitt mál, með því
að dveljast hér.
Brotthvarf þeirra sannar þeSs
vegna, að þeir vita sjálfir, að
þeim er það til tjóns að vera hér
á þann veg sem þeir hafa verið.
Ekki með glöðu geði
Það er svo ljóst, af því sem nú
hefur gerzt, að sumir af þeim
mönnum, sem leiðzt hafa út í
þetta herhlaup, gera það nú ekki
með glöðu geði, að sjá fyrir end-
ann á því. Þeir telja sig illa
leikna, að hafa meira og minna
verið kúgaðir til þess, af brezkri
flotamálastjóm að vera hér við
fiskveiðar sem þeir hafa bæði
haft fjárhagslegt tjón og skömm
af, og eiga svo að hverfa héðan,
málstað Breta tii styrktar, ein-
mitt þegar Genfar-ráðstefnan
nýja á að hefjast!
Ég hygg að þetta fáheyrða of-
beldi, sem nú hefur átt»sér stað,
verði í raun og veru ekki skýrt
nema sem eins konar gaðvonsku
kast þeirra manna, sem hafa
séð sig sjálfa neyddu út í ófæru,
yfir því að verða nú að hverfa
héðan við jafnlitla sæmd og raun
ber vitni. Bretar hafa með þessu
sjálfir kveðið þyngstan áfellis-
dóm yfir þessu herhlaupi sínu og
skal ég ekki fjölyrða meira um
það.
Ég vona, að Genfarráðstefnan
fari þannig, að sjálft deilumálið
leysist á friðsamlegan hátt og
settar verði ótvíræðar reglur,
sem allir telji sér skylt að hlíta.
Hitt er nú þegar komið í ljós,
að íslendingar muni ekki láta
undan fyrir ofbeldi í þessu máli,
Og sá sem ofbeldinú ætlar að
beita, hefur af því mestan skaða
sjálfur.
Ekki bara landhelgisbrot
Lúðvík Jósefsson, 4. þm. Aust-
urlands, talaði næstnr. Kvaðst
hann vilja taka undir þau mót-
mæli, er fram hefðu komið. Hér
væri ekki aðeins um brot á land-
helgislöggjöfinni að ræða. Hér
h.fðu Bretar brotið þær reglur,
sem þeir hefðu margsinnis lýst
yfir að þeir mundu virða, þær,
að skemma ekki veiðarfæri ann-
arra þjóða skipa löglega frágeng-
in. Þetta brot fremdu þeir svo í
skjóli herstyrks.
Kveðja varnarliðið til
hjálpar
Þórarinn Þórarinsson, 7. þm.
Reykvíkinga, kvað ekki um það
c’itt að ræða að bæta orðið tjón,
heldur að koma í veg fyrir að
slíkur atburður endurtæki sig.
Taldi hann eðlilegt að athugað
yrði, hvort varnarlið það, er .
landinu væri, vildi ekki veita að-
stoð til að hindra að slíkur at-
burður endurtæki sig.
Ósvífnar og furðulegar
Guðmundur í. Guðmundsson,
utanríkisráðherra, sagði að
skýrslur lægju ekki enn fyrir,
en ótvírætt virtist, að togarinn
hefði gert sér leik að því að
eyðileggja veiðarfæri bátanna.
Nánari ákvarðanir yrðu teknar
í málinu þegar er fullnaðarupp-
lýsingar lægju fyrir. Ráðherrann
kvað það athyglisvert, að á sama
tíma og Bretar tilkynntu öllum
heimi, að þeir hygðust færa tog-
ara sína úr íslenzkri landhelgi
Á BÆJARSTJÓRNAR-
FUNDI í gær var tekin til
umræðu svohljóðandi tillaga
frá Guðmundi Vigfússyni:
„Bæjarstjórnin felur Ieikvalla-
nefnd að vinna að því í samráði
við skipulagsnefnd, að svæðinu
neðan Hverfisgötu, milli Ingólfs-
strætis og Barónsstígs, verði séð
íyrir nauðsynlegum barnaieik
völlum þegar á næsta sumri, ef
möguiegt er“.
Flutningsmaður fylgdi tillög-
unni úr h!aði með nokkrum orð-
um. Kvað hann svæði þetta
j.'ggja milli tveggja stórra um-
íeröaæða, en að vísu væri þetta
ekki eina hverfið í bænum, sem
vantaði leikvöll. Þá gat hann
þess, að þarna væri allstórt ó-
byggt svæði á Vitatorgi.
Frú Auður Auðuns borgar-
stjóri tók næst til máls. Sagði
hún, að í þessu hverfi væri ekki
neitt svæði í eigu bæjarins, er
til greina kæmi undir barnaleik-
völl. Vitatorg hefði verið talið
óæskilegt fyrir leikvöll af sér-
fræðingum, sem um það hefðu
fjallað. Minntist borgarstjóri í
því sambandi á erlendan sér-
fræðing, er kannað hefði leik-
vallagerð hér. Hefði hann lagt til,
að Reykjavikurbær keypti upp
6 lóðir með mannvirkjum á
horni Vatnsstígs og Lindar-
götu til að gera barnaleik-
völl fyrir þetta hverfi, en bæj-
arráði hefði þótt framkvæmdin
of kostnaðarsöm. Í árslok 1955
hefði leikvallarnefnd bæjarins
skilað heildartillögum sínum og
þá ekki talið ástæðu til að láta
gera sérstakan le)kvöll i þessu
hverfi. Taldi borgarstjóri að e.
t. v. hefði það verið vegna barn-
fæðar, en samkvæmt manntali
1958 hefðu verið rúm 200 börn
aðeins á þessu svæði.
Borgarstjóri lagði til að lok-
um, að tillögu Guðmundar Vig-
fússonar yrði visað til pæjar-
ráðs, enda væri sjálfsagt að þetta
mál yrði kannað til hlítar.
Kvaðst flutningsmaður fyrir sitt
,eyti geta fallizt á þá málsmeð-
ferð.
Frá búnaðarþingi:
Rætt um búfjárræktariögin
varðandi hrossarækt
Á FUNDI búnaðarþings í gær
flutti Páll Zóphoníasson, fyrrv.
búnaðarmálastjóri, erindi um
forðagæzlu og fóðurbirgðafélög.
Tvö mál afgreidd
Tvö mál voru til síðari um-
ræðu, erindi dómsmálaráðuneyt-
isins varðandi breytingu á gild-
andi umferðalögum og erindi
hreppsnefndar Ðyrhólahrepps
varðandi sjóð fóðurbirgðafélags
hreppsins. Voru þau bæði af-
greidd frá búnaðarþingi án um-
ræðna. Í gær var hér í blaðinu
skýrt frá efni erindanna.
Til fyrri umræðu var í gær
erindi hrossaræktarráðunauts o.
fl. varðandi breytingu á lögum
1. hæð
hússins
verkamanna-
til um áramöt
VERKAMANNAHUSH) við höfn
ina var tekið á dagskrá bæjar-
stjórnarfundar í gær samkvæmt
beiðni Guðmundar J. Guðmunds
sonar. Reifaði hann málið og
rakti sögu þess nokkuð, en taldi
að framkvæmdir hefðu verið
hægar að undanförnu þar sem
aðeins fjórir menn hefðu verið
við vinnu í húsinu frá því það
var steypt upp í haust. Þá varp-
aði Guðmundur fram fyrirspurn-
um til borgarstjóra fjármála, þess
efnis, hve miklu fé hefði verið
varið til verkamannahússins,
hvað áætlað væri að það kostaði
fullbúið og hvenær gert væri ráð
fyrir að byggingu þess væri lok-
ið.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri,
varð fyrir svörum. Skýrði hann
svo frá, að um síðustu mánaða-
mót hefði um þremur millj. kr.
verið varið til byggingar hússins,
en áætlað væri að það kostaði
ca. 5,7 millj. fullbúið. Gert væri
ráð fyrir að fyrsta hæð hússins
yrði tekin í notkun um næstu
áramót. Borgarstjóri gat þess, að
af þeim 5,7 milljónum, sem áætl-
að væri að húsið kostaði, væru
fyrir hendi 4,8 milljónir.
um búfjárrækt. Bjarni Bjarnason
talaði fyrir ályktun búfjárrækt-
arnefndar, en samkvæmt henni
fellst nefndin í meginatriðum á
breytingar þær, sem farið er
fram á í erindinu, en þær fela í
sér um 40 þús. kr. hækkun rík-
isframlags, ef framkvæmdar
verða allar í náinni framtíð.
Talsverðar umræður urðu um
rnáiið, og töldu sumir ræðumenn
ástæðu til nokkurra breytinga á
einstökum atriðum ályktunarinn
ar, einkum það er varðat inn-
heimtu hreppsnefnda á folatoll-
um. Ennfremur töldu sumir að
rétt væri að láta þessar breýting-
ar fylgja öðrum breytjngum, sem
gera pyrfti á búfjárræktarlögun-
um.
Tiil máls tóku auk framsögu-
manns: Gunnar Guðbjartsson,
Sigmundur Sigurðsson, Gunnar
Bjarnason, Jón Gíslason, Stein-
grímur Steinþórsson og Haf-
steinn Pétursson.
1 gær var búnaðarþingsfull-
trúum boðið að skoða verksmiðju
Málningar h.f. í Kópavogi en í
dag munu þeir sitja boð landbún-
aðarráðlherra í ráðherrabústaðn-
um.
Fundur hefst á venjulegum
fundartíma í dag.
Friðrik vann
BIÐSKÁKIR úr fyrstu umferð á
Skákþingi Reykjavikur voru
tefldar sl. þriðjudagskvöld og
fóru þannig, að Friðrik vann
Jönas og Bragi vann BjÖrn.