Morgunblaðið - 04.03.1960, Page 11
Föstudagur 4. marz 1960
MORGVNBTAÐTÐ
11
Norrænu-
deild við
Harvard-
háskóla
BANDARISKI prófessorinn Ein-
ar Haugen við háskólann í Wis-
consin, sem margir hérlendis
þekkja vegna dvalar hans í
Reykjavík, upplýsir norska blað-
ið Aftenposten nýlega um það,
að í ráði sé að stofna Norrænu-
deild við Harvard-háskóla, fræg
ustu menntastofnun Bandarikj-
anna.
Jafnframt skýrir Haugen frá
því, að honum hafi verið boðið
að veita þessari norænudeild
Harvard-háskóla forustu. Kveðst
hann hafa fallizt á að gera það
fyrsta kennslumisserið, en að því
liðnu hyggst hann snúa aftur
heim til Wisconsin.
Einar Haugen hefur annars
verið á stöðugum ferðalögum að
undanförnu. Hann dvaldist um
tíma í Japan og sat þar í alþjóð-
legri menntamálanefnd. Síðan
ferðaðist hann um 14 Asíulönd
og er nú loks kominn til Oslo.
Þar mun hann dveljast um skeið
til þess að kynna sér síðustu
þróun í norskum bókmenntum og
málvísindum.
Flýgur vestur
Á MEÐAN Katalínaflugbátur
Flugfélags íslands er í viðgerð,
mun Björn Pálsson fjjúga til
Patreksfjarðar, Þingeyrar og til
Bíldudals. Hafði Björn flogið
vestur í gær. Hann mun ekki
halda uppi flugi á þessa staði,
ákveðna daga vikunnar, heldur
eftir því sem aðstæður og þörf
krefur.
Geir Thorsteinsson
útgerðarmaBur, sjötugur
Frá hófi Læknafélagsins.
Læknofélug Reykjovíkiu minnist
50 órn ofmælis síns
LÆKNAFÉLAG REYKJAVlKUR efndi til veizlu í Framsóknar-
húsinu við Fríkirkjuveg sl. laugardag til þess að minnast hálfrar-
aldar afmælis félagsins, sem var í október sl. Vegna annríkis lækna
og af ýmsum öðrum orsökum var ekki unnt að efna til hátíðaveizlu
nálægt afmælinu og var því frestað þar til nú.
Hófið sátu rúmlega 200 manns og var það eitt hið bezta og
veglegasta sem læknafélagið hefur haldið.
Forseti fslands hr. Ásgeir Ás
geirsson ávarpaði samkvæmið,
en ræður fluttu formaður félags-
ins Arinbjörn Kolbeinsson, land-
læknir Sigurður Sigurðsson, heil-
brigðismálaráðherra Bjarni Bene
diktsson og forseti bæjarstjórnar
Gunnar Thoroddsen ráðherra.
Fyrir minni kvenna mælti dr.
med. Óskar Þ. Þórðarson og fyrir
minni íslands próf. Guðmundur
Thoroddsen.
Flutt voru tvö afmæliskvæði
eftir óþekktan höfund og sömu-
leiðis afmæliskantata einmg eft-
ir óþekktari höfund, var hún ílutt
af Árna Tryggvasyni leikara. Ao
flutningi loknum voru höfundar
„Arsói" í Súgandafirði
minnist 40 ára afmœlis
kallaðir fram og reyndist höfund
ur kvðanna vera Óiafur Tryggva
son læknir ,en höfundur kantöt-
unnar Þórarinn Guðnason lækn-
ir. Var þeim vel fagnað af veizlu-
gestum.
Hátíðadagskrá var gefin út
prýdd karikatur myndum af
stjórn félagsins og fyrrverandi
formönnum, myndir hafði teikn-
að Guðmundur Bjarnason læknir.
EINN af brautryðjendunum í út-
gerð botnvörpuskipa, Geir Thor-
steinsson, er sjötugur í dag.
Hann er fæddur í Reykjavík,
sonur hinna merku hjóna, Thor-
steins Thorsteinsson kaupmanns
og konu hans Kristjönu, er var
dóttir Geirs kaupmanns Zoega.
Geir ólst upp í andrúmslofti
mikilla viðskipta á þeirra tíma
mælikvarða. Faðir hans hafði
rekið jöfnum höndum verzlun og
útgerð.
Geir fékk alhliða, hagnýta
verzlunarmenntun, en snemma
hneigðist hann að botnvörpuskipa
útgerðinni, og var einna yngstur
að aldri þeirra, er réðust í þá at-
vinnugrein. Hann hefur því verið
virkur þátttakandi þess atymnu-
vegar hátt í fimmta tug ára, og
komið víða við í þróunarsögu
hans.
f stjórn hinna ýmsu félagssam-
taka togaraútgerðarinnar heíur
Geir átt sæti um langan aldur,
og er ennþá í fullu starfi útgerð-
armannsins, þótt nú sé að vísu
kominn við hlið hans sonur bans.
Enn samtíðarmönnum Geirs er í
fersku minni þegar hann „reri
einn á bát“, í sktifstofú sinni, og
hafði 2 skip í sinni umsjá að öliu
leyti.
Auk togaraútgerðar rak Geir
síldarútgerð á Ingólfsfirði og
reisti þar mjög myndarlega síld-
arverksmiðju.
Geir Thorsteinsson er vinsæll
maður, hógvær í allri framkomu,
réttsýnn og staðfastur.
Kvæntur er Geir Sigríði dótt-
ur Hannesar Hafsteins skálds og
fyrv. ráðherra. Börn þeirra eru
Þorsteinn verkfræðingur, Hannes
loftskeytamaður, Kristjana Milla
kona Alfreðs Elíassonar forstjóra,
Ragnheiður Guðrún skrifstofu-
stúlka og Ragnar útgerðarmaður.
Viðar Thorsteinsson gistihús-
eigandi er sonur Geirs.
Hinir mörgu vinir Geirs og
fjölskyldu hans senda honum og
þeim í dag hugheilar árnaðarósk-
ir. —
f dag munu Geir og kona hans
vera í Kaupmannahöfn á Hotel
Kongen af Danmark.
VERZLUNIN
SKEIFAM
SNORRABRAUT
(á horni Njálsgötu og Snorrabr.)
Útsala
¥—
Úfsala
SUÐUREYRI, 21. febrúar. —
8. febrúar sl. átti Kvenfélagið
Arsól, Súgandafirði, 40 ára af-
mæli og var þess minnzt með
hófi hér í Félagsheimilinu í gær-
kvöldi. Var þar saman komið
mikið fjölmenni.
Formaður félagsins, Lovísa
Ibsen, stjórnaði hófinu og rakti
sögu þess. Fyrstu stjóm félagsins
skipuðu þessar konur: Asa
Grímsson, formaður, Aðalheiður
Guðmundsdóttir, gjaldkeri, Þóra
J. Hjartar, ritari, og Sigríður H.
Jóhannesdóttir og Sigríður Þor-
valdsdóttir meðstjórnendur.
Félagið hefur jafnan látið
menningar- og mannúðarmál
til sín taka og gefið rausnar-
legar gjafir til slysavarna,
kirkju, barnaskóla og sjúkra-
skýlis, sem nú er í byggingu
hér og í tilefni 40 ára afmælis-
ins gaf það 10 þús. kr. til
kaupa á hjúkrunargögnum
eða húsbúnaði í hið nýja
sjúkraskýli. Þá hefur félagið
á umliðnum árum haft marg-
ar leiksýningar, ýmist eitt eða
í samvinnu við íþróttafélagið.
Hermann Guðmundsson, odd-
viti, þakkaði rausnarlega gjöf fé-
lagsins til sjúkraskýlisins, svo og
margháttaðan stuðning þess við
menningar- og liknarmál á liðn-
um árum. Ávörp fluttu sr. Jó-
hannes Pálmason, Sturla Jóns-
son, hreppstjóri, Kristján G. Þor-
vaidsson og Amfriður Guð-
mundsdóttir, en hún var ein af
stofendum félagsins.
Formaður félagsins las upp
nokkur skeyti er félaginu höfðu
borizt í tilefni afmælisins, m. a.
kveðjur og heillaóskir frá fyrsta
formanni félagsins, Ásu Gríms-
son, en hún er nú búsett á ísa-
firði og gat ekki setið hófið. Þær
Þóra J. Hjartar, Akranesi, og
Ragnhildur Þorvarðardóttir,
Reykjavík, er lengi gegndu for-
mannsstörfum í félaginu, og
Helga G. Þórðardóttir, Reykja-
vík, ritari félagsins í 27 ár, sendu
því forkunnarfagran blómavasa.
Jón Kristjánsson söng gaman-
vísur er ortar höfðu verið í til-
efni afmælisins og nokkrar kon-
ur úr félaginu sungu og léku und
ir á gítara. Að borðhaldi loknu
var dansað af miklu fjöri fram
eftir nóttu.
Núverandi stjórn félagsins
skipa þessar konur: Lovísa Ibsen,
formaður, Kristín Sturludóttir,
gjaldkeri, Guðrún Guðjónsdótt-
ir, ritari, og meðstjórnendur
Aðalheiður Snorradóttir og Guð-
rún Valdimarsdóttir.
Félagskonur eru nú um átta-
tíu. — Fréttaritari.
Snjóskíðin sett á
vegna sjúkraflngs
1 GÆR setti Björn Pálsson flug-
maður snjóskíðin undir sjúkra-
flugvél sína. Hann hafði fengið
beiðni um að koma til hjálpar
að Gautlöndum í Mývatnssveit,
því þar hafði kona handleggs-
brotnað. Þetta er i fyrsta skipti í
vetur, sem ég set skíðin undir
flugvélina, sagði Björn, en nú er
líka allt á kafi á Norðurlandi. Ég
bíð nú byrjar norður. Snjókoma
og dimmt hafði verið yfir Mý-
vatnssveitinni í gær og gat Björn
því ekki farið í þetta sjúkraflug
Hann kvaðst mundu lenda rétt
við bæinn og skila sjúklingnum
til Akureyrar.
Aðeins örfáir dagar eftir
150 stk. TELPUKÁPUR á kr. 240.—
100 stk. DRENGJAFRAKKAR á kr. 240.—
HERRAFRAKKAR kr. 275 — 390.— 450 — 490.
KVENPOPLINKÁPUR á kr. 300.00. — 390.—
Allar þessar yfirhafnir eru úr ágætis efni og
fara mjög vel, en þar sem þær eru af eldri
bia-gðum seljum við þær aðeins fyrir saumalaun-
um. — Hér er því um stórkostlega hagstæð kaup
að ræða.
Einnig seljum við mikið af allskonao- sokkum og nærfatnaði
fyriir karla, konur og börn með mjög hagstæðu verði
VERZLUNIN