Morgunblaðið - 05.03.1960, Page 6

Morgunblaðið - 05.03.1960, Page 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 5. marz 1960 'JTIíUíAsíhS’: D r a u u r i n I g- n ÉG DVALDIST eitt sinn sumarlangt í kastala í Englandi. Á hverjum degi kom einn gestanna niður til morgunverðar svo þreytulegur og tryllingslegur á svip, að ég gat ekki á mér setið að spyrja hann: „Gátuð þér ekki sofið?“ „Auðvitað ekki,“ sagði hann. „Þessi afturganga í herberginu mínu .... “ Þar sem ég trúi ekki á afturgöngur, þurfti ég ekki að herða upp hugann til að svara: „Munduð þér vilja, að við skiptum á herbergjum? Afturgöngur hafa áreið anlega ofnæmi fyrir mér, svo að mér væri óhætt.“ „Það er ómögulegt,“ svaraði hann dapur í bragði. „Við yrðum að segja gestgjafa okkar frá þessu, og það er ekki hægt að tala við nokkurn mann um heim- ilisdraugana. Það er ósæmilegt.“ Ég hefi oft velt vöngum yfir þessari draugslegu siðareglu. Flestum fjölskyldum fylgir einhver draug- ur, sem þær vildu helzt setja undir lás og slá. Að öll- um líkindum ekki venjulegur draugur heldur sonur, sem fór í hundana, eiginkona, sem hljópst á brott, gjaldþrot, ættardeilur. Þetta er venjulega vandlega falið. Ef þér þekkið ekki fjölskylduna náið, rennið þér ekki grun í neitt. Þegar þér uppgötvið leyndar- málið af tilviljun, verðið þér furðu lostinn. Allt hafði sýnzt vera með kyrrum kjörum. Samtölin virtust vera hversdagsleg. Og samt .... Og samt hafði verið „draugagangur“ á heimilinu allan þennan tíma. Það er engin ástæða til að líta slíkt bölsýnum aug- um. Öðru nær. Það eykur mér öryggi. Éf einhver ættingi okkar gerir sig sekan um hneykslanlegt at- hæfi, hættir okkur eðlilega við að skammast okkar, enda þótt við séum á engan hátt ábyrg fyrir verkn- aðinum. Þó að okkur sé alls ekki um að kenna, hugs- um við eitthvað á þessa leið: „Nú verðum við að halda kyrru fyrir heima alein með draugunum okkar. Við getum ekki horfzt í augu við umheiminn.“ Það væri viturlegra að minnast þess, að þeim, sem við óttumst sem dómara, fylgir líka — svo að segja öllum — ein- hvers konar draugur. Þeir munu verða mildir í dóm- um sínum um okkur, af því að þeir þurfa á umburðar- lyndi okkar að halda. Lífið er vissulega enginn leikur, en það er öllum erfitt. Já, jafnvel þeim, sem örlagagyðjan virðist dekra við. Við höfum enga ástæðu til að óttast þá. Þeir óttast okkur ef til vill. Við skulum hugsa okk- ur, að allar fjölskyldur eigi mjög margt sammerkt, að í hverri fjölskyldu sé gott fólk og lélegt, og hafi hamingjudísin snúið við okkur baki í bili, mun sá dagur renna upp, að gæfan brosi við okkur. Hvers vegna ættum við að auglýsa ógæfu okkar? Hvers vegna ættum við að níða ættingja okkar? Aðrir munu sjá fyrir því svo vel, að ekki þarf að bæta um þar. Máltæki segir, að ekki sé ráðlegt að þvo óhreinan þvott sinn á aímannafæri. Þetta er ágæt regla. Hvað viðvíkur óhreinum þvotti annars fólks, ættum við að láta sem við sæjum hann ekki. Við eigum fullt í fangi með að hvítþvo okkar þvott. Og við skulum ekki minnast á heimilisdrauga við nokkurn mann. Vel notuð sólskins- stund Á fimmtudag létti dálítið til yfir Norðurlandi og skautzt þá Björn Pálsson í flugvél sinni héðan frá Reykjavík beint norður að Gaut- löndum í Mývatnssveit. Þar lenti flugvélin á ísilögðu Arnarvatni í mjög djúpum snjó. Var snjór- inn jafnfallinn og náði í hné. — Eftir stutta bið var komið með konu frá Gautlöndum, en hún hafði slasazt á handlegg. Var hún flutt á sleða sem hestur var spenntur fyrir. Björn flutti kon- una til Akureyrar, þar sem hún var flutt í sjúkrahúsið, en á Ak- ureyri tók sér far með flugvél- inni kona með lítið barn. Var nú aftur haldið að Mývatni og lenti flugvélin við Álftagerði. Þar kom enn farþegi í hina litlu vél. Frá Álftagerði flaug Björn til Reykjahlíðar til að sækja annan Mývetning, sem ásamt mannin- um frá Álftagerði, ætlaði á ver- tíð. — Hríðarbyljir í tuttugu daga Pétur gestgjafi í Reykjahlíð sagði Birni, að þessi sólskins- stund væri hin fyrsta síðastliðna tuttugu daga, daglega hefði ver- ið hríðarbyljir og dimmviðri. ★ Björn Pálsson sagði Morgun- blaðinu í fyrrakvöld, að hann myndi reyna að leysa vandræði Vestfirðinga, meðan flugbátur- inn væri í viðgerð. Myndi hann reyna að halda uppi ferðum vest- ur á sjúkraflugvélinni og annarri flugvél eftir því, sem aðstæður leyfðu. Sæmilegur afli sl. hálfan mánuð SANDGERÐI, 2. marz. — í gær voru 15 bátar á sjó og höfðu 92 tonn. Hæðstur var Viðir II. með 10 tonn, næst var Helga með 9,2 og Mummi með 0,2. Frá 16.—29. febrúar reru 16 bátar samtals 138 róðra, flestir 10 róðra. Heildarafli nam 973 tonn og 710 kg. Mestan afla í róðri hafði Víðir II 25. febrúar 12200 kg., 26. febrúar hafði Mb. Hamar 12195 kg og þann 19. hafði Mb. Helga 11700. Hæstan afla þennan hálfa mánuð hefur Mb. Víðir II, 83300 kg. í 10 róðrum, næst kemur Helga með 79410 kg. í 10 róðrum, þriðji Smári 79120 kg í 10 róðrum og fjórði Pétur Jónsson með 75435 kg í 10 róðr- um. — Axel. Kópavogsbíó sýnir um þessar mundir frönsku kvikmyndina „Elskhugi drottningar", sem byggð er á sögu Alexanders Dumas, „La Reine Margot“. Jeanne Moreau og Francoise Rosay fara með aðalhlutverkin. Dógóður oili Austijurðubúta Neskaupstað, 3. marz. í VETUR hafa verið gerðir út 4 stórir vélbátar frá Nes- kaupstað, sem lagt hafa afla sinn upp hér. Afli var dágóð- ur í janúarmánuði, en mjög stirðar gæftir í febrúar. Afli stóru bátanna Hrafnkell (100 rúml.) hóf veið ar 8. janúar og hefir fengið 125,5 lestir í 16 sjóferðum, eða tæpar 8 lestir í ferð. Hann tók net um miðjan febrúar og hefir fengið 17,5 lestir í þau. Goðaborg (100 rúml.) fékk 40 lestir í 5 sjóferðum. Byrjaði hún 4. febrúar, tafðist vegna véla- skipta. Stefán Ben (150 rúml.), sem er nýtt skip, byrjaði um mánaða- mótin jan.—fébr. og hefir fengið 90 lestir í 5 útilegum. Þráinn (70 rúml.) byrjaði 15. jan. og hefir fengið 93 lestir í 12 sjóferðum. » Heildaraflinn hjá öllum bátun- um er því 366 lestir til febrúar- loka. Allir bátarnir hafa nú tekið net, en ókunnugt er um aflabrögð þeirra síðan. Smærri bátar á handfæri Smærri bátarnir, Reynir, Dröfn, Hafbjörg, Freyr og Jón Ben eru byrjaðir handfæraveiðar við Suð austurland, en ógæftir hafa ver- ið síðan þeir fóru út. Búið er að flytja út alla saltsíld héðan. Hvassafell tók hér 2060 tunnur þann 18. febr. og Laxá 440 tunnur þann 24. febr. og auk þess 150 tonn af síldarmjölL Dettifoss hafði áður tekið 203 tonn af því í janúar. Þrjú skip hafa tekið nokkurt magn af freð fiski frá áramótum. — Fréttaritari. HAFNARFJÖRÐUR ABCBEFGH ★ KEFLAVÍK ABCDEFGH ABCDEFGH AKRANES 21. Hhl—gl skrifar úr. daglega íifimi * Þröngsýnin hlægile^ Velvakanda hafa borizt mörg bréf síðan húsmóðir gerði fyr- irkomulagið á sölu lifandi gersins að umræðuefni. Hér er eitt frá „Sparsamri hús- móður“: „Mig, sem er einnig bind- indissöm húsmóðir, langar til að taka upp hanzkann fyrir stöllu mína, sem er kölluð af „Bindindissamri húsmóður" „penppía“, og vil ég taka fram að hvoruga húsmóðurina þekki ég. Það er eins og kom- ið sé við opið sár, ef rætt er um eða ritað um lifandi ger, öl, vín eða þess háttar, hjá sumu af þessu bindindisfólki, og finnst mér persónulega öll þessi þröngsýni blátt áfram hlægileg, því að banna bein- línis allt slíkt er kotungs- háttur og til að vekja áhuga hjá hinum sem engan áhuga höfðu áður. Er ekki oftast svo, að forboðni ávöturinn er eft- irsóknarverðastur? En annars var nú ætlunin að tala um lifandi ger (pressu ger), sem selt hefur verið hjá Náttúrulækningafélaginu, verzlun þess við Týsgötu, ásamt mörgum öðrum hollum og góðum vörum. Hefir verzl- unin selt „þurrger“ í loftþétt- um blikkdósum og er innihald smá kúlur, sem geymast vel. Eina slíka dós hefi ég átt í meira en ár og er gerið jafn gott í bakstur og það var fyrst. * Hæg væru heimatökin Ég hef aldrei „bruggað" úr því svo að ég veit ekki hvernig það er í „brugg“, hefi heldur ekki hugsað mér að reyna það, á ég þó efnaverkfræðing fyr- ir eiginmann, svo að ,hæg væru heimatökin". Eins vil ég taka það fram að þurrger er miklu hollara í hvers konar bakstur en ann- að ger, sérstaklega í brauð og bollur, þó að fyrirhöfnin sé meiri, en ekki ýkja mikil þó. Þess vegna finnst mér að það ætti að selja þurrger í mat- vöruverzlunum í misjafnlega stórum skömmtum. Auðvitað má hver þjóð reikna með að ávallt sé ein- hver sem misnotar sér hlut- ina, hvort sem er um pressu- ger eða eitthvað annað að ræða en sem betur fer eru þeir þó færri. Hvers vegna á alltaf að vantreysta öðrum? Mér er nær að halda að þeir vantreysti frekar, sem ekki geta treyst sjálfum sér. Svo að endingu þetta: „Pen- pían“. hefur sennilega ekki kært sig um að brugga úr af- gangnum af gerinu, og býr að eins til „bollur" fyrir bollu- daginn til að spara sér að kaupa þær á kr. 3.00—3.25 stk. Ef að bakaðar eru 12 bollur fær maður líka 6 fríar, eða græðir 6 stk. Og vona ég nú að þurrger verði leyft til sölu í matvöruverzlunum, eins og gert er víðast erlendis, án nokkurra skírteina eða þess háttar. Svo bið ég forláts á stíl og lengd bréfsins, en þar sem ég er húsmóðir með 4 börn og, sit hér með ritvél og börnin að leik í kringum mig, þá skrifa ég þetta eftir að hafa haft frið til að lesa Morgunblaðið vandlega „í gegn“, hugleitt skrifið í „Velvakanda" og fannst það eins konar köllun að svara skrifi þessarar ágætu „Bindindissömu húsmóður", þrátt fyrir allt. Mér finnst nefnilega ævinlega leiðingt að láta kasta að fólki stórum orðum án þess að reyna að athuga málið frá fleiru en einu sjónarmiði“. • Uppáskrift hjá Rannveigu Sveitakona átti tal við Vel- vakánda um pressugerið. Vitið þið hvernig sveitakonum er gert að fara að því að ná í lifandi ger í brauðin sín? Þær verða að taka sig saman og láta kvenfélagið í sveitinni síðan gera stóra pöntun fyrir allar í einu. Pöntunin er send Kvenfélagasambandinu, og Rannveig Þorsteinsdóttir, sem er formaður þess og fram- kvæmdastjóri, skrifar upp á. Hún ábyrgist sem sagt, skilst mér, að ekki fari ögn af pressu geri ofan í bændurna nema bakað í brauði. Síðan getur pöntunin gengið áfram úl Áfengisverzlunarinnar. Brauð úr lifandi geri þykir hollara í brauð en annað lyfti duft og mörgum konum, sem verða að baka brauð sín sjálf- ar og geta ekki hlaupið út í búð, finnst betra að baka úr því, eftir að þær hafa komizt upp á það. En þá verða þær líka að fá uppáskrift hjá Rann veigu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.