Morgunblaðið - 05.03.1960, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.03.1960, Blaðsíða 8
8 MORCUyBLAÐ14> Laugardagur 5. marz 1960 TTtg.: H.f. Arvakur Reykjavík Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Vaitýr Stefánsson (óbm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045 Auglýsirgar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Símí 22480. Askriftargjald kr. 40,00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið ÓSIGUR BRETA | UMRÆÐUNUM um of- beldisverk Breta út af Snæfellsnesi, lýsti Bjarni Benediktsson, dómsmálaráð- herra því yfir, að ríkisstjórn- in mundi gera bótakröfur á hendur þeim yfirgangsmönn- xxm, sem eyðilögðu veiðarfæri íslenzkra sjómanna fyrir hundruð þúsundir króna. Hann kvaðst jafnframt telja það eðlilegt, að ríkissjóður Islands hlutist til um það, að bætt verði hið beina tjón, sem þessum aðilum hefur verið valdið. Við vitum, sagði dómsmálaráðherrann, að þess ir menn eru þarna útverðir, bæði íslenzkra hagsmuna og íslenzks réttar, og það væri algerlega rangt ef við létum það vera komið undir vild ofbeldismanna, hvort þeir fengju bætur. Að sjálfsögðu á svo ríkis- sjóður íslands endurkröfu- rétt gegn Bretum. Almenningur mun vissu- lega fagna þessari ákvörð- un ríkisstjórnarinnar og telja hana eðlilega og sjálfsagða. Alvarlegur atburður Síðar í þessari ræðu sinni komst dómsmálaráðherra að orði á þessa leið: „Þáð þarf ekki að fjölyrða um það, hversu alvarlegur þessi atburður er. Ég hygg þó að það sé rétt að það komi fram, að hann er að vissu leyti vitni þess, að Bretar finna til þess, að þeir eru nú komnir að því að bíða ósigur í þessari deilu. Skýrt hefur verið frá því, að Bret- ar ætli að hverfa héðan af miðunum á meðan Genfar- ráðstefnan stendur. Framtíðin ein fær úr því skorið, hvort sú brottför Breta af miðunum verður endanleg eða ekki. Ég á þó bágt með að trúa því, að Bretar láti þá skömm henda sig, að fara héðan af miðunum, ein- ungis meðan ráðstefnan stendur í því skyni og koma hingað aftur. Þvílík framkoma virðist með öllu óboðleg og ótrúleg.“ Sterk röksemdafærsla Ráðherrann benti síðan á það, að brotthvarf Breta héð- an, meðan á landhelgisráð- stefnunni standi, sanni að þeir skilji það nú sjálfir að þeim er til skaða að halda hér uppi landhelgisbrotum undir herskipavernd. Ef þeir álitu ,að það gagnandi mál- stað sínum og styddi réttar- kröfur þeirra að vera innan íslenzku landhelginnar með þeim hætti, sem verið hefur, þá mundu þeir allra sízt hverfa héðan meðan á ráð- stefnunni stendur. Þá mundu þeir einmitt sýna, að þeir vildu styrkja sitt mál með því að dveljast hér. Þessi röksemdafærsla ráð- herrans er mjög sterk og verður naumast andmælt. Af henni verður það ljóst, að enda þótt Bretar hafi ef til vill ekkert lært og engu gleymt, þá eru þeir sjálfir innst inni að sannfærast um það, að þeir eru nú að því komnir að bíða ósigur í fisk- veiðideilunni við íslendinga. Allar aðrar fiskveiðiþjóðir hafa í verki virt 12 mílna fiskveiðitakmörkin. Bretar einir hafa reynt að brjóta þau niður með vopnavaldi og of- beldi. Mikill ósigur í augum almenningsálitsins Yfirgnæfandi meirihluti þeirra 90 þjóða, sem sitja munu Genfarráðstefnuna áfellast þetta atferli Breta harðlega, án tillits til þess, hver afstaða þeirra kann að vera til efnisatriða málsins. Bretar hafa því í raun og veru þegar beðið mikinn ósigur í augum almenn- ingsálitsins í heiminum í baráttu sinni gegn verndun íslenzkra fiskimiða. Sá ósigur á eftir að verða enn- þá stærri. Þróunin gengur sinn gang. Gamall og úr- eltur yfirgangshugsunar- háttur Breta fær ekki hamlað gegn henni. Tímabil hinnar skefjalausu rányrkju er liðið. Þjóðirnar gera sér það nú yfirleitt ljóst, að vernd fiskistofnanna hefur grundvallarþýðingu fyrir framtíð fiskveiða í heiminum. Á sama hátt og ræktun jarð- arinnar er nú almennt talin sjálfsögð verður vernd og iæktun nytjafiska stöðugt talin þýðingarmeiri. Fyrr en varir munu hinir gömlu yfir- gangsseggir einnig verða að átta sig á þessu. Stjórnmálamennirnir „sitja á tónlistinni" Lauritz Melchior segir Bandaríkjá mönnum til syndanna ¥¥INN frægi, danski hetju- tenór, Lauritz Melchior, sem talinn er í hópi mestu Wagner-söngvara, sem uppi hafa verið, er tekinn að eld- ast — verður sjötugur hinn 20. þ. m. Enn er hann þó vel hlutgengur söngvari, meira að segja í hinum erfiðu — Það verður að viðurkenna, oð listamenn séu a.m.k. eins mikils virði fyrir nútim- ann og iþrótta- menn, segir hinn sjötugi „stór- söngvari" i við- tali við banda- riskan fréttamann Wagnerhlutverkum — og þegar hann heimsækir fæð- ingarborg sína Kaupmanna- höfn í tilefni afmælisins mun hann syngja hlutverk Sigis- mundar í óperunni Valkyrjan eftir Wagner, sem flutt verð- ur í útvarpið. — Kunnugir segja, að Melchior sé enn bæði að útliti og atgervi sem miðaldra maður. Einn af fréttamönnum UPI- fréttastofunnar, Frederik M. Winahip, hefir náð tali af Melc- hior fyrir brottörina frá Banda- ríkjunum, og þar sendir hinn roskni s.ngvari þessu „fóstur- Dregst að veita dr. Banda frelsi Blantyre í Njassalandi, 3. marz. (Reuter). VONIR manna um að dr. Banda foringja Njasslendinga yrði sleppt úr haldi, þegar eitt ár er liðið frá handtöku hans urðu að engu í dag, þegar stjórn Njassa- lands gaf út tilkynningu um mál hans. í tilkynningunni segir Sir. Ro- bert Armitage landsstjóri frá því að endurskoðun fari nú fram á því, hverjum skuli haldið í fang- elsi vegna neyðarástandsins sem lýst var yfir í landinu fyrir einu ári. Sú endurskoðun mun óhjá- kvæmilega taka nokkurn tíma. Orton Chirwa, sem er foringi annars flokks innfæddra og gam all andstæðingur dr. Banda sagði í dag ,að Afríkumenn væru mjög vonsviknir yfir því, hver i dráttur hefði orðið á því, að dr. I Banda væri sleppt úr haldi. landi“ sínu, eins og hann kallar það, ýmis býsna skörp skeyti — í sambandi við afstöðu Banda- ríkjamanna til lista og menn- ingarmála. Melohior hefir, sem kunnugt er, starfað lengst af söngferli sínum í Bandaríkjunum — og ætti því að vita, hvað hann er að segja. Vanrækjum tónlistina — Ég vil gjarna, segir Melc- hior í upphafi viðtalsins, segja nokkur borgaraleg orð til Banda ríkjanna, sem hafa „ættleitt" mig í vissum skilningi. Og það er vissulega mál til komið, að ein- hver segi meiningu sína. — Við (þ.e. Bandaríkjamenn) vanrækj- um tónlistina, enda þótt hún sé eitt það verðmætasta, sem við mennirnir eigum. Hér í Banda- ríkjunum „sitja“ stjórnmála- mennirnir á tónlistinni, ef svo mætti segja. Þeir láta nánast sem þessi fagra list sé ekki til — af því að þeir græða ekki atkvæði á henni. Glæpsamlegar skemmtanir — Gerið þér yður grein fyrir því, heldur Melchior áfram og hækkar röddina, að við erum víst hin eina menningarþjóð í heimi, sem ekki hefir neitt ráðuneyti fyrir listir? Hvers vegna haldið þér, að Rússar geri svo mikið fyrir listina? Af því, að þeir hafa gert sér ljóst, hve mikils virði hún er — að mannfólkið hungrar og þyrstir eftir list. — Haldið þér, að glæpir ungmenna væru slíkt vandamál hér, sem raun ber vitni, ef unglingunum væru veitt raunveruleg tækifæri til að kynn ast og komast í snertingu við góða tónlist og aðrar listgreinar? En hvað gerum við? — Við fóðr- um þá á glæpsamlegum skemmt- unum og ,,villtum“ tónum, sem æsa upp ástríður — en svo segj- um við þeim jafnframt, að þeir megi ekki láta þessar ástríður fá útrás! Góða tónlistin o£ dýr — Sú góða tónlist, sem við höf- um, heldur Melchior áfram, er of dýr — og óaðgengileg fyrir obbann af almenningi. Og svo sveltum við listamenn okkar. — Það er meira en tilgangslaust að vera t.d. að mennta söngvara, ef sú braut, sem fyrir þeim liggur, er aðeins öngstræti. — Við verð- urn að annast unga og efnilega söngvara af kostgæfni og glæða hæfileika þeirra eftir föngum — því að þeir bera guðsneistann í brjósti sér. Að laða fram hæfileika — Ég vil stinga upp á því, að hvert ríki Bandaríkjanna leggi lágan, árlegan skatt á útvarp- og sjónvarp. Af þeim tekjum verði stofnaður sjóður, sem falinn verði umsjá nefndar, er skipuð verði viðurkenndum listamönn- um. Fé sjóðsins verði síðan varið til þess að koma á fót sinfóníu- hljómsveitum í viðkomandi ríki, óperu eða leikhúsi. — Með slíku móti mundum við laða fram hæfileikafólkið og gefa því nauð synleg tækifæri. — Þegar þeir útvöldu hafa fengið næga reynslu og þroskazt í list sinni, ættu þeir að eiga þess kost að komast að við hin stóru lista- MELCHIOR: — Fóðrum ungl- ingana á glæpsamlegum skemmtunum og „villtum“ tónum....... „söfn“ okkar — svo sem Metro- politan- eða San Francisco- óperuna. Þetta er leiðin til þess að þjálfa fullkomlega raddhæfi- leikanna og læra að syngja fyrir hið stóra „dýr“ úti í myrkum salnum — fjöldann. A. m. k. eins mikils virði og íþróttamenn Að lokum segir hinn aldni söngvari: — Það er til hábor- innar skammar, að margir af beztu listamönnum okkar skuli txlneyddir að skemmta á nætuf- klúbbum eðá leika í kvikmynd- um og sjónvarpi — yfirleitt hin ómerkilegustu hlutverk — til þess að vinna fyrir sínu daglega brauði. Hinir ungu listamenn okkar verða að njóta þeirrar sæmdar og virðingar, sem þeir eiga skilið. — Menn verða að viðurkenna, að þeir séu að minnsta kosti eins mikils virði fyrir núntímann eins og íþrótta- menn. Presley leikur í þremur kvikmynilum FRANKFURT, 1. marz. — Elvis Presley fer á morgun flugleiðis til Bandaríkjanna. Hann er að Ijúka herþjónustunni, sem hann hefur gegnt með góðum orðstír. Faðir hans og amma verða hon- um samferða. Þau hafa verið í Þýzkalandi allan tímann, sem hann hefur gegnt herþjónustu til þess að matbúa fyrir hann þá daga, sem hann hafði frí. Presley ætlar að syngja inn á nokkrar plötur mjög bráðlega, en hann kemur fyrst opinberlega fram í sjónvarpi innan fárra daga. Síð- an bíða hans þrjár kvikmyndir —og í viðtali við blaðamenn í dag sagðist hann langa til að verða kvikmyndaleikari hvað sem öllum rokk-söng liði. Hann er ekki í giftingarhugleiðingum, þó orðinn sé 25 ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.