Morgunblaðið - 05.03.1960, Síða 16
V E Ð R I Ð
Sjá veðurkort á bls. 2.
í fáum orðum sagt
Sjá bls. 9.
54. tbl. — Laugardagur 5. marz 1960
4000 tonn at
fiski í Sandgerði
SANDGERÐI, 4. marz. — Hingað
barst allmikið magn af fiski með
bátunum í fyrradag. Þá komu
hingað 25 bátar, þar af 10 að-
komubátar. Samanlagður afli
bátanna var 268 lestir, en þar af
var afli heimabátanna 15, 182
lestir. Voru aðkomubátar með
netafisk en heimabátar með línu-
fisk, en þeir beita loðnu. Hæstur
heimabáta á fimmtudaginn var
Hamar með rúmlega 16 lestir,
næst kom Hrönn með nær 16
lestir og siðan Víðir II. með 15
lestir. Almennt var aflinn 10—16
lestir.
Frá því að vetrarvertíð hófst
hér hafa bátarnir fram til febrú-
arloka landað hér alls 4042 lest-
um af fiski og héðan hafa verið
farnir 543 róðrar. Er meðalafli
í róðri 7,4 lestir. Víðir II. er afla-
hæstur bátanna með 384,1 lest í
41 róðri, Guðbjörg er með 336,6
lestir í 42 róðrum, Smári frá
Húsavík með 328,1 lest í 41 róðri
og Mummi er með 325,8 lestir í
39 róðrum. — Axel.
Sinfóníuhljómsveit-
in tíu ára
— Hefir leikið að meðaltali 142
sinnum á ári sl. 4 ár
UM ÞESSAR mundir á Sinfóníu-
hljómsveitin 10 ára afmæli, eða
nánar tiltekið 9. þ.m. — Áttu þeir
Jón Þórarinsson, framkv.stjóri
hljómsveitarinnar, og Björn Jóns
son, einn af helztu hvatamönn-
um að stofmun hennar, sem um
áratugaskeið hefir verið ein
helzta driffjöðrin 1 hljómsveitar-
málum hér í Reykjavík, fund
með fréttamönnum í gær af þessu
tilefni.
★
Var þar í stutt'U máli rakin
saga hljómsveitarinnar — og
komu fram ýmsar uppiýsingar,
sem komu fréttamönnum — og
þá væntanlega ýmsum fleirí — á
óvart. Svo sem það, að hljóm-
sveitin hefði komið fram opin-
berlega 567 sinnum sl. fjögur ár,
eða síðan hún var endurskipu-
lögð 1956, en það jafngildir því,
að hún hafi leikið fyrir áheyrend
ur að meðaltali 142 sinnum á ári,
eða annan hvorn dag — að sum-
arleyfum hljómsveitarmanna frá
töldum.
★
Ekki er hér rúm til að rekja
sögu sveitarinnar nánar að sinni,
Aðalfundur Verzl-
unarsparisjóðsins
í dag
AÐALFUNDUR Verzlunarspari-
sjóðsins verður haldinn í dag í
Þjóðleikhússkjallaranum og hefst
kl. 2 e. h.
Á fundinum mun formaður
stjórnar sparisjóðsins, Þorvaldur
Guðmundsson, forstjóri, flytja
skýrslu stjórnarinnar fyrir sl.
starfsár og ræða framtíðarhorfur
sparisjóðsins.
Þá munu verða lagðir fram
endurskoðaðir reikningar fyrir
sl. ár og mun Höskuldur Ólafs-
son, sparisjóðsstjóri skýra þá.
Auk þess fara fram venjuleg
aðalfundarstörf þ. á. m. verða
k. 'rnir tveir menn í stjórn fyrir
næsta starfsár.
en væntanlega gefst tækifæri til
þess síðar. Aðeins skal þes.s get-
ið, að í tilefni afmælisins eru fyr-
irhugaðir 6 tónleikar á næstunni,
og verða hinir fyrstu á þiiðju-
daginn kemur. — Þar verða flutt
tvö af þeim verkum, sem voru á
verkefnaskrá sveitarinnar 9.
marz fyrir 10 árum: Egmont-for-
leikurinn eftir Beethoven og Sin
fónía nr. 8 í h-moll eftir Schubert
(Ófullgerða hljómkviðan), en
auk þess frumflutt lýrisk svíta
eftir dr. Pál ísólfsson.
★
Tónleikarnir verða í Þjóðleik-
húsinu, og hljómsveitarstjóri
verður dr. Róbert A. Ottósson, en
hann stjórnaði einnig hinum
fyrstu tónleikum sveitarinnar 9.
marz 1950.
Ljósmyndari Mbl. tók þessa
mynd í gær á horni Snorra-
brautar og Laugavegar. Greini
legt er að bíll hefur runnið á
götuvitann, sem hefur tekið
heldur hressilega ofan — því
Ijóshausinn liggur í snjónum
við fætur hans.
Vatnið firá
bæjarholam bjargar
1 FYRRAKVÖLD tæmdust geym
ar Hitaveitu Reykjavíkur á
öskjuhlíð um klukkan 6. í gær-
morgun var vatnshæðin í geym-
unum 5 metrar. Sagði Helgi Sig-
urðsson, hitaveitustjóri, Mbl. í
gær, að í hinu langvarandi kulda
kasti undanfarið, hafi það ráðið
úrslitum um, að ekki varð með
öllu vatnslaust á hitaveitusvæð-
inu, hversu mikið vatn fæst úr
borholunum tveim hér í bænum,
sem virkjaðar voru í haust og
vetur.
Ólafur frá Elliðaey hringdi
til Morgunblaðsins fyrir
skemmstu og sagðist eiga
mynd af þátttakendunum í
fyrsta Fiskiþinginu 1913. —
Við fengum myndina lánaða
hjá Ólafi og áttum við hann
samtal, sem birtist á miðsíðu
blaðsins í dag, en myndin
fylgir hér með og á henni
eru, neðri röð frá vinstri:
Bjarni Sæmundsson, fiski-
fræðingur, Tryggvi Gunn-
arsson, bankastjóri, Hannes
Hafliðason, skipstj., Matt-
hías Þórðarson frá Móum,
forseti félagsins, Magnús
Kristjánsson, ráðherra,
Magnús Sigurðsson, banka-
stjóri, lögfræðilegur ráðu-
nautur félagsins; efri röð
frá vinstri: Guðmundur ís-
leifsson á Háeyri, Páll
Bjarnason, skólastj. í Vest-
mannaeyjum, Ólafur Jóns-
son frá Elliðaey, Matthías
Óláfsson, alþm., Jón Jóns-
son, Firði, Þorsteinn Gísla-
son, útgerðarmaður, Meiða-
stöðum, Garði, og Arnbjörn
Ólafsson, útgerðarm., Kefla-
vík. —
Ólafur sagði að myndin
væri þannig til komin, að
þeir þingfulltrúar hefðu set
ið að veizlumat hjá Mar-
gréti Zöega í gamla Hótel
Reykjavík, þegar Tryggvi
Gunnarsson snaraðist inn úr
dyrunum og kallaði: — Lax
og nautasteik eru ekki fyrir
minn maga. Það er bezt ég
láti heldur taka mynd af
ykkur — og síðan náði hann
í Magnús Ólafsson, ljós-
myndara, og fór með alla
hersinguna út í garð Al-
þingishússins, þar sem
myndin var tekin.
Tvö innbrot í Keflavík
Var gefið
nafnið Maí
KEFLAVÍK, 4 marz. — Aðfara-
nótt sprengidags var stolið V-t
tunnu af söltuðu kindakjöti og %
tunnu af söltuðu tryppakjöti í
Kaupfélagi Suðurnesja í Kefla-
vík. Var brotizt inn í geymslu-
skúr útibús Kaupfélagsins að
Störf Alþingis
SKRIFSTOFA Alþingis hefur
gefið út yfirlit yfir störf þingsins
til febrúarloka. Sex stjórnarfrum
vörp hafa verið afgreidd sem lög
frá þinginu og eitt þingmanna-
frumvarp.
Þá hafa sjö fyrirspurnir verið
bornar upp og ræddar og tvær
rökstuddar dagskrár felldar.
Hafnargötu 62 og tunnunum stol-
ið þaðan. Lögreglan hefur haft
málið til rannsóknar, en ekki
tekizt að hafa upp á sökudólg-
inum.
í nótt var svo brotizt inn í að-
albúð Kaupfélagsins á Hafnar-
götu 30, og virðist þar hafa verið
farið inn um kjallaradyr og það-
an upp í búðina. í vefnaðarvöru-
deildinni var stolið talsverðu af
fatnaði og skiptipeningum, en
ekki er vitað, hve há upphæð það
var. Þaðan var farið í matvöru-
deildina og stolið þar talsverðu
magni af sígarettum og ýmsu
öðru, sem ekki er enn vitað, hve
mikið hefur verið, þar sem þetta
er sjálfsafgreiðslubúð. Lögreglan
í Keflavík hefur málið til með-
ferðar.
— Helgi S.
Öfluðu 1793 lestir
HAFNARFIRÐI — Nú hafa nær
allir bátarnir skipt yfir á net og
aflabrögð verið fremur góð þessa
viku. — Afli línubátanna í janú-
ar og febrúar varð 1793 lestir í
403 róðrum, en á sama tíma í
fyrra 967 lestir í 170 róðrum.
Var þá um sama bátafjölda að
ræða, eða 17 talsins. Af land-
róðrabátunum aflaði Hafbjörg
mest, 167 lestir í 34 róðrum (ó-
slægt). Af útilegubátunum hafði
Fákur mestan afla eða 250 lestir
í 39 róðrum. Fagriklettur var
næstur með 230 lestir í 36 róðr-
um. — G. E.
□-----------------□
VARÐARKAFFl
í Valhöll í dag
kl. 3—5 síðd.
U-----------------□
Vatnsskortur
BORGARNESI, 4. marz. — Vatns
laust varð hér í bænum í gær.
Fóru starfsmenn frá hreppnum,
þegar er vatnsskortsins varð
vart, yfir fjörð til að athuga hvað
ylli þessu, en vatnsból okkar er.
í Hafnarfjalli og liggur leiðslan
yfir Borgarfjörðinn. Voru komn-
ir miklir svellbunkar við lindirn-
ar þar.
Tókst að höggva rásir í klak-
ann, með þeim árangri, að meira
rennsli fékkst. Vonast menn til
að vatnið haldi áfram að aukast,
sérstaklega þar sem talsvert hef-
ur snjóað í dag og hláka verið
síðdegis. Sæmilegt vatnsmagn
var yfirleitt í dag, nema í þeim
húsum, sem hæst standa, en í
þau hefur verið flutt vatn á bíl-
um, bæði í gær og fyrripartinn í
dag. Vatn mun vera farið að
minnka víða á bæjum upp í hér-
aðinu, vegna langvarandi frosta.
HAFNARFIRÐI — í fyrradag
var hinum nýja togara Bæjarút-
gerðarinnar hleypt af stokkunum
í Bremerhaven í Þýzkalandi og
er það um svipað leyti og ráð-
gert hafði verið. Við þá athöfn
voru þeir Adolf Björnsson, for-
maður útgerðarráðs, Kristján
Andrésson, framkvæmdastjóri,
og frú Salbjörg Magnúsdóttir,
kona Kristjáns, sem gaf togaran-
um nafnið Maí. Er það nafn tek-
ið eftir fyrsta togara Bæjarút-
gerðarinnar.
Hinn nýi togari er, eins og áð-
ur hefur verið sagt, 1000 brúttó-
smálestir eða jafnstór nokkrum
öðrum togurum, sem nú er verið
að smíða fyrir íslendinga í
Þýzkalandi. Sá fyrsti þeirra,
Narfi, hljóp af stokkunum fyrir
nokkru. — Ráðgert er að Maí
verði tilbúin til afhendingar að
tveimur mánuðum liðnum.
í Borgarnesi
I morgun var hér mikil snjó-
koma og dimmt él. Komst Akra-
borg ekki inn, vegna þess að
radar skipsins var bilaður. Færð
er sæmileg og stóð ekki á mjólk-
urflutningum í morgun.
— H. Jóh.
Sauðárkrókur:
Skemmtifundur
ungra Sjálf-
stæðismanna
VÍKINGUR, félag ungra Sjálf-
stæðismanna, heldur skemmti-
fund í Bifröst sunnudaginn 6.
marz kl. 8,30 síðdegis. Skemmti-
atriði. Félagar fjölmennið og
takið með ykkur gesti.