Morgunblaðið - 10.04.1960, Side 11

Morgunblaðið - 10.04.1960, Side 11
Sunnudagur 10. apríl 1960 MORCVNBLAÐIÐ 11 Sextug á morgun: Frú Elísabet Hjalta dóttir, Bolungavík A MORGUN, 11. apríl, verður frú Elísabet Hjaltadóttir í Bol- ungarvík, 60 ára. Á þessum tímamótum ævi hennar langar mig til að senda henni afmælis- kveðju. Elísabet á svo mikinn þátt í hinni glöðu æsku, sem við félagar barna hennar áttum. Hávaðinn og galsinn, sem alltaf fylgdi þessum glaða hóp, finnst mér nú að hafi ekki alltaf hent- að þreyttum húsbændum. Aldrei vorum við ávítuð, alltaf glaðzt með okkur, hvað við gátum • hlegið og skemmt okkur vel. Oft rifjum við það upp hjónin, hvað gott var að vera á því heimili, því að fyrir utan að eiga vin- áttu barna þeirra allra, höfum við verið hjú þeirra húsbænda. Elísabet hefur verið farsæl kona, enda haldið vel á sínu og ekki veitt af, því hörð var bar- áttan hjá þeim hjónum fram eftir árum. Elísabet er fædd í Bolungar- vík 11. apríl árið 1900. Hún er dóttir Hjalta Jónssonar, sjó- manns, og konu hans, Hildar Elíasdóttur. Hildur var einhver sú elskulegasta gömul kona, sem ég hef kynnzt, enda var hún mikils metin af börnum sínum og barnabörnum. Hildur dvaldist hjá Elísabetu dóttur sinni frá því að maður hennar lézt árið 1926 til hinztu stundar. Elísabet giftist Einari Guðfinnssyni frá Litlabæ í Ögurhreppi árið 1919 og áttu þau því 40 ára hjúskap- arafmæli á síðastliðnu ári. Þau hófu búskap í Hnífsdal og var Einar í fyrstu formaður á litlum bátum og byrjaði þar einnig fiskvinnslu. Þetta voru erfiðir og dýrir tímar að hefja búskap fyr- ir ungt og efnalítið fólk, en trúin á framtiðina og viljafestan hjálpaði þeim yfir örðugasta hjallann. Elísabet hafði á þess- um frumbýlisárum kaffisölu í Hnífsdal til að auka getu þeirra. Árið 1924 flytja þau til Bolung- arvíkur og stofnar Einar þar verzlun og hefur útgerð, sem æ síðan hefur vaxið og dafnað í höndum' hans. Velgengni Einars mun ekki sízt eiga rætur sínar að rekja til þess, hve hann hef- ur átt samhenta eiginkonu, stjórnsama húsfreyju og yndis- lega móður. Á heimili þeirra hefur alla tíð ríkt einstæð gest- risni og sannur höfðingsskapur. Heimilisgæfa og barnalán er mikil blessun, og hafa þau hjón eignazt hvorttveggja í ríkum mæli. Þar mun nokkru ráða, hve börn þeirra hafa alltaf fengið að vera óhindruð með vini sína heima í félagsskap for- eldra sinna, sem ávallt hafa sýnt svo næman skilning á áhugamálum æskunnar. Þau hafa eignast 10 börn og hafa 8 þeirra komizt til fullorðinsára, auk þess hafa þau alið upp eina fósturdóttur. Barnabörn þeirra eru nú orðin 22. Elísabet hefur tekið mikinn þátt í félagsmálum. Hún var um langt skeið formaður Kvenfé- lagsins Brautin og hefur oft setið þing Kvenfélagasambands íslands. Þá hefur hún starfað mikið fyrir stúkuna og að slysa- varnamálum. Hún hefur lengi átt sæti í skólanefnd Hólshrepps og eru skólamálin henni mikið áhugamál. Ég á enga betri ósk á þessum heiðursdegi, en að hin stóra fjöl- skylda fói að njóta Elísabetar sem lengst, umvafin af kærleika hennar. Að endingu vil ég þakka Elísabetu allan þann vinskap og hlýju, sem ávallt hefur streymt frá henni til mín og fjölskyldu minnar og að æskuheimili mínu í Bolungarvík. Ingibjörg J. Jónsdóttir frá Sólbergi. nýkomin. — ★ Úrval af sirz*m, einlitum og rósóttum. Gamla verðið. ★ Barnanáttföt frá kr. 37,00. — Gamla verðið. Dúnn- og fiðursængur og koddar. — Allar stærðir fyrirliggjandi. ★ Öll ti’búin rúmföt á gamla verðinu. — ★ Saumum rúmföt eftir máli. — Fljót afgreiðsla. ★ Mikið úrval af handklæðum á gamla verðinu. ★ Nælon-sokkar í miklu úrvali. Gamla verðið. Á Sent gegn póstkröfu. Yerzlunin HELMA Þórsgötu 14, sími 1877 Brúnt peningaveski með um 4000 kr. tapaðist sl. föstudag, sennilega á neðan- verðum Skólavörðustíg. Skil- vís finnandi vinsamlegast skili því á lögreglustöðina gegn fundarlaunum. með bögglabera og Ijósaútbúnaði, Verð kr. 1838.00 Carðar Gíslason h.t. Bifreiðaverzlun Drengjareiðhjól \ Vornámskeið í vélritun byrjar í vikunni eftir páska, upplýsingar í síma 11640 daglega og eftir kl. 8 í síma 18643 hjá undirrituð- um. Ságurbergur Árnason 0 PAL H.F. SlMI 24466 Rýmingarsaia Sérstakt tækifæri til að gera góða kaup. Vegna breytinga seljum við allar vörur verzlunarinnar á mjög hagstæðu verði. Mikið af kven og unglingaskóm úrval af inniskóm, barna- skóm og karlmannaskóm og fl. Ailt á að seljast rýmingarsaian hefst á mánudagsmorgun. Komið og gerið góð kaup. H E C T O R Laugaveg 11.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.