Morgunblaðið - 10.04.1960, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ
Sjá veðurkort á bls. 2.
85. tbl. — Sunnudagur 10. apríl 1960
Reykjavíkurbrét
er á blaðsíðu 13.
Þáttaskil í
verzlun og við-
skiptum
Jóhann Hafstein talar á Varðarfundi
annað kvöld
Hamrufellið
losnaði af
sjáffsdóðnm
HAFNARFIRDI; — Eins og
skýrt var frá hér í blaðinu
í gær, tók Hamrafellið niðri
um átta leytið í fyrrakvöld,
þar sem það lá við festar
skamnrt fyrir utan hafnar-
garðana. Rak það á leg-
unni og tók niðri að aftan,
en losnaði af sjálfsdáðum
aftur á flóðinu í fyrrinótt.
Mun það ekki hafa orðið
fyrir teljandi skemmdum,
því að héðan hélt það til
Batum.
Hamrafellið hafði verið
að losa hér olíu við hafn-
argarðinn, en var nú komið
nt fyrir, þar sem Þyrill tók
oliu úr því í fyrradag. —
— G.E.
Fundiir á Akur-
cyri
SAMEIGINLEGUR fundur
verður haldinn í sjálfstæðis-
félögunum á Akureyri, næst-
komandi mánudagskvöld kl.
8,30 í Landsbankasalnum. —
Rætt verður um störf alþing-
is í vetur og frummælendur
verða alþingismennirnir Jónas
G. Rafnar og Magnús Jónsson.
&
Kunnur skíðamaður
fótbrotnar á æfingu
SIGLUPIHÐI, 9. apríl: Hjálmar
Stefánsson, skíðakappi, einn ör-
uggasti keppandi Siglfirðinga í
Alpagreinum, fótbraut sig í fjall-
inu Strákum, sem rís við himin
norðan Hvanneyrarskálar. Mun
Hjálmar hafa verið á allmikilli
ferð, er hann skyndilega bar að
snjólausu melbarði, sem hann
hafði ekki séð fyrir. Hugðist
hann stökkva yfir barðið, hvað
ekki tókst. Brotnuðu báðar pípur
i öðrum fæti hans. Önnur meiðsl
eru ekki teljandi.
Skíðamenn, sem voru við æf-
iingar í Hvanneyrarskál sóttu
aðstoð til bæjar. Fór lögregla og
sjálfboðaliðar á slysstað með
sjúkrabörur. Var Hjálmar bor-
inn til Siglufarðar og tók sú
ferð á þriðja klukkutíma, fram
og til baka, enda ekki auðfarin
leið.
I dag leið Hjálmari eftir at-
vikum vel, að sögn yfirlæknis
sjúkrahússins. —Stefán.
Nýr banki
■JÞETTA er nýjasta bankahúsið'
\í landinu, Landsbankabygg-C
ving að Laugavegi 77 hér í hæ./
(4 þessum stað tekur banki til/
/starfa væntanlega nm næstu/
/mánaðamót. Þetta verður ekki)
Cbankaútbú eins og þau hafaN
/tíðkazt hér í bænum, heldurC
Xverður þar rekin og veitt öllC
ísú bankaþjónusta sem veitt er/
/í aðalbankanum. Verður því/
/starfsemi þessa banka líkust)
)því, sem tíðkazt um banka í)
Cstærri kaupstöðum landsins.C
kSigurbjörn Sigtryggsson, sem(j
Cverið hefur fulltrúi í gjaId-(
/eyrisdeild Landsbankans, mun/
/veita þessum nýja banka for-/
/stöðu.
Alþjóðlegt mót stanga-
veiðimanna í Eyjum
STANGARVEIÐI er ákaf-
lega vinsælt sport, ekki að-
eins Iaxveiði heldur líka
veiði sjávarfiska á stöng, og
ísfiskur fyrir
1,4 inillj.
NÝLEGA hafa nokkrir tog-
arar selt afla sinn í Bretlandi.
Hefur markaður þar verið ó-
venju hagstæður miðað við árs-
tíma. Fjórir togarar hafa selt nær
700 tonn af ísvörðum fiski fyrir
41.690 sterlingspund, sem jafn-
gildir um rúmlega 4,4 millj. kr.
Togararnir eru Geir, sem seldi
í Grimsby 200 tonn fyrir 11613
■ sterlingspund, Þorkell máni sem
seldi 192 tonn fyrir 11039 stpd.,
Jón forseti seldi 155 tonn fyrir
9428 stpd. og Norðlendingur seldi
íúmlega 133 tonn fyrir 9591 stpd.
hafa sums staðar verið hald-
in alþjóðleg mót sjóstangar-
veiðimanna, eins og t. d. í
Danmörku.
Undanfarið hefur verið í
athugun hvort tiltækilegt er að
halda slíkt mót hér í sumar á
vegum Sjóstangaveiðifélags ís-
lands, og er Njáll Símonarson,
fulltrúi, nýkominn frá Vest-
mannaeyjum, þar sem hann var
að athuga hvort bátar, 16—20
lesta, yrðu tiltækir, ef til kæmi,
og eins hvort aðstaða er til að
taka á móti ferðamönnum. Tel-
ur hann að svo muni vera. Að
vísu þyrfti stærri og betri hótel
til að taka á móti sjóstanga-
veiðimönnum í framtíðinni.
Alþjóðlegt mót hér
í gær hitti Mbl. Jóhann Sig-
urðsson fulltrúa Flugfélags ís-
lands í Lundúnum, en hann hef-
ur unnið að því að kynna þessar
ráðagerðir úti í Bretlandi.
Hann kvað árangurinn af
þessu vera þann, að nú væri
ákveðið að alþjóðlegt mót sjó
stangaveiðimanna fari fram í
Vestmannaeyjum um 20. maí
n.k. Munu þangað koma 10
Bretar, og 4 Frakkar. Einnig
8 Bandaríkjamenn af Kefla-
víkurflugvelli, væntanlega
jafnmargir frá Reykjavík og
fjórir menn frá Akureyri og
aðrir fjórir frá Vestmanna-
eyjum.
Veiðimennirnir munu keppa
um fjölda verðlauna, en hin
helztu þeirra verður bikar sem
Flugfélag Islands gefur til keppn
innar og verðlaun sem Vest-
mannaeyjabær gefur.
Málfundur Stefnis
* Síðasti fundur á málfundanám
skeiði Stefnis í Hafnarfirði verð
ur á mánudagskvöldið kl. 8,30.
Matthías Á. Mathiesen alþm.
mun flytja ræðu á fundinum.
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu
annað kvöld kl. 8,30. Umræðu-
efni þessa fundar verður: Þátta-
skil í verzlun og viðskiptum —
frjálst framtak. Jóhann Hafstein
bankastjóri verður frummæl-
andi.
Síðastliðinn föstudag lagði rík-
isstjórnin fram á Alþingi frum-
varp til laga um skipun innflutn
ings. og gjaldeyrismála o. fl. Þar
er gert ráð fyrir því viðskipta-
og athfanafrelsi, sem nauðsyn-
legt er til þess að framkvæma
stefnu ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálunum. Frumvarp þetta
markar því þáttaskil í verzlun
og viðskiptum.
Varðarfélagið efnir því nú til
fundar um þessi mikilvægu mál.
Jóhann Hafstein mun lýsa frum-
varpi ríkisstjórnarinnar og gera
grein fyrir þeim árangri, sem
nú er að nást af stefnu og bar-
áttu Sjálfstæðisflokksins fyrir
frjálsu framtaki á íslandi.
Þess er að vænta, að Varð-
arfélagar fjölmenni á fund þenn-
an, og er allt Sjálfstæðisfólk vel
komið meðan húsrúm leyfir.
Síðustu sýningar
„Filmíu“
SJÖUNDA starfsári kvikmynda-
félagsins „Filmíu“ er nú senn
iokið, og er aðeins eftir að sýna
tvær myndir að þessu sinni, nú
um helgina og að hálfum mánuði
liðnum. — „Filmía“ sýnir aðeins
valdar myndir frá ýmsum tím-
um fyrir félagsmenn, og hefir
þátttaka lengst af verið mikil og
er sivaxandi.
Um þessa helgi átti að sýna
myndina „Árás við dagsbrún", en
af óviðráðanlegum ástæðum verð
ur það ekki unnt — og kemur í
staðinn franska myndin „Les
Maudits" (Hinir bölvuðu), gerð
af René Clément. Helztu leikend-
ur eru Henri Vidal, Miehel Aucl-
air og Paul Berard. — Síðasta
mynd „Filmíu“ á þessu vori verð
ur svo „Maðurinn frá Aran“, ensk
mynd, sem félagið sýndi áður fyr
ir riokkrum árum.
Verzlunorspari
sjóðurinn í nýtt
húsnæði
Verzlunarsparisjóðurinn- |
inn hyggst færa út kv.íarn-
ar og mun seinna á árinu
fá aukið húsrými. Hefur
sparisjóðurinn tekið á leigu
hluta af húsnæði skóverzl-
unar Lárusar G. Lúðvíks-
sonar i Bankastræti 5 og
hyggst flytja þangað aðal-
starfsemi sína. Fær hann
rúmlega helminginn af hús-
næði verzlunarinnar og
skrifstofur á efri hæð.
Ekki mun sparisjóðurinn
þó flytja alveg á næstunni.
Húsnæðið í Bankastræti
verður ekki laust fyrr en á
síðara helming þessa árs og
er þá eftir að gera breyting-
' ar á fyrirkomulagi.
Jóhann Hafstein
Fulltrúaráðs-
fundtir Sambands
ísl. sveitafélaga
FULLTRÖARÁÐSFUNDUR Sam
bands íslenzkra sveitarfélaga var
haldinn í gær og fyrradag í fund-
arsal bæjarstjórnar Reykjavíkur.
Fundurinn hófst á föstudag kl.
10.00 með setningarræðu Jónasar
Guðmundssonar, formanns en frú
Auður Auðuns borgarstjóri í
Reykjavík flutti ávarp.
Helztu umræðuefni fundarins
eru lagafrumvörp, sem nú liggja
fyrir Alþingi og snerta sveitar-
félög landsins sérstaklega breyt-
ingar á útsvarslögum,. frum-
varp um Jöfnunarsjóð, lög-
heimili, Bjargráðasjóð ís-
lands svo og þingmannafrumvörp
um aukaútsvör ríkisstofnana,
landsútsvar, og þingsályktunar-
tillaga um endurskoðun laga um
lögreglumenn, auk annarra félags
mála sambandsins.
Á fundinn í gær kom Sverrir
Þorbjarnarson, forstj. Trygging-
arstofnunar ríkisins og gerði
grein fyrir áhrifum breytinga al-
mannatryggingalaga á hag sveit-
arfélaganna.
Til fundarins komu 25 sveitar-
stjórnarmenn úr öllum lands-
fjórðungum.
Umræður um ályktanir stóðu
fram eftir degi í gær, en fundin-
um lauk í gærkvöldi.
Leystur úr haldi
MAGNÚS Guðmundsson lög-
regluþjónn, sem settur var í varð
hald í sambandi við' hótunarbréf
til lögreglustjórans hér í Reykja-
vík, hefur nú verið leystur úr
haldi.
Magnús var upphaflega úr-
skurðaður í 4 vikna varðhald,
að undangenginni læknisskoðun.
Taldi læknirinn varðhaldsvist-
ina hauðsynlega af öryggisástæð-
um.
I yrrakvöld var lagt ram í
sambandi við rannsókn málsins
álit geðveikralæknis, sem rann-
sakað hefur lögregluþjóninn.
Taldi hann Magnús eigi geðbil-
aðan og á grundvelli þess að hann
væri ekki hættulegur umhverf-
inu var hann leystur úr varð-
haldi. Rannsókn málsins heldur
áfram.