Morgunblaðið - 14.05.1960, Síða 2
2
MORGVNBL 4 Ð1Ð
Laugardagur 14. maí 1960
Vertíð að Ijúka
VERTÍÐ er nú um það bil að ljúka, flestir bátar hættir. Búizt var
við að Reykjavíkurbátarnir mundu hætta í nótt og einri bátur reri
cnn frá Sandgerði, Víðir II. Um þetta Ieyti er alltaf mikið um það
rætt hvaða bátar hafi fengið mestan afla í hverri verstöð og hverjir
séu aflakóngar. Hefur blaðið fengið af þvi fregnir hjá fréttariturum
sínum á hverjum stað.
Snæfellsnesbátar
1 verstöðvunum á Snæfellsnesi
eru menn mjög ánægðir með ver
tíðinda, aldrei aflast svona vel,
sagði fréttaritari blaðsins á Ólafs
vík. Þar er hæsti báturinn á
vertíðinni, Stapafell með 1227
lestir í 99 róðrum, skipstjóri
Tryggvi Jónsson. Annar aflahæsti
báturinn er Jón Jónsson með
1080 lestir í 101 róðri, skipstjóri
Jósteinn Halldórsson.
Á Grundarfirði varð aflahæst-
ur Grundfirðingur II. með rösk-
lega 700 lestir, skipstjóri Elís
Gíslason. Þaðan reru 8 bátar,
gæftir voru góðar, en afli brást í
maí-mánuði.
Hæsti báturinn í Stykkishólmi
var mótorbáturinn Svanur með
698 lestir, skipstjóri Eyjólfur
Ölafsson.
Á Akranesi
Það er aflahæst Sigrún með
1110 lestir, skipstjóri Helgi Ibsen
og önnur Sigurvon með 1008,
skipstjóri Þórður Guðjónsson.
Frá Akranesi reru 21 bátur, og
lauk vertíð á föstudag.
Suðurnesjabátar
I Keflavík var Askur aflahæst-
ur með 1050 lestir, skipstjóri
Angantýr Guðmundsson.
1 Grindavík var Arnfirðingur
hæstur, með 1200 lestir, skipstjóri
Gunnar Magnússon, og næstur
Þorbjörn með 1160 lestir, skip-
stjóri Þórarinn Ólafsson. Þaðan
reru 23 bátar í vetur lengri eða
skemmri tíma og fengu kring-
um 17 þús. lestir samtals.
1 Sandgerði var einn bátur ekki
hættur í gærkvöldi, Víðir II. Síð-
ast þegar blaðið frétti var Helga
frá Húsavík hæst af Sandgerðis-
bátum, en Víðir II. rétt fyrir
neðan!
Af Hafnarfjarðarbátum var
Haförn hæstur með rúmlega 1100
lestir, skipstjóri Sæmundur Þórð-
arson frá Stóru-Vatnsleysu. Var
vertiðin þar með betra móti í
vetur.
Reykjavíkurbátar voru ekki
hættir í gærkvöldi, sem fyrr er
sagt, en aflahæst var Heiga með
980 lestir, skipstjóri Arnar Frið-
riksson, og næstur Hafþór með
957 lestir, Skipstjóri Þorvaldur
Árnason.
Vestmannaeyjabátar
Af Vestmannaeyjabátum var
Stígandi VE 77 hæstur með 1076
lestir í 95 róðrum. Af aflanum
fékk hann 430 lestir á línu x 47
róðrum. Og næstur er Leó VE
400 með 1024 lestir í 87 róðrum,
þar af 282 lestir á lánu, skipstjóri
Óskar Matthíasson. Báðir for-
mennirnir eru ungir menn, hafa
verið formenn síðan 1945. Helgi
Skemmtiferð
á sunnudag
Á SUNNUDAG verður farin
skemmtiferð um Suðurnes og
komið við á flestum- markverð-
um stöðum. Standa sérleyfishaf-
ar fólksflutninga um ’Suðurnes
fyrir þessari ferð, en leiðsögu-
maður er Gísli Guðmundsson.
Lagt verður af stað frá Bif-
reiðastöð íslands við Kalkofns-
veg kl. 13.30 og komið aftur kl.
21.30.
hefur alla tíð verið fengsæll, þó
aldrei hæstur fyrr en nú.
V estfjarðabátar
Vertíðin á Vestfjörðum hefur
almennt verið mjög góð. A Isa-
firði er Guðbjörg aflahæst með
786 lestir, skipstjóri Ásgeir Guð-
bjartsson. Þaðan reru 9 bátar,
sem er miklu meira en undan-
farna vetur.
Á Patreksfirði var Sæborg afla
hæst með 1153 lestir, skipstjóri
Finnbogi Magnússon. Aflahæsti
bátur á Tálknafirði var Guðmund
ur á Sveinseyri með 941 lest,
skipstjóri Magnús Guðmundsson
og á Bolungarvík Einar, Hálfdáns,
skipstjóri Hálfdán Einarsson.
Klettur h.f.
síðasfa boð
i
átti fyrsta og
skipið
Austfirðingur seldur á 10,2
milljónir i gærdag
Margir um boðið
TOGARINN Austfirðingur
hlaut í gærdag nýja heima-
höfn. Eftir harðsnúið uppboð
á skipinu, þar sem það liggur
vestur við Grandagarð,
keypti Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjan á Kletti hér í
Reykjavík togarann á 10,2
milljónir króna. Skipið þarfn-
ast mikilla endurbóta og lag-
færinga sem kosta munu
milljónir, t. d. 8 ára flokkun-
arviðgerð, nýtt spil og fleira.
Uppboðið fór fram í hinu
yndislegasta veðri. Var allmargt
manna samankomið á bryggj-
unni, er Kristján Kristjánsson
borgarfógeti hóf uppboðið. Var
vitað nokkru áður. að það myndu
margir bjóða í skipið. Menn settu
það m. a. í samband við alþingis-
mennina Jónas G. Rafnar og
Matthías A. Mathiesen, að komn-
ir væru Akureyringar og Hafn-
firðingar til að bjóða í skipið.
Þá þóttust menn vita að ríkis-
sjóður myndi bjóða. Jafnvel
fleiri, sem líka kom á daginn.
/* NA IS hnútar SV 50 hnútar K Snjófcoma f Ú6i X7 Skúrir fí Þrumur ws KutíoM Hihski! H HcS L L<*«3 1
„Hálfvirði?“
Uppboðið sjálft stóð yfir í um
það bil hálftíma. Fyrst framan
af, meðan verið var að festa sig
úr fyrsta boði 5 milljónum króna
frá Kletti hf. upp í 7,1 milljón
voru fjórir sem buðu. Sigurður
Ólason hrl. sem bauð í nafni ríkis
sjóðs, Baldvin Jónsson hrl. sem
bauð í nafni Kletts hf., Páll Ás-
geir Tryggvason hrl. er bauð í
nafni hf. Lýsi & Mjöl í Hafnar-
firði og Helgi Pálsson formaður
stjórnar Útgerðarfélags Akur-
eyringa. Þeir féllu úr leik er
þeirra boð 7,1 millj. var hækkað.
Ríkissjóður féll úr leik er komn-
ar voru 9,3 millj. Síðan börðust
um togarann Klettur hf. og
Hafnfirðingarnir sem fóru upp í
10,1 millj.
Borgarfógeti hafði við orð er
komið var 10 milljón króna boð
í skipið, að nú væru þeir komnir
hálfa leið upp í sannvirði skips-
ins.
Lítilli stundu siðar svöruðu
Klettsmenn, en með
Uppboðið á Grandagarði
í gær. — Maðurinn til
vinstri handar, með hatt-
inn, sem styður hendinni á
þak bílsins er Kristján
Kristjánsson, borgarfógeti.
Hann hefur fengið 9,1 millj.
kr. boð frá Kletti hf., en
talsmaður hans, Baldvin
Jónsson stendur hinu meg-
inn við bílinn, gengt borg-
arfógeta og styður hönd á
bílþakið. Borgarfógeti fær
lokaboð ríkissjóðs, frá Sig-
urði Ólasyni, sem stendur
með barðastóra hattinn rétt
hjá borgarfógeta.
Jónssyni hrl. á uppboðinu, var
stjórnarformaður Kletts, Ingvar
Vilhjálmsson útgerðarmaður. Boð
þeirra 10,2 millj. var ekki hækk-
að.
Borgarfógeti upplýsti að ekki
lægju fyrir upplýsingar um hve
mikið hvíldi á togaranum. —
Kunnugir fullyrtu að það mundi
vera milljónatugir.
Austfirðingur verður fjórði
togari Kletts hf., en sú togaraút-
gerð er þar með orðin önnur
stærsta í Reykjavík. — Fram-
kvæmdastjóri hennar er Jónas
Baldvini Jónsson.
Enn methiti
í Reykjavík
í GÆR var mjög hlýtt á Suð-
urlandi. Þá komst hitinn upp í
19,3 stig í Reykjavík. Það er
mesti hiti sem þar hefur ver-
ið mældur í maí-mánuði. En
hámarkshitamælingar hófust
þar ekki fyrr en árið 1920.
Næst þessu komst hitastigið
31. maí 1944 í 18.0 stig og 17,5
1955. Heitast var þó á Þing-
völlum, 21 stig.
Norðanlands var mun kald-
ura, en ekki nema 4—7 stig út
við sjóinn, en hlýrra í inn-
iveitum. A stóru svæði fyrir
i.orðan og norðaustan land er
poka.
Eftirtektarvert er að skv.
kortinu er hlýrra í Reykjavík
en bæði í London og París, þar
sem eru 13 stig og einnig í
Kaupmannahöfn, þar sem eru
14 stig.
Veðurspáin kl. 10 í gærkv.:
SV-mið: Austan stinnings-
kaldi og léttskýjað fram eftir
nóttu, hvasst og skýjað, en úr
komulaust að mestu á morg-
un. SV-land og Faxaflói, Faxa
fl. mið: Austan kaldi, víða
stinningskaldi á morgun, létt-
skýjað. Breiðafj. og Breiðafj.
mið: Austan gola, léttskýjað.
Vestf. og Vestfj.mið. Austan
gola, þoka norðan til, annars
léttskýjað. Norðurland til
Austfj., norðurmið til Aust-
fj.miða: Austan gola og síðar
kaldi, víða léttskýjað í inn-
sveitum og annesjum, einkum
í nótt. SA-land og suðaustur-
mið: Austan stinningskaldi og
síðar allhvasst, skýjað þegar
líður á nóttina.
Engel Lund syngur
í Austurbæjarbíó
HIN þekkta þjóðvísusöngkona
Engel Lund heldur almenna
söngskemmtun í Austurbæjarbíó
nk. þriðjudag kl. 7 á vegum Tón-
listarfélagsins.
Engel Lund er Reykvikingum
að góðu kunn af fyrri söng-
skemmtunum sínum hér á landi.
M. a. hélt hún tvær söngskemmt-
anir í fyrra fyrir styrktarfélaga
Tónlistarfélagsins og „söng þá
betur en nokru sinni áður“, að
því er Ragnar Jónsson i Smára
tjáði blaðamönnum í gær. Var
þá talað um að hún héldi einn
opinberan konsert, en aðstæður
hömluðu að úr því yrði fyrr en
nú.
íslenzk lög
Á söngskránni verða mestmegn
is islenzk lög, en einnig þjóðvís-
ur frá ýmsum löndum. Síðasta
lag söngkonunnar verður Borð-
sálmurinn eftir Jónas Hallgríms-
son, en það lag var einnig loka-
lag hennar á söngskemmtunum
í fyrra, og vakti fádæma hrifn-
ingu. Undirleikari verður Ferdi-
nand Reuter, sem hefur verið
aðstoðarmaður Engel Lund um
30 ára skeið.
Aðgöngumiðar að söngskemmt
uninni verða seldir í Bókabúð
Sigfúsar Eymundssonar og við
innganginn.
Syngur inn á plötur
Þá hefur verið ákveðið að Eng-
el Lund syngi inn á plötur 35
íslenzk þjóðlög í útsetningu og
með undirleik Ferdinands Reut-
er. Framleiðandi plötunnar er
hið þekkta hljómplötufyrirtæki
His Masters Voice en Fálkinn sér
um útgáfuna. Samtímis hljóm-
plötunni gefur Almenna bókafé-
lagið út nótnabók með öllum lög-
unum, ásamt skýringum og fylgir
nótnabókin hverri plötu. Knútur
Skeggjason annast upptöku sam-
kvæmt ósk söngkonunnar.
Blæs lífsanda í lögin
Engel Lund hefur helgað líf
sitt þjóðlögum og flutningi á
þeim og er talin ein merkasta
þjóðvísusöngkonan, sem nú er
uppi. Sérstaklega hefur hún
lagt sig eftir íslenzkum
þjóðlögum og í því sam-
bandi unnið ómetanlegt starf.
Hún hefur grafið úr gleymsku og
blásið lífsanda í mörg íslenzku
þjóðlögin og ávallt sungið ís-
lenzkt lag á þeim ótalmörgu
söngskemmtunum, sem hún hef-
ur haldið í Evrópu og Bandaríkj-
unum.