Morgunblaðið - 14.05.1960, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.05.1960, Blaðsíða 11
Laugardagur 14. maí 1960 MORGVNBLAÐIÐ 11 Sigurður A. IMagnússon Al paf ÞAÐ ER 1. MAÍ og sólbjart kald- viðri yfir Berlín. Frá hótelglugg- anum sér yfir nokkrar götur sem þegar eru iðandi af fólkV, þó klukkan sé ekki nema rúmlega níu. Langar fylkingar berandi allra handa fána og áletraða borða halda í eina átt, til Lýð- veldistorgsins þar sem fjölda- fundur dagsins fer fram um ellefuleytið. Það er hátíðablær yfir borginni eins og eitthvað stórfenglegt sé í vændum, en ég fæ víst aldrei að vita hvað það er, því klukkan hálfellefu verð ég að vera kominn út á flugvöll- inn. Eina huggunin er að ég var viðstaddur hátíðahöldin í Berlín 1. maí í fyrra og þau líða mér sennilega seint úr minni. Flugvélin hefur sig á loft og kveður þessa glaðværu og sér- kennilegu borg, þetta eyland í miðju „rauða hafinu“ þar sem íbúarnir berjast hetjulegri bar- áttu fyrir rétti sínum til frelsis og sjálfsákvörðunar. Hátíðahöld- in í dag eru árétting baráttu- viljans sem engar ógnanir úr austurátt fá bugað. Ég hef aðeins eytt fjórum dög- um í Berlín að þessu sinni, en þeir eru mér fyrir marga hluti minnisstæðir. Andrúmsloftið í borginni orkar örvandi á skyn- færin, þetta sambland af alvöru lífsins og næstum léttúðarfullri glaðværð. Óvíða eru þessar and- stæður dregnar jafnskýrum drátt um. Skemmtanalífið er fjölskrúð ugt og mikill menningarbragur á leikhúslífinu. í Borgaróperunni í Vestur-Berlín sá ég t.d. tvo ó- gleymanlega balletta: „Schwarze Sonne“, yfirmáta nýtízkt verk byggt á gríska harmleiknum um Orestes, Elektru og Klytem- nestru, og „Undine“, klassískt verk byggt á hinni kunnu mið- aldasögn um vatnadísina Undine og riddarann Palemon. Bæði þessi verk voru sett á svið af Tatjana Gsovsky, og er hún jafn- framt höfundur fyrra verksins. í Austur-Berlín heimsótti ég „Berliner Ensemble“ við Schiff- bauerdamm, þar sem leikflokkur Bertolts Brechts hefur starfað við mikinn og sívaxandi orðstír á undanförnum árum. Þetta kvöld var eitt af verkum meistarans sjálfs á fjölunum, „Leben des Galilei“, hárbeitt ádeila á kaþ- ólsku kirkjuna fyrir baráttu hennar gegn framsókn vísind- anna á 17. öld, en jafnframt tákn ræn hugvekja fyrir nútímamenn, sem standa andspænis djöful- mætti kjarnorkunnar. „Berliner Ensemble" á sennilega fáar hlið- stæður í heiminum að því er snertir hnitmiðuð vinnubrögð og frumlega listræna túlkun, enda er leikhúsið við Schiffbauerdamm þéttskipað áhorfendum kvöld eftir kvöld. f fyrra var ég svo lánsamur að sjá þar „Mutter Courage“ með ekkju skáldsins, Helene Weigel, í aðalhlutverkinu, og er það ein eftirminnilegasta leiksýning sem ég hef sótt. Við hækkum 'flugið og borgin tekur smám saman á sig hina venjulegu mynd borga sem séðar eru úr lofti, flókið net af göt- um, trjágörðum og húsaröðum. Á stöku stað standa enn holar húsa tóftir og kalla hugann til ann- arra daga. En brátt byrgja ullar- kenndir skýjaflókar fyrir alla sýn til jarðar, og þá er ekki annað að gera en grípa dagblöðin. Eitt þeirra flytur mjög vinsamlega grein um fsland, þar sem þýzkir ferðalangar eru áminntir um að misnota ekki hina sögufrægu gestrisni fslendinga ,þegar þeir gista eyjuna í norðri. Eftir rúma klukkustund lend- um við á flugvellinum í Frank- furt. Þar er þungskýjað og ýr- ingur úr lofti. Meðan ég bíð eftir næstu flugvél leitast ég um í bið- salnum, og viti menn, þar eru þá komnir tveir fulltrúar þeirrar afarsjaldgæfu manntegundar, er gengur undir nafninu íslending- ar. Þessir menn eru Sigurður Sig- urðsson landlæknir og Júlíus Sig- urjónsson prófessor. Þeir eru á leið til þings Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar í Genf, og þannig eigum við samleið næsta hálfan annan tímann. Það er lítið að sjá á leiðinni sökum skýja- Skólaslit Sextán nýir BÆ A HÖFÐASTRÖND, í maí. — Nokkur viðburður er það tal- inn í héraðinu þegar Hólaskóla er sagt upp, sem vanalega er 30. apríl ór hvert. Eg skrapp heim að Hólum í þetta sinn til að sjá og heyra. Er eg kom í hlaðið heyrði eg söng mikinn og há- reysti, en ekki voru þar nein slagsmál á ferðinni. Heldur voru þar nokkrir strákar í heitu steypibaði og voru þeir allhávær ir. Uppi í herbergjum þeirra var allt á tjá og tundri, því að nú var verið að búa sig til heim- ferðar, skrifa vinakveðjur hver hjá öðrum, gera upp við matar- stjórann, greiða skólagjöld o. fl. Og parna kom Vigfús minn kennarí sem búinn er að vera starfandi. við skólann um 40 ár. Náði ég honum inn á herbergi einu með nokkrum strákum og spjallaði þar við þá litla stund. Aðspurður sagði Vigfús ekki ýkja mikinn mun á piltunum nú og fyrir 40 árum, er hann byrj- aði. Flestir kæmu nú betur und- irbúnir, gagnfræðingar og stúd- entar kæmu nú í skólann, sem ekki hefði þekkzt áður. Þá hefði lágmarksaldur verið 17—18 ára og upp að 30 ára en nú væri ug þykknis unz við nálgumst Genf. Þá blasir við okkur hið undur- fagra Genfarvatn umlukið skógi- vöjnum hæðarirögum, þar sem virðulegar hallir og sveitasetur standa á víð og di eif milli lauf- ríkra trjárunna, en að baki rísa fjöllin blá og snævi þakin hið efra, látlaus umgerð um þetta friðsæla og velefnaða pláss, þar sem margra alda velsæld liggur beinlínis í loftinu, sem er raunar óþarflega órólegt þegar við lend- um á flugvellinum. á Hólum búfræðingar það frá 15 að 24 ára aldri. — Strákarnir væru kraftmiklir og fjörugir alveg eins nú og áður, en vitanlega mjög misjafnir. Þarna voru tveir strákar með hökuskegg eins og margra ungra manna er siður nú. Annar tók í nefið og sagðist hafa tekið í vörina, þegar hann var á vertíð, en sárafáir sögðust reykja, og vín hefði varla verið smakkað í vetur. — Já, Vigfús sagði skóla- brag hafa verið með ágætum í vetur. Prófdómara skólans, Ármann Dalmannsson, hitti ég. Hann hefir verið prófdómari í 10 ár. Hann sagði stráka vitanlega mjög misjafna. Þarna kæmu miklir námsmenn en furðanlega fáir tossar og yfirleitt væru einkunnir býsna jafnar, en is- lenzkan virtist þó mörgum erfið. Sextán búfræðingar Nú vai hringt og söfnuðust allir inn í lestrarsal skólans. Piltar sungu „Hvað er svo glatt“ og skólastjóri hóf skólaslitaræðu. Sagði hann sltólann hafa gengið vel og r.efði verið með svipuðu sniði og undanfarið, en nú væri Samferð okkar landanna er lok ið og þeir félagarnir halda til að- kallandi starfa í höfuðborg al- þjóðasamstarfs, en ég verð að bíða tvo tíma eftir flugvélinni sem flytur mig síðasta áfangann tíl Aþenu. Það er ös í biðsalnum, því farartækin eru sífellt að koma og fara. Úr hátalaranum glymja nöfnin viðstöðulítið: Amsterdam, Hamborg, London, Madrid, Lissa- bon, Teheran, Líbería, Róm. Sal- urinn fyllist og tæmist á víxl. Loks er kallað: Aþena og Tel Aviv, og ég tek saman föggur mínar í snatri. Flugið frá Genf til Aþenu tek- ur 4% tíma, og leiðin er ein sú tilkomumesta sem ég hef flogið. Við erum brátt ofar skýjum og líðum yfir fannhvíta iðandi breið una baðaðir eftirmiddagssólinni. En allt í einu rísa tígulegir hnúk- ar Alpanna upp úr skýjunum eins og vindsorfin eylönd í freyðandi hafróti. Mont Blanc og aðrir fræg ir tindar tróna hér algerlega ó- jarðbundnir. í næstu andrá er skýjaslæðan rifin og við okkur blasir endalaus margbreytni fjalla og djúpra skuggsælla dala. Snjórinn teygir sig niður eftir hlíðunum og virðist hafa hrakið allt líf burt af þessum slóðum. En skyndilega opnast djúpur dal- ur umgirtur fjöllum á allar hlið- ar og þar getur að líta blómlega byggð! Mér kemur fyrst í hug að náttúran sé hér að leika ein- hvers konar sjónhverfingakúnst- ir, en við nánari yfirvegun kemst ég að þeirri skynsamlegu niður- stöðu að ugglaust séu einhvers staðar í þessum fjöllum jarðgöng sem tengi þetta afskekkta byggð- arlag umheiminum. Það er heil- mikill handagangur í flugvélinni er við fljúgum yfir Alpana, því enginn vill verða af þessari stór- kostlegu sjón, en svo er hún lið- in hjá, og við höllum okkur aft- ur í sætunum til að hvíla sjón- taugarnar. Alparnir renna aflíðandi niður í Pódalinn og við tekur slétta með þéttri byggð og grænum gróð ursælum víðáttum. Hvernig sem á því stendur er það ósköp bragð dauf dægradvöl að skoða flat- lendi úr flugvél. Svo fer landið aftur að færa sig upp á skaftið og við fljúgum inn yfir Appennínafjöllin sem eru eins konar hryggbein Ítalíu. Þau eru mun lægri en Alparnir og þp er þar víða snjóþungt enn- þá. Byggðin er dreifð en hvergi endanlega rofin. Úr lofti að sjá er byggðin í Appennínafjöllum sérkennileg — alger gagnstæða þess sem við eig um að venjast á íslandi. Bæir og þorp liggja hvarvetna efst á búið að skipa nefnd, sem athuga ætti reicstur Bændaskólanna og búizt væri við einhverjum breyt- ingum. í ráði væri að smíða full- komið vélaverkstæði, enda væri nauðsyn að sníða kennslu eftir kröfum tímans. Þá fór fram af- hending skírteina til 16 búfræð- inga, sem brautskráðust í þetta sinn. Einkunnir voru mjög jafn- ar, flestir með fyrstu einkunn og einn, Tryggvi Pálsson stúdent, með ágætiseinkunn, 9.48. Smiðar fyrir 80 þús. kr. Smíðar höfðu verið stundaðar af kappi og voru mjög margir eigulegir munir enda talið að smíðaker.nsla á Hólum sé sú bezta sem þekkist í skóla hér á landi. 50 munir voru gerðir og 196 bækur bundnar. Var þetta metið á um 80 þús. kr. Verðlaunum var úthlutað úr verðlaunasjóði Bændaskólanna, verðlaunum frá Sambandi ísl. samvinnufél., frá Ferguson verksmiðjunum, úr minningar- sjóði Tómasar Jóhannssonar leikfimikennara, tvenn verðlaun frá Morgunblaðinu, verðlaun fyrir hirðingu hesta og verðlaun úr minnmgarsjóði Jósefs Björns- sonar. Skólastjóri sagði að mikil bretying væri nú á orðin, t. d. síðan 1930, um stofnun bús, þar sem peningagildi væri nú orðið sáralítið og allt hefði hnigíð í þá átt að gera mönnum erfiðara er reisa vildu bú frá grunni. bungum fjalla og hæða, og veg- irnir, sem eru eins og hvitir ó- reglulegir saumar á landinu, þræða fjallahryggina og bregða svo að segja hvergi út af þeirri venju. Það er engu líkara en mannfólkið hér skelffst dalbotna og skorninga, en leggi allt kapp á að liggja sem bezt við sól, veðr- um og vindum. Á fjöllum og hæðum er enn þunnt snjólag, en niðri í dölunum er gróðurinn þeg- ar tekinn að grænka. Bæir og þorp liggja flest undir snjó og mynda alls kyns skrýtileg mynst ur á fannbreiðunni. Þetta er að líkindum landið sem Ignazio Silone lýsir svo snilldarlega í skáldsögu sinni „Brauð og vín“. Degi er tekið að halla og sól- argeislarnir renna sér sniðhallt gegnum þunna skýjaslæðuna yfir þetta hrjóstuga og fjölbýla land. Fjöllin í fjarska boða kvöldkomu með því að roðna lítið eitt á vang- ann. Við fljúgum yfir vatnsmikla á sem kemur af fjöllum og hef- ur safnað til sín ótölulegum fjölda bæja og þorpa. Þegar rökkr ið hnígur yfir byggðina fara ljós- in að vakna eitt af öðru, og brátt er fátt annað sýnilegt en þessir glitrandi dílar til og frá um fjöll- in. — Þegar nær dregur austurströnd inni þéttast þessir Ijósdílar og mynda stærri eða minni stjörnu- þokur. Frá Anconna er flogið suður með strönd Ítalíu sem spegl ar Ijósaskraut ótalinna borga og þorpa í lognkyrrum fleti Adría- hafsins. Svo ríkir myrkrið unz við kom- um inn yfir strendur Grikklands. Á Pelopsskaga eru ljósin færri og strjálli en á Ítalíu. Ég hef einhverra hluta vegna á tilfinning unni að við séum að fljúga yfir Suðurlandsundirlendið síðasta spölinn til Reykjavíkur. Kannski er undirvitundin að árétta þá vitneskju mína að engin tvö lönd í Evrópu eru jafnlík frá náttúr- unnar hendi eins og Grikkland og ísland. Eða finnst mér kannski innst inni að ég sé á leiðinni heim? Áður en varir erum við yfir Píre- us sem tekur á móti okkur með glitrandi ljósadýrð. Ljósin með- fram endilangri ströndinni, sem myndar hálfmána við botn fló- ans, eru eins og gimsteinafesti á breiðum og vinhlýjum konu- barmi. Og við líðum inní faðm þessarar brosandi borgar með feiginleik elskhugans. Það er 20 stiga hiti í Aþenu þó orðið sé áliðið kvölds. Mild sumarblíðan lykst um mig, og ég á erfitt með að gera mér grein fyrir því, að fyrir einum 10 tím- um var ég staddur í Berlín í kalsaveðri. Flestir vinna við bústörf Þau 25 ár, sem Kristján Karls- son er búinn að vera skólastjóri kvað hann 539 nemendur hafa sótt skólann. Mikill meiri hluti af þeim hefði stundað nám í 2 vetur. Hann taldi að um 70% af nemendum, sem frá skólanum kæmi, stunduðu landbúnaðar- störf eða honum skyld störf. Að éndingu kvað skólastjóri þaS ósk sína, að þeir búfræðingar, sem nú útskrifuðust, héldu sig að búskap og hliðstæðum störfum og að þeir yrði góðir félagsmenn og nýtir . starfi landi og lýð til góðs. Á eftir ræðu skólastjóra var sungið: „Eg vil elska mitt land.“ Matarstjóri var kosinn til næsta íkólaárs, Broddi Björns- son, Framnesi í Skagafirði. — Kostnaður á hvern námsmann varð kr. 33,00 á dag á móti kr. 32,00 árið áður. Áður en piltar yfirgáfu staðinn háðu þeir knattspyrnukappleik við Sauð- kræklinga, sem endaði með ósigri peirra 4:1. Eins og vænta má myndast góð vinátta á milli þessara skóla- félaga, enda var auðséð á kveðj- um þeirra að þar var einlægur hlýhugur, en hugurinn leitar heim úl starfa. Allir hafa þeir mikinn áhuga að sýna hvað þeir hafa lært. Þeir vilja sjálfsagt allir verða góðir félagsmenn, nýtir inenn. — B. Frá Ölpunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.