Morgunblaðið - 14.05.1960, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.05.1960, Blaðsíða 5
Laugardagur 14. maí 1960 MORCVNLLAÐIÐ 5 nfff?? /fflffff ilili ......... ÞAÐ hefur alltaf verið minn versti galli, hvað ég er slæm í viðtölum, sagði Engel Lund, er við hittum hana að máli, — sumir eru svo smart og geta alltaf sagt eitthvað hnyttið, en það get ég ekkL Með Engel Lund var und- irleikari hennar, dr. Ferdi- nand Rauter og er þetta í fyrsta skiptið, sem hann kemur tii Islands. Dr. Raut er er þýzkur að ætt, en hefur verið enskur ríkisborg ari síðan 1946. — Við höfum unnið sam- an í þrjátíu ár, segir Lund, — og rifist afskaplega mik- ið. Það er aðalatriðið að halda áfram að rífast. — Um hvað? — Um lögin, tempó og ýmislegt. Fyrst vel ég lögin og síðan byrjum við og höldum áfram þangað til við höfum komizt að nið- nrstöðu. Stundum vinn ég og stundum hann. — En tg sagði henni Elínu frá þessu öllu einhverntíma. — Eruð þér nú r*.8 kenna Fílharmóníukórnum? — Ja, — kennslu getum við ekki beinlínis kallað það. Ég leiðbeini fólkinu í smáhópum og við tölum um ýmislegt, sem má forð- ast, t.d. söngþreytu og við tölum um orðin, öndunina og fleira. — Heyrðuð þér Carmina Burana? — Já, og eg varð svo hrif in. Ég ætlaði fyrst og fremst að koma til að gagnrýna og vera hörð, en gleymdi því alveg. Aiuðvitað alls ekki fullkomið, en margt afskap- lega vel gert. Það eru svo margar góðar raddir til á íslandi og sönggleðin er hér svo mikil. — Ætlið þér að halda hljómleika? — Já, þess vegna er dr. Rauter kominn, en ég veit ekki hvenær þeir verða. Ég hef þurft að ná í hann Ragn ar — en þér vitið nú hvern- ig það er. — Eigum við kannske að reyna að ná í hann núna? — Núna? — Vitið þér hvernig á að ná í Ragnar? Ég skal segja yður eitt í þessu sambandi. Um daginn þurfti ég nauðsynlega að ná í hann, hringdi á ótal staði og loks heim til hans, en sagði við sjálfa mig um leið: Þetta er gersamlega þýðing- arlaust. En hver haldið þér að komi í símann. RAGN- AR. Ég varð svo undrandi, að ég gat ekkert sagt. Það eru til fjórar manngerðir? Sá, sem veit ekkert, en veit ekki að hann veit ekkert — er fífl — forðist hann. Sá, sem veit ekkert, en veit að hann veit ekkert — er einfaldur — kennið honum. Sá, sem veit, en veit ekki að hann veit — er sofandi — vekið hann. Sá, sem veit og veit, að hann veit — er vitur — fylgið honum. — Lady Burton. Flugfélag íslanðs h.f.: — Millilanda- flug: Hrímfaxi fer til Osló, Kaupmh. og Hamborgar kl. 10:00 í dag. Vaentan- legur aftur til Rwkur kl. 16:40 á morg- un. — Innanlandsflug í dag: Til Akur- eyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Húsavíkur, Isafjarðar, Sauðárkróks, Skógasands og Vestmannaeyja (2 ferðir). — A morgun til Akureyrar, Siglufjarðar og V estmannaey j a. Loftlciðir h.f.: — Leifur Eiríksson er væntanlegur kl. 6:45 frá New York. Fer til Stavanger og Helsinki kl. 8:15. — Leiguflugvélin er væntanleg kl. 19:00 frá Hamborg, Kaupmh. og Gautaborg Fer til New York kl. 20:30. — Leifur Eiríksson er væntanlegur kl. 01:45 frá Helsinki og Osló. Fer til New York kl. 03:15. Pan American flugvél kom til Kefla- víkur í morgun frá New York og hélt áleiðis til Norðurlandanna. Flugvélin er væntanleg aftur annað kvöld og fer þá til New York. Eimskipafélag íslánds h.f.: — Detti- foss er væntanlegur til Rvíkur í dag. — Fjallfoss fór í gær frá Rotterdam til Antwerpen. — Goðafoss er í Tönsberg. — Gullfoss fer í dag frá Kaupmh. til Leith. — Lagarfoss fór í gær frá Djúpa vogi til Vestmannaeyja, Keflavíkur, Akraness og Rvíkur. — Reykjafoss fór í gær frá Hafnarfirði til Vestmanna- eyja. — Selfoss fór í gær frá Riga til Ventspils. — Tröllafoss er á leið til Rvíkur. — Tungufoss er í Hamina. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla kom til Akureyrar í gær. — Esja fór frá Akureyri í morgun á austurleið. — Herðubreið fer frá Vestmannaeyjum í kvöld til Rvíkxu:. — Skjaldbreið er væntanleg til Akureyrar í dag á vest- urleið. — Þyrill er 1 Reykjavík. — Herjólfur er í Reykjavík. Skipadeild S.I.S.: — Hvassafell er á leið til Lysekil. — Arnarfell er í Oden- se. — Jökulfell losar á Austfjörðum. — Dísarfell er í Rotterdam. — Litlafell er í olíuflutningum í Faxaflóa. — Helga fell er á Akureyri. — Hamrafell fór í gær frá Reykjavík til Batum. H.f. Jöklar: — Drangjökull og Vatna- jökull eru í Reykjavík. — Langjökull er í Ventspils. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: — Katla er í Kotka. — Askja er í Riga. Hafskip: — Laxá er í Riga. Prestar hinum heimi frá hulda dóma segja, en skyldi þeim engum bregða í brá, blessuðum, nær þeir deyja? Mundum vér ei þora þá í þeirra húspostillum auðmjúklega að eftirsjá ýmsum pennavillum. Sigurður Breiðfjörð: Prestar hinum heimi frá. ÁHEIT og GJAFIR Bágstöddu hjónin, afh. Mbl.: — HA 150 kr.; HB 25; G 25. Sólheimadrengurinn, afh. Mbl.: — OT áheit 500 kr. Hallgrímskirkja í Saurbæ, afh. Mbl.: — ISB 50 kr; HG 50 kr. Lamaði íþróttamaðurinn, afh. Mbl.: — Frá Ingu 50 kr. Rafnkelssöfnunin, afh. Mbl.: — O- merkt í bréf 1000 krónur. Til Skálatúnsheimilisins: Aheit frá tveim öldruðum systrum, kr. 300. Beztu þakkir. Jón Gunnl. Gengið /0 a Esju ESJAN er fögur á aS líta, það finnst Reyk- vikingum að minnsta kosti. En hvað er það mikill hluti bæjarbúa, sem gengið hefir á Esjuna og fengið notið útsýnisins þaðan? Það er engu síður dásam- legt en fjallið sjálft. Á sunnud. gefst mönn- um kærkomið tæki- færi til þess að ganga á Esju. Farfuglar efna til ferðar þangað í sam ráði við Æskulýðsráð Reykjavíkur. — Lagt verður af stað í fyrra- málið kl. 9,30 frá Bún- aðarfélagshúsinu. Matráðskona óskast að Jaðri. Uppl. í G.T.-hús- inu kl. 5—7 á mánudag og þriðjudag. Keflavík Herbergi til leigu á Kirkju vegi 36. Sanngjörn leiga. Uppl. í sima 2083, milli kl. 7 og 9 e. h. Ráðskona óskast á sveitaheimili austan fjalls. Má hafa með sér harn. Uppl. í síma 33656, frá kl. 6—8. Keflavík Ósika eftir 2 herb. og eld- húsi til leigu strax. Upplýs- ingar í síma 1808. Vill ekki einhver leigja ungum hjónum 2—3 herb. íbúð 1. júní. Vinsamlegast hríngið í sima 17662. Ýmiss klæðnaður og stofuskápur til sölu. — Sanngjarnt verð. — Sími 33093. — Til leigu strax nýleg 4ra herb. íbúðarhæð við Miðbæinn. Tilboð send- ist afgr. Mbl., fyrir hádegi á mánud., merkt: „3445“. Trillubátur, 1,76 tonn 10 ha. Albin-vél til sölu að Melabraut 55, Seltjarnar- nesi. Bátur og vél sem nýtt. Sími 12245. Ribsplöntur sólberjaplöntur og stórar greniplöntur til sölu, Baugs veg 26, sími 11929. Afgr. eftir kl. 7 síðdegis. íbúð með húsgögnum (baði og síma), til leigu í 2—3 mánuði. Uppl. í síma 13296, eftir kl. 7. Tvíbura-kerra Sem ný Pedigree tvibura- kerra ásamt kerrupokum, til sölu i Fornhaga 24, uppi. Sími 22759. íbúð 2 til 3 herb. íbúð óskast fyrir ung, reglusöm hjón. Sími 33694. Ung, bamlaus hjón sem bæði vinna úti óska eftir 2ja herb. íbúð. Hring ið í síma 11921 eftir kl. 1. Til sölu Ford Prefeet, árgerð 1946. Upplýsingar í «úna 35452, eftir kl. 6. Ódýr 7 metra skúr Einnig barnakerra með poka til sölu á Hverfisgötu 94, í dag. Uppl. í síma 17629 Útvarpsfónn Vandaður Philips útvarps- fónn til sölu, 10 lampa tæki Uppl. í dag og næstu daga að Hjarðarhaga 15, 1. hæð. Opel Caravan ’55 Austin 10 ’46. Ýmsir vara- hlutir, nýir og notaðir til sölu á sanngjörnu verði. — Uppl. í síma 22844. Barnavagn óskast til kaups. — Upplýs ingar í sima 50737. Til sölu vandaður klæðaskápur — (þrí-settur), úr mahogný. Til sýnis eftir hádegi 4 laugardag að Goðheimuxn 16, kjallara. Húsgagnasmiður óskast. — Jónas Sólmunds- son. — Símar 16673, 22552. Stúlka óskast til framreiðslustarfa. BRAUBBARINN Aðalstræti 8. Ibúð óskast Ung hjón vantar íbúð í Reykjavík eða Hafnarfirði Uppl. í síma 32201. Kokkur óskar eftir plássi sem kokkur á góð- um aflabát. Er vön. — Vin samlegast sendið tilboð til Mbl., fyrir 22. mai merkt: „3475“. Hótel Borg s I 4 V \ ý V jí s s I 1 s s s s V s i Kalt borð hlaöið lystugum mat og bragðgóðum hádeginu og um kvöldið. ★ DANSAÐ frá kl. 8—1. ★ Hljómsveit Björns R. Einarssonar Söngvari: Ragnar Bjarnason ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að augiýsa i Morgunblaðinu en í öðrum blöðum. — 2ti0rgtm(?la&t&

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.