Morgunblaðið - 20.05.1960, Side 1

Morgunblaðið - 20.05.1960, Side 1
24 síður 47 árgangur 114. tbl. — Föstudagur 20. maí 1960 Prentsmiðia Morgunblaðsins Ný afbrot Olíufélagsins upplýst með aðstoð rannsóknardeildar bandaríska flughersins Fé af leynireikningum notað í verðbréfabraski Innstæður fluttar til Sviss, er rannsókn málsins hófst ENN eru að koma í ljós nýir þættir hins alræmda olíu- máls. Er nú komið á daginn, að fé af leynireikningi Olíu- félagsins hefur verið notað i kauphallarviðskiptum í New York árin 1954—1956. Einnig er upplýst, að fé hefur verið yfirfært til Sviss frá Banda- ríkjunum, þegar rannsókn olíumálsins hófst. Nemur sú upphæð rúmum 3 millj. kr. Mbl. átti í gær viðtal við Guðmund Ingva Sigurðsson, rannsóknardómara í olíumál- inu og staðfesti hann, að Hauk- ur Hvannberg hefði játað að hafa látið verðbréfafyrirtæki í New York kaupa og selja verð- bréf í ágóðaskyni fyrir háar upp- hæðir. Ennfremur að hafa flutt Frönsk 4-þrepa eldflaug PARÍS, 19. maí (Reuter) — Franska landvarnaráðuneyt ið upplýsti í dag, að hinn 5. maí sl. hefði verið skotið á loft fjögurra þrepa eid- flaug frá tilraunastöð flot- ans á eyjunni lle du Levant í Miðjarðarrafi. í tilkynningunni segir, að öll þrep eldflaugarinnar hafi starfað eins og til var ætlazt og tiiraunin tekizt vel í einu og öllu. Fjórða þrepið náði 8000 km hraða á klst. í 25 km hæð og komst upp í 150 km hæð, áður en það tók að falla á ný. fé til Sviss, er rannsókn olíu- málsins hófst. Verðbréfafynr- tækið nefnist BUTTLER, HERR- ICK & MARSHALL, en banki sá, sem skipt var við í Sviss er Union Bank of Switzerland. Mbl. spurði, hvort Haukur Hvannberg hefði rekið viðskipli þessi í ábataskyni fyrir sjálfan sig. — í*að vil ég ekki segja, svar- aði rannsóknardómarinn, og bætti því við, að þeir Gunnar Helgason fjölluðu nú um málið sem rannsóknardómarar, sem síðar kynnu að þurfa að dæma í málinu og yrðu þeir því að varast að mynda sér ákveðna Framh. a bls. 2. Ekki búizt við stórfíðind- um í Berlín Stórveldaleiðtogarnlr héldu frá París í gœr í GÆR héldu leiðtogar stór- veldanna, sem sóttu topp- fundinn, burt frá París, hver í sína áttina — Krúsjeff til Austur-Berlínar, Eisenhower til Lissabon, þar sem hann staldrar við einn dag, og Macmillan heim til Lundúna. Krúsjeff endurtók árásir sínar á Bandaríkin, bæði áð- ur en hann fór frá París og eins við komuna til Austur- Berlínar, þar sem honum var tekið með kostum og kynjum. Þótti hann þar þó heldur mildari í máli en hann hefir verið undanfarna daga. * ÞRENGJUM MEGINGJARÐIR 1 Lissabon sagði Eisen- hower m. a., að menn skyldu ekki láta hugfallast vegna upplausnar leiðtogafundar- ins. Nú verðum við, sagði hann, að „þrengja megin- gjarðirnar og bera höfuðið hátt — og hver og einn verð- ur að leggja dálítið harðar að sér en áður til þess að vinna hinum mikla málstað friðarins, réttlætisins og frelsisins“. Við komuna til Lundúna sagði Macmillan m. a., að nú yrðu Vesturlönd að vera við- búin alvarlegu ástandi — og þau mundu vissulega ekki láta neinn bilbug á sér finna. Þó bæri að vona, að hér yrði aðeins um tímabundna erfið- leika að ræða, en ekki varan- Iega breytingu heimsástands- ins til hins verra. ★ EISENHOWER PREYTTUR Fréttaritarar tóku til þess, hve Eisenhower var þreyttur við komuna til Lissabon í dag. Þó virtist létta nokkuð yfir honum við hinar hjartanlegu móttökur, sem hann fékk hjá Portúgölum, en talið er, að um hálf milljón manna hafi fagnað honum — og skotið var 21 fallbyssuskoti hon- um til heiðurs, er hann steig út Framh. á bjs. 23. Hiatthías Johannessen lýsir blaðamannafundi Krúsjeffs: Reiddur hnef i og bros til skiptis Parts, 19. mai. — Einkaskeyti frá Matthíasi Jóhannessen. U M 2000—3000 blaðamenn hlustuðu á Krúsjeff lýsa þvi yfir á blaðamannafundi í Palais de Chaillot að Rússar mundu halda áfram friðsam- legri sambúð við aðrar þjóð- ir þrátt fyrir atburði undan- farandi daga. Hann bætti því við að Rússar mundu standa vörð um sjálfstæði sitt, og í inngangsræðu hans sem ann- ars staðar var sterkur rúss- neskur þjóðernisandi. Enn- fremur lýsti hann því yfir að hann héldi við stefnu sína um að gera Berlín að fríríki, og að Rússar mundu gera sér- stakan friðarsamning við Þjóðvcrja. í yfirlýsingu sinni í fundarbyrjun sagði Krús- jeff meðan annars að banda- rísku heimsveldissinnarnir væru eins og gömlu rúss- nesku kaupmennirnir. — Þá rakti hann nákvæmlega mál bandarísku njósnaflugvélar- innar U-2, sem skotin var nið- ur yfir Rússlandi hinn 1. maí síðastl. — Krúsjeff talaði mikið um „okk- ar volduga ríki“ og „heiður okk- ar“ o. s. frv. og réðist persónu- lega á Eisenhower, sem hann sagði að bæri ábyrgðina á flug- inu, en í lok fundarins sagði hann að Pentagon og afturhaldið hefðu náð völdum í Bandaríkjunum. Hann lagði áherzlu á að njósna- flugið væri alvarlegt innanríkis- mál í Rússlandi, „því hvað segði fólkið ef við tækjum njósnavél- um Ikes opnum örmum?" spurði hann /ugiióst er að málið er Frh. á bls. 11. WALTER Ulbricht, foringi | austur þý/.kra kommúnista, , fagnar Krúsjeff með virkt- um. Myndin var tekin síðla árs 1958, er Krúsjeff kom til Berlínar. Þá þinguðu þeir , um að gera skyldi Vestur- Berlín að sjálfstæðu borg- 1 ríki — og var haft í hótmn- um við Vesturveldin, ef þau | ekki féllust á þá lausn mál- anna. í gær föðmuðust þeir „félagarnir“ enn hjartan- 1 lega á sama stað — og einn- i ig nú mun Vestur-Berlín ( vera ofarlega á dagskrá hjá þeim .... 1 Rússar kœra PARÍS, 19. maí (Reuter) — f gærkvöldi sendi Andrei Gromy- ko, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, símskeyti til Claude Cor- ea, forseta Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna, þar sem hann krafðist þess, að ráðið yrði kvatt saman þegar í stað „til þess að binda endi á hinar óheyrilegu ögrunarræður Bandaríkja- manna“. — Búizt er við, að ráð- ið komi saman nk. mánudag ti) þess að ræða máliið. — ★ — Gromyko mun halda vestur um haf á morgun til þess að sitja fundinn. Er hann kvaddi Krú- sjeff, sem hélt til Berlínar í dag, skók Sovétleiðtoginn fingur að utanríkisráðherranum og bað hann að „gæta sín á neimsvalda- sinnunum" í New York. „Gættu þess að snúa ekki að þeim bak- inu“, sagði Krúsjeff. — ★ — Herter utanríkisráðherra Banda ríkjanna, heldur einnig vestur um haf á morgun til þess að sitja umræddan fund — og sömuleiðis er gert ráð fyrir, að utanríkis- ráðherrar Bretlands og Frakk- lands verði mættir þar — þeir Selwyn Lloyd og Couve de Miir- ville.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.