Morgunblaðið - 20.05.1960, Síða 1
24 síður
47 árgangur 114. tbl. — Föstudagur 20. maí 1960 Prentsmiðia Morgunblaðsins
Ný afbrot Olíufélagsins upplýst
með aðstoð rannsóknardeildar bandaríska flughersins
Fé af leynireikningum
notað í verðbréfabraski
Innstæður fluttar til Sviss,
er rannsókn málsins hófst
ENN eru að koma í ljós nýir
þættir hins alræmda olíu-
máls. Er nú komið á daginn,
að fé af leynireikningi Olíu-
félagsins hefur verið notað i
kauphallarviðskiptum í New
York árin 1954—1956. Einnig
er upplýst, að fé hefur verið
yfirfært til Sviss frá Banda-
ríkjunum, þegar rannsókn
olíumálsins hófst. Nemur sú
upphæð rúmum 3 millj. kr.
Mbl. átti í gær viðtal við
Guðmund Ingva Sigurðsson,
rannsóknardómara í olíumál-
inu og staðfesti hann, að Hauk-
ur Hvannberg hefði játað að
hafa látið verðbréfafyrirtæki í
New York kaupa og selja verð-
bréf í ágóðaskyni fyrir háar upp-
hæðir. Ennfremur að hafa flutt
Frönsk
4-þrepa
eldflaug
PARÍS, 19. maí (Reuter) —
Franska landvarnaráðuneyt
ið upplýsti í dag, að hinn
5. maí sl. hefði verið skotið
á loft fjögurra þrepa eid-
flaug frá tilraunastöð flot-
ans á eyjunni lle du Levant
í Miðjarðarrafi.
í tilkynningunni segir, að
öll þrep eldflaugarinnar hafi
starfað eins og til var ætlazt
og tiiraunin tekizt vel í einu
og öllu. Fjórða þrepið náði
8000 km hraða á klst. í 25
km hæð og komst upp í 150
km hæð, áður en það tók að
falla á ný.
fé til Sviss, er rannsókn olíu-
málsins hófst. Verðbréfafynr-
tækið nefnist BUTTLER, HERR-
ICK & MARSHALL, en banki
sá, sem skipt var við í Sviss er
Union Bank of Switzerland.
Mbl. spurði, hvort Haukur
Hvannberg hefði rekið viðskipli
þessi í ábataskyni fyrir sjálfan
sig.
— í*að vil ég ekki segja, svar-
aði rannsóknardómarinn, og
bætti því við, að þeir Gunnar
Helgason fjölluðu nú um málið
sem rannsóknardómarar, sem
síðar kynnu að þurfa að dæma
í málinu og yrðu þeir því að
varast að mynda sér ákveðna
Framh. a bls. 2.
Ekki búizt við stórfíðind-
um í Berlín
Stórveldaleiðtogarnlr héldu frá París í gœr
í GÆR héldu leiðtogar stór-
veldanna, sem sóttu topp-
fundinn, burt frá París, hver
í sína áttina — Krúsjeff til
Austur-Berlínar, Eisenhower
til Lissabon, þar sem hann
staldrar við einn dag, og
Macmillan heim til Lundúna.
Krúsjeff endurtók árásir
sínar á Bandaríkin, bæði áð-
ur en hann fór frá París og
eins við komuna til Austur-
Berlínar, þar sem honum var
tekið með kostum og kynjum.
Þótti hann þar þó heldur
mildari í máli en hann hefir
verið undanfarna daga.
* ÞRENGJUM
MEGINGJARÐIR
1 Lissabon sagði Eisen-
hower m. a., að menn skyldu
ekki láta hugfallast vegna
upplausnar leiðtogafundar-
ins. Nú verðum við, sagði
hann, að „þrengja megin-
gjarðirnar og bera höfuðið
hátt — og hver og einn verð-
ur að leggja dálítið harðar
að sér en áður til þess að
vinna hinum mikla málstað
friðarins, réttlætisins og
frelsisins“.
Við komuna til Lundúna
sagði Macmillan m. a., að nú
yrðu Vesturlönd að vera við-
búin alvarlegu ástandi — og
þau mundu vissulega ekki
láta neinn bilbug á sér finna.
Þó bæri að vona, að hér yrði
aðeins um tímabundna erfið-
leika að ræða, en ekki varan-
Iega breytingu heimsástands-
ins til hins verra.
★ EISENHOWER PREYTTUR
Fréttaritarar tóku til þess,
hve Eisenhower var þreyttur við
komuna til Lissabon í dag. Þó
virtist létta nokkuð yfir honum
við hinar hjartanlegu móttökur,
sem hann fékk hjá Portúgölum,
en talið er, að um hálf milljón
manna hafi fagnað honum — og
skotið var 21 fallbyssuskoti hon-
um til heiðurs, er hann steig út
Framh. á bjs. 23.
Hiatthías Johannessen lýsir blaðamannafundi Krúsjeffs:
Reiddur hnef i og bros til skiptis
Parts, 19. mai. — Einkaskeyti
frá Matthíasi Jóhannessen.
U M 2000—3000 blaðamenn
hlustuðu á Krúsjeff lýsa þvi
yfir á blaðamannafundi í
Palais de Chaillot að Rússar
mundu halda áfram friðsam-
legri sambúð við aðrar þjóð-
ir þrátt fyrir atburði undan-
farandi daga. Hann bætti því
við að Rússar mundu standa
vörð um sjálfstæði sitt, og í
inngangsræðu hans sem ann-
ars staðar var sterkur rúss-
neskur þjóðernisandi. Enn-
fremur lýsti hann því yfir að
hann héldi við stefnu sína um
að gera Berlín að fríríki, og
að Rússar mundu gera sér-
stakan friðarsamning við
Þjóðvcrja. í yfirlýsingu sinni
í fundarbyrjun sagði Krús-
jeff meðan annars að banda-
rísku heimsveldissinnarnir
væru eins og gömlu rúss-
nesku kaupmennirnir. — Þá
rakti hann nákvæmlega mál
bandarísku njósnaflugvélar-
innar U-2, sem skotin var nið-
ur yfir Rússlandi hinn 1. maí
síðastl. —
Krúsjeff talaði mikið um „okk-
ar volduga ríki“ og „heiður okk-
ar“ o. s. frv. og réðist persónu-
lega á Eisenhower, sem hann
sagði að bæri ábyrgðina á flug-
inu, en í lok fundarins sagði hann
að Pentagon og afturhaldið hefðu
náð völdum í Bandaríkjunum.
Hann lagði áherzlu á að njósna-
flugið væri alvarlegt innanríkis-
mál í Rússlandi, „því hvað segði
fólkið ef við tækjum njósnavél-
um Ikes opnum örmum?" spurði
hann /ugiióst er að málið er
Frh. á bls. 11.
WALTER Ulbricht, foringi |
austur þý/.kra kommúnista, ,
fagnar Krúsjeff með virkt-
um. Myndin var tekin síðla
árs 1958, er Krúsjeff kom til
Berlínar. Þá þinguðu þeir ,
um að gera skyldi Vestur-
Berlín að sjálfstæðu borg- 1
ríki — og var haft í hótmn-
um við Vesturveldin, ef þau |
ekki féllust á þá lausn mál-
anna. í gær föðmuðust þeir
„félagarnir“ enn hjartan- 1
lega á sama stað — og einn- i
ig nú mun Vestur-Berlín (
vera ofarlega á dagskrá hjá
þeim .... 1
Rússar
kœra
PARÍS, 19. maí (Reuter) — f
gærkvöldi sendi Andrei Gromy-
ko, utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, símskeyti til Claude Cor-
ea, forseta Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna, þar sem hann
krafðist þess, að ráðið yrði kvatt
saman þegar í stað „til þess að
binda endi á hinar óheyrilegu
ögrunarræður Bandaríkja-
manna“. — Búizt er við, að ráð-
ið komi saman nk. mánudag ti)
þess að ræða máliið.
— ★ —
Gromyko mun halda vestur
um haf á morgun til þess að sitja
fundinn. Er hann kvaddi Krú-
sjeff, sem hélt til Berlínar í dag,
skók Sovétleiðtoginn fingur að
utanríkisráðherranum og bað
hann að „gæta sín á neimsvalda-
sinnunum" í New York. „Gættu
þess að snúa ekki að þeim bak-
inu“, sagði Krúsjeff.
— ★ —
Herter utanríkisráðherra Banda
ríkjanna, heldur einnig vestur
um haf á morgun til þess að sitja
umræddan fund — og sömuleiðis
er gert ráð fyrir, að utanríkis-
ráðherrar Bretlands og Frakk-
lands verði mættir þar — þeir
Selwyn Lloyd og Couve de Miir-
ville.