Morgunblaðið - 12.08.1960, Side 2

Morgunblaðið - 12.08.1960, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖstudagur 12. ágúst 1960 Hans Andersen undirbýr viðræður Astandið, sem „Tíminn" harmar wmm Sss, þeir eru á fundi (Þetta er ein af fjölda bráðskemmtilegra teiknimynda eftir danska teiknarann Storm-Petersen, sem birtar eru í hinni nýútkomnu bók Péturs Benediktssonar, bankastjóra, „Milli- liður allra milliliða, og aðrar hugvekjur um þjóðmál“). Kappreiðar Harðar við Arnarhamar LONDON, 11. ágúst. (Reuter). — Guðmundur í. Guðmundsson, ut- anríkisráðherra fslands kom hing að í dag á leið sinni frá Reykja- vík til Tel Aviv í opinbera heim- sókn til fsrael. Harm dvelur í London til laug- ardags, en heldur þá ferð sinni áfram. Sendiherra íslands í London, dr. Kristinn Guðmundsson, tók á móti ráðherranum á flugvell- inum. TaLsmaður íslenzka sendiráðs- ins sagði að ferð utanríkisráð- herrans til ísraels hafi verið á- kveðin fyrir nokkru og koma hans værj ekki í sambandi við yfirlýsingu ríkisstjórnar íslands um að hún væri reiðubúin að taka þátt í viðræðum við Breta um fiskveiðideiluna. Ekki voru ráðgerðir neinir fundir utanrikisráðherrans og ráðandi manna í Bretlandi. En Hans Andersen, fulltrúi fslands í Atlantshafsbandalaginu, sem kom Páfagaukur aflífaður — fyiir ærnar sakii SAN SEBASTIAN, 6. ágúst. — Samkvæmt fyrirskipun- frá yfirstjórnendum spænsku járnbrautanna, hefur stöðv- arstjórinn hér í San Sebast- ian orðið að taka páfagauk sinn af lífi. Fuglinn var í scinni tíð farinn að geta líkt svo snilldarlega eftir brott fararmerkinu á stöðinni, að margar lestir höfðu Iagt af stað frá brautarpallinum, án þess að farþegar eða vörur væru komnar um borð. — Fiskveiðideilan Frh. af bls. 1 milli hans og utanríkisráðherra Breta, Home lávarðar. Phillips ánægður . Fulltrúar brezkra togaraéig- enda áttu í dag fund með Christo pher Soames, landbúnaðar- og sjávarútvegsmálaráðherra. For- maður togaraeigendasambands- ins, sir Farrdale Phillips, sagði eftir fundinn að allir meðlimir samtakanna gleddust yfir því að íslenzka ríkisstjórnin hafi tjað sig fúsa til viðræðna við brezku stjómina. Brezka togaraeigenda- sambandið mun gera allt til þess að unnt verði að fá réttláta og varanlega lausn á deilunni. Áfram utan 12 mílna Allir brezkir togarar, sem stunda veiðar við strendur ís- lands, fengu í gær skeyti frá samtökum togaraeigenda, þar sem þeim er fyrirskipað að fara eftir fyrirmælum samtakanna og halda sig áfram utan 12 mílna markanna. Þar er á það bent að sérhver árekstur á fiskimiðun- um, geti orsakað það að ekkert verði úr viðræðum ríkisstjórn- anna. SYNDIÐ 200 METRANA við í London á leið sinni til París- ar, átti tal við opinbera brezka aðila varðandi stund og stað fyrir væntanlegar brezk-islcnzkar við- ræður. Olympíuíerð Ferðaskrilstof- unnar EINS og kunugt er efnir Ferða- skriflstofa ríkisins til ferðar á Olympíuleikana í Róm, sem hefj- ast 25. þ.m. Farið verður í tveim hópum. Fyrsti hópurinn leggur af stað nk. miðvikudag þ. 17. ágúst og verður þá flogið til Hamborgar, en þar er íslenzkur bíll fyrir og með hon- um verður farið á sjö dögum suð- ur um Evrópu til Ítalíu. Dvalið verður í Hamborg einn dag og borgin skoðuð, en síðan haldið til Rínarlanda, þar sem ferðazt verð ur um í tvo daga. Þá verður ekið um fegurstu héruð Sviss og gist í Luzern og Lugano. Eftir dvölina í þessum tveim fögru borgum verður haldið suður um Ítalíu, ekið meðfram Como-vatni, um Milano, Bologna og Florenz og komið til Rómar að kvöldi 24. ágúst. Sama dag kemur seinni hópur- inn þangað einnig og dvelst nú ferðafólkið, um 80 manns, þar um kyrrt meðan á leikunum stendur. Þó er fyrirhugað að þeir er þess óska, geti farið í tveggja til þriggja daga ferð til Napólí og hinnar rómuðu Caprí. Að leikunum loknum flýgur meirihluti ferðafólksins heim, en hinir aka með bílnum sömu leið til baka og kemur seinni hópur- inn til Hamborgar 18. september. GENF, 11. ágúst (Réuter). — Rússár tilkynntm í dag að þeir væru samþykkir því að settar yrðu upp 15 eftirlitsstöðvar í Sovétríkjunum til að fylgjast með því að væntanlegur samningur Austurs og Vesturs um bann við tilraunum með kjarnorkusprengj ur verði haldinn. Þríveldaráðstefnan um kjarn- orkutilraunir hefur nú starfað í 21 mánuð, en þetta er í fyrsta sinn að fulltrúi Rússa hefur fallist á ákveðinn fjölda eftirlitsstöðva. — Samkvæmt tillögum Vesturveld- anna áttu eftirlitsstöðvarnar í Sovétríkjunum að vera 21. En á fundinum í dag, sem stóð í hálfa KAPPREIÐAR HARÐAR verða háðar við Arnarhamar á Kjalar- nesi n.k. sunnudag 14. ágúst. Þáttakan í hlaupunum 250 og 300 m er góð en aðeins þrír hestar í 350 m. Þar mætast nú Garpur í Dalsgarði, sem jafnaði íslands- metið á vegalengdinni á fjórðungs mótinu í Borgarfirði í sumar og Kirkjubæjar-Blesi frá Reykjum, en hann hefur aldrei tapað spretti á styttri vegalengdum. Mun marga fýsa, að sjá þessa hesta mætast. Þá er gott hestaval í öðr- um hlaupum. T.d. sendir Jón í aðra klukkustund, sagði Semyon Tsarapkin að það væri allt of mikið og lagði til að stöðvarnar yrðu 15, tvær í Evrópu og 13 í Asíu. Tsarapkin féllst á tillögur Vest- urveldanna um að setja upp 11 eftirlitsstöðvar í Bandarikjunum og lagði til að ein stöð yrði í Bretlandi. Taipei, Formósu, 9. ágúst. — Tveir biðu bana og sjö slösuðust, er fellibylur gekk yfir norðan- verða Formósu í gær og olli mesta regni, sem hér hefir komið í 20 ár. — Varmadal í skeið, einnig er Ven- us þar með og Frekja frá Skraut- hólum. Völlurinn að Arnarhamri er einn bezti völlur landsins og hafa ávallt náðst þar góðir tímar. Á- horfendasvæði eru mjög góð frá náttúrunnar hendi í hlíð Esju. Þetta eru síðustu kappreiðar árs- ins á vegum sam,taka hestamanna og vel til þeirra vandað. ÞÚFUM, 10. ágúst. — Sunnudag- inn 7. þ. m. fór hér um Djúpið fjölmennur hópur bænda og hús freyja úr Kjalarnesþingi í bændaför, 70 manns með fylgd- arliði. Höfðu þeir farið veginn uin Barðaströnd áleiðis að Djúpi, en komið við og skoðað sig um á Vesífjörðum. Hóurinn fékk hvarvetna hinar myndarlegustu móttökur, þar sem hann kom og var honum alls staðar sýnt mikil gestrisni. Stjórn Búnaðarsambands Vest fjarða fylgdi hópnum um sam- bandssvæðið. Farið var út í Bol- ungarvík, Skutulsfjörð og Súða- vík. Þótti héraðsbúum hér vera góðir gestir á ferð. Komið var við á leið um Djúpið í Vigur og Æðey og eyjarnar skoðaðar og veittar góðar veitingar eftir því sem við varð komið. í Reykja- nesi buðu Búnaðarfélögin í Inn- djúpinu hópnum til hádegis- verðar. Sat þar nálega 100 manns í einu undir borðum. Höfðu Páll skólastjóri og kona hans séð uin veitingar, sem voru hinar ágæt- ustu. Páll skólastjóri bauð gest- ina velkomna. Undir borðum voru ávörp flutt og stuttar ræð- ur. Töluðu Páll Pálsson í Þúfum, Bjarni Sigurðsson í Vigur, Sig- urður Þórðarson á Laugabóli, Baldur Bjarnason í Vigur. Veður hið fegursta Fararstjórar hópsins voru Jó- hann Jónasson, forstjóri Græn- metisverzlunar ríkisins og Gunn ar Árnason, skrifstofustjóri Bún aðarféiag íslands. Þakkaði Jó- hann móttökur fyrir hönd gest- anna, svo og Guðmundur Ingi, formaður Búnaðarsam- bands Vestfjarða. Að lokum var Fyrirlestrar um landbú- nað í SAMBANDI við sumarfund Félags ísl. búfræðikandídata verða flutt tvö erindi um'landbún að, laugardaginn 13. þ. m. í 1. kennslustofu háskólans og hefst hið fyrra kl. 16.00. Öllum er heimill aðgangur. Fyrra erindið flytur Dr. T. S. Ronningen, frá Bandaríkjunum, er. hann er aðalsérfræðingur og eftirlitsmaður með tilraunum þeim, sem bandaríska landbún- aðarráðuneytið styrkir í einstök- um fylkjum. Mun hann ræða um rannsóknir á fóðurjurtum á norð lægum slóðum, en hann er m. a. kunnugur búnaðarskilyrðum i Alaska. Hingað kom Dr. Ronningen um síðustu helgi frá Norðurlöndum, en þangað fór hann eftir áð hafa sótt alþjóðagrasræktarráðstefnu í Bretlandi, sem haldin var í síð- asta mánuði. Hér hefur Dr. ílonn- ingen ferðast um SuSurland og Borgarfjörð með starfsmönnum Búnaðardeildar Atvinnudeildar háskólans og kynnt sér jarðrækt og tilraunir, og er hann nú á förum vestur um haf. Síðasta erindið flytur H. Land Jensen, tilraunastjóri á tilrauna- stöðinni Ödum á Jótlandi og fjall- ar það um ræktun fóðurjurta og geymslu þeirra. H. Land Jensen er kunnugur tilraunamaður á Norðurlöndum, einkum fyrir til- raunir og rannsóknir á votheya- verkun, en á ödum eru gerðar mjög víðtækar tilraunir«með fóð- urverkun og þar eru aðal votiheyg gerðartilraunir Ðana. Hefur Land Jensen ritað mikið um þetta efni. H. Land Jensen hefur ferðast hér á landi í % mánuð að til- hlutan Ræktunarfélags Norður- lands til þess að kynna sér hey- verkun okkar og landbúnað yfir leitt. Fréttatilkynning frá Félagi ía- lenzkra búfræðikandídata. flutt ávarp frá Ásdisi Káradótt- ur frá Garðskaga. Var það vel flutt og sköruglegt. Veður var hið fegursta þennan dag og komu menn úr öllum hreppum Inndjúpsins til móts við fólkið og voru með því í Reykjanesi. Þaðan hélt hópurinn suður yfir Þorskafjarðarheiði að Bjarkarlundi. Um kvöldið var svo ákveðið að faa um Breiða- fjarðareyjar næsta dag. Var fólk ið yfirleitt mjög heppið með veður þessa daga og var ánægt með ferðalagið. Fylgdu því góð- ar óskir og þakkir fyrir kom- una. — P. P. / Akurevri : Valur ÍSLANDSMÍTIÐ 1. deild heldur áfram í kvöld og keppa þá Akur- eyringar og Valur. Þessi leikur er mjög þýðingarmikill fyrir bæði liðin því ekki er enn útséð hvaða félag fellur niður í 2. deild. Jakob Jakobsson hinn snjalli leiik maður Akureyringa er nú kominn frá læknisnámi frá Þýzkalandi og mun jafnvel leika með þeim í kvöld. Pétur hljóp á 14,5 sek í GÆRDAG var efnt til keppni í 110 m grindahlaupi á Laugar- dalsvellinum. Keppandi var Pét- ur Röngvaldsson KR. Hann náði tímanum 14.5 sek., sem er 1/10 betra en hans staðfesta Islands- met er. Þetta er jafnframt sama afrek og FRÍ setti sem iágmark til Rómarferðar. Engin lœgð sœk ir að íslandi ENNÞÁ stendur loftvog vel um allt land. Háþrýstisvæði liggur yfir vestanverðu ís- landi og Grænlandshafi, þaðan suður í haf. Engin lægð sækir að íslandi í svipinn, svo að ekki er að vænta mikilla veðra breytinga í bili. í gær var skýjað loft og vindur hægur um mestan hluta landsins. Á Suðurlandi var þó víða sólskin og hlýtt, t. d. 17 stiga hiti á Klaustri og 14 stig á Eyrarbakka og Loft- sölum um nónbilið. Vegna mistaka getur ekkert veðurkort birzt í dag. Veöurhorfur kl. 22 í gær- kvöldi: SV-land, SVmið: norð vestan gola, víða léttskýjað, Faxaflói — Norðurlands og Faxaflóamið til Norðurmiða: hægviðri, skýjað, úrkomulaust að mestu, þokuslæðingur á miðum og annesjum í nótt, NA-land og Austfirðir, NA- mið og Ajistfjarðamið: N-gola, skýjað, sums staðar dá lítil þokusúld í nótt. SA-land og SAmið: NA-gola, víða létt- skýjað. Samþykkir eftirliti Bændaíör úr Kjalarnesþingi um Vestfirði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.