Morgunblaðið - 12.08.1960, Síða 6
6
MORCUIVfíL * Ð1B
Föstudagur 12. ágúst 1960
Sextugur í dag:
Sveinn Sæmundsson
yfirmaður rannsóknarlögreglunnar
SVEINN Sæmundsson yfirmaður
rannsóknarlögreglunnar er sex-
tugur í dag.
Þegar ég. áttaði mig á þessu
í gær, vaknaði spurningin: Á ég
að skrifa kerfisbundna afmælis-
Sveinn Sæmundsson
við skrifborð sitt
grein um Svein? Sannast að
segja finnst mér hann ekki vera
orðinn nógu gamall til þess að
ég taki þannig á því. Að skrifa
um hann afmælisgrein yrði mér
álíka erfitt verk og að fara að
skrifa um einhvern samstarfs-
mann hér við blaðið, sem með
mér hefur lengi unnið. Heita má
að ég hafi á hverjum einasta
degi, — stundum oft á dag, síð-
astliðinn hálfan annan áratug og
rúmlega það, talað við Svein,
spurt hann fréttá fyrir blaðið. Ég
gæti reynt að eiga við hann af-
mælisviðtal. Hann er reyndar svo
oft búinn að segja mér að láta
það bíða betri tíma, að úr sam-
tali verður ekki að þessu sinni.
Ekki get ég þó látið afmæli
Sveins fara fram hjá blaðinu.
Niðurstaðan varð þessi: Þetta
verður ekki nein afmælisgrein,
aðeins nokkrar línur til þess að
láta hinn mikla fjölda vina hans
vita um afmælið.
Starf Sveins er svo samtvinnað
fréttadálkum blaðanna, að sá
maður fyrirfinnst ekki hér á
landi x dag, sem ritstjórnir dag-
blaðanna hafa eins náið samband
við og einmitt Sveinn. Á þessu
sviði hefur hann algera sérstöðu.
Mættu margir embættismenn
taka hann sér til fyrirmyndar
þegar um er að ræða samskipti
við dagblöðin. Þegar Sveinn
segir okkur blaðamönnum frá
ýmsum lögreglumálum kemur
fram hjá honum hin mikla
reynsla og kynni, sem hann hef-
ur öðlazt af mönnum og mál-
efnum, og að margs er þá að gæta
í frásögninni. Sveinn stendur
fastur sem. bjarg gegn öllum til-
raunum til æsifréttastíls, á því
sem hann greinir blöðunum frá
Það var eitt sinn haft eftir þing-
manni einum, að í hverju máli
væru a. m. k. tvær þungamiðjur.
Þetta á vissulega við þegar um
er að ræða ýmis hin viðkvæm-
ustu lögreglumál a. m. k. Ein-
mitt þessa sjónarmiðs gætir oft
þegar við blaðamennirnir göng-
um í skrokk á Sveini. Þó Sveinn
sé brúnaþungur, manna harð-
astur og fastastur fyrir, þá er hið
mannlega ríkt í fari hans, og
alltaf talar hann af ríkri samúð
með þeim, sem menn hans hafa
í það og það sinnið handtekið.
jafnvel þó í 60. skiptið væri.
Eitt af því sem vakti undrun
mína, rétt eftir að leiðir okkar
Sveins lágu fyrst saman, var að
þó hann sé stúkumaður, þá ræðir
hann um hið sígilda umræðu-
efni: áfengismálin og þann vanda
sem áfenginu fylgir, af næmum
skilningi og þekkingu. Sveinn er
nefnilega viðsýnn maður að eðlis
fari. Samskipti hans við hinar
ólíkustu manntegundir í löngu
og farsælu lögregluþjónsstarfi
hafa þar fengið að njóta sín.
í frístundum gefur Sveinn sig
einkum að bókum. Hann les mik-
ið og hefur komið sér upp mjög
góðu og stóru bókasafni. Er hann
tíður gestur á bókauppboðum. í
safni hans kennir margra grasa,
en einkum hefur hann reynt að
verða sér úti um skáldrit og
sagnfræði.
Nú er Sveinn nýlega kominn
heim úr sumarleyfi sínu, útitek-
inn og veðraður. Þykist ég vita,
að gestkvæmt verði á heimili
hans og konu hans, Geiru Óla-
dóttur, í Tjarnargötunni í dag.
Vil ég enda þessar línur með að
þakka 'Sveini fyrir vináttu hans
í minn garð og langt, snurðulaust
samstarf við Morgunblaðið.
— Sv. Þ.
i 1 i
SKAK
i 1 i
•
Ur ýmsum attum
ÍSL.ENZKT skáklíf er senn að
vakna úr sumardvalanum, og
munu Freysteinn og Friðrik ríða
á vaðið og heyja skákeinvígi
núna í miðjum ágúst. Tilefni
þessa einvígis er svæðakeppnin í
Hollandí í nóvember, en eins og
kunnugt er höfum við aðeins rétt
á einum þátttakanda í stað
tveggja áður, og er það óneitan-
lega illt til þess að vita, að þegar
Friðrik Ólafsson öðlast stórmeist-
aratitil sinn, að þá slaki forystu-
menn okkar á klónni. Ég er þeirr-
ar skoðunar að hefði Skáksam-
band íslands sent fulltrúa á fund
F.I.D.E. í Luxemburg 1959, að
þá hefðum við haldið okkar rétt-
indum. En ekkert er svo með öllu
illt, að það boði ekki eitthvað
gott, því ósennilegt þykir mér að
til þessa einvígis hefði verið stofn
að, ef við ættum tvo fulltrúa.
Ekki treysti ég mér að spá um
úrslit í einvíginu, en óneitanlega
verður fróðlegt að sjá hversu
hinn nýbakaði íslandsmeistari
stendur sig í keppni við fyrr-
verandi kandidat úr heimsmeist-
arakeppni.
í september er ráðgert að halda
alþjóða skákmót í Reykjavík, og
er tilefnið 60 ára afmæli T.R. og
einnig skal mótið helgað minn-
ingu hins látna meistara Eggerts
Gilfers og jafnframt skoðast sem
æfingarmót fyrir Ólympíufara.
Með hliðsjón af þessu þrennu, þá
er ekki að efa að T.R. og Skák-
sambandið láta einskis ófreistað
til þess að gera keppni þessa sem
bezt úr garði, enda væri annað
til ævarandi hneisu fyrir forystu-
menn íslenzkra skákmála.
Friðrik Ólafsson er nýkominn
úr Argentínuför sinni, og lætur
allvel af dvöl sinni þar, þó hann
sé e. t. v. ekki fyllilega ánægður
með árangur sinn á mótinu. Ég
er þeirrar skoðunar að Friðrik
geti verið ánægður með útkomu
sína, þegar tekið er tillit til þess
hversu hægfara allar fraxrvfarir
eru þegar stórmeistarastyrkleika
hefur verið náð, og ef Friðrik
heldur áfram að þjálfa sig og
taka þátt í mótum, þá lætur ár-
angurinn ekki á sér standa.
Sovézkir skákmeistarar dvelj-
ast í V-Þýzkalandi um þessar
mundir og heyja landsleik við
heimamenn. Þættinum hafa bor-
izt fregnir af 3 fyrstu umferðun-
um, og leiða gestirnir með 20:4.
Fyrir USSR tefla Tal, Keres,
Petrosjan, Geller, Kotow, Toulus,
Boleslawsky, Poulugajewsky,
Antoschin. Óneitanlega harðsnúið
lið það.
IRJóh.
Livorno, Ítalíu, 9. ágúst. — Að
minnsta kosti 15 manns slösuðust
í dag, þegar hraðlest milli Tor-
ino og Rómar fór út af sporinu
hér skammt fyrir sunnan.
Mót ung-
templara um
nœstu helgi
ANNAÐ þing íslenzkra ung-
templara verður að Jaðri 12. og
13. þ. m. og þriðja ungtemplara-
mótið verður par um næstu
helgi.
Þing samtakanna hefst á föstu
dagskvöldið og mun því Ijúka
seinnihluta laugardags. Á þing-
inu mun m. a; verða flutt fræðslu
erindi sem prófessor Niels Dung-
al flytur. Fjallar erindið um
skaðsemi tóbaksnautnar.
Hið væntanlega mót íslenzkra
ungtemplara verður eins fjöl-
breytt og kostur er. Tjaldbúðir
munu verða báða dagana, sem
mótið stendur. Reynt verður að
hafa eitthvað fyrir alla, og stað-
inn mun ekki þurfa að kynna.
Þátttaka í mótinu er öllum heim
il, sem hlíta reglum ungtemplara
um prúðmennsku og háttvísi.
Mótið verður sett síðdegis á laug
ardag af Indriða Indriðasyni, rit-
höfundi, sem sæti á í stjórnar-
nefnd Jaðars. Um kvöldið verð-
ur skemmtikvöld inni að Jaðri
og mun vinsæl fimm manna
hljómsveit, sem skipuð er ung.
um mönnum, leika fyrir dansin-
um.
Á sunnudag hefst guðsþjón-
usta kl. 2.30 og kl. 4 hefst fjöl-
breytt dagskrá með skemmti-
atriðum. Þá verður einnig frjáls-
íþróttakeppni á íþróttaleikvangi
Jaðars, með þátttöku margra
ungra og efnilegra íþrótta-
manna úr Reykjavík. Um
kvöldið verður kvöldvaka og
dans í hínum vistlegu húsakynn-
um að Jaðri og þar verður mót-
inu slitið þá um kvöldið.
• Enginn veit um
starfsfólkið^
Það er allt annað en auðvel
að ná tali af skrifstofumönn-
um hér í bænum á vinnutíma
sagði kona, sem Velvakandi
átti tal við um daginn. Það er
eins og þessir menn hafi enga
tilfinningu fyrir þvi að þeir
eru á þessum skrifstofum til
að veita því fólki þjónustu
er á erindi við skrifstofurnar.
Fyrir nokkrum dögum þurfti
ég nauðsynlega að ná tali af
manni á opinberri skrifstofu
Ég hringdi og spurði eftir
honum. Stúlka varð fyrir svör
um .Hún sagði: „Hann hefur
ekkert sézt í morgun.“ Ég
i u
spurði þá stúlkuna hvort þessi
maður væri ef til vill kominn
í sumarfrí. Hún sagðist ekki
hafa hugmynd um það. Þá
bað ég hana að grennslast
eftir því hjá öðru starfsfólki
á skrifstofunni. Eftir nokkra
stund kom stúlkan aftur í sím
ann og sagði að enginn af
þeim sem við væru vissi hvort
þessi maður væri í sumarfríi
en hann hefði a. m. k. ekki
sézt á skrifstofunni í dag.
•_SóIarsÍ£^vinnutíma
Saga þessarar konu er ekki
einsdæmi. Allir, sem til þekk-
ja, vita, að hér í Reykjavík
eru liðin slælegri vinnubrögð
og tíðari frátafir á opinberum
skrifstofum, en í nokkru af
nági’annalöndum okkar. í sól
skininu undanfarna daga
hefur varla verið hægt að
þverfóta á aðalgötum borgar
innar fyrir opinberum starfs
mönnum, sem þar hafa verið
að spóka sig í góða víeðrinu í
sínum vinnutíma. Yfirmenn
☆
FERDIINIAiMD
\<\N /■'
rv'*••
r//3
á opinberum skrifstofum virð
ast ekkert hafa við þetta að at
huga því ella yrðu þessir
menn ekki svo langlífir í
starfi sem raun ber vitni. Að
sjálfsögðu kemur þetta mjög
niður á starfi mannanna,- öll
afgreiðsla mála gengur seint
og opinber embættiskostnaður
verður dýrari en þyrfti fyrir
vikið
Til samanburðar má geta
þess, að ef menn í hliðstæðum
störfum í höfuðborgum ná-
grannalanda okkar leyfðu sér
slík vinnubrögð yrði þeim
tafarlaust vikið úr starfi
Sem betur fer eru til heiðar
legar undantekningar frá
þeim slælegu vinnubrögðum
sem hér hefur verið lýst, en
þær eru því miður allt of fáxir.
• Ólympíulundur
Heiðmörk
íþróttaafrek frjálsfþrótta-
mannanna okkar undanfarna
daga hafa vakið mikla og verð
skuldaða athygli. í fyrradag
kom maður að máli við Vel-
vakanda og skaut fram þeirri
hugmynd hvort ekki væri
jarðvegur til að efna til fjár-
söfnunar og verja fénu til að
koma upp Olympíulundi í
Heiðmörk til minningar um
þessi væntanlegu afrek. Lund
urinn gæti einnig verið griða
staður íþróttamanna. Fjársöfn
uninni mætti t. d. haga þannig
hélt maðurinn áfram, að veðj-
að yrði um íþróttaúrslit eða
heitið á íþróttamenn ef þeir
næðu svo eða svo góðum ár-
angri á Olympíuleikunum í
Róm.
Hugmyndinni er hér með
komið á framfæri