Morgunblaðið - 12.08.1960, Side 19

Morgunblaðið - 12.08.1960, Side 19
19 Föstudagur 12. ágúst 1960 MORCUNTtr. 4 ÐÍÐ ^ Skaufbúningur Frh. af bls. 1 ekki vilja fara þá leið að fá hann lánaðann, því að það væri svo erfitt að fá búning sem passaði. Sl. vetur skrifaði Oscar Meinhardt forstjóri keppn- innar hingað og bað um ljós- mynd af Sigríði í þjóðbún- ingi. Frú Swanson, vestur-ís- lenzk kona sem býr við Langa sand og "hefur aðstoðað ís- lenzku stúlkurnar þar, skrif- aði okkur og ráðlagði Sigríði að klæðast í skautbúning en ekki bera skotthúfuna sem hún teldi ekki eins heppilega. Varð það nú úr að frú Helga Weisshappel lánaði Sigríði skautbúning sinn og skautaði henni fyrir myndatökuna. Voru myndirnar síðan sendar tii Ameríku og þær notaðar mikið í auglýsingum fyrir keppnina. Meinhardt forstjóri skrifaði Sigríði bréf og þakk- aði henni fyrir þessar fallegu myndir sem komu sér vel í auglýsingunum. ★ — Strax í fyrrasumar, þeg- ar dóttir mín var vahn feg- urðardottning, þá sagði ég, að ég vildi ekki að hún færi vest ur í svörtum upphlut eða sam fellu og fórum við þá strax að athuga aðrar leiðir m. a. hvort ekki hefði áður tíðkazt að konur hefðu verið í lit- klæðum og höfum við sann- færzt um að svo hljóti að hafa verið til forna. Við kom umst og fljótt inn á það að ungar konur hefðu áður ver- ið í kyrtlum t. d. oft í hvít- um kyrtlum við brúðkaup. Sögðu sumar konur okkur þá. að kyrtillinn yrði að vera hvítur, en við höfðum einnig frásagnir af því að fyrir hefði komið t. d. á síðustu öld að þeir hefðu verið græn- ir. Þetla fengum við líka síð- ar óbeint staðfest í lítilli orð- sendingu sem okkur barst frá Kristjáni Eldjárni, sem sagði okkur, að Sigriður skyldi sjálf ráða litnum eftir því sem færi henni bezt Það dýrasta við hinn venju lega skautbúning eru balder- ingarnar og skatteringarnar. En þetta varð óþarfi fyrst val inn var kyrtill. Þá var nóg að bandleggja hann. ★ Svo var það einn dag í vor, að Sigríður kom heim og sagði: — Nú er ég búin að finna litinn, en *ég er bara ekki viss um hvort ég get fengið efnið. Hún hafði þá séð silki niðrí Markaði djúpblátt á lit, en efnið var þá frátekið. En sú sem átti það frátekið féllst góðfúslega á að láta okkur það eftir. Ég hafði þá Konungieg trúloiun ÓSLÓ, 11. ágúst (Reuter). — Norsku dagblöðin skýra frá þvi í dag að í lok næsta mánaðar mundi verða tilkynnt trúlofun Haraldar krónprins Noregs og Soffíu Grikklandsprinsessu. Haraldur er 23 ára en Soffía 21, og birta blöðin myndir af þeim um borð í vélbáti á sigl- ingu við gríisku eyjuna Corfu, en þar dvelur Haraldur í sumarleyfi hjá grísku konungsfjölskyldunni. MAlflutningsskrifstofa Páll 5. Pálsson Bankastræti 7. — Simi 24 200. EGGF.RT CLAESSEN og GÚSTAV A. SVEINSSON hæstaréttarlögmenv. Þórshamri við Templa; asund. séð á gömlum samfellum að þar voru notuð flauelsbönd, en þau Var ómögulegt að fá hér, svo að við ákváðum eftir yfirvegun, að nota með lík- um hætti silkibönd og utan með þeim örmjóar gylltar Alexandersstímur. — Síðan saumaði frú Dýrleif Ár- mann búninginn á sinn meistaralega hátt. Við á- kváðum þá einnig að breyta hálsmálinu og höfðum það ekki eins aðskorið og venja hefur verið. Fannst okkur flegnara hálsmál fara ungri stúlku betur. Og allur er bún- ingurinn við það miðaður að hann sé léttari og hreinni í stílnum, bæði vegna þess að þetta er klæðnaður fyrir unga stúlku og vegna þess að hann er sumarbúningur. ★ — Þér sögðuð að venjuleg- ur skaubbúningur með öllum bróderingum hefði kostað tugi þúsunda. Hvað kostaði þessi kyrtill? — Hann hefur ekki kostað meira en fimm þúsund krón- ur. Og frú Birna heldur á- fram frásögn sinni: — Kyrtill- inn var tilbúinn á síðustu stundu áður en Sigríður fór til fegurðarképpninnar í Líb- anon. Við höfum séð af blaða- ummælum, að hann hafi vak- ið mikla athygli þar. Eitt blaðið lýsir sýningunni sem þar fór fram á þjóðbúning- um. Segir það að áhorfendur hafi tekið þjóðbúningunum heldur fálega þangað til Sig- ríður gekk inn í íslenzka skautbúningnum. Þá „bræddi hún hjörtu allra“, eins og blaðið segir og ætlaði fagnað- arlátunum ekki að linna. Og nú skilst okkur af fréttum og blaðaummælum að ve'Stan, að búningurinn hafi ekki vakið minni athygli þar. Heiðurskona ein hér í bæ, lánaði Sigríði stokkabelti með sprota til Beirut og önnur lánaði henni belti til Kali- forníu, Frú Arnheiður Jóns- dóttir lánaði henni höfuð- spöngina og frú Kristólína Krag lánaði henni slör. Sjálf gaf ég henni nálina og eyrna- lokkana úr fallegu víravirki. Skautfaldinn átti frú Sigríður Pálsson afasystir hennar, en Sigriður heitir í höfuðið á henni. Þetta hefur allt kostað mikla fyrirhöfn og kostnað segir frú Birna Hjaltested að lokum, en mér þótti vissu- lega tímabært að einhver breyting væri gerð á skaut- búningnum, fyrir ungar stúlk ur, fyrst og fremst að hann væri gerður léttari og sumar- legri. Sjálfri kórónu skaut búningsins, skautinu og fald- inum, þurfti ekki að breyta. — Tshombe Framh af bls 1 heild og að ríkisstjórnin í Leo- poldville hefði stuðning meiri hluta þingsins. Öll héruð lands- ins hefðu lýst því yfir að þau óskuðu að gerast sjálfstæðir hlutar ríkjasamsteypu. Og meiri hluta fylgi Lumumbastjórnarinn- ar, sem hafði stuðning 74 atkv. af 137 atkvæðum þingsins væri nú orðið að minnihlutafylgi eftir að ýmsir smáflokkar hafi snúið baki við Lumumba. Túnbökur Gróðrarstóðin við Miklatorg Símar 22822 og 19775. — Kvikmyndahús Framh. af bls. 11 svipuðum grundvelli. virðast þvi samt sem áður ósambærileg, hvað rekstursgrundvöll varðar. Annað þeirra virðist hafa ó- þrjótandi fjármagn á bak við sig, er gerir því kleift að yfirbjóða myndir á verði, sem fer í raun- inni langt fram úr því, er nægt hefði til yfirboðs í þessu tilviki. 4. Forstjóri Laugarássbíóss kveðst kaupa myndir á hagstæð- ara verði frá Bandaríkjunum en aðrir aðiljar í Evrópu, en upp- lýsingar um verð það, sem hann greiðir, afsanna þá fullyrðingu. 5. Að síðustu kvaðst sitjórn Félags kvikmyndahúsaeigenda myndu verða að krefjast þess, að skattfriðindi verði tekin af fyrir tækjum, sem miða rekstur sinn og þar með tilveru við það að efna til samkeppni með því að greiða hærri leigu en öðrum er unnt að inna af hendi, en þau yfirboð grundvallast hins vegar á skattfríðindum. „Den fattige Mands Snaps". Það hlýtur að vera krafa al- mennings, segir stjórn félagsins, að bíómiðaverð snögghækki ekki nú í ár vegna yfirboða eins að- ila. Eins og tekið er fram í uþp- hafi, eru aðgöngumiðar að kvik- myndahúsum ódýrari hér á landi en annars staðar, og æski- legt er, að sá munur haldist: Menningargildi kvikmynda nú á dögum er óumdeilanlegt, þótt auðvitað skolist margt misjafnt með á því sviði sem öðrum. Moskwitch '57 í góðu lagi. Verð kr. 65 þús. Volkswagen ’58 og ’59 lítið keyrðir. Skoda Station ’56 Citroen ’46 Austin 8 og 10 ’47 Chevrolet ’55 einkabíll, ekinn 42 þús. km. Villys jeppi ’47 með stálhúsi. Bílar til sýnis daglega. Gamla bílasalan Rauðará (Skúlagötu 55.). Sími 15812. Bíll til sölu 6 manna Plymouth, 2ja dyra sport módel er til sölu. Skipti á góðum 4ra manna bíl koma til greina. Uppl. hjá Júiíusi Andréssyni, Hverfisgötu 8, Hafnarfirði, eft ir kl. 6 á kvöldin. — Eða Sverri Júlíussyni sama stað. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Rauða Myllan Laugavegi 22 — Sími 13628. Kynning Góð og myndarleg fullorðin kona óskar eftir að kynnast manni, skemmtilegum, sem skilur lífið. Má vera um 60 ára. Tlib. sendist Mbl. merkt: „Góð kynning —731“. Sjálfsagt þykir að hafa blaða- og bókaverð eins lágt og unnt er, þótt ýmislegt af lélegra tagi slæðist á markaðinn. Ekki má heldur gleyma hinum sígildu ummælum Staunings gamla, að bíóið eigi að vera snafs hins fá-, tæka. Það hefur og komið á daginn, (skv. upplýsingum Fél. kvik- myndahúsaeigenda), sem er al- gert einsdæmi hér á landi, að Laugarássbíó hefur skuldbundið sig gangvart seljendum erlendis áð hækka aðgöngumiðaverð, um leið og gengið er frá samning- um, þrátt fyrir að verðlagseftir- lit og þar með hámarksverð gildir um verð aðgöngumiða hér á landi. Þætti stjórninni fróðlegt að fá skýringu verðlagsstjóra á þessu atriði. Aðgöngumiðaverð er að sjálfsögðu algert innan- rikismál hér. Þá má og benda á hina gifur- lega gjaldeyrissóun, sem slík yfirboð leiða til. Hækkunin á að- gangseyri rennur beint til Banda ríkjanna í erlendun. gjaldeyri. Fulltrúar þeirra kvikmynda- ■húsa, sem sömu skattfríðinda njóta og Laugarássbíó, fullyrða, að ekki sé nokkur vegur að reka kvikmyndahús hér með jafn- hárri leigu og Laugarássbíó býðst til að greiða, nema aðrar tekjulindir komi til. Afleiðingarnar að koma í Ijós Fyrstu afleiðíngar yfirbóð- anna eru nú að koma. í ljós. Bandarískir kvikmyndaframleið endur, sem undanfarið hafa tek- ið við yfirboðum frá Laugaráss- bíói, eru þegar farnir að hækka leiguna, því að þeir álykta eðli- lega sem svo, að fyrst eitt hús- anna geti greitt svo hátt verð, hljóti hin að vera fær um það einnig. T. d. hefur Tjamarbíó, sem hefur umboð fyrir Paramount, nú fengið orðsendingu frá því fyrirtæki, þar sem farið er fram á 23,6% hækkun á allar myndir. Þá hefur einni frétzt, að Laug- arássbíó hafi keypt myndina „Boðorðin tíu“. Greiðslan á að vera 70% af aðgangseyri fyrstu tvær vikurnar, en 40—60% eftir það. 7500 dollarar eru boðnir sem lágmarkstrygging. Það þýð- ir, að seljandinn fær alltaf sína 7500 dali, hvort sem myndin „gengur“ eitthvað eða ekki. Jóhannes Lárusson héraðsdómslögmaður Iögfræðiskrifstofa-fasteignasala Kírkjuhvoli. Sími 13842. Hjónunum í Norðtungu og öðrum vinum, sem gerðu mér á allan hátt mtugasta afmælisdaginn minn að sann- kölluðum sólskinsdegi, flyt ég mínar innilegustu hjartams þakkir og bið þeim allrar blessunar. Helga Kristjánsdóttir, Noxðtungu. Hjartans þakkir vil ég færa börnum mínum, tengda- börnum og barnaoörnum og öllum vinum öðrum, sem glöddu mig með góðum gjöfum, heimsóknumn og fögrum kveðjum á 75 ára afmæli mínu 17. júlí s.l. Megi eining, friður, gifta og gleði ríkja með ykkur öllum á ókomnum árum. í Guðs friði. Sigríður Sigurðardóttir, , Engey, Vestmannaeyjum. Stúlkur 18—28 ára óskast til aðstoðar við töku auglýsinga- kvikmyndar. Lysthafendur sendi nafn, heimilisfang og símanúmer til Mbl. fyrir 18. þ. m. Auðkennt: „813“. Móðir okkar SIGKIfiUR ÞORLAKSDÖTTIR andaðist 11. þessa mánaðar. Ingibjörg Kinarsdóttir, Ásgerður Einarsdóttir, Ilrafnhildur Sass, Logi Kinarsson, Ólafur Haukur Ólafsson. Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afí GÍSLI GlSLASON frá Hjaltastaðahvammi í Skagafirði, lézt 10. ágúst að iieimili sínu Selvogsgrunni 26. Jarðar- förin ákveðin síðar. Helga Guðmundsdóttir, Ingunn Gísladóttir, Guðrún Gísiadóttir, Jón Björnsson, Baldur Jónsson, Gísli Rúuar Jónsson, Björn Jónsson. Faðir mmn GUÐHUNOUR EYSTEINSSON EYFORD lézt 10. ágúst í Winnipeg. Herdís Guðmundsdóttir. Alúðar þakkír íyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför DAVlöS KRISTJÁNSSONAR kaupmanns, Skólavörðustíg 13 Börn og tengdabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.