Morgunblaðið - 21.08.1960, Page 5

Morgunblaðið - 21.08.1960, Page 5
Sunnudagur 21. agúst 1960 MORCUNBLAÐIÐ 5 Kristín og pilturinn frá Venezuela áttu afmæli um líkt leyti. Voru þá bakaðar handa þeim forláta afmælistertur og sjást þau með þær á myrtdinni. Fyrir skömmu kom Kristín Sigurðardóttir til landsins, eft ir að hafa dvalizt við nám í Bandaríkjunum um eins árs skeið á vegum The American Field Service ("AFS). Hafa nú 25 íslenzkir nemendur dvalizt þar á vegum þessa félagsskap ar. Blaðamaður Mbl. hafði tal af Kristínu hér á dögunum og ræddi við hana stundarkorn um starfsemi félagsins og dvöl hennar í Bandarikjunum. — Hvað geturðu sagt okk- ur um AFS? Starfsemí AFS er í því fólg in að koma á kynningu milli ungs fólks frá öllum löndum heims, þannig að það læri að þekkja sjónarmið hvers ann- ars og skilja þau. Einkunar- orð AFS eru: „Gangið saman, talið saman, allt fólk heims- ins, því að þá og aðeins þá, mun friður haldast“. Hugmyndina um stofnun AFS áttu amerískir sjálfboða liðar, sem úku sjúkrabíl i Frakklandi í fyrri heimsstyrj öldinni. Þeim fannst heimsá- standið skuggalegt og álitu, að það, sem bezt myndi að gera, til þess að stuðla að friði væri, að ungt fólk hvaðanæva úr heiminum kynntist og lærði að skilja sjónarmið hvers ann ars. I síðari heimsstyrjöldinni fóru sumir þessara sömu sjálf boðaliða aftur til Frakklands og nýir bættust í hópinn. Þeg- ar styrjöldinni var lokið, höfðu þeir forgöngu um, að franskir unglingar voru send- ir til Ameríku yfir sumar- mánuðina, til þess að kynnast amerísku fólki, hugsunar- hætti þess og lifnaðarháttum. Síðan var farið að senda unglinga frá fleiri löndum til ameriska skóla um eins árs árangur hlytist af dvölinni, var farið að haga því þannig, að þeir stunduðu nám við ameríska skóla um eins árs skeið. Einnig voru ameriskir unglingar sendi.- tii annara landa á skóla um 6 mánaða tíma. Er mikill ábugi á starfi AFS? Já, almenningur styrkir það með fjárframlögum og fjöl- skyldur, sem eiga börn á sama aldri er stunda nám við sama skóla og erlendu ungling arnir, sækjast eftir að fá þá til dvalar á heimilum sínum. Þar búa þau endurgjaldslaust og er litið á þau, sem einn af fjölskyldunni. Hjónin eru for- eldrar þeirra og börnin syst- kyn þetta ár. Áhugi unglinga á starfi AFS, er mjög mikill og hafa skólarnir gengið í lið við félagið um val nemenda, sem það sendir erlendis á sín um vegum. f Bandaríkjunum sendir „High Shool“, en það er einskonar gagnfræðaskóli, einn nemanda úr næst efsta bekk og tekur í staðinn 1—2 erlenda nemendur í efsta bekk, og útskrifast þeir frá skólanum ásamt hinum amer- ísku nemendum. í skóla þeim í Minneapolis, er ég stundaði nám var auk mín einn piltur frá Venezuela. En í Minnea- polis voru alls 38 nemendur frá 28 löndum á vegum AFS. Þar sem aðalþátturinn í starfi AFS er að stuðla að kynningu milli þjóða, hélduni við ég og piltinum frál Venezuela, fyrir leslra um lönd okkar við skól ann. Einnig var í bekknum stúlka, sem hélt fyrtrlestra um Þýzkaland, en þar hafði hún dvalið árið áður. Og þeg- ar skólaárinu lauk vissu allir nemendur skólans 1500 að tölu, eitthvað um ísland, Venezuela og Þýzkaland. I Minneapolis bjó ég hjá presthjónum, sem áttu eina dóttir og var hún systir min, yfir árið. Þetta var alveg dá- samlegt fólk og dvöl mín hjá því hin ánægjuríkasta. f júní, þegar skólanum var lokið, fórum við í mánaðar- ferðalag um Bandaríkin á vegum AFS. Vorum við 38 saman í hóp, en alls voru hóp arnir 44. Við stönzuðum víða, tvo daga á hverjum stað og var allstaðar tekið á móti okk ur af nemendum skóla, sem höfðu haft nemendur á vegum AFS. Dvöldum við hjá fjöl- skyldum, sem þeir höfðu feng ið til að taka okkur og einnig höfðu þeir skipulagt dvöl okk ar þannig að við sæjum sem mest og hún yrði sem skemmti legust. Ferðinni lauk i Wahington D.C., þar hafði þjóðfánum allra þáttakenda í ferðinni ver ið komið fyrir, á svæðinu í kringum styttu Jeffersons. Þar hittumst við þessir 8 ís- lendigar, sem dvalið höfðu á mismunandi stöðum í Banda ríkjunum á vegum AFS, und ir íslenyka fánanum. Þar með var þessari ferð um Bandarík in lokið og var hún og dvölin í heild mjög lærdómsrík, skemmtileg og í alla staði ó- gleymanleg. Ég vildi að lokum taka fram að við sem höfura notið styrks frá AFS, höfum mynaað með okkur samtök, sem hafa það markmið að vekja áhuga fólks hér á landi á starfsemi þessari. Það er nauðsynlegt, ef við viljum áfram njóta styrks frá AFS, að við sýnum áhuga okkar á starfi þess með því að taka á móti bandarískum unglingum t.d. til 3ja mánaða sumardvalar. Einnig væri mjög æskilegt, að skólarnir veldu nemendur til Ameríkú farar og því væri þannig hag- að að þeir ættu eftir einn bekk í skólanum, þegar heim kæmi og gætu kynnt Ameríku þar. BlessuS sólin elskar ailt, allt með kossi vekur; haginn grænn og hjarnið kalt hennar ástum tekur. Geislar hennar út um allt eitt og sama skrifa á hagann grænan, hjarnið kalt: himneskt er að lifa. Hannes Hafstein: Mælt fram í skemmtiför. Vanur maður sem getur tekið að sér verkstjórn í Efnalaug í Reykjavik óskast. — Þeir, sem ivildu sinna þessu, sendi nöfn sín ásamt upplýsingum um fyrri törf. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 30. ágúst merkt: „Verkstjóri — 851“. Eignarlóð til sölu 2400 ferm. eignarlóð á Seltjarnarnesi er til sölu. Þetta er hornlóð við fjölförnustu leið á nesinu. — Framtíðar verzlunarstaður fyrir stórverzlun. — Einnig mjög veí staðsett til íbúðar eða iðnaðar- byggingar. — Þeir, sem hafa áhuga á að kaupa þess'a lóð, sendi tilboð í pósthólf 703, merkt: „Eignarlóð". Afgreiðslumaður óskast Óskum. eftir að ráða afgreiðslumann, helzt vanan, nú þegar. — Upplýsingar í verzluninni milli kL 1—2 næstu daga. (Ekki í síma). BIERIIMG, Laugavegi 6 IBUÐ OSKAST Reglusaman ungan mann, sem er giftur og á 2 böm, vantar 2—3 herb. íbúð til leigu fyrir 1. okt. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „fbúð — 849“, TIL SOLU Vz húsið við Suðurgötu 22 í Reykjavík Semja ber við, RAGNAR ÓLAFSSON hrl. Vonarstræti 12 — Simi 22293 Glæsilegur bill Vegna brottílutnings af landinu, er til sölu Buick ’53, sem hefur ávallt verið einkavagn. — Upplýsingar í dag frá kl. 1 —7 í síma 18456 eða 14620. Dömur — Domur UTSALA Tækifæriskaup á smekklegum kvenfatnaði. hjá BÁRU Austurstræti 14. KEFLAVlK SUÐURNES Lögfræðistörf Sala, sanmingar og önnur lögfræðistörf. VILHJÁE.MUR ÞÓRHALLSSON, lögfræðingur Vatnsnesvegi 20, Keflavík, simi 2092 Vindugluggor 18 stk. enskir vindugluggar úr stáli til sölu. Stærð: hæð, 122 cm. Breidd 123% cm. Upplýsingar í síma 17645 á mánudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.