Morgunblaðið - 21.08.1960, Síða 23

Morgunblaðið - 21.08.1960, Síða 23
Sunnudagur 21. 5g5st 1960 MORGVISBL AÐIÐ { Suinarsýning j vel heppnuð SUM ARSÝNIN GIN svokallaða, sem Félag íslenzkra myndlistar- manna hefir í Listamannaskálan um, hefir nú staðið rúma viku. Þetta er fyrsta tilraunin, sem gerð hefir verið með slíka sumar sýningu, og má segja, að hún hafi heppnazt vel. Áðsókn hefir verið góð, og sex myndir hafa þegar selzt. Á sýningunni eru eru alls 65 myndir eftir félagsmenn — 16 málara, 3 myndhöggvara og Vig diísi Kristjánsdóttur, sem á þarna ofið veggteppi. — Sýningin er op in daglega kl. 10—22. $ 1 byrjun þessa mánaðar tll- • I kynnti Kwame Nkrumah, for s \ sætisráðherra Ghana, að sett i S hefði verið algjört verzlunar-1 I bann á vörur frá Suður Afríku s ^ vegna kynþáttastefnu stjórnar i S innar þar. Þegar eftir tilk.ynn \ I ingiu forsætisráðherrans tóku s ^ blökkumenn að safnast saman J S í höfuðborginni Accra í Gliana $ 5 tii að fagna viðskiptabanninu. s i Þúsundir manna, vopnaðir eid J S gömlum riffilhólkum, dönsuðu ^ i striðsdansa á götum borgar- S S innar, og ullu miklum umferð I S artruflunum. ; — íslenzkur lax Framh. af bls. 24. Þekktur á réttum stöðum — ,Nú hef ég gert fiskkaup- mönnum tilboð, bíð eftir svari þeirra og hef gert vopnahlé á meðan. Byrjunarerfiðleikarnir eru yfirstignir og ef að líkum lætur ættu fiskkaupmenn ekki að verða í neinum vandræð- um með að selja laxinn. Hann er þekktur orðinn á réttum stöðum“, sagði Loftur. „En þetta er aðeins upphafið. Á eftir fylgja aðrar tegundir, ef allt gengur að óskum, því möguleikarnir eru miklir, ef rétt er að farið“, bætti Loftur við. í Bollandi og Beígíu er lax- frá Noregi og Kanada þekkt- astur. En Japanir koma þarna við sögu eins og annars staðar. Þeir undirbúa nú herferð og margir búast við að þá lækki verðið eitthvað. En ferski ís- lenzki laxinn hefur selzt hæsta verði. Vilja fá laxinn regiulega Eitt hótelanna í Amsterdam, sem keypt hefur íslenzka lax- inn, er Amstel hótelið, virðu- legasta og jafnframt dýrasta hótel Hollands. Við hittum þar að máli aðstoðarforstjórann Mazeland og hann sagði: — Þegar Frondizi, forseti Argentínu, var í heimsókn hér á dögunum borðaði hann ís- lenzkan lax. Ég held, að hon- um hafi líkað vel. Þetta hótel gistir margt tigið fólk. Konung ar Norðurlandanna hafa allir verið hér, Bretadrottmng, Mar grét prinsessa. Hingað koma líka margir ríkismenn, Mar- lene Dietrioh var hér, segir Mazeland og brosir. Þess vegna leggjum við áherzlu á að vera bezta hótel Hollands, bjóða aldrei annað en bezta mat — og við kaupum aðeins ferskan lax, ekki frystan. ís- lenzki laxinn var góður, við vildum gjarnan fá hann reglu lega tvisvar í vi'ku. Loftur lætur reykja mikinn hluta laxsins. Hann gerði til- raun með að senda reyktan lax frá íslandi. „En sá lax var mjög illa verkaður“, sagði Loftur „og hann var fúll, þeg- ar hann kom hingað. Hann var heldur ekki reyktur á þann hátt, sem þarf fyrir hollenzkan markað svo að miklu vænlegra er að gera það hér“. — „En íslenzki reykti lax- inn er ekki jafnverðmikill og annar reyktur lax, fyrst og fremst af því að þetta er ný vara á markaðnum og örlítið frábrugðin því, sem áður þekktist. Laxinn okkar er rauð ari en sá norski og kanadiski, igæðin eru hins vegar sízt minni. En það þarf töluverðan tíma til að sýna fólki fram á að hann sé engu síðri enda þótt hann sé rauðari", sagði Loftur. h.jJh. — Þýzk flugvél Frh. af bls. 1 fundur með forráðamönnum flugfélaganna eftir helgina. Kolaflök til reynslu í vikulokin fluttu þeir Har- aldur og Pétur út 10 tonn af kola, þ. á m. töluvert magn af kolaflökum til reynslu. Væri æskilegt að hægt yrði að selja kolann. flakaðan, því þá verður hægt að flytja margfalt meira verðmæti í hverri ferð. íslend- ingar hefðu atvinnu af því að flaka fiskinn, og ekki þyrfti að greiða flugframgjald undir beinin. Næst til Aþenu? Loftur Jónsson hafði í hvggju að leigja flugvél í fiskflutninga- ferð til Aþenu nú um heJgma, því þar hefur hann að undan- förnu verið að kanna markaðmn og undirbúa innflutning. Hann ætlaði að flytja fimm tegundir í þessari fyrstu ferð og heim- leiðis fersk vínber, ferskjur, fíkjur og plómur og selja í verzlun, sem hann hyggst opns við Hringbraut, í húsi Jóns Lofts sonar hf. Ekki fékkst íslenzk vél með nægum fyrirvara til þessara flutninga- og vár Loftur að leita fyrir sér um leiguvél á megin- landinu í gær. Ef ekki rættist úr, ætlaði hann að flytja ávextir.a méð lest frá Aþenu til Amster- dam og freista þess að fá flug- vél í eina ferð til Reykjavíkur. I fyrrinótt kom Sólfaxi með ferskar perur og ferskjur svo og fryst jarðarber, samtals 7 tonn, frá Amsterdam á vegum „Sam- kaups“. Söngskemmtim Elsu Sigfúss í Reykjalundi SÍÐASTLIÐINN miðvikuda,g hélt hin víðfræga söngkona Elsa Sig fúss, söngskerrumtun í Reykja- lundi, með aðstoð móður sinnar, frú Valborgar Einarsson. Á söngskráiini var nýtt lag, samið af söngkonunni sjálfri og í fyrsta sinn flutt opinberlega. Þetta lag tileinkaði sönkonan Vinnuheimilinu að Reykjalundi. Listakonunni var forkunnar vel tekið og þakkað með blómum og ávarpi sá mikli sómi, sem stofn uninni var sýndur með heimsókn inni og sönglaginu, sem samið er við ljóð eftir Ólöfu frá Hlöðum. Allmargir myndlistamenn hafa gefið Reykjalundi verk eftir sig, en þetta er í fyrsta sinn, sem staðnum er tileinkað tónverk. Gjafir til Borgar- neskirkju A JÓLUM s.l. færði frú Margrét Halldórsdóttir, Reykjavík, Borg- arneskirkju að gjöf tvo fallega skirnarkjóla. Er gjöfin lil minn- ingar um systkinin Margréti Guð mundsdóttur og Úlfar Ingi- mundarson frá Þverholtum á Mýrum. Þá hefir kirkjunni nýlega ver- ið færð minningargjöf kr. 7000.00, er það andvirði eins bekkjar í kirkjunni. Gefendur eru hjónin Gunnþórunn Egilsdóttir og Sig- urður Magnússon, Hafnarfirði, og gefið er til minningar um for- eldra Sigurðar, Ingibjörgu Ein- arsdóttur og Magnús Þorbjarnar son, er búsett voru í Borgarnesi um langt árabil. Eru nöfn þeirra letruð í silfurskjöld, sem festur er á bekkinn. Áður hafa 2 bekk- ir verið gefnir þannig sem minn ingargjafir. Sóknarnefnd þakkar þessar ágætu gjafir. — Minningarorð Framh. af bls. 16 bandi, Jóhann Löve, og er hann nú starfandi járnsmiður í Land- smiðjunni. Um leið og ég lýk þessum fá- tæklegu ‘endurminningum, Steini minn, leyfi ég mér að óska þér hjartanlega til hamingju með fimmtugsafmælið, og eigum við svo ekki að slá því föstu, svona okkar á milli ,að allt sé fimmtug- uu fært. Ragnar G. Guðjónsson. Schannong’s minnisvurðar 0ster Farimagsgade 42, K0benhavn 0. 23 — Utan úr heimi Framh. af bls. 12. Sjolochov, sem lýsti því yfir, að harm skyldi þjóna flokknum og þjóðinni dyggilega með penna sínum í framtíðin ú. Krúsjeff klappar honum hjartanlega á bakið, og það er eins og maður heyri hann segja með mikilti velþóknun: „Þér eruð frábær, minn kæri Miohail Alexandro- vitj“ „Mannkyn gagntekið af hrifn- ingu mun. verða vitni að áður óþekktu blömaskeiði hinnar miklu listar kommúnismans, sem er sköpuð af þeim merku lista- mönnum, sem hetjutími vor hef- ur alið“, segir Pravda í forystu- greininni 31. júlí. Þeir sem bíða svo góðs geta auðsjánlega ekki beðið nógu lengi. Það er víst þess vegna sem bið er á stóru verkunum. Hjartanlega þakka ég vinum og vandamönnum nær °g íjær> sem sýndu mér vinsemd með heimsóknum, skeytum, blómum og margskonar dýrum gjöfum á 70 ára afmælisdaginn minn 27. júní sl. — Ég bið góðan guð að blessa ykkur öll. Valgerður Guðnadóttir Maðurinn minn og faðir okkar GUÐJÓN ÞORKELSSON Urðarstíg 13 verður jarðsunginn miðvikudaginn 24. ágúst frá Foss- vogskirkju kl. 13,30 e.h. — Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vildu minnast hins látna, er bent á kirkju óháða safnaðarins. Jónína Ásbjörnsdóttir og börn Jarðarför ÞÖliUNNAR S. GlSLADÓTTUR frá Vopnafirði, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. þ.m. kl. 10,30 f. h. — Athöfninni verður útvarpað. Garðar H. Stefánsson, Geir Stefánsson, Hjálmar G. Steindórsson Útför sonar míns og föður okkar ÓLAFS SIGGEIRSSONAR fer fram þriðjudaginn 23. þ. m. kl. 1,30 e. h. frá Dóm- kirkjunni. Þuríður Jósefsdóttir, Þórarinn Ölafsson Geir Ólafsson, Ragnar Ölafsson Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför lJLlNAR JÓNSDÓTTUR » Njörvasundi 24. Guð blessi ykkur öll. Vandamenn. Hjartanlega þaxka ég öllum þeim, sem auðsýndu samúð og hluttekningu við andlát og útför fósturmóður minnar DÝRFINNU HELGADÓTTUR frá Hólavöllum. Sérstaklega þakka ég hjónunum að Garðskagavita fyrir alla þá hjálp og vináttu, sem þau auðsýndu hinni látnu fyrr og si.ðar. Fyrir hönd vandamanna. Halldór Arason, Hólavöllum. Innilegt þakklæti fyrir þann vinarhug sem okkur var sýndur við andlát og jarðarför föður okkar EIRÍKS JÓNASSONAR frá Efra-Langholti,- Sérstaklega þökkum við hjúkrunarkonum og hjónun- um Helga Ágústssyni og konu hans fyrir þá miklu um- önnum sem þau sýndu honum meðan hann var á sjúkra- húsinu á Selfossi. Börn hins látna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.