Morgunblaðið - 28.08.1960, Side 8

Morgunblaðið - 28.08.1960, Side 8
8 MÓRGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 28. ágúst 1960 Og svo er hér sleinaballett. Við endurtókum þessi orð hans „í mínum anda“, „ettir mínurn hugmyndum“. Hvað áttu eiginlega við með því Ferró? Eigum við að segja þér hvað okkur datt í hug? Okkur duttu beinagrindur í hug. Ferró brosti. t>etta líkaði honum ágætlega. Það getur vel verið, sagði hann af mikilli hógværð og næmri kurteisi. En ég er vaxinn upp úr beina- grindunium. Þið hafið kannske ekki séð síðustu sýninguna miína? Nei, við vorum í París, við vorum svo lánsamir! Já, það má segja að lánið leiki við ykkur blaðamennina, sagði Ferró, en af þeirri al- úð, sem einkennir hann. Hann virðist ekki vera móðgunar- gjarn, það er kostur. Hann hélt áfram: Þið hefðuð átt að sjá síðustu sýninguna mína. Hann sagði þetta af jafnmikilli hógværð og þegar sveitakona býður gesti að ganga í bæinn: Má ekki bjóða ykkur mjólkur- sopa? segir hún kánnski, eins og ekkert sé sjálfsagðara í þessarj veröld. Ferró dró nú fram nokkr- ar ljósmyndir og sýndi okkur. Þær voru teknar í Listamanna skálanum, þegar síðari sýn- ing hans var þar haldin. Hvað er þetta? sögðum við, eru þetta geymmenn? Eða manngeymar? svarar Ferró brosandi. Hann hafði gaman af þessu. Manngeymar? átum við upp eftir honum. Já, svaraði hann, tómir menn. Menn sem vantar í heilabúið og eru reknir áfram og settir upp á færibönd. Og andlitið á hónum ljómaði eins og í gamla daga, þegar hann var á Kirkjubæjar- klaustri og fékk kerti í jóla- gjöf. Já, sögðum við, já já, og kinkuðum kolli. En þá datt okkur annað 1 hug: Hvers vegna setja þeir ekki hrossbein upp í 10 metra? Já, þarna kom það, það var lóðið. Hrossbein. Og með þessa störhugmynd gengum við niður í austur- dyrnar. Ferró sagði okkur frá stein- unum, hvaðan þeir væru komn ir, hvað þeir hétu og hvernig þeir væru unnir. Hann sagði að Ársæll steinsmiður Magnús son hefði hjálpað sér til að fá þessa steina, því hanrí ætti gott steinasafn, sem hefði hlaðizt upp á verkstæðinu hans. Nú, svo þú hefur ekki tínt þá sjálfur? sögðum við fljótt og ákveðið, því þarna var snöggur blettur. Nei, það hef ég ekki gert. Ef þú hefðir safnað þeim sjálfur, þá hefðirðu komizt í nauðsynleg tengsl við íslenzka náttúru, kynnzt henni af eig- in raun, drukkið úr henni frjó magn listarinnar — og áður en við vissum höfðum við á takteinum öll helztu vígorð venjulegrar hátíðaræðu. Ferró bjóst ekki við þessum ósköpum. Hann hætti sem snöggvast að skýra fyrir okk- ur myndirnar og leit upp, undrandi og glaður í senn. Nei, þetta er alveg rétt hjá ykkur, sagði hann auðmjúkur, ég hef ekki fengið tækifæri til að kynnast íslenzkri náttúru með því að safna steinum það VIÐ SKRUPPUM sem snöggv- ast upp í Iðnskóla í fyrradag að hitta Ferró að máli Ferró er sá af íslenzkum málurum, sem hefur gaman af beina- grindum og tanmhjólum, ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum. Auk þess er hann kunnur fyrir að hafa farið til ísraels ásamt konu sinni og haldið þar málverkasýningar. Segja íslendingar í París að hann hafi komið þaðan aftur með nokkrar töskur ful'lar af peningum, en þó er áreiðan- lega engin hætta á að hann hafi komið með alla peninga Gyðinganna með sér, Já, það var rétt. Við fórum á fund Ferrós upp í Iðnskóla, þar sem hann hefur svolitla kompu undir dótið sitt, en ferðinni var ekki heitið til að skoða hana, heldur tvær mós- aikmyndir, sem listamaðurinn hefur gert við austurinmgang skólans. Eru þær allnýstárleg- ar og gaman að virða þær fyr- ir sér, því hugmyndaflug Ferrós er ekki við eina fjöi fellt. Þegar gengið er um dyrn ar er á vinstra vegg prófíl- mynd sem gerð er úr verkfær- um, en myndin á hægra vegg er sett saman úr ýmiss konar formum, og eru sum beirra í stíl við kringlótta glugga byggingarinnar. Við gengum nú inn um þess- ar merkilegu dyr og upp á loft. Þar hittum við Ferró, þar sem hann var að paufast við að pakka niður dóti, því hann er á förum til Frakklands innan skamms. Við fóruim auðvitað að tala um list. Ferró sagði að nútíma listin kæmi mjög víða fram í gömlu listinni, einikum renis- ansinum. Ég var að skoða málverk eftir Rubens, sagði hann, og gerði sérstakar athuganir á skeggi eins postulans. Þá sá ég að skeggið var málað í stíl taschismans. Síðan atíhug- aði ég sokka postulans og rendurnar í þeim, og þá kom Paul Klee í ljós. Svona mætti ifqun* ovÁun* Saqt það Júdas? halda áfram. Það er margt stórkostlega gott í gömlu list- inni, og ég held hún sé full- komnari en sú nýja að því leyti, að hún er ekkf eins per- fekt, hún er ekki eins þröng og örugg. í nútímamiálverkin vantar óvissu, spennu. Að horfa á list ætti að vera eins og ríða úlfalda, það hef ég gert, í miðju skrefi er maður ekki viss hvort maður fer aftur á bak eða áfram. Og svo er eitt, sem gömlu málararnir höfðu, en mér finnst marga nútímamálara vanta, það er úthaldið. Apar geta málað Ijómandi fallegar myndir og náð góðum formum, en þá vantar úthald. Við spurðum hvaða postuli þetta hefði verið, sem hann var að lýsa fyrir okkur. Var það Júdas? sögðum við. Nei, svaraði Ferró, ég held það hafi verið Pétur gamli. Þetta er þá í lagi, sögðum við. En heyrðu Ferró, hvernig stendur á því að mannsfígúran þarna niðri við dyrnar er sett saman úr verkfæramynduim? Það er ofureinfalt, sagði Ferró. Þessi mynd er gerð í mínum anda, eftir mínum hug myndum. Ég er að reyna að gera nemendunum ljóst með þessari mynd, hvað mannleg þau eru þessí verkfæri, sem þeir vinna með. Taktu bara eftir því hvað auðvelt er að setja verkfæri í hrúgu, svo út komi mannsmynd. Handverk verður að hafa sögu legt gildi líka. Ég vil ekki tala um listaverk, ég vil tala um handverk eins lengi og ég get. Tíminn einn hefur leyfi til að tala um listaverk, hann tínir þau úr. Við spurðum nú hvort hon- um fyndist manngeymar ein- kennandi fyrir okkai tíma. Jú, hann var ekki frá því. Og svo fór hann að tala um vélar, verksmiðjur, spútnika og þotur af slíkri kunnáttu, að við stóðuirnst ekki mátið en sögðum: — Heyrðu Ferró, heldurðu ekki þú vildir frek- ar að hann Gislí Halldórsson verkfræðingur ætti samtal við þig? Hann sinnti ekki þessari at- hugasemd, en klykkti út með ' eftirfarandi orðum : Þeir sem smíða sputnikana og gervitunglin, eru komnir lengra en myndhöggvarar og málarar. Sem sé: Það er til list í Sovét. Þú álítur þá að tæknin sé á undan listinni, ítrekuðum við. Já að þessu leyti, svaraði hann ofur rólega. Svo fór hann að tala um hvað það væri fallegt form á lítilli töng, sem hann notar til að grípa utan um steinana, þegar hann gerir mósaikmynd ir. Hann bar hana við ljósið og sagði: Sjáið þið nú hvað þetta er fallegt! Þetta gerði ólærður maður á ftalíu. Hugs- ið ykkur nú bara, ef þetta væri sett upp í 10 metra. Verkfæri í prófíl. ♦ er alveg rétt. Þetta eru bara landráð. En það er gott, mað- ur á þá eitthvað eftir, bætti hann við. Svo hélt hann áfram að út- skýra steinana. Þessi heitir Rosso dí Verona — rauður frá Veronu. Þessir steinar eru víðs vegar úr Evrópu, hélt hann áfram. Já, einmitt sögðum við. Hér er Evrópumenningin sem sagt komin á einn stað — en Ferró hlustaði ekki, hélt bara áfram að tala um steinana, og kann- ski við þá í hljóði. Hér á veggjunum eru 18 eða 20 tegundir af náttúrusteinum, sagði hann. Hér er gabbró úr Hornafirði, líparit úr Esjunni, hrafntinna innan úr Land- mannalaugum og ýmsir stein- ar aðrir. Þeir stærstu eru frá Skeiðarársandi. Og svo er hérna líka völuberg, það finnst mér skemmtilegt nafn. Af hverju? spurðum við. Af því það ber svip af land- inu. Það hefur sömu áhrif á mig og Dynskógar, já Dyn- skógar, Bláskógaheiði og svo- _ leiðis þjóðlegheit. En sjáið hér þetta gæti verið vélablóm eða eitthvað sem hringsnýst, fólk vill að allt snúist. Og þetta hér gæti verið múrskeið. Og svo er hér steinaballett í kringum þetta stóra gler úr glerverksmiðjunni. Hvaða glerverksmiðju? Þessari einu, svaraði Iista- maðurinn, en af einhverjum ástæðum er glerið gallað og þess vegna hirti ég það. Við minntumst á beinin áð- an, Ferró. Segðu okkur, ertu haldinn ofsalegri dauða- hræðslu? Nú varð handverksmaður- inn hissa. Nei, alls ekki, svaraði hann. Ég hugsa aldrei um dauðann, en bein eru það form, sem sízt breytist. Bein halda lögun sinni marga áratugi eftir dauð ann. Form þeirra er fallegt. Það er nauðsynlegt fyrir lista- menn að þekkja hlutföllin í náttúrunni, og þau koma bezt fram í beinagrindum. Þess vegna er líka nauðsynlegt fyr- ir listamenn að þekkja vel beinagrindur. Sem sagt: að þeir þekki sjálfa sig, sögðum við með spekingssvip. Það miá vel vera, svaraði Ferró, það má vel vera. Ríkið á að veita listamönnunum sem flest tækifæri til að geta stúd- erað bæði sjálfa sig og aðra. Þið vitið að listin er hættuleg og menn verða að h&fa næði til að geta stundað hana, já listin er stórhættuleg það gerir tízkan. Nú er alit upp á gráa litin-n í París og þeir bjóða manni mikil fríðindi -yr ir að vinna í gráu, þeir vilja nefnilega selja. En listámenn verða að hafa það rólegt og gott til að standast ffeistmg- una. Eiginlega finnst mér það ætti að gera al!a málara að dyravörðum. Það er rólegt starf, vel borgað, og svo er hægt að fá vinnukonu ti! að loka gluggunum á kvöldin. Með þessum orðum kvaddi Ferró okkur til að halda út í heim, ákveðinn í því að selja sig ekkí gráa litnum. — M.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.