Morgunblaðið - 18.09.1960, Page 1
24 síður
47. árgangur
213. tbl. — Sunnudagur 18. september 1960
Prentsmiðja Morganblaðsins
Rússar reknir
frá Kongó
Mohutu traustur i sessi
— en Lurnumha týndur
Öryggisráöið ræðir Kongó: James J. Wadsworth, fulltrúi Bandaríkjanna (t. h.), lýsir stuðningi
við Hammarskjöld í málinu; auk hans sjást fremst á myndinni þeir Zorin, Sovétríkjunum
(t. v.) og Sir Patrick Dean, Bretlandi.
Leo’poldville, 17. sept.
— (Reuter — NTB) —
SENDIHERRAR Rússa og
Tékka og starfslið þeirra allt
yfirgáfu Kongó í morgun,
samkvæmt skipun frá Joseph
Mobutu, hershöfðingja, sem
virðist traustur í sessi í land-
inu. Patrice Lumumba, fyrr-
um forsætisráðherra, sem
reynzt hafði kommúnistum
hliðhollur, er hins vegar
sagður fara huldu höfði — en
einnig er á kreiki allsterkur
orðrómur um að hann sé ekki
lengur í tölu lifenda.
Kongó-vandamálið
Mobutu herforingi
Krúsjeff í
kröppum sjd
SOVÉZA skipið „Baltika"
sem flytur Nikita Krúsjeff
og aðra kommúnistaleiö-
toga á Allsherjarþing SÞ,
hefur lent i slæmum sjó, og
hafa þeir ferðalangarnir
„fengið að reyna ýmis óþæg
indi lífsins á sjónum“, að
því er Mosvkuútvarpið
hermdi í gær. — En storm-
inn hefur lægt aftur og
veðrið fer batnandi, sagði
ennfremur í fregninni.,
Allsherjarþing SÞ
heldur aukafund
Sovétríkin beittu neitunarvaldi
gegn málamiðlunartillögunni í
Öryggisráðinu
New York, 17. sept. — (Reuter)
ALLSHERJARÞING Sam-
uðu þjóðanna hefur verið
kvatt saman til aukafundar
um Kongó-vandamálið í
kvöld, eftir að Sovétríkin
höfðu beitt neitunarvaldi
sínu í Öryggisráðinu, til þess
að hindra framgang mála-
miðlunartillögu frá Túnis og
Ceylon um áframhaldandi
gerðir í málinu. Stóð þessi
síðasti fundur Öryggisráðs-
ins um málið næturlangt.
Dagskrártillaga Rússa
Eftir að hafa komið í veg
fyrir samþykkt málamiðlunar-
tillögunnar, lýsti Valerian Zorin
fulltrúi Sovétríkjanna yfir því,
að hann hefði óskað efcir pví við
Dag Hammarskjöld, fram-
kvæmdastjóra Sþ., að á dagskrá
hins reglulega Allsherjarþings,
sem hefst í næstu viku, yrði lið-
urinn „Ógnanir við stjórnmála-
legt sjálfstæði og einingu
Kongó“.
Flutti þá fulltrúi Bandaríkj-
anna, James Wadsworth, tillögu
um að Allsherjarþingið yrði
kvatt saman til aukafundar inn-
an 24 klukkustunda.
Lýsti Zorin hinni „mestu undr
un“ yfir þessari afstöðu banda-
rísku stjómarinnar, þar sem 15.
Allsherjarþing S.þ. ætti að hefj-
ast á þriðjudaginn. „Við höfUm
óskað eftir, að Kongó-máiið
verði tekið á dagskrá þess
þings,“ sagði hann. Þá stað-
Ætla kommúnisfar að
koma i veg fyrir kosningu
í Dagsbrún með lagabroti?
573 félagsmenn krefjast
allsherjaratkvæðagreiðslu
I GÆR lögðu lýðræðissinnar
í Dagsbrún frapi lista með
nöfnum 573 Dagsbrúnar-
manna, er kröfðust þess, að
fram færi allsherjaratkvæða-
greiðsla um kjör fulltrúa fé-
lagsins á þing Alþýðusam-
bands íslands.
Samkvæmt lögum ASl er skylt
að hafa aljsherjaratkvæða-
greiðslu, ef % hluti fullgildra
félagsmanna krefst þess skrif-
lega. Við stjórnarkjör í Dagsbrún
í janúar sl. voru 2300 á kjör-
skrá, þegar kosning hófst, en
nokkrir voru kærðir inn, meðan
á kosningu stóð. Kjörskrá miðast
við fullgilda félagsmenn. Skv.
lögum Alþýðusambandsins ber
við kjör fulltrúa á Alþýðusam-
bandsþing að miða við félaga-
tölu við næstu áramót á undan
og því nægilegt, að 400—500 fé-
lagsmenn krefjist allsherjarat-
kvæðagreiðslu, til að skylt sé að
láta hana fara fram.
Sl. fimmtudag urðu kommún-
istar í stjórn Dagsbrúnar varir
við að nokkrir félagsmenn voru
að vinna að því að fá fram alls-
Framh. á bls. 2.
hæfði hann, að fram til þessa
hefðu Bandaríkin viljað
, Framh. á bls 2.
Skjölum brennt
Sovézki og étkkneski sendi-
herrann óku til flugvallarins í
Leopoldviljte með öllu starfsliði
sínu og fygdu þeim nokkrar
jeppa-bifreiðir með kongóskum
hermönnum, Sovézki sendi'herr-
ann, Mokhail Yakovlev, yfirgaf
send.ráð sitt 5 mínútum áður en
út rann frestur sá, er Mobutu
hafði gefið honum til að hafa sig
á brott. Mikið var um að vera i
báðum sendiráðunum í gær-
kvöldi við að undirbúa brottför-
ma, og var m. a. skjölum brennt
í gríð og erg.
Margt fólk, bæði hermenn og
óbreyttir borgarar fylgdust með
för sendiráðsmannanna út á flug
völlinn í Leopoldville, þar sem
þeirra biðu sovézkar Ilyushin 18
hverflur. Sumir gerðu hróp að
sendiráðsmönnunum og var m. a.
hrópað: „Hypjið ykkur burt
draga komma-bullur!“ Aðrir létu sér
Framh. á bls. 2.
Bandamenn hræddir:
Hvorki Tíminn né
Þjóðviljinn þora að
birta álitsgerðina
BANDAMENNIRNIR í íslenzkum stjórnmálum, kommúnist-
ar og Framsóknarmenn, eru lafhræddir við álitsgerð hag-
fræðinga norska Alþýðusambandsins, sem samstarfsnefnd
islenzkra launþegasamtaka hefur gefið út. Hvorki Xíminn
né Þjóðviljinn þora að birta áiit þessa trúnaðarmanns
norsku verkalýðssamtakanna á íslenzkum efnahagsmálum
og viðreisnarráðstöfunum ríkisstjórnarinnar.
ÓTTAST ÞEKKINGUNA
Ekki er þetta karlmannleg afstaða stjórnarandstöðunnar.
Þeir óttast þekkingu íslenzks almennings á þýðingarmestu
inálum þjóðfélagsins.
Bandamannablöðin hafa það helzt á móti álitsgerð hins
norska hagfræðings að hann muni hafa talað við vonda
mcnn eins og Jónas Haralz og Jóhannes Nordal! En muna
kommúnistar og Framsóknarmenn það ekki, að Jónas Har-
alz var cinmitt aðai efnahagshagsmálasérfræðingur vinstri
stjórnarinnar?
HAFÐI NÁNA SAMVINNU VIÐ TORFA
ÁSGEIRSSON
Á það má svo minna, að hinn norski hagfræðingur hafði
nánasta samvinnu við Torfa Ásgeirsson, sem er sá ís-
lenzkra hagfræðinga, sem Alþýðusamband íslands hefur
mest leitað ráða og aðstoðar hjá.
Kjarni málsins er auðvitað sá, að bandamenn eru hræddir
við álitsgerð hagfræðings norsku verkalýðssamtakanna
vegna þess, að hann telur lifsnauðsynlegt að viðreisnarráð-
stafanir núverandi ríkisstjórnar verði framkvæmdar, og
að um aðra skynsamlegri leið hafi ekki verið að ræða til
iausnar þeim efnahagsvandræðum, sem vinstri stjórnin
leiddi yfir Islendinga.