Morgunblaðið - 18.09.1960, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 18. sept. 1960
Skemmdarverka-
menn á ferðinni
1 FYRRINÓTT voru skemmdar-
verk framin í húsi vegagerðar-
innar við Borgartún. í>eir sem
í>ar brutuzt inn virðast hafa far
ið þangað í þeim tilgangi að
skemma og eyðileggja. Mölvuðu
. þeir hverja einustu hurð læsta
sem þeir komu að, en engu var
stolið nema smásjá.
Svipað endurtók sig á öðrum
stöðum í bænum, að megintil-
gangurinn með innbrotunum virt
ist að brjóta og bramla. Voru hin
innbrotin framin í Heildverzl.
Kr. Ó. Skagfjörð og KRON á
Vesturgötunni. I
— Dagsbrún
Frh. af bls. 1
herjaratkvæðagreiðslu í félaginu.
Brugðist þeir þannig við, að þeir
auglýstu fulltrúakjör, sem fram
átti að fara á fundi í Iðnó í dag.
Er augljóst mál, að með þessum
hætti eru kommúnistar að reyna
að koma í veg fyrir, að Dags-
brúnarmenn fái að velja fulltrúa
sína á lýðræðislegan hátt. Sést
það bezt á því, að fundarhúsið
tekur aðeins imi 300 manns, eða
aðeins um helming þeirra félags-
manna, sem þegar hafa krafizt
allsherj aratk væðagreiðslu.
Er furðulegt, ef stjórn Dags-
brúnar ætlar bæði að brjóta lög
verkalýðssamtakanna og sið-
ferðilegan rétt félagsmanna til
sjálfsögðustu félagsréttinda, með
því að koma í veg fyrir alls-
herjaratkvæðagreiðslu.
— Kongó
Framh af bls 1
nægja að veifa, þegar þeir óku
framhjá.
Mobutu ofursti, sem fyrir 3
dögum lýsti yfir því, að her-
inn hefði tekið við stjórn lands
ins og setti um leið alla æðstu
embættismenn Iandsins úr
embætti, virðist vera traustur
í sessi.
Af Lumuba er það að segja, að
hann gekk út úr húsi sínu fram
hjá verði Sþ í gærkvöldi, eftir
að herlögregla Mobutu hafði tek-
ið höndum 20 manns af starfs-
liði hins 35-ára gamla fyrrver-
andi forsætisráðherra.
„Það var ekki í okkar verka-
hring, að hindra för hans“ sagði
einn úr varðliðinu. „Við vorum
aðeins settir til.að vernda hann,
að beiðni hans sjálfs. Ef hann
ekki vildi njóta verndar okkar
áfram, þá höfum við enga löng-
un til að þröngva henni upp á
bann“.
Samkvæmt heimildum, sem að
jafnaði eru áreiðanlegar, er
Lumumba nú einhvers staðar und
ir vernd herliðs frá Guíneu, en
sendiráð þess ríkis neitaði að
segja nokkuð um þá fregn. Her-
menn Mobutus fóru í dag í nokk-
ur hús hér og spurðust fyrir um
Lumumba. Það er því ekki
vitað, hvar hann er nú niður-
kominn, og eru ýmsar sögusagnir
á gangi um — og hefur m. a.
heyrzt, að hann sé ekki lengur
í tölu lifenda.
íslenzkur formuður Sumbunds
dunskru íþrdftu-leiðbeinendu
Keramik og klipp
myndir í Boga-
salnum
í GÆR opnuðu Bat-Yosef og John
Ffrensh sýningu á klippmyndum,
vatnslitamyndum og keramik í
Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Bat-Yosef er frá ísrael og er
búsett í París. í klppmyndirnar,
sem hún sýnir hér, hefur hún
notað algeng efni, sem ekki hafa
áður verið notuð í þessum til-
gangi. Allar myndirnar eru sam-
settar úr litflötum litmynda úr
tímantum.
Klippmyndir voru fyrst notað-
ar í málverkum kúbista kringum
1910 og síðan af úrrealistum, sem
sjálístæðar myndir.
Þetta er önnur sýning Bat-
Yosef hér á landi, en hún hélt
hér sýningu á olíumyndum árið
1957. Hún hefur haldið nokkrar
sýningar erlendis, m.a. í heima-
landi sínu, ásamt Ferró, Róm og
Mílanó.
Hún fer til Parísar að lokinni
sýningunni hér, en eiginmaður
hennar, Ferro, er fyrir nokkru
farinn af landi brott.
John Ffrensh er írlendingur
og hefur dvalið hér í sumar og
gert keramikmunina á sýning-
unni hjá Ragnari Kjartanssyni i
Glit hf. Hann dvaldist 3 ár í Ind-
landi á vegum indversku stjórn-
arinnar og kenndi meðferð gler-
unga í keramik. Hann hefur hald
ið sýningu á keramik á Ítalíu og
í Kanada og um þessar mundir
stendur yfir sýning á verkum
hans í Dublin.
Keramikmunir eftir hann eru
Sjötugur:
Guðmundur Andrésson
Bolungarvík
GUÐMUNDUR Ándrésson verka-
maður í Bolungarvík á sjötugs-
afmæli í dag. Hann er fæddur að
Bíámýrum í ögursveit. Ólst hann
þar upp og í Ögurnesi, þar sem
þá var útræði mikið og sjósókn.
Hóf hann kornungur sjómennsku
og gerðxst síðar vélstjóri og for-
maður.
Guðmundur fluttist síðan til
Bolungarvíkur og stundaði þar
sjó. Einnig var hann þar lengi
vélstjóri við íshús. Hann er
kvæntur Ingigerði Benedikts-
dóttur og áttu þau fimm börn.
Eru þrjú þeirra á lífi, tveir syriir
og ein dóttir.
Guðmundur Andrésson hefur
unnið öll sín störf af dugnaði og
samvizkusemi. Hann er mjög hlé
drægur maður og lítt gjarn á að
haía sig í frammi. En hann nýtur
trausts og vináttu þeirra, sem
hann blandar geði við.
Ég óska þessum gamla vini og
sveitunga til hamingju með sjö-
tugsafmælið, um leið og ég árna
honum og skylduliði hans öllu
gæfu og gengis í framtíðinni.
S. Bj.
á einkasöfnum víða um heim m.a.
í Japan.
Sýningin í Bogasalnum verður
opin fram til 27. þ.m. frá kl.
2 til 10 daglega.
FRÁ því í lok júlí hefur Jón
Trausti Þorsteinsson íþróttakenn
ari við lýðháskólann í Sönder-
borg í Danmörku, dvalizt hér á
landi. Jón hefur starfað að í-
þróttakennslu við lýðskóla frá
því fyrir síðari heimsstyrjöld
Var hann lengi kenr.ari við 'vð-
háskólann í Ryslinge. Þaðan
réðist hann að lýðháskólann í
Sönderborg, en sá skóli var
reistur til minningar um Krist-
ján konung tíunda.
Jón nýtur miki's álits meðal
dönsku leikfimi- og skotfélag-
anna. Þau félög starfa einkum
í kauptúnum og sveitum. Hefur
hann um mörg ár verið ráðu-
nautur félagssamtakanna um í-
þróttir í einu hinna dönsku
amta. Undanfarin úr hefur Jón
Tr. Þorsteinsson verið formaður
Sambands danskra íþrótta-leið-
beinenda. Danskir íþróttaleið-
beinendur hljóta menntun sína
hjá íþróttadeildum lýðháskól-
anna.
Á vegum þessara samtaka er
blaðið UNGDOM OG IDRÆT
gefið út, og hefur Jón látið sig
það mjög skipta.
Frá þvi að Búnaðarfélag fs-
lands tók að hafa miihgöngu um
útvegun erlends verkafólks til
landbúnaðarstarfa hér, hefur
Jón verið drjúgur jiðsmaður um
útvegun starfsfólks og hefur því
oft orðið að verja miklum tíma
í upplýsingastörf og ýmsa fyiir-
Kennarar mótmœla
skólastjóraveitingu
Blaðinu hefir borizt eftirfar
andi fundarsamþykkt kenn-
ara við Gagnfræðaskóla
Kópavogs:
FUNDUR kennara Gagnfræða-
skóla Kópavogs, haldinn í
Reykjavík 15. september 1960,
mótmælir einróma setningu
Odds A. Sigurjónssonar sem
skólastjóra við Gagnfræðaskóla
Kópavogs og áteiur harðlega, að
gengið hefur verið fram hjá Ing-
ólfi A. Þorkelssyni, sem fékk
fjögur atkvæði aí fimm í fræðslu
ráði, hefur eindreginn stuðning
allra samstarfsmanna sinna hef-
ur að baki 10 ára starf við skól-
ann, var fyrsti kennari skólans,
hefur náð ágætum árangri í
starfi, hefur mjög góð meðmæli
frá þeim skólum öðrum, er hann
hefur starfað við og eindregin
meðmæli fráfarandi skólastjóra
og auk þess háskólapróf fram
yfir Odd A. Sigurjónsson.
Fundurinn vekur athygli á
þeirri staðreynd, að með þessari
veitingu eru þverbrotnar gild-
andi reglur um veitingu skóla-
stjóra- og kennaraembæ.ta svo
freklega, að einsdæmi mun vera,
þar sem sá umsækjandinn, sem
ekkert atkvæði fær í fræðslu-
ráði, er settur skólastjóri, enn-
fremur bendir fundurinn á að
lítið tillit er tekið til menntun-
ar umsækjenda, þar sem háskóla
próf er hunzað og ekki heldur
til ágæts árangurs í starfi né
hins langa starfsferils við skól-
ann.
Á grundvelli þessara stað-
reynda mótmælir fundurinn
þessu einstæða gerræði rnemta-
málaráðherra, þessari fáheyiðu
misbeitingu valds, svo og niður-
stöðunum í umsögn fræðslumáia
stjóra, þar sem gengið er fram
hjá áðurnefndum staðreyndum.
Ingólfur A. Þorkelsson sat
ekki fundinn.
; NA /5 hnútar / «S V 50 hnútar ¥: Snjókoma > Úði \7 Skúrir K Þrumur mns v\ II H Hal 1 L La„l \
Regnsvæðið vestur af ís-
landi náði í gærmorgun yfir
mestan hluta Suður- og Vest
urlands, en búizt var við, að
birta mundi upp, þegar á dag
inn liði. Horfur eru á, að suð
vestanáttin haldist fyrst um
sinn, með skúrum á Suður- og
Vesturlandi, en léttskýjuðu á
Norðausturlandi.
Veðurspáin í gærdag.
SV-land til Vestfjarða, SV-
mið til Vestfj.miða. Sunnan
kaldi eða stinningskaldi og
rigning fyrst en léttir síðan
til með SV kalda-.
Norðurland til Austfjarða,
Norðurmið til Austfj.miða: SV
kaldi, léttir til.
SA-land og SA-mið: SV
gola og rigning fyrst, síðan
vestan kaldi og léttir til.
greiðslu. Jón Trausti er kvænt-
ur danskri konu Ketty að nafni
og eiga þau þrjú börn. Þau hjón
fara héðan til Danmerkur í lok
næstu viku. Næstkomandi mánu
dag 19. þ. m. kl. 8.30 sýnir Jón
Trausti í Tjamarkaffi kvik-
myndir af starfi dönsku lýðhá-
skólanna og leikfimi- og skot-
félaganna. Einnig flytur hann
erindi um íþróttaiðkanir í sveit-
um og kauptúnum Danmerkur.
íþróttakennarar og aðrir, sem á-
huga hafa á hliðstæðum skó'.a-
og félagsstarfi hér, eru velkomn
ir.
— Allsherjarþingið
Frh. af bls. 1
umræður um Kongó-málið á
langinn. Ekkert hefði legið á.
meðan þau hefðu getað haldið
áfram „brambolti" sínu. Nú
lægi lífið á.
„Beiðnin um aukafund er
sprottin af undirbúningi forseta
kosninganna", sagði Zorin. „Það
þykir nauðsynlegt að sýna banda
ríirfku þjóðinni, að Bandaríkin
taki skelegga afstöðu í málinu.“
Aðeins 2 á móti
Eftir að Pólland hafði lýst
stuðningi við afstöðu Sovétríkj-
anna, og Wadsworth lýsti yfir
þeirri skoðun sinni, að Kongó
„stæði á krossgötum“, sam-
þykkti Öryggisráðið að kveðja
Allsherjarþingið saman innan
24 klukkustunda. — Sovétríkin
og Pólland greiddu atkvæði
gegn Bandarísku tillögunni um
þetta efni, Frakkland sat hjá. en
hin ríkin sjö, sem fulltrúa eiga
í ráðinu — þar á meðai Túnis
og Ceylon — studdu tiböguna.
Þar sem hér var um dagskrár-
tillögu að ræða, áttu Sovétríkin
ekki kost á að grípa til neitunar
valds síns.
Mæta kommúnistarikin ekki?
Samþykkt Öryggisráðsins um
að kveðja Allsherjarþingið sam
an var gerð á grundvelli sér-
stakra ákvæða, sem sett voru á
dögum Kóreu-stríðsins og til
þess að afstýra því, að hendur
S.þ. yrðu algjöriega bundnar á
hættutímum, ef neitunarvaid
hefði komið í veg fyrir að Ör-
yggisráðið gæti hafzt eitthvað
að.
Sovétríkin hafa aila tið
gagnrýnt lögmæti þessara á-
kvæða. og lýsti Zorin yfir því
við umræðurnar nú, að hann
teldi samþykktina ólögmæta,
nema hún fengi stuðning allra
fastafulltrúa í rá.ðinu. Þessi
yfirlýsing vakti strax ugg
um, að Kommúnistaríkin
mundu jafnvel ekki mæta á
aukafundinum.
Eftir að fundi Öryggisráðsins
lauk lét einn af afrísku fu'-l-
trúunum svo ummælt, að hann
óttaðist, að ástandið í Kongó
tæki á sig sömu mynd og í Kór-
eu á sínum tíma. Hann sagðist
harma mjög þá afstöðu, sem
Sovétríkin hefðu tekið í ráðinu.
Allsherjarpingið kemur sam-
an á miðnætti og verður dr.
Victor Andres Belaunde frá
Perú í forsæti. Búist er við að
þingið haldi að mmnsta kosti
tvo fundi á sunnudag og haldi
síðan áfram á mánuöaginn, en
þann dag er Krúsjeff væntan-
legur til New York með sovézka
skipinu „Baltika".
Málamiðlunartillaga Ceylon og
Túnis var borin fram eftir um-
fangsmiklar viðræður Afrku- og
Asíu-ríkjanna, einkum þó hinna
fyrrnefndu. Fól tillagan í sér
staðfestingu á fyrri ákvörðun-
um Öryggisráðsins í Kongó-
málinu og mælti sárstaklega
gegn hvers konar einhliða að-
gerðum án aðildar S.þ. Þá var
í tillögunni lagt bann við því,
að nokkur hernaðaraðsioð yrði
veitt. nema slíkt yrði á vegum
S.þ. og þáttur í aðgerðum þeirra.