Morgunblaðið - 18.09.1960, Blaðsíða 11
Sunnudagur 18. sept. 1960
MORGVNBLAÐ1Ð
11
Þórarinn
fónskáld
ÞEGAR sá, sem þessar línur nt-
ar, var að alast upp austur á
Eeyðisfirði á árunum milli 1920
og 1930, voru tvö tónskáld þar
þeimamenn. Það voru þeir Krist
ján Kristjánsson iæknir og Ingi
T. Lárussson. Allir kunnu lög
eftir þá og þótti vænt um þau.
Og allir þekktu þá sjálfa og þótti
vænt um þá. En meiri ævintýra-
ljómi stóð um ungan sjómann
úr Mjóafirði, sem var sagður svo
ihandgenginn sönggvðjunm. að
hún sleppti ekki einu sinni tök-
um á honum á rr.eðan hann var
á sjónum, — hann var sagður
'krota nótur með r.agla á báts
þiljurnar, þegar b að og blýant-
ur var ekki har.dbært. Þó voru
fá af lögum hans k.mn á þeim
árum að minnsta kosti á Seyð-
isfirði, og maðurinn sjálfur lítt
þekktur, enda a förum til út-
landa til að afla sér menningar
og frama í list sinni.
Þessi maður var Þórarinn Jóns
son sem brátt varð þjóðkunnur
maður og stendur nú í íremstu
röð íslenzkra tónskálda. Hann
verður sextugur í dag.
Ég kann ekki að rekja ættir
Þórarins, og æviferil! hans mun
ekki ýkja viðburðaríkur á ytra
horði. Verður því farið fljótt
yfir sögu hér. Hann fór utan
1924 og dvaldist eftirþað í Þýzka
landi við nám og störf til 1950,
en þá fluttist hann aftur heim
og hefur verið búsettur í Reykja
vík síðan. Hann hefur alla tíð,
siðan hann fór utan, starfað að-
allega að tónsmiðum. Þau verk
hans, sem kunn eru ,eru ekki
ýkja mikil að vöxtum, en mörg
þeirra eru stórlega athyglisverð
og mega á sínu sviði hiklaust
teljast með því merkasia og
vandaðasta, sem íslenzk tónskáld
hafa látið frá sér fara.
Fyrsta lag Þórarins, sem varð
alþjóð kunnugt mun hafa verið
„Heiðbláa fjólan mín fríða“, sem
Jónsson
sextugur
hvert mannsbarn á landinu kann,
að ég ætla, og var um iangt ára-
bil „á hvers manns vörum“.
Meðan Þórarinn var búsettui
erlendis var því miður löngum
helzt til hijótj um hann hér
heima, og fáum verkum sínum
kom hann á framfæri hér. Jón
Halldórsson, sem þá og lengst
var söngstjóri „Fóstbræðra', mun
þó jafnan hafa haldið sambandi
við hann, og honum sendi Þórar-
inn karlakórslög sín væntanlega
jafnóðum og þau urðu til, þar
á meðal „Ár vas alda’’, „Einum
unna ég manninum”, „Úr Láka-
kvæði” o. fl. Þessi lög Þórarins
hafa síðan oft verið á söngskrá
„Fóstbræðra”, og þau ár, sem ég
hafði þá ánægju að stjórna kórn-
um, rakst ég á fá viðfangsefni,
innlend eða erlend, sem mér
þóttu verðugri við að glíma. 1
þessum lögum fer saman frjótt
hugarflug og frábærlega vönduð
og kunnáttusamleg vinnuhrögð’
í frágangi, svo að til fyrinnynd-
ar mætti vera.
Hér verður engin skrá gerð
um verk Þórarins Jónssonar,
enda vlsast að mörg þeirra séu
enn ókunn — og vonandi mörg
ósamin. Að.eins eitt enn skai
nefnt: Prelúdía og tvöföld fúga
um nafnið BACH, sem hefur
vakið verðskuldaða athygli víða
um heim. Margir snillingar hafa
spreytt sig á að semja tónverk,
sem byggjast á nótnanöfnunum í
nafni Bachs, og var Bach sjálf-
ur hinn fyrsti. En fáir munu
hafa sett sjálfum sér jafnharða
kosti í þessu efni og Þórarinn
Jónsson því að þetta viðamikla
verk hans er samið f.yrir ein-
leiksfiðlu án undirleiks, og.
bætast þannig takmarkanir hljóð
færisins við þá miklu bragþraut,
sem felst í sjálfu formi tónsmíð-
arinnar. Það er ekki á margra
færi að leysa slíkan vanda með I
þeim ágætum, sem Þórarinn hef-
ur gert í þessu merkilega verki,
og með þeim takmörkunum í stíl
og efnismeðferð, sem hann hef-
ur sett sér.
Þórarinn Jónsson er yfirlæt-
islaus maður og hefur sig lítt í
frammi í dagsms. argaþrasi. Þess
er að vænta, að honum endist
tíminn því betur til nýrra af-
reka á því sviði, sem hann hef-
ur kosið sér, og hann eigi eftir
að auðga íslenzka tónlist mörg-
um ágætum verkum. — Megi sú
Frú Musica, sem hann ungur
gekk á hönd austur á fjörðum,
reynast honum tryggur fylgi-
nautur enn um langan aldur.
Jón Þórarinsson.
RACNAR JÓNSSON
hæstaréttarlögmaður
Vonarstr. 4 VR-húsið. Sími 17752
'ígfræðistörf og eignaumsýsla
ÖRN CLAUSEN
héraðsdómslögmaður
Málf ’ utningsskr if stof a.
Bankastræti 12. — Sími 18499.
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 8. — Sími 11043.
VERITAS SIKK-SAKK
AUTOMATIC saumavél
Veritas automatic saumavélar eru komnar aftur.
Hinar vaxandi vinsældir þeirra sanna bezt gæði og
notagildi. Vélin saumar sikk-sakk spor, festir tölur,
býr til hnappagöt og saumar óteljandi fjölda af alls-
konar mynstursaum.
Verðið er aðeins kr. 6855.00 í tösku.
Garðar Gíslason h.f.
Reykjavík
TÍVOLÍ
Opnað í dag kl. 2.
Kl, 4 skemmtir Baldur Georgs.
Fjölbreytt skemmtitæki
Fjölbreyttar veitingar
Nú fer hver að verða síðastur með að skemmta
I
LEVIN
KÆLI-
OG FRYSTIBORÐ
Getum útvegað með stuttum fyrirvara
hin þekktu sænsku afgreiðsluborð
fyrir verzlanir.
Einkaumboð:
*
Samband Isl. Samvinnufélaga
— véladeild —
sér í TÍVOLÍ í sumar.
Allir í TÍVOLÍ
GUÐMUNDUR JÖNSSON
heldur
Söngskemmtun
í Ganda Bíó þriðjudaginn 20. sept kl. 7,15
Við hljóðfærið:
FKITZ WEISSHAPPEL
Aðgöngumiðasala í Bókabúð Lárusar Blöndals,
Skólavörðustíg og Bókaverzlun ísafoldar, Austurstræti
Dansskóli
Hermanns Ragnars
tekur til starfa 1. október
Kenndir verða barnadansar
og gamlir og nýjir sam-
kvæmisdansar fyrir byrj-
endur og þá sem lengra eru
komnir.
Innritun hsfsi: þriðjudaginn 20. sept. daglega í síma
3-3222 og írá 10—12 og 2—6 í síma 1-1326. Síðasti
innritunardagur er 30. sept. Uppiýsingarit liggur
frammi í næstu bókaverzlun.