Morgunblaðið - 18.09.1960, Qupperneq 14
14
MORCIJNBLAÐIÐ
Sunnudagur 18. sept. 1960
Husqvarna
Er til gagns og ánægju á heimilinu. Saumar venju-
legan saum, Zig-Zag, stoppar í fatnað, saumar
hnappagöt, festir á tölur, saumar fjölda myndstra
til skreytinga.
Cunnar Ásgeirsson
Suðui landsbraut 16 —- Sími 35200
Atgreiðslustúlka
Rösk og ábyggiJeg stúlka óskast til afgreiðslu
starfa. — Upplýsingar á mánudag kl. 6—7 í
verzluninni.
Læltjarbúðin
Laugarnesvegi 50
Röskur ungUngur
16—17 ára óskast til innheimtustarfa um
óákveðinn tíina. — Vinnutími frá kl. 10—6
eða 1—6 e.h.
Uppl. á skrifstofunni kl. 1—3 e.h. á mánu-
dag, ekki svarað í síma.
— Reykjavíkurbréf
Framh. af bls. 13.
sem lýstu andúð á flokki sínum
og aðdáun á vinstri stjórninni.
f>etta áttu hinir ónafngreindu
Sjálfstæðismenn jafnvel að gera
samtímis því, sem þúsundir
venjulegra vinstri kjósenda yfir
gáfu flokka sína til að lýsa van-
trausti á vinstri stjórninni, eins
og þeir gerðu i bæjarstjórnar-
kosningum 1958.
f>ví ömurlegra er fyrir Tím-
ann og Framsóknarbroddana, að
jafnkunnur og skeleggur Fram-
sóknarmaður og Rnnólfur á
Komsá, skuli hafa kvatt sér
hljóðs á héraðsmóti Sjálfstæðis-
manna og lýst fráhvarfi sínu frá
Framsókn. Nafn Runóifs er mik
ilsvert, en meira er þó vert um
hitt, ,að ástæðurnar fyrir for-
dæmingu hans á hans gamia
flokki eru svo sannfærandi, og
þess eðlis, að líkiegt er, að hann
eigi þúsundir akoðar.abræðra
um land allt. Stuðningur við við
reisn stjórnarflokkanna og and-
úð á vist Framsóknarbroddanna
í austurdyrunum er miklu meiri
heldur en flestir hefðu ætiað. Of
an á þetta bætast minnkandi
möguleikar Framsóknarhöfðingj
anna til að hygla sínum mönnum
eins og þeir hafa haldið fylgi
sínu við á.
Að svo komnu er ekki kyn
þótt vaxandi fari uggur í .liði
þeirra um framtíð fiokksins.
Verðlag á land-
búnaðarafurðum
Eitt af happasæiustu verkum
núverandi ríkisstjóruar er að
eyða þeim ágreiningi, sem fyrir
ári ríkti um verðlagningu land-
búnaðarvara. Eitt af því, sem V-
stjórnin lét eftir sig, var upp-
lausn þess verðlagningarkerfis,
er fylgt hafði verið um langa
hríð. Langvarandi deilur, mála-
ferli og jafnvel fjandskapur var
risinn milli þeirra aðiia, sem
þessi mál höfðu með höndum.
Framsóknarbroddarnir reru að
því öllum árum, að það ófremd-
arástand héldist og vonuðu í
lengstu lög, að það yrði stjórn-
inni að falli. Svo varð ekki.Þvert
á móti hefir nú í skjóli hinnar
nýju löggjafar, sem sett var á sl.
þingi, tekizt að leysa málið með
betra samkomulagi en nokkru
sinni fyrr. Verðlagsgrund völlur-
inn hækkar um rúm 7%%. Sú
hækkun stafar ein.göngu áf
hækkuðum rekstrarkostnaði, en
rennur ekki að neinu leyti til
bænda sem hækkað kaup þeim
til handa. Það helst í fuiki sam-
ræmi við kaupgjald annarra
landsmanna .Bændur eigi þess
vegna fulia sanngirniskröfu á
þessum bótum fyrir útiagðan
kostnað, enda var á nana failizt
að öllu leyti af fulitrúum neyt-
enda, Eðvarði Sigurðssyni, fuil-
trúa Dagsbrúnar, jafnt sem öðr-
um.
Ríkisstjórnin hefur með öðru
fyrirkomulagi á niðurgreiðslum
fengið því áorkað að nýmjólk
hækkar ekki um einn eyri. Með
því eru tryggð mikilsve.-ð hlunn
indi fyrir neytendur, því að
nýmjólkin er sú vara, sem al-
menningur má sízt án vera og
hvert einasta heimiii þarf að
kaupa dag hvern. Hefur því enn
í verki verið sýnt, að allt er gert
sem unnt er til að trvggja hag
almennings og létta lífsbaráttu
hans.
Loft mettað ryki og öðrum óhreinindum, er oft samfara fram-
leiðslu í vélum og í ýmsum tilfellum er beinlínis ekki hægt að
forðast það með ölíu.
En þó er til ráð, sem leysir vandann og hreinsar loftið, en
það er að setja upp loftviftur okkar, sem hafa áunnið sér
hylli í öllum iðngreinum.
Þessi sérstaka gerð ioftræstingar — mótora er það fullkomin,
að hversu slæmt sem loftið er og rykmettað, má hreinsa það
auðveldlega.
Gjörið svo vel að senda okkur fyrirspurnir. Við munum fús-
lega senda yður gagnlega myndalista yfir viftur ýmissa tegunda
og útvega yður einmitt þá Thurm-loftviftu sem þér leitið að.
VEB ELEKTROMOTOREMWERKE THURM - THURM/SACHSEN
tlN
BETRIEB DER DEUTSCHEN
DEMOKR ATISCHEN REPUBLIK
Umboðsmenn á Islandi: K. ÞORSTEINSSON & Co.,
umboðs- og heildverzlun
Tryggvagötu 10, Reykjavík
Sími: 193-40
INiýíung á markaðnum
BLUE BELL
buxumar frá Heklu