Morgunblaðið - 18.09.1960, Side 17
Sunnudagur 18. sept. 1960
MORCUNBLAÐIÐ
17
Sjötug á morgun:
*AnnaSigurðardóttir
frá Vík í Héðinsfirði
FRÚ ANNA Sigurðardóttir frá
.Vík í Héðinsfirði, nú til heimilis
að Kollugerði við Akureyri er
sjötug á morgun (19. sept.)
Anna er fædd í Héðinsfirði 19.
sept. 1890, dóttir hjónanna Sig-
urðar Guðmundssonar og Hall-
dóru Björnsdóttur, er lengi
bjuggu að Vatnsenda, en síðar í
Siglufirði.
Anna giftist 1910 Birni Ás-
grímssyni, er var ættaður úr Fljót
um, og bjuggu þau lengst af á
bálfri jörðinni Vík í Héðinsfirði.
I>eim hjónum varð 9 barna auð-
ið, er flest voru ung, er Björn
varð að fara til Reykjavíkur til
langdvalar á sjúkrahúsi þar, og
varð sú dvöl syðra alls 12 ár, en
Ihonum auðnaðist þó að koma
heim aftur og eiga enn nokkur
ár með ástvinum sínum, en Björn
lézt árið 1943. í fjarveru manns
síns og eftir að hann féll frá
faélt Anna áfram búskap með
börnum sínum, en elzti sonur-
inn. Sigurður stóð lengst af fyrir
búi hennar.
Lífsbaráttan var lengst af hörð
1 Héðinsfirði, samgöngur voru
erfiðar og vetrarríki mikið, enda
fækkaði þar búendum smám sam-
an. Anna flutti með fjölskyldu
sinni til Eyjafjarðar 1951 og var
faún þá síðust búenda þar í firð-
inum. Nú eru allar bújarðir í
Héðinsfirði komnar I eyði, en um
síðustu aldamót voru þar, að
minnsta kosti, 6 búendur.
Anna var óvenjuleg þrek og
dugnaðarkona og ekki hefði öll-
um verið hent að ganga í hennar
MÁLFLUTNINGSSTOFA
F.inar B. Guðmundsson
Guðlaugur Þorláksson
Guðmundur Pétursson
Aðalstræti 6, III hæð.
Símar 12002 — 13202 — 13602.
spor. Á heimili þeirra Víkur-
hjóna var skráð merkileg saga,
þó að hún verði ekki rakin hér.
Það var hetjusaga í þess orðs
beztu merkingu.
Það sem hjálpaði Önnu yfir
örðugustu hjallana á lífsleiðinni,
var iífsgleði hennar og bjartsýni,
dugnaður og trúartraust.
Nú á afmælisdeginum verður
(hún umvafin kærleika barna
sinna og ástvina og gamlir vinir
senda henni og fjölskyldunn;
beztu kveðjur og árnaðaróskir.
Ó. J. Þ.
/Kirkjurán'
SÖLVI Betúelsson skrifar í Mbl.
6. september, að það sé búið að
taka kirkjuna okkar Hesteyringa.
Þetta er það eina í grein Sölva,
sem ég tel réttara að kalla: „Það
er búið að ræna kirkjunni okk-
ar“.
Kirkjur hafa verið rændar mun
um sínum, en sjálfar staðið eft-
ir. Hafa blöð og andlegrar stéttar
menn fyllst vandlætingu, sem
vonlegt er, og heimtað rannsókn
og þyngstu refsingu fyrir slíkan
verknað. En hvað á þá að gera
við menn, sem ræna heilli
kirkju, þar eð slílkt hefur ekki
heyrzt hér fyrr?
Grein Sölva er sannleikur, og
verður hún sennilega drjúgur
styrkur, þá er að reikingsskilum
kemur. Það er leitt að spyrja, þó
ei sé enn sannað, að andlegrar
stéttar maður sé mjög við þetta
rán riðinn, jafnvel framámaður
fyrirtækisins, og þá heldur, að
hann muni vera biskup vorrar
kristilegu íslenzku kirkju. Sé því
þannig varið leyfi ég mér að
spyrja: Hvaða rétt hefur æðsti
þjónn kristilegrar trúar til slíks
verks? Eg held tæplega andlegan
en fráleitt veraldlegan. Eignar-
réttur einstaklingsins er sem bet-
ur fer virtur í þjóðfélagi voru,
þar eð mér vitanlega hefur „frið-
ardúfum“ ekki enn tekizt að
kroppa hann út úr stjórnar-
skránni.
Ég krefst þess, að biskup svari
skrifum um þetta efni, og þá
hvernig hann réttlæti þennan
verknað án minnsta viðtals við
fyrrverandi sóknarbörn Hesteyr-
ar. Það væri ef til vill ekki ótil-
hlýðilegt í þessu sapibandi að
benda á Sögu Strandarkirkju, og
þá sérstaklega bls. 26, skilaboð
Marta; kapitulan Regnið, bls. 56;
bls. 80—81, Reykur; og að lokum
bls. 360—370.
Ilallgrímur Pétursson
frá Hesteyri.
INNFUTJENMHt - IDUENDUII
Ungur maður, vel menntaður og þaulvanur
guðshúss, sem við erum nú
stödd í.
Kirkjuvígsla er helgiathöfn.
Þar birtist sú trú, er boðar líf og
gleði. Þessi nývígða kirkja mun
minna okkur og komandi kyn-
slóðir á sjálfan höfund lífsins,
skapara okkar og frelsara, á Guð.
En á því hvílir líf og hamingja
íslenzkrar þjóðar, að hún gleymi
ekki Guði. Þessi hátíð er hald-
in til staðfestingar þessum sann-
leika. Fáar þjóðir hefur Guð
verndað og blessað eins ríkulega
og einmitt okkur íslendinga. Og
víðast um landið nefur hann
minnt okkur á gæzku sína með
dýrlegu árferði nú í sumar. Við
Páll Pálsson, cand. theol.:
Það breytir myrkri í Ijós
Ávarp við vígslu Kálfafellskirkju 21. ágúst
Hávirðulegi herra bisikup.
Virðulegu prestar.
Kæri Kálfafellssöínuður.
Eg er ekki meðlimur þessa safn
aðar og ekki búsettur í þessari
sókn. En sarot er ég með vissum
hætti tengdur kirkju hennar: Hér
var faðir minn fæddur. Hér var
afi minn siðasti presturinn. Og
hér var ömmubróðir minn næst-
síðasti prestur.
Vegna þessara tengsla var
prófastur svo vinsamlegur að
bjóða mér að vera viðstaddur
þessa ykkar kirkjulegu hátíð.
Fyrir það er ég innilega þakk-
látur, því að mér er þessi staður
kær vegna minningarinnar um
föður minn og aðra ættmenn, og
nú mun ég einnig eignast minn-
ingu um hann vegna þessarar
fagnaðarhátíðar, sem óg hef feng-
ið að taka þátt í með ykkur hér
í dag. Ég vil lí'ka þakka prófast-
imum hans hlýju og fögru orð í
garð ættmenna minna, svo og vin
áttu hans og alúð, er ég hef not-
ið af hans hálfu um árabil.
Mér er einkar Ijúft að vera
hér á meðal ykkar vegna þeirrar
helgiathafnar, er hér hefur nú
fram farið, svo og vegna þess, að
flestar mínar björtustu og beztu
minningar eru með einum eða
öðrum hætti tengdar þessu und-
urfagra og mikilúðuga héraði:
Skaftafellssýslum. Af þessu orði
leggur sérstakan Ijóma í huga
mínum, svo að mér finnst það
heiður að vera Skaftfellingur, og
hingað í hérað þykist ég geta rak-
ið allt það bezta, sem mér hefur
verið innrætt á liðnurn árum. Héð
an er runnin sú ríka ósk mín að
mega vinna íslamdi gagn, frjálsu
Islandi, vinna að heill þess og
Eieiðri. Guðsblessun yfir land og
lýð. Þetta er arfur minn frá nán-
ustu ættmennum mínum hér.
Hann vil óg varðveita, því að það
er gæfa mín að hafa séð, lifað og
starfað í þessum anda. Þar hef ég
hauik á hendi. Og þessa er gott
að minnast mú, þegar hér er hald-
in vegleg hátíð með vígslu þess
- KAÖPMEI
allskonar verzlun,
vegsömum hann því og þökkum
homum allar gjafir hans og þessa
hátíð og hlustum á boðskap
kirkju hans. Hún boðar hinn
krossfesta og upprisna Krist, sém
er líf, friður og sáluhjálp allra
þeirra, er á hann trúa.
Þegar sinnuleysi færist yfir
menn og margir steypa dása, þá
er hollt að fylgja kirkjunni í boð-
skap henmar og hlýða kalli
Biblíunnar, sem segir: „Þakkið
Drottni, þvi að hann er góður og
miskunn hans vaiir að eilífu“.
Allan ársins hring, já allt til graf-
arinnar, skal gleði og fögnuður
kristinnar trúar ásamt lofgjörð-
inni og þakkargjörðinni til Guðs
ríkja í hjörtum okkar. Það mun-
ar öllu, að við fylgjum Jesú
Kristi. Það breytir myrkri í ljós,
sorg í gleði, vanmætti í sigur og
dauða í líf. Jesús Kristur. Það
er nafnið, sem okkur er ætlað
hólpnum fyrir að verða. Hið
heilaga blóð frelsarans veitir sig-
ur í hverri raun og þrenging.
Það er tryggimgin fyrir fyrirgefn-
ingu syndanna og það veitir okk-
ur eilíft líf heima hjá Guði.
Á þessari hátíðar- og gleði-
stund þarf ég ekki að hafa þessi
orð fleiri, en segi hér að lyktum:
Ég bið þessari kirkju, presti
hennar og söfnuði blessunar
Guðs.
Guð blessi kirkju íslands.
Guð blessi ísland og íslendinga.
Laghentir verkamenn
óskast. — Uppl. á skrifstofunni
u
Húseignin nr. 7 við Bakkastíg, hér í bæ er
til sölu
Upplýsingar gefnar á skrifstofu Svein-
bjarnar Jónssonar hæstaréttarlögmanns,
sími 11535.
Einbýlishús í Hoínariirði
Glæsilegt steinsteypt einbýlishús á mjög góðum stað
í suðurbænum lil sölu. — Húsið er ein hæð 140 ferm.
5 herb. — ÚtDorgun kr. 200 þús. og greiðslukjör
að öðru leiti hagstæð.
GLÐJÓN STEINGRlMSSON hdl,
Reykjavíkurvegi 3, Hafnarfirði
Símar 50960 og 50783
Fyrstadagsumslög
EVROPA
C.e.
FVRSTADAOSBRéF
silkiprentuð í réttri
stærð fyrir Evrópu-
merkin, sem koma út
á morgun.
Frímerkjasatan
Lækjargötu 6A.
vill taka að sér rekstur innflutnings- eða iðnfyrirtækis, þar sem
hann gæti orðið meðeigandi. Kaup á fyrirtæki að hálfu eða öllu
leyti koma til greina. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 25. þ.m.
merkt: „Trúnaðarmál — 499“.