Morgunblaðið - 29.09.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.09.1960, Blaðsíða 2
2 MORCVNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 29. sept. 1960 — Rodny Frh. af bls. 1 trHr bandarískir foringjar úr sjó- og flugherdeildum varnar- liffsins — og Henry Hálfdánar- son. Gengu þeir á skipsfjöl, til í- búðar skipherrans, Odd Wiv- sted, og hófu að skipuleggja ieit- ina aff Rodny. Til ráðuneytis var bróðir skipstjórans á Rodny, Tur leif Johansen, sem hingaff kom meff Garm og fer í leitina meff skipinu. Fljúga inn á hvern fjörff. Þaff var ákveðið, að leitað skyldi allt frá suðurodda Græn- lands norður á 66. breiddar- gráðu og var skipt niður í leit- arsvæði samkvæmt því, er skip- herrann sagði í viðtali við Mbl. í gærkvöldi. Hlutverk Garm verð ur fyrst og fremst að sigla með- fram ísröndinni og síðan strönd- inni, allt suður að Hvarfi. Norski Katalínubáturinn, sem hefur bæikstöð á Keflavíkurflugvelli, mun fljúga með strandlengjunni og fara inn á hvern fjörð og vik og er sá þáttur leitarinnar talinn erfiðastur, þvi Grænlandsströnd er vogskorin og firðirnir langir. Vænta Norðmennirnir þess að fá aðstoð Katalinubáts frá danska sjóhernum, en þessi bátur hefur aðsetur í Grænlandi. Verður hlutverk hans þá að kanna strandlengjuna á sama hátt og norski flugbáturinn. Daninn byrj ar við Hvarf, en Norðmaðurinn nyrst. Inn yfir ísinn Varnarliðið á Keflavíkurflug- velli mun a.m.k. senda tvær flug vélar til leitarinnar, sennilega nokkrar fleiri, og verður hlut- verk þeirra að fljúga norður yf- ir ísinn. Einnig miunu þær leita á hafinu milli Islands og Græn- lands, aðallega þó nær Græn- landsströnd. Flugvélarnar munu stöðugtj hafa samband sín í milli, einnig, við Garm. Ekki er skipið s.ér-j lega útbúið til siglinga í is, "og! ekki hefur það þyrilvængju. Sjái flugvélarnar eitthvað inni í ísnum, sem ástæða væri til að | rannsaka betur, mun Garm freista þess að fara inn í ísinn, ef hann er ekki mjög þéttur í jöðrunum. Annars tekur sigling- in frá 66 breiddarbaug suður að Hvarfi aðeins hálfan annan sól- arhring, sagði Wivsted, skip- herra. En hann sagðist að lokum ekki vilja segja neitt um það hve miklar líkur hann teldi fyr- ir því, að leitin bæri árangur. Hann vísaði þeirri spurningu tilj Johansen, bróður skipstjórans á Rodny. „ Hann þekkir sjóinn“ — Ég óttast mjög um afdrif skips og áhafnar, en varð ekki alvarlega hræddur fyrr en þann 20. september. Veiðitímabilið er á enda þann 15. og ef allt hefði verið með felldu hefði Roday átt að koma heim þann 20. þ. m. Síðast náðist samband við hann 16. ágúst. — Bróðir minn er vanur að senda skeyti af og til meðanj hann er að veiðum, en ég tókj það samt ekki svo alvarlega þó ekkert heyrðist frá honum eftir að hann var kominn að Græn- landsströnd. — Við höfum mikið verið sam an á sjó, bræðurnir, en ég hef; aldrei verið þarna við A-Giæn- land og hann aðeins eina iter- tíð áður, í fyrra. En við höfum verið við V-Grænland, N-Nor- eg, í Barentshafi og víðar. Hann er 45 ára og byrjaði sjómennsk- una á unga aldri svo að þið sjáið, að hann þekkir sjóinn. — Hann á fimm börn, það yngsta 8 ára, bætti Johansen við. — Við erum fjórir bræðurnir, sem eigum Rodny og annan bát til viðbótar. Fimmti bróðirinn er prófessor í Osló, hann er enginn Sérsfök ráðstefna ræði stofnskrá SÞ, Sameinuðu þjóðirnar, New York, 28. sept. (NTB-Reuter) ÖRYGGISRÁÐ SÞ sam- þykkti í dag samhljóða upp- töku Senegal og Malí-lýð- veldsisins í Sameinuðu þjóð- irnar. Eru meðlimaríkin þá orðin 98. Krúsjeff, forsætisráðherra, tilkynnti í dag að hann mundi óska eftir sérstakri ráðstefnu meðlimaríkja SÞ til að ræða breytingar á stofnskrá sam- takanna í samræmi við tillög- ur hans um breytingar á emhætti Hammarskjölds. Vill Krúsjeff að sett verði upp Þriggja manna framkvæmda- stjórn, sem taki við embætti Hammarskjölds. Eigi þar sæti einn fulltrúi kommúnistaríkj- anna, einn frá Vesturveldunum og einn fulltrúi hlutlausra ríkja. Hafi hver fulltrúi um sig neitun- arvald. sjómaður, sagði Johansen að lok um. Nokkrir urffu strandaglópar Gram fyllti alla olíugeyma hér og lét í haf seint í gærkvöldi. Þetta skip var við ísland í allt sumar norska síldarflotanum til aðstoðar. Það kom m. a. við sögu, þegar norski sjómaðurinn var dreginn fyrir rétt á Seyðisfirði í sumar eftir að skipsfélagi hans hafði látizt af völdum höfuð- höggs. Tveir sjóliðar af Garm fóru þá með Sjannö, en svo hét síldarskipið, til Noregs til að gæta langans á leiðinni. Þeir voru aftur komnir um borð í Garm, þegar skipið kom hingað í gær. Annars vantaði þó nokkra menn á skipið. Það var nýkomið af íslandsmiðum til heimahafnar og hluta áhafnarinnar hafði ver- ið gefið frí, er það var sent til leitarinnar að Rodny í miklum flýti. Ekki var hægt að bíða eftir öllum skipsmönnum, vegna þess hve áríðandi var að halda þegar af stað. Ekki beðiff um Rán Mbl. spurðist fyrir um það hjá Landhelgisgæzlunni í gærkvöldi, hvort þess hefði verið farið á leit, að flugbáturinn Rán tæki þátt í leitinni að Rodny. Svo var ekki. •—oOo— 1 gærkvöldi var væntanlegur hingað fréttamaður frá norska útvarpinu. Mun hann fljúga með norska Katalínubátnum og senda fréttir jafnóðum af leitinni. Ætl- ar hann að reyna að senda frétt- ir sínar á stuttbylgjum til Noregs. segir Krúsjeff Eftirlit á Grænlandi Utanríkisráðherra Danmerkur, Jens Otto Krag, flutti í dag ræðu á Allsherjarþinginu. Sagði hann að aldrei fyrr hefði verið jafn- hættulegt að ekki skuli finnast lausn á afvopnunarvandamálinu. Lagði hann til að komið verði á fót nefnd sérfræðinga, sem vinni að því að gera áætlanir um af- vopnun stig af stigi. Sagði hann að Danir mundu leyfa eftirlit á Grænlandi úr lofti. Þá lýsti Krag fullum stuðningi við aðgerðir Hammarskjölds í Kongó. Krag er fyrstur fulltrúa Norð- urlandanna að taka til máls á þessu þingi. Krúsjeff forsætisráðherra kom óvenju seint til fundarhaldanna í dag. Þegar formaður búlgörsku nefndarinnar, Todor Zhivkov, tók til máls kom Krúsjeff loks til fundarins ásamt Gromyko, utan- ríkisráðherra. Hafði Krúsjeff þá átt tveggja stunda viðtal við Tító, forseta Júgóslavíu. Macmillan og Krúsjeff ræffast viff Zhivkov lýsti í ræðu sinni ein- dregnum stuðningi við tillögu Krúsjeffs um þriggja manna framkvæmdaráð hjá SÞ. Ákveðið hefur verið að þeir Macmillan og Krúsjeff ræðist við á morgun að lokinni ræðu Mac- millans. En í þeirri ræðu mun Macmillan svara ásökunum Krús jeffs í garð SÞ. ÞESSI mynd var tekin í Álaborg fyrir nokkrum dög um. Skipið á myndinni er Brúarfoss Eimskipafélags íslands, sem verða mun systurskip Selfoss. — Smíffi skipsins miðar vel áfram. Er langt komið niðursetn- ingu allra véla í vélarúm- inu og einnig er unnið við að gera hinar miklu frysti- lestir þess. Ráffgert er aff Brúarfoss fari í reynslu- för seint í næsta mánuffi og vonir standa til að hann geti hafiff siglingar fyrir jólin. — Skipstjóri verffur Jónas Böffvarsson, en 1. vél stjóri Hermann Bærings- son. — Togaraeig- endur ekki með EINS og sagt var frá hér í blað- inu í gær, tóku fulltrúar brezKra togaraeigenda þátt í samninga- viðræðum við Norðmenn um fiskveiðilögsögu Noregs. Morgun blaðið sneri sér í gær til full- trúa brezka togaraeigendafélags ins í London og spurði nann hvort togaraeigendur sendu full- trúa til að fylgjast með viðræð- unum, sem hefjast hér á laugar- dag. Fulltrúinn kvað það ekki vera. Hér væri um viðræður á vegum ríkisstjórnanna að ræða, og kæmu brezkir togaraeigendur þar hvergi nálægt. Mál Jóns Gunnars- sonar útgerðarm. í FRAMHALDI af frásögn blaðs- ins í gær um að Hólmsteinn Steingrímsson starfsmaður Lands bankans hefði verið leystur frá störfum í sambandi við mál Jóns Kr. Gunnarssonar í Hafnarfirði, hefur Mbl. aflað sér nýrra upp- lýsinga er leiða í ljós að ekki hafi komið neitt fram í málinu, er bendi til þess að Hólmsteinn Steingrímsson fulltrúi afurðar- lánadeildar bankans, hafi vísvit- andi brugðizt trausti bankans. Hinsvegar er hann í fríi frá störf um sínum í bankanum um stund arsakir. Árangurslausar viðrœður Kaupmannahöfn, 28. sept. (Reuter) S AMNIN G AVIÐRÆÐUM fulltrúa Bandaríkjanna og Norðurlandanna um réttindi Norðurlandaflugfélagsins S. A. S. til flugs yfir Norður- Atlantshafið til Bandaríkj- anna, lauk í dag án samkomu- lags. í sameiginlegri skýrslu full trúanna segir að þeir muni nú skýra ríkisstjórnum sínum frá viðræðunum, sem lauk með „verulegu ósamkomu- lagi“. — í viðræðunum kröfðust Banda ríkjamenn þess að takmörkuð yrðu réttindi S. A. S. til far- þegaflutnings frá Bandaríkjun- um við þá sem fara til Kaup- mannahafnar. Sem stendur fara margir farþeganna áfram til annarra borga í Evrópu með vél- , NA /5 hnúfar SV 50 hnútar Snjókoma 9 06i *** \7 Skúrir K Þrumur Wmz KuUaihÍ ZS' HihskH H Hml L * Laal um S. A. S. eftir komuna til Kaupmannahafnar. Fulltrúar Dana, Svía og Norðmanna segja að þessi regla hafi verið viður- kennd sl. 15 ár og eigi fullan rétt á sér samkvæmt gildandi loftferðasamningum. Talið er sennilegt að viðkomandi rík:s- stjórnir taki upp viðræður uin málið. ÁGÆTT veður var um allt land í gær, þurrt víðast hvar og víða sólskin. Aðeins á svæð inu undan Eyjafjöllum voru skúrir. Þetta loft mun vera komið hingað skemmstu leið frá Skotlandi, en þangað blás- ið austur yfir Noreg frá Dan- mörku og Suður-Svíþjóð eða Þýzkaland. Þetta er þurrt loft, svo að í dag má búast við góðu veðri, því að litlar breyting- ar ættu að verða á kortinu eða veðri á íslandi og næsta ná- grenni þennan sólarhringinn. Veðurhorfur á morgun: SV-mið: Allhvass A, skúrir austan til. Suðvesturland, Faxaflói og Faxaflóamið: A og SA kaldi, skýjað með köflum. Breiðafjörður til NA-lands og miðin: S og SA gola, úr- komulaust og víða léttskýjað. Suð-Austurland og miðin: A-kaldi, skúrir vestan til. SVR mun fjölga ferðum sínum UPP úr næstu mánaðamótum munu Strætisvagnar Reykjavík- ur auka verulega þjónustu sína við bæjarbúa. Næturferðir verða þá teknar upp á fimm leiðum, þ. e. a. s. að ekið verður fram til klukkan 1 á nóttinni fimm daga vikunnar. Óbreytt verður fyrirkomulagið á næturferðum vagnanna á laugardags- og sunnudagskvöldum. A þessum sömu fimm leiðum verða ferðir látnar hefjast klukkan 7 árdegis á sunnudögum. Þá mun í ráði að ferðir verði teknar upp fýrir hádegi á þeim stórhátíðisdögum, sem vagnarnir hafa hingað til ekki byrjað ferð- ir á fyrr en eftir hádegið. Minkafóður Innflutt -- útflutt BREZKA vikublaðið Fisihing News skýrir frá því í síðustu viku að mikið sé flutt af fiskúrgangi til Noregs frá Aberdeen, og noti Norðmenn það til minkafóðurs. Tveim dögum eftir að 150 tonna farmur var sendur frá Aberdeen nýlega, kom þangað íslenzkt flutningaskip og lagði þar á land 70 tonn af fiskúrgangi frá íslandi. Fór fiskúrgangurinn á minkabú i Perthsihire ,Dalchonzie Farm, sem G. L. B. Mundell á. Þetta er eitt stærsta minkabú Bretlands með mörg þúsund dýr. Mundell kvaðst hafa keypt ís- lenzka úrganginn til að bera hann saman við þann sem hann fær x Aberdeen. Sagði hann að 70 tonn væru eins og dropi í hafið handa 10.000 minkum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.