Morgunblaðið - 29.09.1960, Side 3
Fimmtudagur 29. sept. 1960
MORGUNBLAÐIÐ
3
STAKSTtlM
Ný bók
Njála gefin út i
15000 eintökum
DANSKA dagblaðið lnfor-
mation skýrir frá því, að
Njálssaga hafi verið gefin Ú1
í fimmtán þúsund eintökum
í útgáfuflokki bóka, sem nefri
ast Minerva-bækurnar. Héi
er um að ræða ódýra vasa-
bóka-útgáfu en mörg öndveg
isverk heimsbókmenntanns
seljast í tugþúsundatali í slíh
um útgáfum. Meðal fastrc
kaupenda bóka eru t. d. fé-
litlir menntaskólanemendur
og fólk, sem hvorki kauyir
bækur til þess eins að gefa
eða til þéss að geyma í fall-
egum bókaskáp til merkis um
andlegt vitsmunalíf eiganda.
í frásögn Information seg-
ir meðal annars: Ef einhver
hefði fyrir aðeins fáeinum ár
um komið með þá uppá-
stungu að gefa Njálssögu út
í fimmtán þúsund eintökum
hefði sá hinn sami verið álit-
inn vera eitthvað skrítinn í
kollinum.
ERNEST Hemingway hefur
nú lokið nýrri bók, sem á
ensku nefnist The Dangerous
Summer.
Bókin er árangur af síðústu
dvöl Hemingways á Spáni.
Hún mun vera byggð á viður-
eignum nautabananna frægu,
Antonio Ordonez og Louis
Miguel Dominguin, meiðslum
Ordonez og taugastríði beggja
í hinni hörðu keppni þeirra
um titilinn „fræknasti nauta-
bani heims“.
KONUNGSHJÓNIN frá Thai-
Tandi hafa gert víðreist um
Evrópu á þessu ári. í fyrri
viku voru þau í Svíþjóð og
var þá þessi mynd tekin af
Sirikit drottningu sem alla
hefur heillað með fegurð
sinni og framkomu.
Svo sem siður er við slíkar
opinberar heimsóknir heim-
sóttu þau hallir, verksmiðjur,
sjúkrahús, barnaheimili o. fl.
auk þess sem þeim voru haldn
ar ótal veizlur. En þá mun
Bhumibol konungur hafa
skemmt sér bezt er hann fékk
tækifæri til að sinna sínu
mesta áhugamáli, jazzleikn-
Mobutu boðar til ráðstefnu
Kongó á barmi fjár-
hagslegrar glötunar
Leopöldville, Kongó, 28. sept
(NTB-Reuter )
MOBUTO hershöfðingi til-
kynnti í gær að hann hefði
boðað til ráðstefnu allra
stjórnmálaleiðtoga Kongó í
þeirri von að binda með því
endi á ringulreið þá er ríkir
í stjórnmálum og fjármál-
um landsins.
Bauðst hann til að fara
sjálfur til Katanga til að fá
Moise Tshombe forseta til að
mæta á ráðstefnunni.
Mobutu kvaðst vona að ráð-
stefnan gæti hafizt í vikunni,
en sendimenn hans væru þeg-
ar lagðir af stað út um land-
ið til að skora á héraðsleið-
togana að mæta.
Mofoutu hefur þegar rætt miál-
ið við Kasavufou forseta og Lum
umba, annan af forsætisráðlherr-
um landsins. Hinn forsætisráð-
herrann, Joseph Ileo, mun sækja
ráðstefnuna og einnig Albert
Kalonji, forseti „Námuríkiisins"
í Kasaihéraði.
Til nokikurra átaka hefur kom
ið í Kongó undanfarið. Hafa
Kongóhermenn heimtað móla
sinn, og viða að berast fréttir
um það að hermennirnir hafi
gert aðsúg að yfirmönnum sín-
um og heimtað greiðslur. Ekki
hefur þó frétzt um ofbeldisverk
í þessu sambandi.
Á barmi glötunar
Sture Linner, sem er formað-
ur nefndar þeirrar sem vinnur
að því á vegium Sameinuðu Þjóð
anna að finna lausn á efnahags-
vandamálum Kongó, sagði í gær
að landið væri á barmi fjárhags
legrar glötunar. Leiðtogarnir í
Kongó gerðu ekkert annað en
að ræða stjórnmál, sagði hann,
en skiptu sér ekkert að því fjár-
hagslega neyðarástandi sem
blasti allsstaðar við.
Hvítir fluttir burt
Linner sagði það erfitt að hlut
ast til um fjárhagsaðstoð frá SÞ
því enginn ábyrgur emfoættis-
Kenneth Moore með dóttur
sína Söru
Er Moore var
settur inn
KENNETH Moore er einn
þeirra kvikmyndaleikara, sem
í upphafi férils þóttu hvorki
nægilega háir og fallegir né
nægilega spennandi til að
hleypa þeim að hvíta tjaldinu,
en hann reyndist aftur á móti
þeim leikhæfileikum búinn,
sem skipa honum nú á bekk
með færustu leikurum Bret-
lands.
Moore sagði um daginn sögu
af því er hann sem ungur
maður fór með kunningja sín-
um til Xanada og ætlaði að
stunda þar loðdýraveiðar og
afla mikils fjár.
Þegar til Quebec kom var
félaginn ákærður fyrir tví-
kvæní og þeir báðir settir í
fangelsi. Eitthvað mun hafa
verð hæft í ákærunni á hend-
ur félaganum — hann hafði
komið full víða við — en
Moore var látinn laus eftir
mikið þras. Hann var nokkru
síðar heiðursgestur á stórri
hátíð í Quebec þar sem allir
helztu fyrirmenn voru saman-
komnir. Öllum viðstöddum til
undrunar dró Moore þá skjal
upp úr pússi sínu skriflegt
leyfi lögreglustjóra borgarinn
ar til að sleppa honum laus-
um úr fangelsi.
Var ekki laust við að lög-
reglustjórinn sem auðvitað
var þarna staddur, færi dá-
lítið hjá sér við hlátrasköll
hátíðagesta, þegar Moore sagði
sögu sína.
maður væri í landinu til að taka
á móti fénu. Kvað hann kominn
tíma til að opinfoerir aðillar í
Kongó hættu að skorast uhdan
áfoyngð þeirri er á þeim hvilir.
I dag hafa borizt fréttir um
árekstra ættflokka í Katanga. 15
hvítir menn, sem enn voru bú-
settir í Kabongo í norðurhluta
Katanga, voru í dag fluttir það-
an eftir að tveir belgískir verzl-
unarmenn höfðu verið myrtir
þar.
Mannætur.
Frá Bulawayo í Suður Rhodes-
íu bárust í dag fréttir þess efnis
að þangað væri kominn 74 ára
trúfooði, Burton að nafni, sem
starfað hefur meðal Balufoa-
manna í Kongó. Segir Burton að
mannát fari nú í vöxt þar, og
skiptust mannæturnar í tvo
hópa, þá sem aðeins eta rnanna-
kjöt í samibandi við trúaratfoafn-
ir og hina, sem gera það af
græðgi. „Það er eins og með á-
fengið", segir Burton. „Því meira
sem þeir fá, þeim muji gráðugri
verða þeir“.
Undirskriftir á Akranesi
í Morgunblaðinu í gær var um
það rætt hve fáránlegar fundar-
samþykktir, annars greindra
manna, gætu verið. En það em
ekki eingöngu slíkar samþykktir,
sem oft vekja mikla furðu, held-
ur virðist líka hægt að fá fjölda
manna til að skrifa undir yfir-
lýsingar um nánast hvað sem er
Af því er sögð saga, að sænsk-
ir stúdentar hafi fyrir nokkrum
árum viljað sannprófa, hvort
kenningar sálfræðinga um þetta
efni væru réttar. Stóðu þeir á
gatnamótum og báðu menn að
undirrita skjal, en á því stóð að
viðkoma'ndi samþykkti að láta
líf sitt og var það meginefni
skjalsins umvafið fögru orða-
flóði. Undir þetta plagg söfnuðU
stúdentarnir þúsundum undir-
skrifta.
A Akranesi hefur þessi kenn->
ing um að hægt væri að fá menn
til að undirskrifa fáránlegheitin,
sannazt áþreifanlega að undan-
förnu, því að systurblöðin, Þjóð-
viljinn og Tíminn, birta í gaer
um það fréttir að fjöldi kjósenda
á Akranesi hafi skorað á bæjar-
stjórnina að hætta við að reka
Daníel Ágústínusson, en efna til
bæjarstjórnarkosninga ella.
Um undirskriftirnar á Akra-
nesi er það annars að segja, að
undirskriftanna var yfirleitt afl-
að á þeim forsendum að verið
væri að fremja lögleysur,en eins
og kunnugt er, hefur dómur nú
fallið í málinu andstæður Daníel
og hann enn ekki treyst sér að
áfrýja.
Hver er sjálfum
sér næstur
Þjóðviljamenn hafa ekki verri
svip en hver annar í kunningja-
hópi. En þegar þeir fara að
skrifa í blað sitt breytist á
þeim svipurinn. Það verður eng
inn betri maður af því að skrifa
í Þjóðviljann.
f Þjóðviljanum í gær reynir
Guðmundur Böðvarsson að svara
grein Morgunblaðsins fyrir
skömmu um varnarliðsmálin.
Það er eins með Guðmund og
aðra, sem þarna eru á ferðinni.
Hann setur upp svip blaðsins
sem hann skrifar í. Fátt nýtt er
í grein Guðmundar, og rökum
fyrir málstað „hernámsandstæð-
inga“ hefur hann engum bætt
við fyrri grein sína nema síður
sé. Aðalrökin í grein hans byggj-
ast á eigingirni og hefði hún vel
mátt heita: Hver er sjálfum sér
næstur! Á nokkrum stöðum slít-
ur hann Morgunblaðsgreinina úr
samhengi, skoðunum sinum til
framdráttar, en ekki er hægt að
elta ólar við slíkar smáyfirsjónir
í Þjóðviljanum. Þá lætur hann að
því liggja að Suður-Kóreumenn
hafi gert innrás í Norður-Kóreu
á sínum tíma, en sami háttur er
á hafður í rússneskum kennslu-
bókum. Þá er ekki annað að sjá
en hann sé málsvari þeirrar
skoðunar, að íslendingar eigi að
láta viðskipti sín við Sovétríkin
að einhverju ieyti móta pólitíska
stefnu sína, að minnsta kosti fár
ast hann út af því að notað sé
„þjösnalegt orðbragð“ um rúss-
neska kommúnista, meðan þeir
kaupa af okkur fisk. Það er ekki
stórmannleg afstaða hjá skaldi.
Ætti að vera þeim
kærkomið
Kommúnistar hamra á því dag
eftir dag, að fylgi þeirra fari vax
andi meðal verkamanna, en
j stjórnarflokkarnir séu alltaf að
| tapa. Ef þeir væru trúaðir á þess
. ar fullyrðingar sínar, skyldi
■ maður ætla, að þeir hefðu talið
] allsherjaratkvæðagreiðslu í Dags
brún kærkomið tækifæri til að
sýna styrk sinn.