Morgunblaðið - 20.10.1960, Qupperneq 1
24 síður
Bonn, Vestur-Þýzkalandi,
19. okt. — (Reuter — NTB)
DAGBLAÐIÐ „Der Mittag“ í
Dússeldorf skýrði frá því í
dag, að Bandaríkin hyggðust
láta Atlantshafsbandalaginu
í té atómvopn, og væri sú
ráðagerð eins konar svar við
óætlunum de Gaulle um að
Frakkar komi sér upp flug-
her búnum atómvopnum.
Jafnframt birtist í dag, í
Frankfurter Allgemeine, viðtal
við landvarnaráðherra V-Þýzka-
lands, Franz Josef Strauss, þar
em hann staðfestir, að Herter
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
©g Norstad, yfirhershöfðingi At-
lantshafsbandalagsins, séu í
grundvallaratriðum sammála um
að Atlantshafsbandalagið skuli
gert að atómveldi. Hins vegar
segir Strauss að þá greini á um
einstök framkvæmdaatriði, svo
sem hvort atómvopn skuli aðeins
fengin í hendur flota, eða hvort
þau skuli einnig fengin flug-
hernum og landhernum.
Strauss ségir í viðtali þessu,
að hann hafi skýrt þessa ráða-
gerð fyrir flokksmönnum sínum
og sé hún fyllilega í samræmi
við skoðanir stjórnar Vestur-
Þýzkalands.
Rætt á næsta NATO-fundi
Þá er það haft eftir áreiðan-
legum heimildum, að mál þetta
hafi verið til umræðu síðan á
fundi bandalagsins í desember
sl. og muni nú án efa verða til
umræðu á fundinum í París er
hefst 16 .des. n. k.
Der Mittag segir, að Banda-
rikin vilji með þessari ráðagerð
binda endi á þær fyrirætlanir
de Gaulle að Frakkland verði
leiðandi hernaðarríki í Evrópu,
þar sem enginn önnur þjóð, ut-
an Bretlands, hafi í höndum
atómvopn.
Atlantshafsbandalagið hefur
atómvopn í Englandi, en Bretar
og Bandaríkjamenn hafa yfirráð
yfir þeim vopnum og eftirlit.
Vel heppnaðar
tilraunir
WASHINGTON, 19. okt. (Reut-
er) — NTB) — í þessari viku
hafa verið gerðar fjórar tilraun
ir með að skjóta flugskeytum frá
kafbát, sem var á ferð. Var fjór
um flugskeytum af Polaris gerð
skotið úr hinum kjarnorkuknúða
kafbáti „Patrick Henry“ og tók
ust öll skotin prýðilega. Skeytin
komu öll niður á þeim stað er
þeim var ætlað, en tilraunirnar
voru gerðar um 500 sjómílur und
an strönd Florida.
Polaris flugskeyti geta farið
3400 km vegalengd, en ekki hefur
verið tilkynnt hvort öll tilrauna
skeytin fóru þá vegalengd.
i jdnaverðmæti fara
forgörðum
Flökunarvélar nýla afNnn
10—15% verr en mannshöndin
EF NÆGUR mannafli væri
fyrir hendi mundi ég leggja
flökunarvélarnar til hliðar,
enda þótt það þurfi 25 menn
til að afkasta jafnmiklu og
ein þorsk- eða ýsuflökunar-
vél, sagði Sighvatur Bjarna-
son, forstjóri Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannaeyjum í
viðtali við Mbl. í gær.
Hversu mikið fer í súginn?
Ég er ekki í vafa um, að flök-
unarvélarnar, sérstakiega þá
ýsuvélarnar, fara með mikið af
okkar dýrmæta hráefni í súg-
inn. Þegar flakað er með hönd-
um verður nýting afians allt að
35%, afgangurinn fer til mjöl-
vinnslu. Nýtingin verður hins
vegar 22—24%, þegar flakað er
í vélum og þó eru ýsuvélarnar
mun lakari. Eg hef ekki full-
rannsakað afköst þeirra og vil
því ekkert fullyrða um nýting-
una. En hún fer senniiega allt
niður í 20%. Þó fer þetta að
sjálfsögðu mikið eftir gæðum
fisksins. Má ætla, að milljóna-
verðmæti hafi á þennan hátt
farið forgörðum, þvi flökunar-
vélarnar hafa verið í notkun í
nokkur ár.
Flökunarvélar fyrir tugi
milljóna
Þess vegna er það ekki vafa-
mál, að það mundi borga sig fyr-
ir alla aðila að láta flaka fisk-
inn í höndunum. Flökuninyrði að
vísu dýrari, en slíkt mundi skapa
þjóðarbúinu mun meiri verð-
mæti.
Flökunarvélarnar eru mis-
munandi að gerð og verði. Fer
það eftir því hvaða tegund af
fiski þær eru gerðar fyrir. —
Þorskflökunarvélin kostaði eftir
gengisfellingu um 2,3 millj. kr.,
Framh. á bls. 2.
Svo sem frá var skýrt fyrir
nokkrum dögum réðust nokkrir
stuðningsmenn Lumumba á Al.
bert Ndele, er hann var að koma
af fundi með fréttamönnum fyr-
ir skömmu. Hugðust þeir draga
hann inn í bifreið, en er hann
streittist á móti, slógu þeir hann
í andlitið með hnífum. Hér sézt
er Ndele er leiddur frá árásar-
mönnunum, blóðugur og illa til
reika.
Jofngildir
troust-
yfirlýsingu
PARÍS, 19. okt.: — Tilkynnt
var í París í dag, að litið yrði
á það, sem vantraust á stjórn-
ina, ef þingið felldi frv. um að
búa franska herinn atómvopjn
um. Meiri andstöðu hefur
gætt í þinginu gegn þessu frv.
en búizt var við.
Vöruflutningar til
Kúbu stöðvaðir
VerfturlMATO
atómveldi ?
Hugh Gaitskell
Deilur harðna í brezka
verkamannaflokknum
LONDON, 19. okt. (Reuter)
SENN er talið að til tíðinda dragi
dragi i deilum vinstri og hægri
arms brezka Verkmannaflokks.
ins, þar sem svo virðist, sem
ágreiningur flokksmanna sé svo
mikill að jaðri við algeran
klofning í flokknum.
Hugh Gaitskell, formaður
flokksins, hélt í dag fund með
„skugga ráðuneytinu“, en inn.
an þess eru einnig háværar deil.
ur um áframhaldandi for-
mennsku Gaitskells .
Vinstri armur ráðuneytioins
krafðist þess í dag, að annaó
hvort tæki Gaitskell upp þá
stefnu í varnarmálum, sem
flokksþingið hefði ákveðið, ell-
egar hann segði af sér for-
mennsku.
Einn vinstri manna, Sydney
Silvermann, sem verið hefur í
flokknum í 25 ár, hefur ritað
Gaitskell’ bréf, þar sem segir, að
hyggist Gaitskell standa fast við
þá áætlun sína að berjast gegn
samþykkt flokksins um að Bret-
ar afsali sér einhliða atómvopn-
um, mundi þingflokkur brezka
Verkamannafiokksins í neðri
deild þingsins verða að tveim
flokkum.
Mótvægi.
Hinsvegar hefur Gaitskeil
fengið uppörvandi stuðning frá
25 fyrrverandi þingmönnum,
fyrrverandi frambjóðendum til
þings og starfsmönnum flokksins.
Þessir menn hafa sent bréf til
Frh. á bls. 2.
Washington, og New York,
19. okt. — (NTB Reuten.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur
NATQ-iundur
16.—18. des.
PARÍS, 19. okt. — (Reuter —
AFP) — Tilkynnt hefur verið
í París, að ráðherrafundur At-
lantshafsbandalagsins verði
haldinn í París 16.—18. des.
n.k.
Upprunalega var ákveðið, J
að fundurinn hæfist 15. des. »
en stjórn Belgíu óskaði frest
unar til þess að hann rækist
ekki á við brúðkaup Baldvins
konungs.
ákveðið að bannan allan útflutn-
ing til Kúbu frá Bandaríkjunum
frá og með fimmtudeginum 20.
okt. Bann þetta nær þó ekki til
lyfja og ýmissa tegunda matvæla,
en nær bæði til leigu og sölu
bandarískra skipa til Kúbu.
í opinberri tilkynningu sem
gefin var út um ráðstöfun stjórn-
arinnar í dag er skýrt nánar frá
ástæðum til þessa. Er þar meðal
annars sagt, að stjórn Castros á
Kúbu hafi slegið hendi við öll-
um tilraunum Bandaríkjamanna
í þá átt að finna sanngjarna lausn
á deilum þjóðanna. Þá hafi stjórn
Kúbu lagt þunga tolla á banda-
rískar vörur, auk þess sem hún
hafi ekkert tækifæri látið ónotað
til að sýna bandarískum innflytj
endum svo og stjórnarvötdunum
óvirðingu.
Framh. á bls. 23