Morgunblaðið - 20.10.1960, Síða 9

Morgunblaðið - 20.10.1960, Síða 9
Fimmtudagur 20. okt. 1960 MORCVHBl 4 B1B 9 Ólafur Sigurðsson, Hellulandi Búhnykkur ÞAÐ VAR í gamla daga talinn búhnykkur, ef bóndj varð fyrir happi eða gerði eitthvað sérstakt til framdráttar búrekstri sínum, t. d. ef hann ’keypti kú, sem reyndist úrvals gripur eða hreppti hest, er reyndist afbragð til brúkunar — reglulegt bú- inanns-þing. Aftur á móti þótti það illa' borga sig „að svelta hjúin eóa svíkja þau um kaupið“. .Nú hefir það talizt vera góður búhnykkur, að eiga þessa dag- ena 4—5 mánaða gamla minka- hvolpa í búrum inni og geta selí úr íandi grávöru fyrir 100 til 200 milljónir króna, svo ekki sé jneira sagt. Varla hefði það skemmt gjaldeyrisaðstöðuna súoná rétt fyrir jólin. Það mundi vissulega vera kallað að eiga sitt á þurru. Og til þess hefði þurft 10—12 minkabú með 3000 kven- dýrum hvert. ‘ Segja má úm minkinn, að hánn sé til þrifnaðar, því hann étur mest það sem úrgangur er tai- Inn og verðlítið efni: Þar er bezt- 'iir fiskúrgangur ýmiskonar sem lil fellur frá öllum frystihúsum kringum landið og úrgangur fra siáturhúsunum. Þetta kaupa nú búmenn á hinum Norðurlöndun- um af okkur og munar ekki um að bæta skipsfraktinni við verð- ið, sem þeir gefa okkur fyrir og sumir segja einnig drjúgum um- boðslaunum til þeirra sem ann- ast útvegunina. Ýmislegt fleira væri hægt að nýta til fóðurs minkum, sem nú er aigjörlega kastað. Nokkur hundruð þúsund lítrar af dýraþlóði renna út um skolpleiðslur sláturhúsanna, frá ipjólkurbúunum gæti fengist ým- iskonar affall og úrgangur, sem væri ákjósanlegt fóður fyrir minka og svo mætti lengur telja í sveitinni er stundum sagt um þá sem heyrandi heyra ekki og sjáandi sjá ekki, að þeir hafi ekki meðal kindarvit. Ég held að nágrannaþjóðir okkar geti sagt það sama um okkur, þegar minka eldi ber á góma. Alþingi verður að leysa úr á- lögum þessa öruggu atvinnugrein nu strax og það kemur saman. Þá gætu nokkur bú, sem full- nægðu settum skilyrðum byrjað Uþþbýggirtgu þegar í haust. Eft- ir engu er að bíða nema skað- anum. Þjóðinni veitir ekkert af því að geta framleitt sem fyrsi örugga útflutningsvöru, til þess að brýna verstu skörðin úr mis- heppnaðri síldarvertíð og vega upp á móti þverrandi fiskafla við landið, sem maður vonar þó að ekki verði til lengdar. Tíu minkabú með 3000 læðum hvert gefa af sér um 100 þúsund hvolpa árlega. Meðalverð á mínkaskinnum í Danmörku var árið sem leið um 1450 kr. ísi. Meðalverð yfir Norðurlöndin öií ibúðir í smíðum, 3ja, 4ra, 5 og 6 herb. MARKADIiRINN Híbýladeild Hafnarstræti 5 — Sími 10422 Atvinna Tvær reglusamar stúlkur ut- an af landi óska eftir góðri vinnu, vanar símavörzlu og af- greiðslustörfum. Hafa bílpróf. Tilb. merkt: „Reglusamar — 1848“, sendist Mbl. fyrir mánu dag. var um 1300 kr. fyrir stykkið. Ef við reiknum með. 1200 kr. a skinn gefa 10 áminnst bú af sér 120 milljóna króna verðmæti. Vel mætti hugsa sér, að í framtið- inni yrði rekið myndarlegt minkabú í tengslum eða í ná- grenni við hvert einasta frysti- hús á landinu. En vitanlega þarf frá fyrstu hendi að beita vis- indalegri nákvæmni við fóðrun og hirðingu. Á gangnasunnudaginn 1960 Ólafur Sigurðsson -------------------------------ís> Ketiil Jónsson, bóndi Minni Ölafsvöllum á Skeiðum Minning. Hlnn 16. septemberber síðastlið- inn andaðist Ketill Jónsson fyrr bóndi á Minni Ólafsvöllum á Skeiðum. Hann var jarðsettur26. september að Ólafsvöllum að við stöddu fjölmenni. Ketill var fæddur á Sýrlæk í Flóa 9. maí 1871 og hefði því orðið 90 ára á næsta vori. Ketill á Minni Ólafsvöllum, eíns og hann var oftast nefndur, þegar hann bjó þar, var einn af þeim mönnum, sem maður gétur ekki alveg gleymt, þó hann sé horfinn af sjónarsviðinu, sök um þess persónuleika, sem hann bar með sér. Hann var mikiu vexti, fríður sýnum, glaðlynd- ur, skemmtilegur í viðræðum og umtalsfrómur um aðra menn. Hann var afar duglegur vil vinnu, bæði mikilvirkur og vei virkur. Hann átti aetíð gott bú fór mjög vel með skepnur sín- ar, enda mikill skepnuvinur. — Hann var góðviljaður og fús til þess að hjálpa þeim, sem hjálp- ar þurftu. Ketill var afkomandi Gott- sveins gamla í Steinsholti, sem mjög var umtalaður í sinni tíð. Hann var karlmenni að burðum og harðduglegur til allrar vinnu og ætíð góður smælingjum og þeim, sem voru minnimáttar. — Fátæklingar og förumenn áttu ætíð vísan beina og öruggán hvíldarstað á heimili hans. Og hafá þessir kostir Gottsveins, mikil starfsorka og góðvild við smælingja tilverunnar mjög fylgt niðjum hans fram á þenn- an dag. ★ Ketill á Minni Ólafsvöllum hlaut þessa kosti áreiðanlega i ríkum mæli í vöggugjöf, enda varð honura vel til vina, hvar sem hann var. Hann var kvænt- ur ágætri konu, Stefaníu Stef- ánsdóttur. ættaðri úr Hruna- mannahreppi. Þau áttu fjögur börn, sem upp komust, allt prýði legt fólk og velmegandi. Eftir að Ketill missti konu sina bjó hann mörg ár með ráðs- konu, sem reyndist honum mjög vel, og átti hann hjá henni mjög góða elli, enda var hann ágæt- ur húsfaðir. Eftir að Ketill fluttist til Reykjavíkur annaðist hann margvíslegar útréttingar fyrir kúnningjana á Skeiðunum, og var mörgum hin mesta hjálpar hella. Ég veit, að allir Skeiða- menn og margir fleiri, taka und ir það með mér og segja: Vertu blessaður og sæil Ketill, hafðu þökk fyrir allt og allt, og gangi þér vel á óförnum ævibraut- um. Sveitungi. Sendill óskast hálfan eða allan daginn. sTÁLSMíÐjAh 1-- H/P .. .- Sími 24400. X fk-sSr Hólei Borg Gerið ykkur dagamun Borðið á HÓTEL BORG ★ Dansað frá kl. 8. ★ BJÖRN R. EINARSSON og hljómsveit SÖNGVARI: VALERIE SNANE a It Óskum eftir að ráða Skrifstofustúlka með kunnáttu í vélritun og enskri hraðritun Vinnutími hclzt 4—6 tímar á dag, en getur annars verið éftir samkomulagi. Góð laun. Lysthafendur leggi á afgr. Mbl. tilboð merkt: „Áreiðanleg—1846“. Afvinna Óska eftir starfi, helzt í heildverzlun við útkeyrslu, lagerstörf, sólumennsku eða öðru, sem lítur að heild- verzlun — Hef starfað við verzlunarstörf í nokkur ár. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir hádegi laugardag, merkt: „Áreiðanlegur—1001—1820“. Sölumaður Ungur maðnr, sem getur unnið sjálfstætt, óskast til starfa sem fyrst hjá stóru innflutningsfyrirtæki. Tilboð merkt: „Framtíð — 105“, sendist afgr. Mbl. fyrir 23. þ.m. Próf f bifvélavirkjun verður haldið laugardaginn 29. okt. 1960. Umsóknir ásamt námssamningi fullnaðarprófsskírteini frá Iðnskóla. og prófgjald, sendist fyrir 26. okt. til Sigþórs Guðjónssonar co. Ræsir. Stórt einbýlishús í Laugarásnum, nýtt og mjög vandað, til sölu. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR hrl. Laufásvegi 2 — Sími 19960. Nýleg íbúð tiJ sölu Við Álfheima er til sölu góð íbúðarhæð, sem er 117 ferm., 4 herbergi, eldhús, bað og skáli. I kjallara hússins fy'gir að auki rúmgott íbúðarherbergi, sér- stök geymsla og eignarhluti í sameign, þar á meðal í nýtízku þv 'ttavélum. íbúðinni fylgir góð geymsla í risi. íbúðin er næstum ný og í bezta standi. ÁRNI STEFÁNSSON, hdll, Málflutningur. Fasteignasala. Suðurgötu 4 — Sími: 14314. Gróðrastöðin v/ð Miklatorg Símar: 22-8*22 — 19-7-75.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.