Morgunblaðið - 20.10.1960, Síða 12

Morgunblaðið - 20.10.1960, Síða 12
12 MORGVHBLAÐ1Ð Fimmtudagur 20. okt. 1960 isttMftfrifr Utg.: H.f. Arvakur Reykjavlk. mkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar= Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók.: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22180. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. FRJÁLS BLÖÐ k ÞAÐ hefur verið drepið ** í ritstjórnargrein hér í blaðinu, að það háði frjálsri skoðanamyndun 1 landinu, hve tengd dagblöðin væru stjórnmálaflokkunum. Ekk- ert mætti segja í blöðunum án þess að það væri sam- stundis túlkað sem skoðun þess stjórnmálaflokks, sem viðkomandi blað styður. — Morgunblaðið hefur fyrir sitt leyti viljað bæta nokkuð úr þessum ágalla. Það birtir tíð- um greinar, sem hafa ýmis- legt það að geyma, sem jafn- vel ritstjórnin er ekki full- komlega sammála, hvað þá að það sé tulkun á stefnu Sj álfstæðisf lokksins. Einn er sá háttur, sem blaðið hefur á til þess að ná til skoðana almennings, en það er spurning dagsins á sunnudögum. Auðvitað birtir blaðið svör þeirra, sem til er leitað, án þess að túlka í leið- inni eigin sjónarmið. Síðast- liðinn sunnudag birti blaðið svör allra togaraskipstjóra, sem til náðist í Reykjavík í síðustu viku, við spurning- unni um það, hvað þeir álitu um samninga við Breta í landhelgisdeilunni. — Niður- staðan varð sú, að 4 af 5, sem spurningunni svöruðu, töldu einsætt að semja bæri við Breta, en sá fimmti taldi okk- ur eiga að halda fast við nú- verandi friðunarlínu. Stjórnarandstæðingar hafa síðan látið í það skína, að Morgunblaðið muni fyrir- fram hafa kynnt sér skoðanir togaraskipstjóra á þessum málum og leitað til þeirra, sem óskuðu eftir samningum, en ekki hinna. Þessar fullyrð- ingar eru tilhæfulausar með öllu, enda var, eins og áður segir, leitað til allra starfandi togaraskipstjóra, sem til Reykjavíkur komu í vikunni. Samkvæmt kenningum stjórnarandstæðinga hefði Morgunblaðið átt að neita að birta svör þeirra manna, sem til var leitað, ef þau féllu rit- stjórn blaðsins ekki í geð. Eftir okkar skoðunum aftur á móti er spurning dagsins til gangslaus, ef þar má aðeins koma fram eitt sjónarmið. En víkjum að öðru. í þriðjudagsblaði Morgun- blaðsins er birt viðtal við Svavar Guðnason, listmál- ara, sem nú heidur sýningu í Kaupmannahöfn. í þessu við- tali heldur Svavar fram sjón- armiðum, sem eru andstæð sjónarmiðum togaraskipstjór- anna í landhelgismálinu. News Chronicle og Sfar leggja cipp laupana Morgunblaðinu kom ekki til hugar að ritskoða orð Svav- ars Guðnasonar fremur en togaraskipstjóranna. Báðir að ilar hafa fullkominn rétt til að halda fram sínum skoð- ui)um, en sjónarmið Morgun- blaðsins birtast í ritstjórnar- greinum þess. Á því leikur ekki minnsti vafi, að erfiðleikarnir á lausn landhelgismálsins stafa með- fram af því, hve þvinguð skoðanamyndun er hérlendis, þar sem menn eiga það bein- línis á hættu að vera stimpl- aðir landráðamenn, án þess að geta borið hönd fyrir höf- uð sér, ef þeir hafa aðrar skoð anir á málum en þær, sem stjórnmálamenn á hverjum tíma telja heppilegastar til framdráttar sínum flokki og gera þar með að stefnu blaða sinna. Ofurlítið bragð af þessu gefur að líta í Þjóðvilj- anum þegar blaðið segir um togaramennina: „Togaraskipstjórarnir rök- styðja einnig afstöðu sína með því í Morgunblaðinu, að það sé þeim fjárhagslegt hags munamál að geta selt óverk- aðan fisk í Bretlandi — hvað sem líður þjóðarhag. Þeir vilja sem sé selja landsrétt- indin gegn því að þeir fái persónulega einhvern ábata!“ Og næsta dag segir blaðið: „Menn af slíku tagi eru því miður alltaf til, eins og við þekkjum úr sjálfstæðisbar- áttunni við Dani. Innan al- þýðusamtakanna gengur manngerðin undir nafninu verkf allsbr j ótar“. Togaraskipstjórunum eru ( sem sagt ekki vandaðar kveðj | urnar. Þeir eiga að meta, einkahagsmuni sína meira en' hag þjóðarinnar og vera til- búnirlil að svíkja allt og alla fyrir peninga. í Bretlandi hafa mjög miklar umræður verið í blöð- unum um landhelgisdeiluna. Margir brezkir þegnar hafa gagnrýnt harðlega stjórnar- stefnu Breta í málinu og engum hefur þar í landi dottið í hug að bera á þá menn landráðabrigzl eða núa þeim því um nasir að þeir ynnu að persónulegum hags- munum. Þessar umræður hafa vissulega verið styrkur t Breta en ekki veikleiki. Á sama hátt eiga íslendingar að vera nægilegir manndóms- menn til þess að þora að ræða málin frá öllum hliðum, hvað sem líður kommúnisk- um upphrópunum. Að því vill Morgunblaðið stuðla. LONDON, 18. okt. (Reuter). — Tvö brezk stórblöð hættu í dag göngu sinni, morgunblaðið News Chronicle með 1,2 milljóna upp- Iag og kvöldblaðið Star sem gefið hefur verið út í 758 þúsund ein- tökum. Bæði þessi blöð studdu Frjálslynda flokkinn og hefur stjórn flokksins lýst yfir undrun sinni og vandræðum yfir hinni skyndilegu sölu og niðurlagningu blaðanna. Kaupandi blaðanna er hinn frægi Rothermere blaðahringur og er sagt að kaupverðið hafi numið 1,5 milljón sterlingspunda fyrir bæði blöðin. Ætlun Rotherm ere-hringsins er að sameina þau morgunbiaðinu Daily Mail og kvöldblaðinu Evening News. En nú er það hvergi nærri víst, þótt slík sameining fari fram, að kaupendur hinna gömlu blaða láti sameininguna hafa áhrif á sig. Enda er þegar kafin einhver hin skæðasta barátta sem um er vitað um þessa blaðalesendur. Bernhard Shaw varð frægur sem bókmenntagagnrýnandi „Star“. Boð til lesenda Sérstaklega hefur Beaver- brook-blaðahringurinn verið fljót ur að hefja baráttuna um hylli þeirra. Blöð hans, morgunblaðið Daily Express og kvöldblaðið Evening Standard birta í dag stórar tilkynningar þar sem þau fara á fjörurnar við lesendur News Chronicle og Star. Samskonar barátta er nú hafin á sviði hinna sérstæðu sunnu- dagsblaða Breta, því að s.l. sunnu dag var eitt þeirra, hið svonefnda Empire News að leggja upp laup - ana. Hafði það upplag sem nam rúmum tveimur milljónum en verður nú sameinað stórblaðinu News of the World sem er gefið út í 6,5 milljón eintökum. Blaða- hringur Kanadamannsins Roy Thomsons átti bæði blöðin. Tap á rekstrinum Mr. Cadbury, framkvæmda- Opnar málverka- stjóri Daily News Ltd. sem gaf út News Chronicle og Star sagði í dag, að alveg væri sama þótt upplög þessara blaðað hefðu ver- ið há, — stöðugt tap hefði verið af rekstri þeirra, svo útgáfufélag- inu hefði verið nauðugur einn kostur að selja fyrirtækið. Við blöðin störfuðu 3700 manns, þar af 300 á ritstjórnarskrifsofum þeirra. Segir Cadbury, að útgáfu- stjórnin geri sér fullkomleg® ljóst, að hún hafj skyldur gagn- vart þessum starfsmönnum og hefur hún ákveðið að verja allri söluupphæð blaðanna, þegar óhjá kvæmilegur kostnaður hefur ver- ið frá dreginn, til stuðnings og eftirlauna við starfsfólkið. T. d. hefur þegar verið ákveðið að 800 þúsund sterlingspund gangi beint í eftirlaunasjóð starfsmannanna. Foringjar starfsmannafélags blað anna segja þó að þessar bætur séu allsendir ófullnægjandi. Þrír blaðahringir Með falli þessara tveggja blaða er tala þeirrá dagblaða sem hætt hafa göngu sinni í Bretlandi síð- an 1953 kominn upp í 41. Víða hafa menn látið í ijósi óánægju með þróun blaðaútgáfunnar í Bretlandi. Er nú svo komið, að helmingur allra blaða í Bretlandt er eign þriggja stórra blaða- hringa, Beaverbrooks, Rother- meres og Thomsons og sýnt þyk- ir að á næstu árum fari hlutur þessara stóru hringa enn mjög versnandi. Einha mest virðist blaðið „Guardian" í Manchester harma fall News Chronicle, enda er það stuðningsblað Frjálslynda flokks- ins. Segir það að Chronicle hafi borið meiri menningablæ en flest hinna dagblaðanna. Daily Ex- press, lætur það heldur ekki á sig fá, þótt það sé eign eins void- ugasta hrinsins, Beaverbrooks en Charies Dickens var fyrsti ritstjóri „News Chronicle“ segir í ritstjórnargrein í dag: „Lýðræðið byggist á frjálsri og margbreytilegri túlkun skoðan í dagblöðunum. Þegar dagblöðun- um fækkar, hefur það í för með sér, að lýðræðið veikist". Stærstu dagblöðin Stærstu brezku morgunblöðin sem nú munu keppa um það að ná lesendum News Chronicle eru þessi: Daily Mirror 4,5 millj. em- tök, Daily Express 4 millj., Daily MaiL 2 millj., Daily Herald 1,4 millj., Daily Telegraph 1,1 milij. og Daily Sketch 1,1 millj. Síðan koma tvö mikilsvirt blöð en. neð miklu minna upplag: Times 254 þús., Guardian 182 þús. og luks rekur kommúnistablaðið Daily Worker lestina með 55 þús. ein- tök. sými!£ii Á MÁNUDAGINN opnaði Skarp héðinn Haraldsson vatnslitasýn- ingu að Týsgötu 1. Skarphéðinn stundaði fyrst nám í Handíða- skólanum, fór síðan til framhalds náms í Londdn og Glasgow, enn fremur fór hann námsferð til Parísar. Hann hefur ekki hald.ð sjálfstæða sýningu fyrr, en hefir tekið þátt í samsýningum und- anfarin ár. Nú sýnir hann 20 vatnslitamyndir, • sem allar eru málaðar á þessu ári. Sýningin verður opin næsta hálfan mánuð kl. 10—6- Ronnsak- obi hern- abaræði var dæmdur fyrir njósnir VÍNARBORG, 8 okt. (Reuter). Tveir Bandaríkjamenn, sem fóru í skemmtiferð til Rússlands eru komnir til Vínarborgar eftir æv- intýralega ferð. Rússar handtóku þá og sökuðu um .njósnir. Ann- an þeirra, Mark L. Kaminsky, dæmdi herrréttur í Kænugarði í 7 ára fangelsi, en rússneska frétta stofan Tass tilkynnti að hinn Bandaríkjamaðurinn Harvey C. Rennett, hefði undirstungið lög- regluna og veitt henni upplýs- ingar um njósnastörf félaga síns. Loks var þeim báðum vikið úr landi og kom fangelsisdómurinn því ekki til framkvæmda. Viðaði að sér efni í bók. Félagarnir tveir höfðu nú nokkuð aðra sögu að segja um dvöl sína í Noregi en Tassfrétta stöfan hefur skýrt frá. Þeir kváðust hvorugur hafa stundað njósnir og Bennett segir það til hæfulaust, að hann hafi gefið upplýsingar um njósnir félaga síns. Þeir skýra svo frá, að þeir hafi í júlí-mánuði sl. tekið bif- reið á leigu í Finnlandi og ekið inn yfir rússnesku landamæriu. Segja að rússneska ferðaskrif- stofan hafi teiknað leið fyrir þá sem þeir mættu aka um gegnum Rússland. Þeir félagarnir segja að aðal tilgangur ferðarmnar hafi verið og taka myndir af rússneskum hernaðarmannvirkjum og her- mönnum. Ekki hafi þó verið um að ræða njósnir. heldur hafi Kaminsky ætlað gefa út bók um hernaðaræðið í Rússlandi. Þeir segjast hafa eins og aðrir ferða menn, orðið mjög varir við her- búnað í öllum héruðum landsins og þykir mikil mótsögn felast í því, að á sama tíma og Rússar eru að tala um frið, bá linnir ekki herbúnaðinum heima fyrir. Handtetohir við landa- mærin. Þann 25. ágúst sl. ætluðu beir að aka yfir landamærin til Tek<ó slóvakíu við Chop en voru stóðv aðir á þeim forsendum að þetta væri bannsvæði. Síðan fengu rússnesku landamæraverðirnir þá flugu í höfuðið að framkal'.a filmur Kaminskys og þar m:ð var fjandinn laus. Vár nú flogið með þá til Kænugarðs og Kam- insky dreginn fyrir herrétt. Kaminsky kveðst enn hafa í hyggju að skrifa bók um hern- aðaræðið í RússJandi, en hann kveður verkið gert sér örðugra við það að rússneska lögreglan tók frá honum aliar minnisgrein- ar og Ijósmyndaíilmurnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.