Morgunblaðið - 20.10.1960, Page 17

Morgunblaðið - 20.10.1960, Page 17
Fimmtudagur 20. okt. 1960 MORCVJSBLÁÐIÐ 17 Markmið kommúnismans er óbreytt Drottnun yfir allri lieimsbyggðinni — sagði Paul de Lieven d fundi Stúdentafélagsins f FYRRAKVÖLD gekkst Stúd- entafélag Reykjavikur fyrir um raeðufundi í Sjálfstæðishúsinu og var frummælandi þar Paul de I.ieven, aðal-blaðafulltrúi At- lantshafsbandalagsi,ns. Pétur Benediktsson, formaður félags- ins, setti fundinn og kynnti hinn erlenda gest, en síðatn tók Lieven til máls. ★ í upphafi máls síns skýrði Paul Lieven í höfuðdráttum starfsemi Atlantshafsbandalagsins. Það er samtök fimmtán sjálfstæðra ríkja, og hefur hvert um sig full trúa í Atlantsaafsráðinu. Engin ákvörðun er gerð, nema hún sé einróma samþykkt. Veldur þetta að sjálfsögðu nokkrum töfum í afgreiðslu mála, og er harla ólíkt því, sem tíðkast austan járntjalds. Þar eru ákvarðanir gerðar með skjótum hætti enda fátt um at- kvæðagreiðslur Á hinn bóginn er það með þessum hætti tryggt, að engin ríkisstjónn þarf að 'beygja sig undir ákvarðanir ann arra, né takazt annað á hendur en það, sem hún er fús til. Rangt væri að líta svo á, að Atlantshafsbandalagið væri sjálf stæð pólitísk heild. Það er fram kvæmdastjórn þeirra stefnumiða, sem samkomulag næst um í ráð inu, og vettvangur til þess að ræða bæði þau mál, sem sam- komulag ríkir um, og hin, sem ágreiningi valda. ★ Meginviðfangsefni bandalags- ins hefur frá upphafi verið að tryggja varnir vestrænna ríkja gegn yfirgangi hinna austrænu kommúnistaríkja. Þessu mark- miði hefur nú verið náð að svo miklu leyti, að lítil hætta verður í bili að teljast á vopnaðri árás. Styrkir Framh. af bls. 6. og Norðurlanda í ágúst mánuði síðast liðnum til að kynna sér nýjungar í náttúrufræðikennslu við menntaskóla. 9. Nefnd, skipuð af landbún aðrráðuneytinu, til þess m. a. að gera tillögur um fram tíðarskipan búnaðar- fræðslu og garðyrkjuskóla vegna utanferðar Bjarna Helgasonar, garðyrkjufræð ings, til að kanna nýjungar í gróðurhúsarækt og gróð- urhúsagerð í Evrópu. Ferð in hófst í ágústmánuði s.l., og mun Bjarni dveljast ytra um nokkurra mánaða skeið. 10. Jarðhitadeild raforkumála skrifstofunnar vegna utan- farar dr. Gunnars Böðvars sonar, forstöðumanns deild arinnar, til að kynna sér notkun rafeindareiknivéla við úrlausn vísindalegra verkefna. Dr. Gunnar mun fara utan í þessum mánuði, og er ráðgert að hann dvelj ist í Kaupmannahöfn um allt að fjögurra mánaða skeið. Til greina kemur, að hann heimsæki einnig vís- indastofnanir í Mainz og Ztirich. 11. Rannsóknarstofa Fiskifél- ags íslands vegna ferðar Geirs Amesen, efnaverk- fræðings, til Noregs til að kynna sér meðferð og rann sóknir á fiskiolíum. Förin er ekki hafin enn, en ráð- gert er, að hún taki um einn mánuð. Til framangreindra styrkja er áætlað að verja samtals um 370 þús. kr. (Frá Menntamálaráðuneytinu) Á hinn bóginn er því ekki að leyna, að markmið kommúnis- mans er óbreytt — yfirráð yfir öllum heimi — enda þótt aðferð ir hans séu aðrar og virðist í fljótu bragði friðvænlegri. Frá öndverðu hafa Sovétríkin og fylgifiskar þeirra einskis látið ó- freistað í því skyni að koma af stað úlfúð og deilum milli Atlants hafsbandalagsríkjanna innbyrð- is. Nýlega hefur þess í vaxandi mæli orðið vart, að þau hafa reynt að einangra Evrópu frá ríkjum Asíu og Afríku. Ræðumaður gat síðan í stuttu máli um þýðingu íslands í vörn um Atlantshafs og hversu mikill styrkur bandalaginu væri að að- ild íslands. Kvað hann það skoð un sína, að íslandi væri engu síð- ur hagur að þátttöku sinni í þeseu varnarbandalagi, sökum þess hve íslendingar eiga erfitt með að halda uppi eigin hervörn um sakir mannfæðar. ★ Að framsöguræðu sinni lok- inni svaraði Lieven fyrirspurn- um. Tveir kommúnistar, sem á fundinum voru, biðu ekki boð- anna. Þetta voru þeir Þorvaldur Þórarinsson og Ingi R. Helgason. Þorvaldur var fyrri til og flutti stutta tölu og var aðalinntak hennar það, að Atlantshafsbanda lagið legði lag sitt við mestu glæpamenn veraldarsöguhnar. Loks spurði Þorvaldur hvort Atlantshafsbandalagið mundi veita Islendingum hernaðarað- aðstoð gegn Bretum. Lieven svaraði því til, að engin vopnaviðskipti hefðu orðið milli Breta og íslendinga og enda þótt fast hefði verið haldið á málstað íslands í NATO hefði engin ís- lenzk' ríkisstjórn kært Bretland né beðið um hernaðaraðstoð. Það væri æskilegt, að bandalagsríkin leystu deilur, sem upp kynnu að koma, með viðræðum — og kvaðst vona, að viðræðurnar, sem staðið hafa að undanförnu, mundu leysa vandann. ★ Ingi R. Helgason hneykslaði bæði hinn erlenda gest og fundar menn með því að halda því fram, að aðild íslands að Atlants hafsbandalaginu væri lögleysa. Engu máli skipti vilji Alþingis, ekki hefði verið leitað ráða „al- þingis götunnar“. Hófust þá almennar umræður. Gísli Halldórsson, verkfræðing- ur, ræddi um innræti kommún- ismans — hvernig beizkja, öfund og hatur í mannssálinni gæti fætt af sér hinn kommúniska sjúk- dóm. Allt væri undir því komið, að Atlantshafsbandalaginu tæk- ist að halda kommúnismanum í skefjum — og það væri skylda æskunnar að leggja allt það af mörkum, sem hún mætti, til að efla samstarf lýðræðisríkjanna. Lagði Gísli áherzlu á það að ís- lendingar sinntu þörfum Atlants hafsbandalagsins í hvívetna. Hættunni er boðið heim, ef lýð- ræðisríkin slaka á vörnunum, sagði Gísli. ★ Ásgeir Pétursson, benti í upp- haíi máls síns á það að áður var um það deilt hvort rétt hefði verið að ganga í Atlantshafs- bandalagið. Nú héldu kommún- istar og fylgismenn þeirra því fram að forsendur væru brostn- ar fyrir áframhaldandi þátttöku. Þetta er rökleysa, sagði Ás- geir, því enda þótt aðferðir kommúnista hafi breytzt, væri markmið þeirra óbreytt, þ. e. heimsyfirráð. Þá benti Ásgeir á að Atlants- hafsbandalaginu hefði ekki ver- ið komið á fót án breýtinga á utanríikspólitík margra aðildar- rikjanna. Áður fyrr hefðu rík- in ekki myndað með sér banda- lög fyrr en eftir að árás hefði verið gerð á þau, svo sem á Hitlerstímunum, en nú hefði sá háttur verið hafður á að stofna til varnarbandalags áður en árás væri gerð og til þess að hindra árás. ísland hvarf frá þýðingar- lausri hlutleysispólitík til varn- arbandalags frjálsra þjóða. Það er ekki gengið á rétt neinnar þjóðar, þótt frjálsar þjóðir stofni með sér bandalag til þess að vernda frelsi sitt, mannhelgi og friðinn. Ljóst er að A-bandalaginu hef ur tekizt að ná höfuðmarkmiði sínu að vernda friðinn í heim- inum og að stöðva yfirgang Rússa, því frá stofnun bandalags ins hefur þeim ekki tekizt að undiroka einn þumlung lands til viðbótar. 1 niðurlagi máls síns drap Ás- geir á það að viðleitni Sovét- ríkjanna til þess að ánetja aðr- ar þjóðir efnahagslega væri sér- lega varhugaverð. Það væri sannarlega kaldhæðni örlaganna að þessir yfirlýstu unnendur öreiga og undirokaðra skuli ger- ast berastir manna að því að færa sér í nyt efnahagslega erf- isleika þjóða, örbirgð og eymd í þeim eigingjarna tilgangi að seilast til pólitískra afskipta og yfirráða. ★ Þór Vilhjálmsson, lögfræðing- ur, talaði næstur og sagði óhugn- anlegt til þess að vita hver eyð- ingarmáttur vopnanna væri nú orðinn. Hættan væri mikil og t.d. sagði hann, að kínverskir komm- únistaleiðtogar hefðu grafið það upp úr hinum nýju kommúnísku trúarbókum sínum, að styrj- öld væri óumflýjanleg. Meðan 600 milljóna þjóð væri látin trúa því, að styrjöld vær það sem koma skyldi, þá væri hætta á ferðum. Það dyldist engum. Bað hann Lieven að skýra laus lega frá vopnastyrk austurs og vesturs eftir því sem honum væri bezt kunnugt — og í framhaldi af því reis frummælandi aftur úr sæti. Sagði hann, að Rússar hefðu töluvert meiri herstyrk á landi — og kafbátasveitir þeirra væru öflugar. Þeir ættu nú 450—500 kafbáta, en til samanburðar gat hann þess, að Hitler hefði í upp hafi heimsstyrjaldarinnar átt að- eins 50 kafbáta — og hefðu þeir þó gert nógu mikinn usla. En hlutföllin væru heldur hag- stæðari Vesturveldunum, þegar kæmi að flughernum. Sagði hann, að Rússar væru taldir eiga um 20,000 hervélar. Mest gerði Lie- ven úr polaris-flugskeytunum, sem Bandaríkin hafa sett 1 nokkra kafbáta sinna. Þessum skeytum gætu bátarnir skotið úr kafi, þetta væri eitt öflugasta vopnið, sem Vesturveldin hefðu nú yfir að ráða. Þorvaldur Þórarinsson greip nokkrum sinnum fram í fyrir Lieven, var með sömu fyrirspurn imar misjafnlega þvælulega orð aðar — og hártogaði svör frum- mælanda. Var greinilegt, að kommúnistarnir forðuðust allar málefnalegar umræður, ætluðu sér aðeins að hefja þóf, sem þeim tókst þó ekki vegna greiðra og ákveðinna svara Lieven. Undir lokin hlógu allir fundarmenn að Þorvaldi og sá hann sitt óvænna og dró sig í hlé. ★ Pétur Benediktssosu, formaður félagsins, sagði nokkur orð að lokum. Sagði hann að 1 lok síð- — Það var stúlka, sagði Jórunn hreykin. Haiia ljósmóðir horfir á frumburð hennar. — fifiöingarheimilii) Framh. af bls. 3 Svo leit hann á okkur stór- um, dimmbláum augum rétt sem snöggvast, lokaði peim síðan og var steinsofnaður. Skipti á börnum útilokuð. Við vöggurnar voru festir miðar, annar blár en hinn rauðbleikur. Á þá var prent- að nafn móður. stofunúmer, fæðingardagur og ár barns- ins, þyngd þess, lengd og kyn. Bláu seðlarnir eru settir á vöggur drengjanna en þeir rauðbleiku stúlknanna. Hulda Jensdóttir skýrði okkur frá því, að bæði móðir og barn væri merkt áður en þau færu út 'af fæðingarstofunni og væru merkingarböndin meira að segja ekki klippt í sundur fyrr en að fæðingu lokinni. — Auk þess, hélt Hulda áfram, tökum við mót af hægri il barnsins og hægri þumalfing- ur móður og það prentað í dagbækur okkar; einnig fær móðirin förin þrykkt á bak- hlið barnaseðlanna til gam- ans. — Eins og þið sjáið af þessu, er skipting á börnum alveg útilokuð. Því næst skýrði Hulda okk- ur frá því, að þær kenndu mæðrunum að baða börn sín, áður en þær færu heim. — I veganesti fengju þær leiðbein . ingarbækling um meðferð ungbarna. en auk þess gæfi fæðingarheimilið úr smárit til mæðranna um reglur heimil- isins, leikfimisæfingar eftir fæðingu og önnur heillaráð. Akkúrat matráðskona. Síðast heimsóttum við eld húsið. Þar voru stúlkurnar að keppast við ?ð laga kvöld- verðinn. Matráðskonan, frú Sigrún Arnórsdóttir, stóð við eldavélina og hræði í kartölu mús. Er við kíktum ofan i hinn pottinn, komumst við að raun um að pylsur væru á boðstólum í kvöld. Sigrún skýrði okkur frá því, að fyrir utan matseldina bök- uðu þæi allt sjálfar. Rómaði hún mjög eldhúsið, hversu það væri stórt. rúmgott og þægilegt. Það er tviskipt; í öðrum enda þess er uppþvott arherbergið með tveimur vösk um, annar en notaður til upp þvotta en hinn til að hreinsa matvælin í. Þá sýndi hún okk- ur hvernig hún notaði heljar stóra pönnu sem fest var i gólfið. — Hefurðu fengizt áður við sjúkrahúsamat, Sigrún? — Já, í 6 ár, sagði Sigrún, en ég veit ekki .... . . . Hún er akkúrat eins og matráðskonur á sjúkrahúsum eiga að vera, ■ greip Hulda fram í, látið hana ekki reyna að telja ykkur trú um annað. Enginn ys né þys. Það var enginn ys né þys á fæðingarheimilinu, þótt ein kona væri að fæða. Allt fór rólega fram. Við gengum fram hjá hjá setustofu mæðranna, sem ,var auð á þessari mín- útu. Þar geta þær setið og spjallað saman. eftir að þær" eru orðnar rólfærar. Og þeg ar við yfirgáfum fæðingar- heimilið, mættum við tveim- ur ganstúlkum, sem ýttu mat arvagni á undan sér. Það var kominn kvöldverðartími og okkur var ekki lengur til set- unnar boðið; starfsfólk og sængurkonur biðu eftir pyls- unum og karöflumúsinni hennar Sigrúnar. ustu heimsstyrjaldar hefðu enn verið tveir blettir á skildi vest- rænna þjóða, nýlendustefnan og afskiptaleysið um fátækt almenn ings í miklum hluta heims. Það var, sagði hann, gleðilegt að sjá fulltrúa nýju Afríkuþjóðanna, þegar þeir gengu í sal Allsherjar þingsins fyrir skemmstu. En sam tímis því, að verið er að hjálpa nýju ríkjunum að komast yfir erfiðasta hjallann færist kúgunin í aukana í hinum kommúniska heimi. Þar eru fjötrarnir hertir á almenningi, þar rík- ir algert slceytingarleysi um hagi almennings — þar stjórnast allt af ofsatrúnni á úreltar kenn ingar kommúnismans og hinni ævafornu drottnunarhyggju zar- anna. — Að lokum drap Pétur á landhelgismálið og sagði það von sína, að finnast mætti lausn þess. ★ „Alþingi götunnar“ ætti ekkl að segja rétt kjörnum fulltrúum þjóðarinnar fyrir verkum. „Samn. ingar eru svik“ væri hinn aum- asti þvættingur. — Með festu ætti að ná sem skynsamlegustu samkomulagi. Það er betra að lifa í góðum samskiptum en reiða skóna hver að öðrum. EINAR ASMUNDSSON hæstaréttarlögmaður HAFSTEINN SIGURÐSSON héraðsdómslögmaður Skrifstofa Hafnarstr. 8, II. hæð. Sim: lo407, 19113.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.