Morgunblaðið - 10.11.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.11.1960, Blaðsíða 1
20 síður Kennedy sigrar í tvísýnum kosningum Atkvæðamunur aðeins 388 þús. New York. 9. nóvember. —- (Reuter-NTB) — ÞAU urðu úrslit forsetakosn- inganna í Bandaríkjunum, að John F. Kennedy var kjör- inn með yfirgnæfandi meiri- hluta kjörmanna, en naum- um meirihluta atkvæða. Demókratar héldu hrein- um meirihluta í báðum deild um þingsins, en repúblikan- ar bættu við sig tveim öld- ungadeildarþingmönnum og 20 þingmönnum í fulltrua- deild. Þetta er í fyrsta sinn síðan Woodrow Wilson var kjörinn árið 1916, að fram- bjóðandi demókrata vinnur sigur í forsetakosningum án þess að fylgi flokks hans aukist á þinginu. Kennedy er fyrsti kaþólski Bandaríkjaforsetinn og hinn yngsti síðan Theodore Roose- velt tók við embætti forseta. Kennedy hefur tilkynnt, að hann muni dveljast um kyrrt á heimili sínu í nokkra daga en fara síðan í frí. Að því loknu muni hann beita sér af öllum kröftum að undir- búningi embættistökunnar, sem fer fram í janúarmán- uði næstkomandi. Kennedy kvaðst ekkert geta sagt um skipan ríkis- stjórnar hans fyrr en hann kæmi úr leyfinu. Munar 153 kjörmönnum Samkvæmt seinustu fréttum frá atkvæðatalningunni hefur Kennedy hlotið 32.096.977 at- kvæði (50,3%) en Nixon, 31.708. 437 atkvæði (49,7%) Hafði Kennedy forystuna í 25 rikjum með 338 kjörmönnum, en Nixon í 24 ríkjum með 185 kjörmönn- um. Margir höfðu talið að hin kaþólska trú yrði Kennedy þrándur í. götu, en svo reyndist yfirleitt ekkl. Þó kom á óvart ósigur hans í ríkjunum Virgmia, Tennessee og Kentucky, þar sem demokratar töldu sig hafa nokk- uð öruggt fylgi, en menn teba, að trúmál hafi ráðið noKKru í Tennessee. í nótt bentu aíkvæðatölur tií þess, að Kennedy væri örugg- ur um sigur. En er iiða tók á morguninn og tölur fór.i að ber- ast úr Vesturríkjunum vann Nixon á og var þá talmn hafa nokkra möguleika. Siðai í dag fór að horfa betur fyrir Kennedy á ný og honum vai sigurinn vís, er hann vann Kaliforniu. Frh. á bls. 2 RHOOt 1»* COMHtCTiCi - NSW JlíJlJ pjUAWAOl maiwlam# UPPDRÁTTUR þessi sýnir hvert einstakt ríki í Bandarikjunum. — í þeim rfkjum, mpo lituð eru í dökkum lit, vann Nixon sigur, en hin vann Kennedy. Fréttir höfðu ekki borizt ium hver hefði unnið New Mexico og Washington. En Kennedy vann bæði Alaska og Hawaii. SJA til samanburðar mynd á bls. 2 frá kosningunum 1956. Orslitum víáast fagnað London, Moskvu, Róm, 9. nóv. — (Reuter-NTB) — K J Ö RI Johns F. Kennedys í embætti Bandaríkjaforseta hef- ur verið tekið með miklum fögnuði í löndum Evrópu. Þær þjóðir annarra heimsálfa, er látið hafa í ljós álit sitt, lýsa einnig yfir ánægju sinni, utan Formósu. Þar hafa menn orðið fyrir vonbrigðum og spyrja hvað nú verði um Quemoy og Matzu. Með kosningunum hefur hvar vetna verið fylgzt af mikilli eft- irvæntingu. Fréttaritarar segja, að í kommúnistaríkjunum hafi þeim verið sýndur geysilegur áhugi, einkum í Póllandi. Sú er almennt skoðun stjórn- málamanna, að svo ungur maður muni veita nýjum hugmyndum og nýrri atorku í viðskipti þjóð- anna og tilkoma hans í forseta- embættið muni flýta fyrir því að teknar verði upp viðræður um afvopnun. Þá telja þeir mikils virði að hann hefur að baki sér meiri- hluta þingmanna í báðum deild- um þingsins. ★ Brezku blöðin fagna almennt mjög kjöri Kennedys, telja hann hæfan, hugmyndaríkan og dug- andi mann. Macmillan sendi Kennedy heillaóskaskeyti í dag. Á þing- fundi var hann hvattur til að fara hið fyrsta til Bandaríkjanna til persónulegra viðræðna við hinn nýja forseta. Ólíklegt er talið að úr því geti orðið fyrr en með vorinu, en þá munj Mac- millan ræða við Kennedy um mögulegan viðræðufund æðstu manna stórveldanna. The London Evening News sagði í dag, að Macmillan hefði sent Kennedy óvenjulega hjart- anlegar kveðjur, enda hefði hann raunverulega óskað Kennedy sigurs, þrátt fyrir að hann sæi eftir að verða að slíta samstarfi við Eisenhower, sem Macmillan mæti sérlega mikils. Frétt þessa bar rikisstjómin til baka í kvöld og kvað heillaskeyti Macmillans hafa verið orðað nákvæmlega eins og venja væri til við slík tækifæri. Á írlandi var sigri Kennedys mjög fagnað, einkum vegna þess. að hann er írskrar ætlMT. ★ Adenauer, kanzlari Vestur- Þýzkalands kvaðst bera miki# traust til hæfileika hins unga for seta og Willy Brandt, borgar- stjóri Vestur-Berlínar lét svo um Framh. á bls. 2 Bandaríska þjóðin stendur öll að baki forsetans segir Nixon i drengilegu ávarpi MEÐAN á talningu atkvæða í forsetakosningunum í Banda ríkjunum stóð dvaldist Nixon, varaforseti, í Los Angeles. Framsóknarmenn berskjai daðir í landhelgismálinu s Stdðu í stöðugum samn- ingatilraunum 1958 Á ALÞINGI í fyrradag gerðust mikil tíðindi, sem farið hafa eins og eldur um sinu um höfuðborgina, þó að blaðafregnir i gær hafi eðlilega beinzt mest að forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Hermann Jónasson hafði haldið enn eina áróðursræðu sína um landhelgina, þar sem hann undirstrik- aði „tvær meginreglur“ í málinu: „að aldrei væri samið við neina þjóð“, og „að þær ákvarðanir, sem teknar væru, yrðu ekki aftur teknar eða slakað á þeim tímanlega eða varan- lega“ Utanríkisráðherra upplýsti þá með skjalföstum sönn- unum, að Hermann Jónasson og Framsóknarflokkurinn hefðu einmitt þverbrotið hæði þessi meginatriði með því að reyna samninga, og að þær samningatilraunir hefðu beinzt að því „að slaka á“ ákvörðunum, sem teknar höfðu verið. Setti þingheim hljóðan við upplýsingum utanríkisráðherra þ. á. m. þingmenn Framsóknarmanna og kommúnista, enda Framii. á bls. 2. Richard Nixon Seint í nótt, er sýnt var a9 Kennedy hefði mun meiri lík- ur en Nixon til að ná kosn- ingu flutti Nixon stutt ávarp í Frh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.