Morgunblaðið - 10.11.1960, Page 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 10. nov. 1960
— S/dðu # samnmgatilraunum
Frh. af bls. 1.
hafa þingmenn naumast nokkru sinni áður kynnzt jafnsið-
lausum óheilindum og þeim, sem Hermann Jónasson er
orðinn uppvís að í landhelgismálinu.
Meginatriðin í upplýsingum utanríkisráðherra voru þessi:
★ 18 maí 1958 sendi vinstri stjórnin skeyti til aðal-
stöðva Atlantshafsbandalagsins, sem hafði milligöngu um
samningatilraunirnar. í því skeyti lýsir íslenzka ríkisstjórn-
in sig reiðubúna til að taka upp samninga á þeim grund-
velli, að 12 mílurnar yrðu viðurkenndar gegn því að heim-
llaðar yrðu ákveðnar veiðar milli 6 og 12 mílnanna um
nokkurra ára skeið.
Af Stöðugar samningatilraunir héldu síðan áfram allt
sumarið milli ráðamanna vinstri stjórnarinnar og forystu-
manna Atlantshafsbandalagsins. Áttu Alþýðuflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn frumkvæðið að þeim umræðum, og
stóðu báðir að þeim, en kommúnistum var kunnugt um
þær, og má því segja að þeir beri einnig stjórnskipulega
ábyrgð á því, að þær áttu sér stað.
^ 20. ágúst 1958 ákváðu Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn síðan að senda Atlantshafsbandalaginu
skeyti, þar sem m. a. segir „. . .minnum á okkar fyrri til-
lögu um viðurkenningu á 12 mílum gegn því, að erlendir
veiði á seinni 6 mílunum um takmarkaðan tíma“. I fram-
haldi af þessu skeyti voru svo samningaumræður allt tii
1 sept., þegar hin nýja fiskveiðireglugerð gekk í gildi, þó
að þær tilraunir bæru ekki árangur.
Samkvæmt þessu er hverjum manni ljóst, að Framsókn-
arflokkurinn stóð 1958 að samningatilraunum svipuðum
þeim. sem hann nú telur nálgast landráð. Samningatilraun-
irnar fóru fram eftir að hin nýja reglugerð hafði verið
gefin út í júnílok.
1958 voru Framsóknarmenn þannig reiðubúnir til að
breyta fiskveiðireglugerðinni til að ná samningum við ná-
grannaþjóðirnar. Þeir hafa sem sé verið staðnir að „samn-
ingamakki“, enda munu óheilindi og sviksemi Hermanns
Jónassonar í þessu máli lengi í minnum höfð.
Um þetta mál er einnig rætt í forystugrein blaðsins í dag.
Ntw HAMPIHllll
RHOOt
COMMÍCTICUV
NEW JERrtT
0EUAWAR%
MARYLAHO
1 dökklituðu héruðunum vann Eisenhower sigur, en i hinum vann Adlai Stevenson.
Landssamband verzl
jT
unarmanna og ASI
— Úrslitum fagnað
Framh. aí bls. 1
mælt, að nú væru málefni Vestur
Berlínar í öruggum höndum.
Raimondo Manzini talsmað-
ur Osservatore Romano, mál-
gagns páfa, sagði um kjör
Kennedys, að það væri sönn-
un þess, hve Bandaríkjamenn
mætu mikils hugmyndir um
frelsi og umburðarlyndi í trú-
málum og kynþáttamálum.
Hann sagði, að sigur Kennedys
styrkti trú manna á grundvall
arhugmyndum lýðræðisins
eins og það gerðist í Banda-
ríkjunum.
Manzini sagði jafnframt, að
kaþólskir menn hefðu vissu—
lega kunnað að meta virð-
ingu Nixons fyrir trúarbrögð
um annarra, en skiljanlegt
væri, að þeir gleddust yfir því
að kaþóískur maður hefði náð
kosningu.
Formaður utanríkismála-
nefndar franska þjóðþingsins
Maurice Schumann sagði um
úrslit kosninganna, að þau
hefðu sýnt að Bandaríkja-
menn væru lausir við trúar-
lega hleypidóma. Hann sagði,
að kjör Kennedys hefði verið
siðferðilegur sigur fyrir hinn
frjálsa heim.
★
1 kommúnistaríkjunum er af
staðan til úrslitanna yfir höfuð
sú, að bandaríska þjóðin hafi vilj
að breytingu í utanríkisstefn-
unni. Þjóðin hafi verið orðin leið
á stefnu ,,heimsvaldasinna“. Tass
fréttastofan segir, að Bandaríkja
menn hafi verið orðnir leiðir á
kalda stríðinu og stefnu yfir-
mannanna í Pentagon. Hinsveg-
ar segir fréttastofan einnig, að
mismunur á stefnumálum derao-
krata sé svo lítill, að hann sjáist
ekki með berum augum.
Kínverjar hafa ekki látið í ljós
neina ánægju yfir úrslitum kosn-
inganna, en segja að Kennedy
hafi alveg jafn mikinn áhuga á
vopnabúnaði og Nixon. Sem fyrr
segir urðu Formósubúar fyrir
vonbrigðum. Þeir minnast þess
er Kennedy sagði, að Bandaríkja
menn ættu ekki að hætta á styrj-
öld vegna vama eyjanna Que-
moy og Matzu.
Nehrú, forseti Indlands hefur
lítið viljað segja um úrslitin, en
kveðst hyggja gott til samstarfs
við hinn unga Kennedy og vænta
af honum frjálslyndrar stefnu í
málum varðandi Asíu og Afríku.
Kaþólskir menn á Spáni fagna
mjög kjöri Kennedys en frétta-
menn telja að Franco sé uggandi
um, að Kennedy verði sér and-
vígari en Nixon hefði orðið.
Á Frakklandi er talið að
Kennedy muni hliðhollur áætlun
um De Gaulle í Alsírmálinu, en
Alsírska útlagastjórnin kveðst
mundu dæma Kennedy af verk-
um hans.
frskir hermenn
drepnir í Kongó
Leopoldville, 9. nóvember.
AÐ MINNSTA kosti tíu írskir
hermenn úr liði Sameinuðu þjóð
anna í Kongó hafa látið lífið í
viðureign við menn af Baluba
ættflokknum í norðurhluta Kat-
anga. Er það í fyrsta sinn að her-
menn SÞ falla fyrir innfæddum
mönnum í héraðinu.
Fjögur lík hafa fundizt.
STJÓRN Landssambands ís-
lenzkra verzlunarmanna hefir
orðið þess áskynja, að mönnum
hefir orðið mjög tíðrætt að und-
anförnu um inntökubeiðni sam-
bandsins í Alþýðusamband ís-
lands. Stjórn LÍV vill skýra við-
horf sitt til málsins og tefla fram
þeim rökum, sem undir inntöku-
beiðninni standa ef það má verða
til að firra rangtúlkun málsins
og eyða misskilningi.
Landssamband íslenzkra verzl
unarmanna var stofnað 2. júní
1957. Að stofnun þess stóðu 7
félög skrifstofu- og verzlunar-
fólks. Nú eru í LÍV 20 félög með
um 3500 félagsmenn. LÍV er
hreint launþegasamband, sem
ber þær skyldur og nýtur þeirra
réttinda sem íslenzk lög ákveða,
til jafns við önnur stéttarsam-
bönd launþega.
Þegar eftir stofnun LÍV vakn-
aði áhugi innan þess fyrir því að
sameinast heildarsamtökunum,
ASÍ. Slíkt var eðlilegt, því frem
ur sem sum sambándsfélög LÍV
voru þegar í ASÍ. Þá hafði
stærsta félagið, Verzlunarmanna
félag Reykjavíkur, tvívegis sótt
um inngöngu í ASÍ.
Á öðru þingi LÍV í maí 1959
var samþykkt að sótt skyldi um
inngöngu í ASÍ. Og rökin voru
einföld og auðskilin:
1. Hin fornu sannindi um nauð
syn á sameiningu launþeganna í
líf skj arabaráttunni.
2. Sá augljósi styrkur, sem hin
voldugu allsherjarsamtök, ASÍ,
geta veitt hinum ungu samtökum
verzlunarfólks.
3. Hin margvíslegu réttindi og
áhrif, sem ASÍ hefir verið veitt
sem fyrirsvarsaðila allra laun-
þega í landinu, sem vart verður
séð að verzlunarfólk geti notið
eins og því ber nema með beinni
aðild að samtökunum.
Inntökubeiðnin var síðan send
miðstjórn ASÍ sl. sumar, en svar
við henni hefir enn eigi borizt.
Nokkrir menn hafa verið að
gera því skóna að inntökubeiðni
LÍV verði synjað af þingi ASÍ, og
benda á, að einstaka félögum
innan LÍV hafi áður verið synj-
að um inngöngu, svo sem VR.
Um úrslit þessa máls á ASÍ-þingi
skal engu spáð, en synjun á inn-
tökubeiðni LÍV yrði mikil von-
brigði. Inntökubeiðni Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur var
hafnað á sínum tíma á þeim for-
sendum einum, að VR var þá
ekki hreint launþegafélag. í for-
sendum fyrir synjun ASÍ þá seg-
ir að VR fái þá fyrst inngöngu í
ASÍ þegar félaginu hefir verið
breytt 1 hreint JiaunþegaféUag.
Nú hefir það verið gert, og sam-
tök verzlunarfólks hrein laun-
þegasamtök, eins og fyrr var tek-
ið fram.
Þess má geta, að LÍV varð 1.
janúar sl. fullgildur aðili að Nor-
ræna verzlunarmannasamband-
inu sem samtök verzlunarfólks á
Norðurlöndum mynda. Viður-
kenning þeirra samtaka á LÍV
tekur af allan vafa um stöðu
þess.
Verzlunarmannasamtökin á
öðrum Norðurlöndum eru í við-
komandi Alþýðusamböndum og
í þeim löndum myndi það vafa
laust þykja mikil býsn ef orðfært
yrði að samtök skrifstofu- og
verzlunarfólks ættu ekki heima
í allsherjarsamtökum launþega.
Landssamband íslenzkra verzl-
unarmanna biður um réttlæti í
þessu máli og trúir því og treyst
ir að á þann veg verði meðferð
mála þess hjá stjórn og þingi
ASÍ.
Framkvæmdastjórn LÍV,
Sverrir Hermannsson,
Gunnlaugur J. Briem,
Ásgeir Hallsson,
Björn Þórhallsson,
Reynir Eyjólfsson,
Björgúlfur Sigurðsson,
Guðmundur H. Garðarsson
Hannes Þ. Sigurðsson,
Örlygur Hálfdánarson.
DAGSKRA Sameinaðs Alþingis í dag
kl. 1.30: Fyrirspumir: a. Yfirvinna
kennara. Hvort leyfð skuli. b. Niður
suða sjávarafurða á Sigiufirði.
Dagskrá Efri deildar: 1. Fiskveiði-
landhelgi Islands, frv. 2. Bráðabirgða
breyting og framlenging nokkurra
laga. 3. Ræktunarsjóður og Bygginga
sjóður sveitabæja. 4. Bústofnslána-
sjóður.
Dagskrá Neðri deildar: 1. Lifeyris-
sjóður togarasjómanna.
— Kennedy
Frh. af bls. 1.
Síðari hluta dagsins bárust
honum heillaskeyti frá Nixon og
Eisenhower. Var skeyti Nixons
jafnframt opinber viðurkenning
á ósigrinum. í skeyti sínu kveðst
Eisenhower senda Kennedy ann-
að skeyti innan tíðar með ýmsum
upplýsingum, er geti komið hon-
um að góðu baldi við undirbún-
inginn að embættistökunni, sem
verður í janúar n.k.
Kennedy svaraði þegar skeyt-
um þeirra Nixons og Eisenhow-
ers, var svari hans útvarpað svo
og stuttri yfirlýsingu.
í skeytunum til Nixons og
Eisenhowers kveðst hann vonast
til að bandaríska þjóðin fái
áfram að njóta hinnar miklu
hæfileika og reynslu, sem þeir
hafi í málefnum þjóðarinnar.
I yfirlýsingunni sagði Kennedy
m. a., að næstu fjögur ár yrðu
erfið ár og þjóðin yrði að taka
mjög á svo að hún fengi lifað
næsta áratug í friði og öryggi.
Kennedy kvaðst mundu helga
krafta sína baráttunni fyrir friði
í heiminum og góðri samvinnu
við allar þjóðir.
Kennedy sagðist nú ætla að
dveljast á heimili sínu nokkra
daga, fara síðan í smáfrí en kasta
sér að því loknu af fullum krafti
út í undirbúning hins erfiða
verkefnis, sem biði hans. Jafn-
framt sagði hann, að þau hjón
biðu nú annars erfingja þeirra,
en hann væri væntanlegur inn-
an mánaðar.
★
Kennedy hafa borizt heilla-
skeyti víða að m.a. frá Ikeda, for
sætisráðherra Japan, De Gaulle,
forseta Frakklands, Macmillan,
forsætisráðherra Bretlands og
Krúsjeff, forsætisráðherra Sovét
ríkjanna. í skeyti hins síðast-
nefnda segir m.a.: Ég vona að
þér séuð mér sammála um að
góð samvinna þjóða okkar sé
nauðsynleg heimsfriðnum. Því
vona ég að hin friðelskandi og
gáfaða bandaríska þjóð verði
reiðubúin að efna til vinsamlegr
ar samvinnu við stjórn og þjóð
Sovétríkjanna.
Engin hœtta
Bonn og London, 9. nóv.
NEFND sú, er skipuð var til að
rannsaka atburð þann, er varð
yfir landamærum Vestur-Þýzka
lands og Hollands, er tvær orr-
ustuþotur flugu háskalega nærri
þotu Englandsdrottningar, hefur
gefið skýrslu, þar sem segir, að
ekki hafi verið nein sérstök
hætta á ferðum við umræddan
atburð.
Skýrsla þessi er gefin út af
varnarmálaráðuneyti V-Þýzka-
lands og flugmálaráðuneyti Bret-
lands. Brezki flugmálaráðherr-
ann Julian Avery segir, að
brezka stjórnin hafi tekið þá
skýringu gilda, að flugmennirnir
á þotunum hafl ekki vitað að
brezka drottningin var í flugvél-
inni
/ NA /S hnú/ar */ SV 50 hnútor lí Sn/ókoma • ÚSi ~ 17 Skúrir It Þrumur 'WfáZ KuUatkH ZS* Hitaski! H Hmt L
DJÚPA lægðin yfir Allants-
hafinu olli versta íllviðri í
gær. Voru 8—12 vindstig cg
rigning eða skúraveður á
svæði, sem er nær þrjár
millj. ferkílómetra að flatar-
máli. Hreyfðist lægðin ANA
og var útlit fyrir vonzku veð-
ur á Bretlandseyjum í nótt
og í dag. í gær var ekki útlit
fyrir að veðurofsinn næði
hingað til lands af fultum
krafti. Þá mátti búast við
A-stormi við Suðurströndina
í dag.
Veðurútlit kl. 22 í gærkvöldi:
SV-mið: Vaxandi austan átt
í nótt, rok og rigning aastan
til á morgun.
SV-land til Norðurlands,
Faxafl.mið til norðurmiða:
Austan kaldi, en síðar stinn-
ingskaldi og bjart veður í
nótt, allhvass eða hvr.3 austan
og víða rigning síðd. á morg-
un.
NA-land til SA-lands og
miðin: Vaxandi austan átt í
nótt, hvassviðri eða stormur
á morgun.