Morgunblaðið - 12.11.1960, Qupperneq 20
LÍÚ-fundurinn
Sjá bls. 11.
260. tbl. — Laugardagur 12. nóvember 1960
Iþróttir
eru á bls. 18.
» ywmfium
■ ' *l* ‘ '%■
Húsið Bergstaðastræti 19
Húseign dánarbús E.
Hólm seld á 540 þús.
ALLMARGT manna var við töldu sig hnútunum kunnugir,
opinbert uppboð, sem íram fór
í gærdag á litlu húsi og eignar-
lóð, dánarbús Elíasar Hó)m að
Bergstaðastræti 19 hér í bæ.
Seldist fasteign þessi á 540 þús-
und krónur.
Húsið Bergstaðastræti 19 er
tvílyft verzlunarpláss á gölu-
hæð en íbúð á þeirri efri. Er
húsið um 80 ferm að stærð. Fór
uppboðið fram í íbúðinni.
Um 30 menn voru komnir inn
í húsið, er borgarfógeti, Kristján
Kristjánsson, las mönnum upp-
boðsskilmálanna og tók að leita
eftir boði í eignina.
Jón B. Jónsson bókari fógeta
við uppboðið, bauð fyrstur í
eignina: Fimm hundruð þúsund
krónur! Boðið var strax hækkað
um 10 þúsund krónur. Var það
Baldvin Jónsson hrl., er bauð í
nafni Sigurgeirs Guðbjarnarson-
ar starfsmanns hjá Landssiman-
um. Enn var boðið hækkað upp
í 515 þús. krónur. Var það Jón
Bjarnason kaupmaður er bauð.
Baldvin hækkaði boðið um 5000
krónur fyrir hönd umbjóðanda
síns.
Sigurður Bemdsen húseigandi
og fjármálamaður sem var með-
al nærstaddra gekk um gólf.
Spurði Kristján borgarfógeli
hann hvort hann ætti lengi að
bíða eftir boði frá honum. Sig-
urður svaraði: „Það er hin mesta
list að kunna að bíða!“
Borgarfógeti hvatti menn til
að bjóða og eftir nokkra bið
kom enn hærra boð. Nú bauð
Jón Bjarnason 535 þús. krónur.
„Er þér ekki farið að hitna
Sigurður", spurði borgarfógeti.
Sigurður virtist ekki vera áhuga
mikill, og þó, svipur hans var
torráðinn.
Enn kom boð frá Baldvin
Jónssyni er í nafm Sigurgeirs
Guðbjarnarsonar bauð í eigmna
540 þús. krónur.
Nú var leitað eftir f'ekari
boðum. Jón Bjarnason hafði
gengið út úr húsinu. Það komu
ekki fleiri boð þrátt fyrir
hressileg eggjunarorð borgar-
fógeta, en hann beindi þeim
einkum til Sigurðar Berndsen.
★
Nærstaddir töldu Sigurgeir
hafa gert góð kaup. Að visu
muni framtíðarskipulag Berg-
staðastrætis gera ráð fyrir
breikkun götunnar allverulega
á þessum stað og sögðu þeir, sem
□----------------------□
VARÐARKAFFl
i Valhöll i dag
kl. 3—5 síðd
-------------□
að svo til allt húsið stæði í hinni
væntanlegu götubreidd Berg-
staðastrætis. En lóðin öll væri
nær 500 fermetrar.
SÍS telur siðferðilega ámælis-
vert oð vera tengt Fram-
sóknarflokknum
FALLINN er í undirrétti dómur
i kynlegu máli, sem SÍS höfðaði
á hendur Baldri Jónssyni, vegna
þess að í kosningabaráttunni fyr-
ir síðustu þingkosningar hefði
hann fest upp SÍS-merki við
hliðina á áróðursmerkjum Fram
sóknarflokksins. Taldi SÍS hátt-
erni þetta varða við 236. gr. al-
mennra hegningarlaga, en verkn
aður er því aðeins saknæmur
samkvæmt þeirri grein að um
siðferðilega áimælisvert verk sé
að ræða. Samband íslenzkra
samvinnufélaga hefur þannig
lýst því yfir, að það telji það
siðferðilega ámælsvert að vera
bendlað við Framsóknarflokk-
inn. Dómari í undirrétti taldi
hinsvegar að móðgun í garð SÍS
væri að ræða samkvæmt 234. gr.
almennra hegningarlaga og
dæmdi Baldur í 1000,00 kr. sekt.
Tillögu kommúnista
vísað frá á Iðju-fundi
Á FJÖLMENNUM félags-
fundi í Iðju, félagi verk-
smiðjufólks, í gærkvöldi var
samþykkt að vísa frá tillögu
Björns Bjarnasonar, um að
styðja stefnu kommúnista í
stjórn Alþýðusambandsins og
að kjósa sérstaka nefnd í fé-
laginu, að hálfu skipaða
kommúnistum, til að undir-
búa kjarasamninga.
í stað þess var samþykkt
tillaga frá stjórn félagsins
um að fela nefnd, sem
hún hafði skipað, að annast
undirbúning kjarasamninga,
eins og tíðkazt hefur. Tillaga
stjórnarinnar var samþykkt
með 82 atkv. gegn 72.
ðist
Kommúnistar höfðu mikinn
viðbúnað undir þennan fund og
höfðu smalað á hann. En fé-
lagsmenn stóðu sem fyrr vörð
um hagsmuni félagsins.
Miklar umræður urðu um
málið og kom fram í þeim, að
félagsmenn gætu treyst núver-
j^lýgur með bjór
til Grænlands
SÓLFAXI hefur undan-
farna daga staðið úti á flug
velli og beðið þess að byrj-
aði til Grænlands. Hann
flytur fjögur tonn af áfeng-
um bjór í þessari ferð til
Kulusuk, en þar hefur ver-
ið óhagstætt veður og ekki
lendandi síðan á þriðju-
dag. Þessi „sterki“-bjór er
vitanlega ekki íslenzkur.
Hann er fluttur hingað sjó-
leiðis frá Þýzkalandi. —
Flugfélagsmenn voru að
vona að hægt yrði að
fljúga með bjórinn í dag,
því bjórbirgðir munu á þrot
um í Kulusuk og það þyk-
ir slæmt ástand þar í bæ.
andi stjórn félagsins til að ann-
ast kjaramálin.
Á þessum sama fundi voru
samþykktar í einu hljóði tvær
tillögur um aðild iðnverkafólks
að Iðnaðarmálastofnuninni og
um launajöfnuð kvenna og
karla.
Tillögurnar voru svohljóð-
andi:
Fundur í Iðju, félagi verk-
smiðjufólks í Reykjavík, skorar
á Alþingi að samþykkja aðild
samtaka iðnverkafólks að stjóm
IMSl í frumvarpi því til laga
um Iðnaðarmálastofnun íslands,
sem nú liggur fyrir Alþingi.
Fundur í Iðju skorar á Al-
þingi að samþykkja frumvarp
það um launajöfnuð kvenna og
karla, er nú liggur fyrir Alþingi.
í forsendum dómsins segir:
„Eins og áður greinir hefur
stefndi viðurkennt að hafa
látið prenta fyrrgreind firma-
merki stefnanda og ýmist fest
þau sjálfur upp eða látið aðra
festa þau upp við áðurgreind á-
róðursmerki B-listans í því skyni
að vinna gegn framgangi þessa
lista við umræddar kosningar til
Alþingis. Þessi notkun merkisins
var stefnda með öllu óheimil.
Verður að telja að hún hafi ver-
ið móðgandi fyrir stefnanda og flokk.
með þessu hafi stefndi brotið
gegn 234. gr. hinna almennu
hegningalaga nr. 19, 1940“.
Dómari hefur þannig fallizt á
þá varakröfu SÍS, að tengsl við
Framsóknarflokkinn væri móðg-
andi fyrir fyrirtækið og dæmt
skv. 234. gr., en ekki fallizt á að
tengslin væru beinlínis siðferð-
islega ámælisverð eins og SIS
lagði þó megináherzlu á.
Það á ekki af Framsóknar-
flokknum að ganga þessa dag-
ana, þegar sjálft fósturbarnið
SÍS höfðar mál til að fá það
staðfest, að það sé mannskemm-
andi að hafa tengsl við þann
íslandsmeistarar
FH unnu Tékkana
ÍSLANDSMEISTARAR FH
í handknattleik voru mót-
herjar tékknesku meistar-
anna í gærkvöldi að Háloga-
landi. Áttu liðin geysispenn-
andi leik og tvísýnan til síð-
ustu sekúndu — en svo fór
að íslandsmeistararnir unnu
meistara Tékkóslóvakíu með
18 mörkum gegn 17.
FH náði góðu forskoti í upp-
hafi og við leikhlé skildu þrjú
mörk. FH hafði skorað 10 mörk
gegn 7. Þetta bil unnu Tékk-
arnir upp í fyrri hluta siðari
hálfleiks og komust 1 marki
yfir, 14:13, þegar 15 mín. (helm-
ingur) voru af síðari hálfleik.
Hafnfirðingar náðu samt aftur
forskoti á næstu 5 mínútum,
16:14. En það bil unnu Tékkar
enn af Hafnfirðingum og stóð
leikur 17:16 þegar 3—4 mínútur
voru eftir. Tóku Tékkar þá upp
leiktafir.
★ MAÐUR GEGN MANNI
Hafnfirðingar undu illa
töfunum — geystust fram
North Starlight kveðst
ekki viðriðið smyglið
í TILEFNI frétta í íslenzkum
blöðum um að fyrirtæki í New
York m. a. svonefnt North Star-
light Export Corporation hafi
annazt innkaup á smyglvarningi
fyrir sjómenn, hefur fréttaritari
Mbl. í New York skyggnzt l.ítil-
lega inn í málið.
Hann ræddi m. a. við Frank
Henderson eiganda fyrirtækis-
ins North Starlight Export og
kveðst hann ekkert vita um flutn
Sleginn í götuna
Á TÓLFTA tímanum í gærkvöldi
kom til slagsmála í Austurstræti,
við Pylsubarinn. Tveir menn átt-
ust þar við, liðlega tvítugir, báð-
ir ölvaðir. Annar fékk mikið
högg á andlitið og féll við. Kom
lögreglan á vettvang og flutti
hann á Slysavarðstofuna. Meiðsl
hans voru ekki rannsökuð að
fullu um miðnætti, en hinn dús-
aði í „kjallaranum" í nótt.
inga á smyglvarningi. Hann
kveðst aðeins annast sölu á bíla-
hlutum og almennum varningi til
íslands. Hinsvegar telur hann að
það geti verið að smyglvörur
geti komizt framhjá bandarísku
tollayfirvöldunum í kössum sem
merktir eru sem vélar.
Umboðsmaður Eimskips í New
York, Frank Cavanagh segir að
sér hafi auðvitað algerlega verið
ókunnugt um að smyglvamingur
hefði verið fluttur um borð í
Lagarfoss. Hinsvegar segir hann
að það geti verið að smyglarar
hafi rangmerkt kassa, sem síðan
væri hleypt í gegn án athuga-
semdar.
NATO-fundur
í dag
NATO-vinafélagið heldur
félagsfund í Naustinu fuppi)
kl. 3 í dag. Rædd verða félags
mál og síðan verður kvik-
myndasýning.
maður gegn manni. Náðu
knettinum og jöfnuðu mín.
fyrir leikslok. Og þeim tókst
að skora sigurmarkið nokkr-
um sekúndum áður en Karl
Jóhannsson dómari dæmdi
af. —
Leikurinn var geysispenn-
andi og hávaði mikill að
Hálogalandi.
Næst leika Tékkarnir við
landsliðið og verður sá leikur í
íþróttahúsinu á Keflavíkurflug-
velli.
Á að beita
ofbeldi
í A.S.Í.?
TVEIR foringjar kommúnista í
í verkalýðshreyfingunni láta í /
það skína í Þjóðviljanum í J
gær, að hugmyndin sé að J
hindra inngöngu Landssam-
bands ísl. verzlunarmanna í
Alþýðusamband íslands. Eins
og mönnum er kunnugt af
greinargerð L.Í.V., sem birt
hefir verið og af blaðaskrif-
um, eiga samtökin ótvíræðan
rétt til inngöngu í Alþýðu-
sambandið. Mundu því vera
hin freklegmstu lögbrot og
bolabrögð, ef kommúnistar
gerðu alvöru úr þessari hótun
sinni. Að óreyndu verður því
þó ekki trúað, að meiri hluti
fulltrúa á ASÍ-þingi láti
kommúnista hafa sig til svo
gerræðisfullra óhæfuverka.
Um þetta mál ræðir Pétur
Sigurðsson alþm. í grein á 11.
síðu blaðsins í dag.
Skemmtifimdur
Sóknar
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn
í Keflavík heldur skemmtifund
að Vík næstkomandi mánudags-
kvöld 14. þ. s. kl. 8,30. Matthias
Á. Mathiesen, alþingismaður,
flytur ræðu, þá verður sameig.
inleg kaffidrykkja og kvik-
myndasýning. Konur úr Sjálf-
stæðiskvennafélögunum í Hafn.
arfirði og Kópavogi mæta á
fundinum. — Þess er fastlega
vænzt að Sjálfstæðiskonur i
Keflavík fjölmenni á fundinn.