Morgunblaðið - 17.11.1960, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.11.1960, Qupperneq 8
8 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 17. nov. 1960 Ölafur Thors á Alþingi i gær: Markmiðið meö viðræðunum er að koma Bretum úr landhelginni Eins og skýrt er frá í frétt annars staðar í blaðinu í dag urðu nokkrar umræður um land- helgismálið utan dagskrár á fundi sameinaðs þings í gær. Auk þeirra, sem þar eru raktar urðu allsnarpar deilur milli Ólafs Thors forsætisráðherra annars vegar og Eysteins Jónssonar og Hermanns Jónssonar hins vegar Fara þær hér á eftir: Eysteinn JónsSon minnti á, að sem svar við fyrirspurn sinni á þingsetningarfundi hinn 10. októ ber s.l., hefði Ólafur Thors for- ssetisráðherra heitið því, að haft yrði samráð við Alþingi um lausn landhelgismálsins. Tilefni þess, að hann minnti á þetta nú væri það, að í brezkum fréttum hefði að undanförnu þráfaldlega verið talað um tillögu íslenzku ríkisstjórnarinnar um lausn máls ins. Af þessum ástæðum vildi hann nú spyrja í fyrsta lagi, hvort íslenzka ríkisstjórnin hefði sent frá sér tillögu um lausn málsins og í öðru lagi, hvort ís- lenzku ríkisstjórninni hefði bor izt tillaga frá brezku stjórninni um lausn þess. Ef svo væri, þá teldi hann, að fyrirheitið um samráð við Alþingi hefði verið svikið. Að lokum óskaði hann þess, að forsætisráðherra hlutað- ist til um, að kallaður yrði sam- an fundur í utanríkismálanefnd og þar yrði gefin skýrsla um við ræður þær, er fram hafa farið milli Breta og íslendinga. kennilegt, að manni sem stæðiur væru til þess, að fallast á Ólafur Thors svo nærri Tímanum, skyldi koma það á óvart, að blöð færu með slúður og ósannindi. Endurtók Ólafur Thors, að engin tilboð lægju fyrir frá aðilum. Sjálfur sagðist hann að sjálfsögðu ekki vita nema lítinn hlut af því, sem farið hefði milli manna í við- ræðunni; þó gæti hann upplýst það, að Bretar hefðu margspurt um, hvort ríkisstjórninn væri ekki með nokkru móti fáanleg til að sýna Bretum sams konar velvild og þeir Hermann og Ey- steinn hefðu gert 1958, þegar þeir buðu að afhenda þeim 6 mílurn- ar til einkaafnota í 3 ár og ekki svo mikið sem orðað þóknun fyrir. Kvað forsætisráðherra stjórnina hafa verið með öllu ófáanlega til svo höfðinglegrar framkomu í garð Breta, enda mundi slík rausn hafa bundið enda á kröfugerð Breta þegar í stað. Eysteinn Jónsson spurði m.a., hvaða ástæða væri til þess að fallast á samningaviðræður nú, þegar búið væri að vinna málið. Yegna fyrirspurnar Eysteins Jónssonar um það, hvaða ástæð- samningaviðræður um lausn land helgismálsins, þegar við hefðum unnið málið, kvaðst Ólafur Thors vilja benda Eysteini á ummæli Hermanns Jónassonar; hann hefði lýst því yfir nú nýlega, að horfur hefðu aldrei verið verri í landhelgismálinu en einmitt nú. Þessi ummæli Hermanns ættu að vera Eysteini fullnægjandi skýr- ing á því, hvers vegna íslenzka ríkisstjórnin féllst á tilmæli Breta um viðræður. Eysteinn hefði þó getað sparað sér þessa fyrirspurn og annað, sem hann hefði sagt um málið á þessum fundi, ef hann hefði fylgzt með þeim umræðum, sem undanfarið hafa farið fram í efri deild um málið eða lesið, þó ekki væri nema ræður flokksbróður síns í þeim umræðum. Hermann Jónasson tók næstur til máls. Sagðist hann aldrei hafa efazt um, að undansláttur í land helgismálinu mundi leiða af sér enn verra ástand og taldi hann, að sakaruppgjöfin á s.l. vori væri kannske gleggstur vottur um það. Sér væri það ekkert laun ungarmál, að flokkar þeir, er stóðu að vinstri stjórninni voru ósammála um leiðir í málinu. Framsóknarflokkurinn hafi því, eins og oft áður, orðið að reyna að sigla milli skers og báru og sætta hin andstæðu öfl innan stjórnarinnar. Þá taldi hann samningaumleitanir vinstri stjórn arinnar og þær viðræður, er nú fara fram, ósambærilegar. Vinstri stjórnin hefði viljað semja við öll NATO-ríkin, en nú verandi ríkisstjórn vildi aðeins sem við Breta eina. Ólafur Thors kvað það vera að bera í bakkafullan lækinn, ef hann færi nú að endurtaka þau rök, sem bæði dómsmála- ráðherra og utanríkisráðherra hefðu saumað. Hermann inn í við umræðurnar í efri deild, því að ekkert nýtt hefði komið fram í ræðu hans nú. Hins vegar vissu ekki aðeins efri deildarmenn og allir þingmenn, heldur öll þjóðin, að Hermann hefði verið svo grátt leikinn í þeim umræðum, að þess væru fá dæmi í þingsögunni. Ef Her- mann teldi, að við værum bún- ir að sigra í málinu, hvers vegna hefði hann þá borið fram tillögu um, að við bæðum Banda ríkin um aðstoð í baráttunni við Breta. Öllum öðrum en kommúnistum sé hagur í, að deilan við Breta verði leidd farsællega til lykta. Með þeim viðræðum, sem nú fara fram um Framh. á bls. 17. Kommúnistar ráðast á landhelgisgæziuna Ólafur Thors forsætisráðherra svaraði fyrirspurn Eysteins Jóns sonar. í upphafi ræðu sinnar þakkaði hann Eysteini það traust, sem ljóst væri, að ‘hann bæri til sín umfram aðra ráðherra. í um ræðum þeim, sem að undanförnu hafa staðið í efri deild um land- helgismálið, hefðu bæði dóms- málaráðherra og utanríkisráð- herra lýst því yfir, að engar til- lögur hefðu enn verið gerðar um lausn málsins, hvorki af hálfu íslendinga né Breta. Þrátt fyrir yfirlýsingar þessa ágætu manna neitaði Eysteinn að trúa fyrr en hann (Ól. Th.) hefði staðfest þær. Hann vildi því endurtaka, að hvorki íslendingar né Bretar hefðu gert tilboð um lausn máls ins. Hins vegar vissu báðir aðilar nú betur hver væru sjónarmið hins en þegar viðræður þessar hófust. Þá væri rétt að benda á, að Eysteinn leggði nokkuð annan skilning í yfirlýsingu sína frá 10. október en tilefni væri til. Hann (Ól. Th.) hefði þá lýst því yfir, að samráð yrði haft við Alþingi áður en úrslitaákvarðanir væru teknar um málið. Þetta yrði að - sjálfsögðu staðið við og teldi hann það ekki nein svik á þessu heiti, þó að alþingismenn fylgd- ust ekki með umræðunum stig frá stigi. Þá benti forsætisráð- herra Eysteini á, að hann hefði að sjálfsögðu ekki vald til þess að kalla utanríkismálanefnd saman. Þeirri ósk væri nær að beina til forseta sameinaðs þings, utnríkisráðherra eða formanns nefndarinnar. Eysteinn Jónsson sagði, að með yfirlýsingu sinni hefði forsætis- ráðherra beinlínis haldið því fnam, að það, sem komið hefur fram í brezkum blöðum að und- anförnu væri slúður og ósann- indi. Ef engar tillögur hefðu komið fram, hvað hefði þá gerzt í málinu? Sér þætti þó fullvíst, að tillögur hefðu flogið á víxl milli ríkisstjórnanna. Ólafur Thors kvaó það ein- Allheitar umræður urðu um landhelgismálið utan dagskrar á fundi sameinaðs þings í gær. — Kom margt fram í þeim umræð- um, sem varpar skýru ljósi á meðferð málsins undir stjórn vinstri stjórnarinnar og skolla leik eiftstakra þingmanna Fram- sóknarfolkksins og kommúnista með málið. Fyrstur kvaddi sér hljóðs Finn bogi R. Valdimarsson. Endurtók hann fyrirspurn sina til dómsmálaráðherra frá fundi efri deilda 14. nóvember sl. um það hvaða yfirmaður landhelgis- gæzlunnar hefði borið ábyrgð á fyrirskipun til skipherrans á varðskipinu Þór að kvöldi hins 13. nóv. að hætt skyldi að skjóta aðvörunarskotum að brezka togaranum William Wilberforce, H 200 og að hætt skyldi að veita togaranum eftir- för. Vék hann að skýrslu þeirri, sem landhelgisgæzlan hefur sent frá sér um málið og birtist hér í blaðinu sl. þriðjudag. Taidi hann öðru visi að farið nú en við töku togara fyrir tveim árum er skotið hefði verið á kl. 11,58 en hann stöðvast 2 mínútum síð- ar. Gaf þingmaðurinn í skyn, að viðbrögð yfirmanna laiidhelgis- gæzlunnar stæðu í einhverju sam bandi við þær samningaumleit- anir sem að undanförnu hafa farið fram milli íslenzku ríkis- stjórnarinnar og hinnar brezku um lausn landhelgismálsins. Þá bar hann fram þá fyrirspurn til dómsmálaráðh., hvort þessi ráð- stöfun væri í samræmi við gild andi reglur landhelgisgæziunn- ar og hvort forstjóri landhelgis- gæzlunnar hefði tekið ákvörðun þessa án þess að hafa um hana samráð við æðsta yfirmann sinn, dómsmálaráðherra. Bjarni Benediktsson dómsmála ráðherra tók næstur til máls. Sagði hann að ekki hefðu verið gefnar út neinar nýjar regiur til íslenzkra varðskipa um töku erlendra togara, sem staðnir væru að veiðum innan íslenzkr- ar landhelgi nákvæmlega sörnu reglur giltu um það atriði og gilt hefðu 1958. Það hefði aldrei kom ið til mála, að neinar sérrreglur yrðu settar um þetta á meðan viðiæður íslenzku og brezku rik isstjórnanna stæðu yfir. Ráðherrann kvaðst hafa ský"t f :á þvi, þegar FVK \akti máls á þessu sama í eirj tíeild fyrir tveim dögum, að sér væri alger- lega ókunnugt um þá atburði, er gerzt höfðu þá kvöidið áður út af Ingólfshöfða. Sér hefðu ekki borizt neinar upplýsingar um málið kl. 10,30 þann dag, þegar hann hefði farið úr dómsmála- ráðuneytinu vegna fundar, sem hann þyrfti að sækja, og sér hefði verið með öllu ókunnugt um málið fyrr en FRV hreyíði því á fyrrnefndum fundi efri deildar. Yfirmenn landhetgis- gæzlunnar skorist áreiðanlega ekki undan gagnrýni. Hitt sé annað mál að auðveldara sé. að finna lausn á málunum, þegar þau eru skoðuð í heild eftir á og í ró og næði en meðan menn eru í miðri rás viðburðanna eða jafnvel við aðstæður, þar sem erfitt sé að gera sér grein fyrir því, sem er að gerast. Það komi fram í tilkynningu landhelgis- gæzlunnar, að símasamband var mjög slæmt, svo að í fyrstu heyrðist ekki nema hrafl og um skeið ekkert. Forstjóri landhelg- isgæzlunnar taldi, að ekki lægi fyrir sönnum fyrir brotinu, þar sem varðskipið hafði ekki staðið togarann að veiðum, og míðaði | ákvarðanir sínar við það. Þá væri á það að líta, að veður hefði verið slæmt, er atburðir þessir gerðust, náttmyrkur og slæmt skyggni. Allt þetta hefði hvatt forstjóra landhelgisgæzlunnar til varfærni við ákvörðun sína. Þá sagði ráðherrann, að hann skyldi ekki um það segja, hvernig hann hefði tekið á mál- inu, ef það hefði verið borið und ir hann, á það hefði ekki verið reynt, en tók fram, að hann teldi ekki neina ástæðu til þess að setja út á meðíerð forstjóra landhelgisgæzlunnai á því, eins og það lá fyrir honum. Þvi næst las hann upp skýrslu, Jóns Jóns- sonar skipherra á Þór til iand- helgisgæzlunar um þessa atburði. Þessar tvær skýrslur, tilkynning landhelgisgæzlunnar og skýrsla skipherrans á Þór, væru þau gögn, sem fyrir lægju um má'- ið og á þeim yrði að byggja. Það væri náttúrlega matsatrið;, hvað hægt væri að gera við að- stæður sem þessar. Þarna yrði að byggja á mati þeirra marna, sem hefðu átt hlut að máli. Þeirra hefði verið að meta, hvað fært væri og skynsamlegt að gera í eltingarleik við^skip í slæmu skyggni og náttmyrkri. Það væri hægara að sitja hér í þingsalnum og gagnrýna en að taka þátt í eltingarleiknum við þær aðstæður, sem við var að stríða. Eftir ræðu Bjarna Benedikts- sonar kvaddi Finnbogi R. Valdi- marsson sér hljóðs að nýju. Spurði hann efin, hvort hann ætti að trúa því, að forstjóri land- helgisgæzlunnar hefði ekki haft samband við æðsta yfirmann sinn áður en' hann gaf skipun sína um að eftirförinni skyldi hætt. Bjarni Benediktsson tók enn til máls. Sagði hann, að sumir Bjarni Benediktsson menn væru þannig gerðir. að þeir vildu ekki heyra sannleik- ann og virtist háttvirtur þmg- maður (FRV) vera einn af þeim. Hann hefði þegar lýst því tvisv- ar yfir, að honum hafi ekki var- ið kunnugt um þessa atburði fyrr en FRV vakti máls á þeim á fundi efri deildar sl. mánudag. Af því ætti háttvirtur þingmað- ur að geta ályktað, að ekki hefði verið haft samband við hann um ákvörðun málsins. Þá væri það hrein fjarstæða, að ekki hefði verið reynt að taka togarann, eins og sjá megi af skýrslu skip- herrans á Þór til landhelgisgæzl unnar. í skýrslunni komi það t. d. fram, að endurtekin skothríð átti sér stað á togarann, en hann sinnti því engu. Þá benti ráð- herrann að lokum á, að mikill munur væri að eiga í eltingaleik við skip um miðjan dag eða í slæmu veðri, í náttmyrkri úti á reginhafi. Hér stæði allt öðru visi og verr á en um töku tog- arans 1958, sem FRV hefði vitn- að til, og hefði nú þó verið enn harðar sótt en þá. Þetta væru atriði sem taka bæri tillit til, þegar lagður væn dómur á mál- ið. — Frekari umr. urðu og eru þær raktar hér á síðunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.