Morgunblaðið - 17.11.1960, Page 15
Fimmfudagur 17. nóv. 1900
MORCDNrtr. 4fíio
Málflytjandi dæmdur til að
greiða málskostnað
Á MÁNUDAG var kveðinn upp
dómur í Hæstarétti í máiinu nr.
118/1960. Mál þetia var þannig
vaxið, að bú hjóna hér í bæ, sem
voru að skilja, var tekið til
skiptameðferðar. Gætti stefndi,
Guðlaugur Einarsson héraðsdóms
lögmaður, hagsmuna eiginmanns
ins, en Gústaf A. Sveinsson,
hrl. hagsmuna eiginkonunnar.
Meðal eigna búsins var fasteign,
og krafðist Guðlaugur þess á
skiptafundi 16. marz 1960, að hún
yrði auglýst og seld á opin-
beru uppboði. Tók skiptaréttur-
inn kröfuna til greina og fór
opinbert uppboð fram hinn 18.
maí 1960.
Á uppboðsþingið komu eigin-
maðurinn og stefndi, Guðlaugur.
Af hálfu eiginkonunnar Gústaf
A. Sveinsson. Lagði hann þar
fram umboðsskjal frá tveimur
mönnum, þar sem lögmanninum
er véitt fullt og ótakmarkað um
boð til að gera boð í fasteigna
fyrir þeirra hönd. Var umboðs
þessa getið í þingbók.
A uppboðsþinginu var bókað:
„Uppboðið fór þannig fram‘
Kr. 1.000.000,00 Guðlaugur Ein
arsson. Kr. 2.000.000,00 Gústaf A.
Sveinsson. Fleiri boð komu ekki
í fasteignina.
Uppboðshaldari samþykkti síð-
an á uppboðsþingi 25 maí 1960
boð Gústafs A. Sveinssonar fyr-
ir hönd mannanna, enda full-
nægðu þeir ákvæðum uppboðs-
skilmála.
Stefndi, Guðlaugur, áfrýjaði í
sjálfs sín nafni uppboðsgerðun-
um með stefnu 21. júní 1960.
Stefndi hann m. a. kaupendun-
um til að þola ógildingu uppboðs
gerðanna og til greiðslu máls-
kostnaðar. í því máli gekk úti-
vistardómur í Hæstarétti 31. októ
ber 1960. Stefna þessi gaf kaup-
endunum ástæðu til áfrýjunar af
sinni hálfu til staðfestingar, og
var þeirri áfrýjun réttilega beint
að stefnda, Guðlaugi.
Eiginkonan áfrýjaði einnig og
krafðist þess, að gerðirnar yrðu
staðfestar. Eiginmaðurinn gagn-
áfrýjaði. Segir svo í dómsfor-
sendum Hæstaréttar:
„Til stuðnings kröfu gagnáfrýj
anda, . . . , um ógildingu uppboðs
gerðanna hefur það eitt, sem
málsástæða getur talizt, komið
fram af hans hendi, að hvorki
hafi hann né umboðsmaður hans,
Guðlaugur, séð á uppboðsþing-
inu 1960 fyrrgreint umboð frá
aðaláfrýjendunum .... og ... .
til handa Gústaf A' Sveinssyni.
Hafi þeir því litið á, að Gústaf
hafi boðið í eignina fyrir sjálfs
sín hönd. Málástæða þessi er
haldlaus þegar af þeirri ástæðu,
að umboðsskjaldið lá þingmerkt
frammi á uppboðsþinginu og var
getið í þingbók, sem þeir gagn-
áfrýjandi, . . . . og stefndi, Guð-
laugur, undirrituðu. Áfrýjun af
hálfu gagnfrýjanda var því alger-
lega ófyrirsynju. Ber samkvæmt
þessu að staðfesta hinar áfrýj-
uðu uppboðsgerðir eftir kröfu
aðaláfrýjenda".
í dómsorði réttarins eru upp-
boðsgerðirnar svo staðfestar,
stefndi Guðlaugur Einarsson og
eiginmaðurinn dæmdir til að
greiða in solidum málkostnað,
kaupendunum kr. 15.000, og eig-
i inkonunni kr. 15.000.
Næsta órbók Ferðafélogsins
um Grímsnes og Biskupslungur
NÆSTA Árbók Ferðafélags Is-
lands kemur út í vor og verður
um uppsveitir Árnessýslu, Grims
nes og Biskupstungur. Hefur dr.
Haraldur Matthíasson skrifað
hana. Jón Eyþórsson, forseti
Ferðafélagsins tjáði fréttamönn-
um þetta sl. sunnudag. Með
jþessu hefti lýkur lýsingu Árnes-
Isýslu, er hófst árið 1936, með
Landnámi íslands. Seinna ritaði
Gísli Gestsson svo um svæðið
Imilli Hvítár og Þjórsár.
Ferðafélagið hefur gefið út ár-
bækur sínar síðan 1928 og er par
Aðalfundur
Ritliöfunda-
félagsins
AÐALFUNDUR Rithöfundafé-
lags fslands var haldin 13. nóv.
sl. Fráfarandi formaður Jóhann-
es úr Kötlum minntist í upphafi
fundar félaga, er lézt á árinu,
Karls ísfelds. Þá flutti hann
skýrslu stjórnarinnar um störf á
liðnu ári. í stjórn voru kosnir
Thor Vilhjálmsson, formaður,
Jón Óskar Ásmundsson, ritari,
Jón Jóhannesson, gjaldkeri og
meðstjórnendur Sveinbjörn Bein
teinsson og Gunnar M. Magnúss.
Tvær ályktanir voru gerðar á
fundinum, önnur um að ekki
verði hvikað frá 12 mílna fisk-
veiðilögsögunni, hin um að lýst
verði yfir „ævarandi hlutleysi
íslands“.
Reitings síldarafli
KEFLAVlK, 14. nóv. — Fjöldi
Suðurnesjabáta hefur nú búizt
til síldveiða, en lítið hefur afl
«zt hingað til. Tveir Keflavíkur-
bátar fengu síld um helgina, ann
ar 130 tunnur í hringnót, hinn 30
tunnur í reknet. — Þrír Grinda
víkurbátar lögðu líka upp síld,
tveir hringnótabátar 70 tunnur
hvor og reknetabátur 34 tunnur.
Einn hringnótabáta í Sand-
gerði fékk 150 tunnur, rekneta-
bátarnir fáeinar tunnur. — Allir
fara á sjó, þegar gefur. Menn bú
ast við síldinni á hverjum degi.
lýst svæðum og sýslum landsins.
Eru nú sýslur landsins með
ströndum fram næstum búnar,
en hálendið hefur fremur orð-
ið eftir Síðasta árbók var xxm
Suðurjökla, skrifuð af Guðmundi
Einarssyni í Miðdal.
Fleiri bækur eru þegar í und-
irbúningi. Á eftir Grímnesi og
Biskupstungum, kemur röðin
annað hvort að Arnarvatnsheiði,
sem Þorsteinn Þorsteinsson fra
Húsafelli skrifar um eða þá að
Jón Eyþórsson lýkur við lýsingu
sína á Húnavatnssýslu.
Afvinna
Óskum eftir stúlku í bókhald. Vélritun
nauðsynieg.
GARÐAR GÍSLASON H.F.
Hverfisgötu 6
Deitdarverkf ræðing ur
Staða deildarverkfræðings, er veiti forstöðu gatna-
deild bæjarins, er laus til umsóknar.
frestur til 1. des. n.k.
Umsóknar-
Reykjavík, 15. nóvember 1960.
Bæjarverkfræðingurinn í Keykjavík
H jólbarðaviðgerðir
RAFGEYMAHLEÐSLA
Opið alla virka daga kl. 19—23 e.h.
Laugardaga kl. 13—23 e.h.
Sunnudaga kl. 10 f.h.—23 e.h.
Hjólbarðastöðin
Langholtsvegi 112 B — (Beint á móti Bæjarleiðum)
Nýkomið
Þýzk barnanáttföt. Verð kr. 59.—
Ullarpeysur á börn. Verð frá kr. 130.—
Sokkabuxur á börn og fullorðna.
Mikið úrval af slæðum. Verð frá kr. 25.
Verzlunin ASA
Skóiavörðustíg 17 — Sími 15188
Tökum upp í dag
hið eftirspurða
Sönderborg
ullargarn
ZENTH — BOUCLE
BLUE PONT — BABY
Mikið litaúrval — Lítið af hverri tegund
AU5TUR STRÆT I 9 - SÍMI >1116-1117
H afnarfjörður
2—3 herb. og eldhús óskast, sem fyrst eða seinna.
Einhver fyrirframgreiðsla. — Uppl. í síma 10391.
Hús óskast
Óska eftir að kaupa einbýlishús eða raðhús í bæn-
um eða næsta nágrenni. Þarf helzt að vera tilbúið
undir tréverk og málningu. — Tilboðum sé skilað á
afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld, merkt: „Hús—1372“
Fyrirliggjandi
TEX ÞILPLÖTUR
HARÐTEX ÞILPLÖTUR
GIPS ÞILPLÖTUR
TEX-ASPEST ÞILPLÖTUR
IHars Trading Co. hf.
• Klapparstíg 20 — Sími 17373
★ kœliskápar 'tr mmmm ryksugur
o!\ i \J Suðurgotu 10