Morgunblaðið - 17.11.1960, Side 16
MORCVNHLAÐIB
Fimmtudagur 17. nóv. 1960
Bækur
Ragnheiðar
Jónsdóttur
Sá höfundur, sem samkvæmt
I
skyrslum er mest lesinn á j
bókasöfnum hér á landi, er
frú Ragnheiður Jónsdóttir.
v Kötlubók
- «
Falleg bók með mörgum
myndum.
Verð kr. 58,00.
Myndskreytt. Verð kr 58,00.
Þessi bók var á bókasýningu
í Stokkliólmi í vor, og vakti
þar mikla athygli og verður
þýdd á erlend tungumál.
Smásagnasafn frú Ragnheiðar,
DEILT MEÐ EINUM
hefur hlotið mjög lofsamlega
dóma. — Verð kr. 138,00.
Bókaverzlun
Isafoldar
Rósa ívarsdóttir Guðjón HaHgrímsson
Guðjón Hallgrímsson
bóndi á lilarðamúpi 70 ára
ÞEGAR merkir menn hafa náð
70 ára aldri, þá er meiri ástæða
til að minnast þeirra nokkuð
rækilega heldur en þegar yngri
menn eiga í hlut. Um 70 ára bil-
ið liggur ferill lífsins ljóst fyrir
og fáir einir, sem eiga mikla
sögu upp frá því, þó til þess séu
nokkur dæmi.
Guðjón Hallgrímsson er fædd-
ur á Snæringsstöðum í Svínaual
17. nóvember 1890 og er sonur
hjónanna Sigurlaugar Guðlaugs-
dóttur og Hallgríms Hallgríms-
sonar er þar bjuggu þá. Árið
1903 keypti Hallgrímur bóndi
höfuðbólið Hvamm í Vatnsdal og
bjó þar til æfiloka með fjöl-
skyldu sinni. Þar átti Guðjón eft-
ir að vinna mörg afrek á sínum
æskuárum.
Hann fór í Hólaskóla haustið
1906 og lauk þar námi vorið
1908. Árið 1916 kvæntist hann
sinni ágætu konu Rósu ívarsdótt-
ur og vorið 1917 hófu ungu hjón-
in búskap á 14 af Hvammi.
Keyptu svo hálfa jörðina nokkru
síðar og bjuggu á þeim hluta
jarðarinnar til vors 1931. Þá
fluttu þau að Marðarnúpi og
hafði Guðjón keypt þá jörð árið
áður, en ekki seldi hann Hvamm.
Á Marðarnúpi hafa svo þessi
Element
Fyrir nraðsuðukatla 2000 W
— hraðsuðukatla 1500 W
— ofna 1000 w
— suðuhellur 1000 w
— suðuhellur 750 w
— straujárn ýmsar gerðir
Hitagormar ýmsar gerðir
RAFROST
Þingholtsstræti 1 — Sími 10240
Rafmotorar fallloka^ir
0.8 hö þriggja fasa Kr.
1.5 — — — — 1229 50
2 — — — — 2037.00
3 — — — — 2371 00
4 — — — — 2690.00
6 — — — — 3097 00
7.5 — — — — 4539.00
10 — — — — 564900
16 — — — — 7666.50
Einnig einfasa mótorar 0,17 hö—1 Vz hö.
= HÉÐINN =
Vélaverzlun
Seljavegi 2, sinti 2 42 60
merku hjón búið óslitið síðan og
gert þar garðinn frægan eins og
hér verður síðar að vikið.
Leiðir okkar Guðjóns Hall-
grímssonar lágu fyrst saman á
Hólum i Hjaltadal 1907 og marg
vísleg æfintýri urðu á okkar
vegi þann vetur. Vorum tveir
einir samferða véstur og vestan
í jólafríi og sitthvað annað reynd
ist okkur sameiginlegt. Á þeim
vetri tókst með okkur góð vin-
átta og hún hefir aldrei rofnað á
þeim 53 árum sem síðan eru lið-
in. Tel ég það mikla gæfu, að
eigi vini slíka sem Guðjón er og
þar hefir jafnan hinu sama ver-
ið að mæta frá konu hans og
börnum.
Á Hólum var Guðjón meðal
yngstu nemenda, en hann var
hlaðinn áhuga og æskuþrótti.
Kappið og hinn frábæri dugnað-
ur, sem alltaf hefir einkennt
manninn var honum strax svo
eiginlegt, og drengileg var fram-
koman öll. Við vissum allir félag
arnir, að hann var sonur ríkasta
bóndans á glæsilegasta höfuð-
bólinu í fegursta dalnum á Norð-
urlandi. Og þetta lyfti verulega
undir manninn svo sem að líkum
lætur. Og þegar þar við bættist,
að hann var strax mikið hraust-
menni og snargreindur, þá var
eigi að undra, þó hann væri í
miklu áliti. Það hefir líka fylgt
hopum æ síðan. Guðjón hefir ver
ið mikill gæfumaður um dagana,
brautin hefir verið bein og króka
laus og hann getur litið yfir far-
inn veg með mikilli ánægju og
ég veit að hann gerir það, því
maðurinn er bjartsýnn og glað-
lyndur og raunsær.
Heimilisgæfan hefir. verið
sterk. Konan framúrskarandi
góðkvendi og börnin hvert öðru
efnilegra og geðfeldara. Þau
urðu 7. Fjórir drengir og þrjár
stúlkur. Sá mikli skuggi féll yf-
ir fyrir nokkrum árum að yngsti
sonurinn fórst af slysförum. Hin
eru öll á lífi. Fullorðið og þrótt-
mikið fólk. Systurnar eru: 1. Sig-
urlaug, gift Skarphéðni Péturs-
syni presti í Bjarnarnesi. 2. Ingi-
björg gift Þórði Guðmundssyni,
útgerðarmanni í Gerðum og 3.
Þórhildur, gift Jóni ísberg sýslu-
manni Húnvetninga. Bræðurnir
eru þessir: 1. Steingrímur starfs-
maður hjá Skeljungi, Reykjavík
kvæntur Jónu Guðmundsdóttur,
ljósmóður. 2. Hallgrímur bóndi í
Hvammi, kvæntur Fjólu Sigur-
laugu Kristmannsdóttur. 3. Jón
Auðunn, er stundar búskapinn
heima á Marðarnúpi m.eð foreldr
um sínum, ókvæntur.
Meðan Guðjón var í Hvammi,
vann hann eins og berserkur að
framleiðslu- og umbótastörfum.
Fyrst á búi föður sins og síðan á
sínu eigin, og hann græddi á tá
og fingri meðan þess var nokkur
kostur. En kreppuárafarganið frá
1927—1939 kom illa við hann
sem aðra bændur, og svo tók
ekki öllu betra við þegar Kara-
kúlpestasendingin dundi yfii.
Til marks um þrek Guðjóns, er
hann vann á búi föður síns, má
nefna það að þegar íbúðarhúsið
þar var byggt 1911, og sem er
eitt fyrsta og stærsta steinhús í
sýslunni, þá flutti Guðjón allt
sement í húsið á klökkum frá
Blönduósi og fór lengi annan
hvorn dag í þeim erindum
með 12 hesta lest. Slík
var samgönguaðstaðan þá.
En þrátt fyrir alla örðugleika og
alla kosti í Hvammi, þá þótti
Guðjóni of þröngt um sig á hálfu
því höfuðbóli. Þess vegna keypti
hann Marðarnúpinn 1930. Réði
þar nokkru um að hann vildi
tryggja einhverju af börnum sín-
um jarðnæði í Vatnsdal. Hafa
synir hans notið þess, fyrst Stein
grímur, og síðan Hallgrimur, sem
nú býr á hálfum Hvammi á mjög
myndarlegan hátt.
Á þeim tæpum 30 árum, sem
Guðjon hefir búið á Marðarnúpi
hefir hann unnið stórvirki á
þeirri jörð sem áður var þó sóma
samlega setin, að þeirra tíma
hætti. Hann hefir byggt upp öll
hús, eða því sem næst. Eru þar
nú mjög myndarlegar byggingar,
bæði íbúðarhús og útihús. Þar
eru nú fjárhús yfir 400 fjár. Fjós
fyrir 15 gripi og heygeymslur
fyrir 2000 hesta heys. Auk þess
hefir Guðjón, í félagi við næsta
nágranna, reist vatnsafls-rafstöð
er nægir heimilinu til ljósa, suðu
og upphitunar. Túnið var 200
hesta tún þegar Guðjón kom þar,
en nú fást þar 1400 hestar af
ræktuðu landi í meðal árferði.
Allt til samans eru þetta mikil
afrek. En þó hafa heimsótt þetta
heimili miklir örðugleikar vegna
heilsubilunar. Húsfreyjan hefir
legið hverja stórleguna eftir
aðra og meðal annars þurft til
útlanda til uppskurðar. Sjálfur
hefir húsbóndinn ekki naerri allt-
af gengið heill til skógar og oft-
ar en einu sinni lagzt undir hníf-
inn. Auk þess var dóttursonur
og uppeldissonur hjónanna mjög
hætt kominn í langvarandi veik-
indum. En sem betur fer hefir
allt vel bjargazt. Hjónin hafa
náð sér vonum framar, og dreng
urinn hefir náð fullri reilsu og
er nú í Menntaskólanum á Ak-
ureyri.
Svo sem áður er að vikið er
Guðjón Hallgrímsson greindur
maður og duglegur. Hann hefir
verið ferðagarpur mikill, bæði á
heiðum og í byggðum. Ósérhlífni,
kapp og óbilandi kjarkur eru
hans einkenni. Hann er gestris-
inn maður og lundglaður,
skemmtilegur í viðræðu og ligg-
ur ekki á skoðunum sínum. Læt-
ur hvergi sinn hlut við hvern
sem er að eiga.
Við opinber störf sveitar sinn-
ar og héraðs hefir hann talsvert
átt. Var um árabil í sveitarstjórn
Vatnsdæla og oddviti um skeið,
í stjórn búnaðarfélags o.fl. Á
fundum Kaupfélags Húnvetninga
og Sláturfélags A-Húnavatns-
sýslu hefir hann verið fulltrúi
margoft og í stjórn Sláturfélags
ins er hann búinn að vera 18 ár
og er enn. — Á fundum Stéttar-
sambands bænda hefir Guðjón
mætt nokkrum sinnum, sem full-
trúi A-Húnvetninga, og mun
hafa sagt forráðamönnum þess
félags afdráttarlaust til synd-
anna.
í stuttu máli sagt er Guðjón
Hallgrímsson stórbrotinn og rnik
ilhæfur sveitarhöfðingi. Hann ^r
mikill á velli og vekur eftirtekt
þó i fjölmenni sé. Hann ber það
með sér að þar fer gæfusamur
maður og óbeygður, fráhvenur
öllum barlómi og eymdarskap.
Á þessum tímamótum ævi mar
þakka ég þessum vini mmurn
langa og örugga vinóttu og marg
ar ánægjulegar stundir. Fjól-
skyldunni og öllu nánasta vensia
fólki óska ég til hamingju með
það að eiga hann eins og hann er
og geta litið á farinn veg með
ánægju. Sjálfum honum óska ég
allrar gleði og hamingju á því
tímabili sem enn er ófarið. Eg
óska honum og hans fólki góðrar
heilsu og ánægjulegra daga. Eg
get vel hugsað mér, að hann geti
enn ótt eftir þrjá áratugi hérna
megin við tjaldið mikia og á
þeim tíma getur margt skeð.
Jón Pálmason.
TIL SÖLU
Will’s station ’54
með framdrixi, spili og útvarpi, 820x15 sniódetckjum
í úrvals íagi. — Upplysingar á Havauaguru zu, snni
13158.