Morgunblaðið - 17.11.1960, Qupperneq 17
Fimmtudagur 17. növ. 1960
MORGVNBLAÐIÐ
17
— Þing ASI
Frh. af bls. 1.
úrelt, aldur væri ekki nefndur
o. s. frv. Þá taldi hann það
meinbugi að 185 meðlimir LÍV
væru einnig meðlimir í öðrum
félögum innan Alþýðusambands
ins eða hefðu atvinnu, sem ekki
samrýmdist ákvæðum félaga
þeirra.
Trúi ekki að óreyndu
Eggert G. Þorsteinsson, al-
þingismaður, sagði, að afstaða
meirihluta stjórnar Alþýðusam-
bands íslands til inntökubeiðni
LÍV væri af pólitískum rótum
runnin. Kommúnistar í stjórn
Alþýðusambandsins teldu sér
pólitískt óhagræði að því að fá
LlV inn í ASÍ og neyttu því
allra bragða til að hindra lög-
lega inntöku þess. Að lokum
kvaðst ræðumaður ekki tr.úa því
að óreyndu, að meirihluti væri
á Alþýðusambandsþingi fyrir
slíku ofbeldisverki.
Ekki gefið sama tækifæri
Pétur Sigurðsson, alþingismað j
ur, hóf mál sitt með því að
segja frá inntöku félags bygg-
ingariðnaðarmanna í Árnessýslu.
Það félag hafði sent inntöku-
beiðni til Alþýðusambandsins.
Kom í ljós að félagið var þann-
ig skipað, að ekki samrýmdist
lögum og reglum ASÍ. Neitaði
miðstjórnin félaginu inngöngu,
en gaf því kost á að leiðrétta
félagaskrá sína og var félagið
tekið inn á fyrsta degi þings-
ins.
Pétur Sigurðsson spurði, hvers
vegna LÍV hefði ekki verið gef-
ið sama tækifæri til þess að leið
rétta sína félagaskrá, sem það
hefði óefað gert, ef miðstjórn
ASl hefði sannanlega getað bent
á að á henni væru misfellur.
Breytt samtök
Þá lýsti ræðumaður hvernig
Verzlunarmannafélag Reykjavík
ur hefði fyrir 5 árum breytt
lögum sínum og starfsháttum á
þann veg að það er nú hreint
launþegafélag, og svo er um öll
önnur verzlunarmannafélög og
landssambandið í heild.
Hrakið úr norrænum
samtökum
Ræðumaður vakti sérstaka at-
hygli þingfulltrúa á því, að LÍV
hefði á árinu gerzt aðili að sam-
tökum verzlunarfólks á öðrum
Norðurlöndum, en LÍV var tek-
ið inn í þau samtök með því
skilyrði að það gerðist aðili að
Alþýðusambandi fslands. Með
því að meina Landssambandinu
inngöngu nú, væri hætta á að
samtök íslenzks verzlunarfólks
yrðu hrakin út úr samtökum nor
rænna verzlunarmanna,. og slíkt
væri mjög alvarlegt mál.
Styrkur að beinni aðild
Pétur Sigurðsson sótti rök fyr-
ir réttmæti inngöngu LÍV í sjálf
lög Alþýðusambandsins. Hann
benti á, að innganga LÍV í ASÍ
væri ekki einasta styrkur til
handa LÍV heldur heildarsamtök
unum einnig. Andstæðingar máls
ins hafa teflt því mjög fram, að
það væri jafngóður styrkur sam-
tökum verzlunarfólks að fá yfir-
lýsingu Alþýðusambandsins um
stuðning í stéttarbaráttunni, en
elíkt væri alrangt. Til dæmis
veitti löggjöfin heildarsamtökun-
um margs konar völd og áhrif,
sem samtök verzlunarfólks
fengju alls ekki notið nema með
beinni aðild að samtökunum.
Ræðumaður sagðist bera slíkt
traust til fulltrúa á Alþýðusam-
bandsþingi að þeir tækju ekki í
mál að láta hafa sig til slikra
óhæfuverka, eins og að neita
þessum verkalýðssamtökum um
inngöngu í heildarsamtök ís-
lenzkrar alþýðu.
Haldlaus rök
Umræðum um inntöku LÍV
var framhaldið á síðdegisfundi.
Fyrstur talaði Magnús Ástmars-
son. Ræddi hann nokkur atriði í
ræðu Hannibals og þau orð hans,
að Alþýðusamtökin breyttu um
svip við inntöku LÍV. Væri þá
spurning, hvort þau breyttu um
svip til hins betra eða verra.
Mælt væri í gegn inntökubeiðn-
inni vegna þess að skipulagsbreyt
ingar væru framundan hjá ASÍ
en nú hefðu fulltrúar LÍV, sem
kjörnir hefðu verið á þetta ASÍ-
þing lýst því yfir, að þeir mundu
ekki taka þátt í þessum skipulags
breytingum ASÍ og því væru
þessi rök haldlaus.
Ógerlegt að neita
Jón Sigurðsson, erindreki, svar
aði Hannibal í ítarlegu máli. Þá
kvaðst hann ekki sjá að nokkur
leið væri fyrir þetta þing að
neita LÍV um uppgöngu í ASÍ.
í lok máls síns bar hann fram
tillögu um að svo yrði gert.
Hjú heildsala
Eðvarð Sigurðsson mælti gegn
upptökunni en tók það fram, að
ASÍ væri hvenær sem væri reiðu
búið að rétta LÍV hjálparhönd.
Þá kvað hann inngöngu LÍV
mundi auka áhrif kaupmanna og
heildsala innan ASÍ, þó að vísu
mundu ekki allir fulltrúar LÍV
gerast handbendi atvinnurek-
enda. En kaupmenn hefðu meiri
áhrif á sín hjú en aðrir atvinnu-
rekendur.
Dómur ASÍ
Hermann Guðmundsson, for-
maður Hlífar í Hafnarfirði, sagði,
að það sem meginmáli skipti
væri hvort LÍV ætti rétt á inn-
göngu í ASÍ, en hitt skipti minna
máli hvort mönnum geðjaðist að
meðlimum þess eða ekki. Alþýðu
sambandið hefði sjálft lagt dóm
á þetta mál með því að hafa fé-
lög verzlunarmanna innan sinna
vébanda eins og fram hefði kom-
ið í ræðu formanns. Skírskotaði
hann til þingfulltrúa að láta
skynsemina ráða ákvörðunum
sínum í þessu máli.
Pólitísk togstreita
Hannibal Valdimarsson talaði
aftur og var nú nokkru heitari
en í hið fyrra skipti. Sagði hann,
að stjórn ASÍ hefði lagt fram
stéttarleg rök gegn inntöku LÍV
en inntökubeiðni félagsins væri
byggð á pólitískri togstreitu.
Hart að neita þeim
inngöngu
Guðmundur Björnsson kvað
pólitísk sjónarmið oft ráða meiru
en hagsmunir íslenzkrar alþýðu.
Hann sagði, að fáir launþegar
byggju við verri kjör en
verzlunarmenn og væri það hart
gagnvart þeim að neita þeim um
inngöngu í ASÍ. Þó kvaðst hann
mundi styðja þá tillögu að inn-
tökubeiðninni yrði hafnað.
Nokkrir fleiri tóku til máls en
eins og áður getur voru umræð-
ur skornar niður um kaffileytið,
en þá voru 10 manns á mælenda
skrá. Lauk umræðum laust fyrir
kl. 7 og voru þá greidd atkvæði
um inptökubeiðni LÍV að við-
höfðu nafnakalli. Úrslit urðu
þau, að 198 fulltrúar (kommún-
istar og Framsóknarmenn) höfn-
uðu inntökubeiðninni, en 129
(Sjálfstæðismenn og Alþýðu-
flokksmenn) lögðu til að inn-
tökubeiðnin yrði samþykkt.
Ný st jórn Stúd-
entaféla^s H. I.
NÝLEGA var haldinn aðalfund-
ur Stúdentafélags Háskólans. í
' stjórn voru kjörnir: Formaður:
Steingrímur Gautur Kristjáns-
son, stud. jur., gjaldkeri Þór
Guðmundsson, stud. oecoa., rit-
ari Heimii Steinsson, stud. mag.
,og meðstjórneudur Friðjón Guð-
jröðarson, stud. jur. og Kristján
Jónasson, stud. oecon.
Kennedy - gleði
KOSNINGABARÁTTA þeirra
Nixons og Kennedys um for-
setaembættið í Bandaríkjun-
um var afar hörð og tók
mjög á taugar beggja — svo
og aðstandenda þeirra og ým-
issa fylgismanna. Þó hefur
nóttin eftir kosningarnar, þeg
ar atkvæði voru talin, vafa-
laust verið harðasta raunin,
enda voru þá báðir frambjóð.
endurnir orðnir harla svefn-
vana og úttaugaðir af erfiði
síðustu daga, þegar barattan
náði hámarki.
• „Stemningin" var aö
— Kampmann
Frh. af bls. 1
Jafnaðarmanna og Radikala yrði
væntanlega allsterk vegna þess,
að flokkur Aksel Larsens
myndi ekki greiða atkvæði með
borgaraflokkunum gegn henni.
Larsen vill starfa í
NATO-stjórn
Aksel Larsen hefur látið í
ljós í viðtali við Ekstra-
blaðið, að hann langi til að
komast í ríkisstjórn. Varla get-
ur hann þó gert séip sterkar
vonir um slíkt, því að engum
kemur til hugar í fullri alvöru,
að Jafnaðarmenn hefji samstarf
við hann.
í samtalinu í Ekstrablaðinu
segir Aksel Larsen, að hann sé
fús til að taka þátt í ríkisstjórn,
enda þótt sú stjórn fylgi At-
lantshafsbandalaginu að málum.
Þetta þykir brjóta í bága við
stefnu Larsens í kosningunum,
en þar barðist hann hatramm-
lega gegn Atlantshafsbandalag-
inu.
Ósigur Réttarsambandsins og
kommúnista í þessum kosning-
um hefur alvarlegar afleiðingar
fyrir alla flokksstarfsemi þeirra.
Það mun rétt vera, sem hermt
hefur verið, að kommúnistablað-
ið Lond og Folk verði að hætta
göngu sinni, a. m. k. sem dag-
blað. Hugsanlegt er að því verði
haldið úti sem vikublaði. Þá
mun Réttarsambandið verða að
hætta að starfrækja flokksskrif-
stofu í Kaupmannahöfn. Til þess
hefur flokkurinn ekki lengur
fjármuni. Telja menn að með
! því hafi þessi óvenjulegi flokk-
ur geispað golunni.
j Politiken segir, að í kosning-
J unum hafi fæðzt nýir öfgaflokk-
i ar bæði til hægri og vinstri, þar
sem eru hinir óháðu og flokkur
i Aksel Larsens. Vegna þess tel-
(ur blaðið æskilegt að Jafnaðar-
menn og Radikalar haldi áfram
i stjórnarsamstarfi sinu.
vonum æði miklu líflegri á
setri Kennedy hjúnanna í
Hyannisport, þótt forsetaefnið
þætti raunar taka sigri sínum
af mestu hógværð og látleysi.
Caroline litla, dóttir Kennedy
hjónanna, naut sigursins á
þann hátt, að pabbi hennar
lék sér við hana í gleði sinni
— og um leið kætti hann við-
stadda ijósmyndara, sem ckki
þótti ónýtt að ná. mynd af til-
vonandi Bandaríkjaforseta,
þar sem hann hoppaði mcð
telpuna á bakinu.
IMixon-tár
Og
• Þegar úrslitin urðu ljós
Nixon varð að viður-
kenna • ósigur sinn, gat frú
Nixon, sem hvergi hafði dreg-
ið af sér í baráttunni fyrir
sigri manns síns, ekki leynt
vonbrigðum sinum — og tár-
— Alþingi
Framh. af bls. 8
lausn deilunnar væri ekki um
það að ræða að færa landhelg-
ina inn, heldur hitt, að koma
Bretum út úr íslenzkri land-
helgi, en þar hafa þeir verið síðan
1958.
Þá skýrði Ólafur Thors frá
því, að Hermann Jónasson hefði
komið heim til sín hinn 18. maí
1958 og beðið sig að gerast með-
ábyrgur að því skeyti, semhann
sendi þann dag til NATO. Hann
hefði hins vegar ekki talið sér
það fært, þegar af þeirri á-
stæðu, að hann hefði ekki haft
tækifæri til þess að hafa sam-
ráð um málið við flokk sinn.
Vék forsætisráðherra því næst
nokkuð að hlut Alþýðubanda-
lagsins að málinu. Taldi hann
þá yfirlýsingu Finnboga Rúts,
að hann hefði ekki vitað, að
skeytið hefði verið sent og að
hann hefði aldrei samþykkt það,
en að hann hefði hins vegar haft
hugmynd um það, gefa góða
mynd af hlut kommúnista. Þá
ætti Hermanni Jónassyni að
vera ljóst, að andstaðan gegn
tilboði vinstri stjórnarinnar inn-
an NATO var fyrst og fremst
frá Bretum og tilboð stjórnar-
innar til NATO auðvitað sniðin
með það fyrir augum, að Bretar
gætu sætt sig við þau og því fyrst
og fremst tilboð til þeirra. Her-
mann Jónasson hefði því þegar
á byrjunarstigi landhelgismáls-
ins þverbrotið það, sem hann
nú kallar meginreglur sínar.
Hann héldi því fram, að aldrei
mætti ræða við aðrar þjóðir um
hvenær eða hvernig landhelgin
væri færð út og í öðru lagi og
alveg sérstaklega væri áríðandi
að víkja aldrei frá því, sem
búið væri að gera. Nú stæði
hann í augum aiþjóðar staðinn
að því, ekki aðeins að hafa leit-
að samþykkis Breta og annarra
NOTA-ríkja vorið 1958, heldur
einnig að því að hafa með mik-
in brutust fram. Maður henn-
ar lét hins vegar engan bilbug
á sér finna, og játaði sigur
keppinautar síns með bros á
vör — þótt honum hafi nú
sennilega ekki verið hlátur
í hug.
illi leynd hinn 22. ágúst 1958,
svínbeygður af óttanum við
Breta, boðizt til að breyta reglu
gerðinni frá 30. júní og heimila
Bretum 3ja ára afnotarétt að
ytri 6 mílunum, ef hann með
því móti gæti blíðkað Bretann.
Þetta væri að bjóða ofbeldinu
heim, sem Hermann nú væri
að vara aðra við.
Eftir þessar umræður var
gengið til dagskrár.
43 sœti
fyrir 120
AÐEINS þriðjungur þotufar.
þega, sem viðkomu hafa á Kefla-
víkurflugvelli, fá sæti í sal
flugvélaafgreiðslunnar. Þoturnar
flytja 120 farþega og stundum
meira.
Sætin í afgreiðslusalnum voru
hins vegar ekki eftir nema 43,
þegar fréttamaður Mbl. var þar
syðra á þriðjudaginn. Jafnvel
ekki nógu mörg fyrir farþega
Skymastervélar. Við „kaffibar-
inn“, sem opinn er um nætur,
voru upphaflega 12 stólar. Nú
eru þeir aðeins 2. — Veitinga-
salurinn er ekki opnaður að næt-
urlagi fyrir flugiarþega nema
með 3 stunda fyrirvara. Yfirleitt
þurfa flugfélögin ekki að hafa
afnot af veitingasalnum nema
óvænt töf verði á flugvellinum,
flugvél bili eða veður hamli brott
för. — í slíku tilfelli hefur það
eitt sinn komið fyrir, að Pan
American leitaði á náðir Civilian
Club á Keflavíkurflugvelli og
þar var hægt að fá veitingar
framreiddar með klukkustundar
fyrirvara. Var maturinn í um-
rætt sinn mjög góður og vín
framreitt með, „en í veitinga-
sal fiugvallarbyggingarinnar
geta farþegarnir ekki einu sinni
fengið bjór með matnum", sagði
einn starfmanna Pan Am.