Morgunblaðið - 25.11.1960, Síða 23

Morgunblaðið - 25.11.1960, Síða 23
Föstudagur 25. uóv. 1960 MORGUNBLAÐIfí 23 '^rv' •'*'*• ^ytW"^ <*+*■' *>ixr*w* f ifjMty Stjórn Tollvarðafélagsins, talið frá vinstri: Jónas Hallgríms- son, Karl Halldórsson, sem verið liefur formaður félagsins í 8 ár, og Guðjón H. Guðnason. Tollvarðafélagið 25 ára „Boðorðin ttu“ Greinargerð frá Tjarnarbíó TOLL.VERÐIR og starf þeirra, hefur verið mjög í fréttum blað- anna undanfarið, og um aðra helgi munu þeir minnast þess með samsæti, að ‘liðin eru 25 ár frá því að stofnað var Tollvarða félag íslands. Innan vébanda þess eru allir tollverðir á land- inu 71, að tölu, þar af 46 í Reykja Vík. / í gærdag ræddu tveir stjórn- armenn félagsins við blaðamenn, þeir Karl Halldórsson formaður félagsins og Jónas Hallgrímsson, gjaldkeri þess. Félagið sem er stéttarfélag tollvarðanna, hefur fyrst og fremst unnið að kjaramálum stéttarinnar og orðið þar á ýms- an hátt vel ágengt. T.d. er það meðal síðustu mála sem náð hafa fram að ganga, að tollverðir fá nú skipunarbréf. Sumir höfðu þá verið starfandi í tollgæzlunni í 35 ár. Nú síðast er fengin starfs- reglugerð, sem Gunnar Thorodd- sen fjármálaráðherra lét setja. Stofnendur félagsins voru 13 tollverðir. Meðal þeirra eru þeir Ásgrímur Guðjónsson og Björn Friðriksson, sem báðir hafa látið af störfum fyrir aldurssakir, og eru nú heiðursfélagar Tollvaijga- félagsins. Vettvangur tollvarðanna hefur verið og er fyrst um fremst höfn in og skipin þar. Síðan millilanda flugið hófst hefur starf tollvarða í því sambandi aukizt mikið. Utan Reykjavíkur eru flestir tollverðir starfandi á Keflavík- urflugvelli. Karl Halldórsson formaður, kvað það vera álit stjórnar félags ins, að greinagóðar og sannar blaðafregnir af skyldustörfum tollvarða, væru til þess fallnar að auka nauðsynlegan skilning almennings á störfum tollvarð- anna. Þau 25 ár sem Tollvarðafélagið hefur starfað, hafa þar verið for menn Haraldur S. Norðdahl, Karl Halldórsson, Ólafur Helga- son og Aðalsteinn Halldórsson. Varaformaður er Jón Mýrdal. De GauIIe einn fær um að leysa Alsírmálið — segir Búrgíba Túnisforseti í viðtali Bonn, 24. nóv. (Reuter) STYRJöLDIN í Alstr er komin á úrslitastig. De Gaulle forseti hefir metið réttilega markmiðið, sem keppa ber að, og allir, sem hlut eiga að máli, verða að leggja sig alla fram honum til aðstoðar. Þessi ummæii viðhafði Búrgíba Túnisforseti í viðtali við Joachim Rassat, fréttamann hins óháða Hamborgarblaðs „Die Welt“, sem birt er í dag. Búrgíba segir í við- talinu, að það sé staðreynd, að Alsírstyrjöldin hafi getað kveikt Stærra bál og breiðzt út. Aðspurður, hvort Túnis gæti orðið miðstöð eða milliliður fyr- ir kínverska og rússneska aðstoð við uppreisnarmenr. í Alsir, sagði Búrgíba, að hann gæti ekki kom- íð í veg fyrir, að vopnum og vist- um yrði skipað upp í Túnis. Túnisleiðtógmn ságði, að de Gaullé Væri „mikill maður“ og ölltrm öðruin færari til að leysa Alsírvahdamálið. — ,,Það er að- éins að því ér várðar aðferðina til að ná marki síHll, sem hann er eklti alvegí 'á réttri'Ieið“, sagði hann. — „Hugtök eíns og mikil- leiki og heiður eiga ekki að hafa éhrif í þessu máli. Því verður de Gaulle að bjóðast til áð eiga nýjar viðræður við fulltrúa Als- irmanna til þess að samkomulag megi nást um vopnahlé og van- traustinu verði útrýmt“. — Kvað hann áætlun de Gaulles aðeins nafnið tómt á meðan bardagar geisuðu enn og tortryggnin ríkti. I VIÐTALI við Dagbl. Vísi hef- ur Valdimar Jónsson, frkvstj. Laugarássbíós nú gripið til þess ráðs í stríði sínu við verðlagsyf- irvöldin að kenna Tjarnarbíó um ófarir sínar í sambandi við Boð- orðin. Sakar hann nú m.a. Tjarn arbíó um að hafa yfirboðið mynd ina, og þá væntanlega fyrir sjálfu sér, þar sem Tjarnarbíó hefur skipl við Paramount, eitt íslenzkra kvikmyndahúsa um áraskeið, og aldrei komið til neins yfirboðs, fyrr en téður Valdimar komst í spilið. En rétt er. að greina frá gangi þessa sérstaka máls, fyrst tilefni hefur nú gefizt til. í undanfarin tvö ár hefur Tjarnarbíó af og til spurzt fyrir um hvenær vænta mætti af- greiðslu á Boðorðunum tíu til landsins, en jafnan fengið þau svör að eftirspurnin væri svo mikil, að afgreiðsla hingað myndi dragast eitthvað. Þann 10. rnarz sl. barst svo bréf frá Paramount, þar sem til kynnt er, að myndin sé nú fáan- leg, og um leið skýrt frá þeirri greiðslu, er Paramount vildi fá fyrir myndina. Skilmálarnir voru í stuttu máli þessir: 70% af nettó aðgangseyri fyrstu vikurn- ar, en lækkandi úr því í 40— 60%. Lágmarkstryggingu yrði þó að setja að upphæð 7500 dollara. Tjarnarbíó svaraði 14. marz og kvaðst ekki með neinu móti geta fallizt á þessa skilmála. Taldi m. a., að 40% væri hámark og lág- markstrygging mætti ekki fara fram úr 1000—1500 dollurum. Paramount svarar 12. apríl og segist í engu hvika frá fyrra til- boði og sé þýðingarlaust að ræða meira um málið á þeim grund- velli. Þar með var málið í rauninni útkljáð af Tjarnarbíós hálfu, enda var nú kominn köttur í ból bjarnar, þar sem fregnir höfðu borizt af því, að Laugarásbíó hefði keypt myndina. Ekki lágu þó fyrir upplýsingar um fyrir hve hátt verð Laugarásbió hefði fengið myndina, en ekki var ó- eðlilegt að álykta, að þeir hefðu fallizt á þá skilmála, er Tjarnar bíói voru boðnir, en það hafnaði, eins og áður segir. Til þess að fá m.a. úr þessu skorið, sendi Tjarnarbíó Para- mount simskeyti þann 27. júlí og sagðist eftir atvikum geta fallizt á að greiða ákveðinn hundraðs- hluta af aðgönguverði, en lág- markstrygging mætti þó ekki fara fram úr 5000 dollurum. Þann 28. júlí barst svarskeyti frá Paramount en í því segir, að ekkert sé um að semja við Tjarn arbíó, þar eð samningar hafi þeg ar verið gerðir við Laugarásbíó um að sýna myndina í Reykja- vík. Og hér er sagan öll. Af þessu má ljóst vera, að þegar Valdi- mar Jónsson semur við Para- mount, liggur fyrir tilboð frá Tjarnarbíói um 1000—1500 doll- ara lágmarkstryggingu í bréfi frá Tjarnarbíói dags. 14. marz. Paramount er viðskiptavinur Tjarnarbíós og hefur verið í mörg ár. Þessi viðskipti áttu þvi að geta farið fram með eðlileg- um hætti, ef ekki hefðu annarleg öfl gripið þar inn í. En sú varð raunin á og árang- urinn eftir því. Tjarnarbíó telur ekki ástæðu til þess að elta ólar við Laugarás- bíó eða forsvarsmenn þess frek- ar, a.m.k. að svo stöddu. En Laugarásbíó mætti gjarnan gefa opinberlega eftirfarandi upplýsingar: Hve hátt var tilboð- ið frá Paramount, sem Laugar- ásbíó féllst á? Hvenær var sá samningur gerður? F.h. Tjarnarbíós, Friðfinnur Ólafsson. Nýtt verkstæði STYKKISHÓLMI, 24. nóv. — Þeir Hörður Kristjánsson, húsa- smíðameistari, og Hallfreður Lárusson, húsasmiður, hafa ný- lega reist hér trésmíðavinnu- stofu. Reka þeir hana undir nafninu „Trésmiðjan Ösp“. — Fréttaritari Utan úr heimi Framh. af bls. 12. Guevára éír nú aiistan tjalds iil að leita aðstoðár kómmún- jstarí k j anna, bæði efnahags- íégrar og hernaðarlegrár áð því er ætlað er. Hann vár fyrst í Prag, aiðan hálfan mánuð í Moskvu. Nú er hann komihn til Peking, þaðan er ráðgert að fara til N- Kóreu og e. t. v. víðar. Ln á beimleiðinni mun hann aftur koma V.ið í Moskvu og hitta Krú ajeff vin sinn. Væntanlega verð- ur aðaibfcnkastóranum vel fagn- að. — Karlakórinn Framh. á bls. 23 hafi komið þeim nokkuð á ó- vart. — Ég dáðist að húsunum sem þeir eiga, og hve hentug þau eru. Þetta eru hús oft í eigu einhvers skóla, fullkomin leik- óg sönghús en jafnframt iþróttahús og skemmtisalir Við gætum mikið af þeim lært í hentugum húsbyggingum. — Já, það var gaman að koma á Mefropolitan. En þar erp bara menn, þótt þeir séu heimsfrægir, segir Guðmúnd- ur' að lokum. 'ý. \ •’ Síðasti biti í háls er Guð- mundur Jónsson og hann ekki minnstur. — Nei, ég missti ekki éitt einasta kíló í ferðinni, ég er nefnilega íhaldsmaður. Máður var nýkominn heim frá Vín og og rétt búinn að taka upp Úr töskunum þegáf maður byfjaði að láta ofan í þær aft ur. Það má því segja að maður sé sjúskaður í báða enda. Þeir eru í náttfötunum, þess ir, sem eru áttund néðar. Guðmundur var þó tón ofar en Krisíinn, því hann brá sér í slopp á meðan hann talaði við okkur. — Bindindisloggjöfin er skrítin þarna vestra. Ragnar v<ar duglegur að finna út hvernig henni var hagað Hann er svo fróðleiksfús eins og þú veizt. — Mataræðið! Blessaður vertu. Það er bara bezt að eta það sem að kjafti kemur. — Sem eini áheyrandinn að söng kórsins get ég sagt að honum var mjög vel tekið og hann stóð sig með ágætum. Fólkið kom til okkar á eftir, jafnvel gamlar komur og sögðu að þétta væri sá bezti konsert, sem þær hefðu hlýtt á. Þú veizt hvað þetta er að marka; en samt . . . — Ég mundi í skemmstu máli segja að þettá væri andskotans puð. Sitja í keng í svona og svona áætlúnarbíl, skipta um föt og raka sig, hlaupa eftir bjór, ef hann er fáanlegur, eta og syngja. Þetta sama upp aftúr og aft- ur. Það er alvég rnakalaust • hvað þessi kór leggur á sígl , til þess að kynna landið. I —r Nei, ég hef ekkert sofið í dag. Hef ekki einu sinni rakað míg, en fór fyrir síða- sakir í náttfötin. — í fyrramálið eigum við sólóistarnir. úr kórnum að mæta á æfingu niðri í Þjóð- leikhúsi í „Don Pasquale/“. Við vorum að reyna að æfa á leiðinni þegar Fritz náði í hljóðfæri. Ef Kristinn, sem hefir langstærsta hlutverkið, verður til fyrir jól, þá reyni ég það líka, segir Guðmundur Jónsson að lokum. — vig. Hjartanlega þakka ég börnum mínum, ættingjum og vinum fyrir ógleymanlegar ánægjustundir og hlýhug, mér sýndan á áttræðisafmæli mínu. Kærar kveðjur til ykkar allra. — Guð blessi ykkur öll. Veronika Borgarsdóttir frá Þverdal. Lokað vegna jarðarfarar föstudaginn 25. nóv. SÁPUHCSIÐ, Ansturstræti 1. SÁPUHUSIÐ, Laugavegi 2. Vegna jarðarfarar er verzlunin lokuð til kl. 1 í dag. VÉRÐANDI H.F. Lokað vegna jarðarfara laugardaginn 26. nóvember. Gísli Jónsson & Co. h.f. Ægisgötu 10. Faðir okkar BKVNJÓLFLK STEFÁNSSON fyrrverandi forstjóri, andaðist að hei'nili sínu 24. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. Gnðni Brynjólfsson, Stefán Brynjóifssoa. TJtför föður okkar PÉIURS PÉTURSSONAR fyrrvet andi vitavarðar á Malarrifi, sem andaðist 16. þessa mánaðar, fer fram frá Fossvogs- kirkju laugardaginn 26. nóvember kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað. Börn hins látna. Hjartans þakk.r til allra, sem auðsýndu okkur hjálp og hluttekningu við andlát og jarðarför SIGURGEIRS OLAFSSONAR Nýjabæ í Garði. Guð blessi ykkur öll. Laufey Jónsdóttir, Guðríður Sigurðardóttir, Viðar Hjaltason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.