Morgunblaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 1
24 siður með Barnalesbók
uwiMsM^
47 árgtmgur
276. tbl. — Fimmtudagur 1. desember 1960
Prentsmlðia Morgu iblaðsins
Aburður fyrir
14millj úrlandi
ÁBURÐARVERKSMIÐJAN
h.f. hefur gert samninga um
sölu 7000 smálesta af áburði
til útlanda. Nemur verðmæti
hins selda áburðar um 14
millj. króna.
í fréttatilkynningu frá
...
Nefndin
hvarf
VIENTIANE, Laos, 30. nóv.: —
Uppreisnarmenn létu til skarar
skríða í da'g gegn stjórn Sou-
vanna Phouma. Sjö manna þing-
nefnd fór flugleiðis til Savanna-
ket, aðalstöðva uppreisnar
manna, árla í morgun og lánuðu
bandaríska og franska sendiráð-
ið flugvélar til fararinnar.
Höfðu uppreisnarmenn fullviss
að þingnefndina um að ekki yrði
skert hár á hóði þingmannanna
og þeir fengju að hverfa aftur
óáreittir. Tilgangurinn með för-
inni var að leita samkomulags
um myndun samsteypustjórnar
og binda þar með endi á óeirðirn
ar í landinu.
En flugvéLarnar komu aftur til
Vientiane í kvöld og þingmenn-
irnir voru ekki meðferðis. Fluttu
flugmennirnir þær fregnir, að
uppreisnarforingjar hefðu tekið
á móti nefndinni, boðið henni
upp í flugvél sína og flogið með
hana lengra inn í land. Töldu
flugmennirnir nefndinni samt
óhætt og bjuggust við að hún
yrði flutt hingað aftur á morgun
í flugvél uppreisnarmanna.
Víða kom til átaka í dag og
eru uppreisnarmenn vel vopnum
búnir.
Áburðarverksmiðjunni h.f.
um þetta, segir á þessa leið:
Á- 10% afsláttur frá fullu verði
Á þessu ári hefur Áburðarverk
smiðjan unnið mun meira áburð-
armagn en að undanförnu, vegna
þess að raforka til vinnslunnar
hefur fengizt mun meiri en áður.
Áburðarmagnið er því nokkru
meira en líkur eru til að notað
verði í landinu á komandi ári.
Þegar sýnt þótti, að áburðarmagn
ið væri umfram innanlandsþörf,
ákvað verksmiðjustjórnin að
reyna sölu á áburði til útlanda.
Tókst framkvæmdastjóri verk-
smiðjunnar ferð á hendur í þeim
tilgangi, sem bar þann árangur,
að tekizt hefur sala á 7000 smá
lestum áburðar fyrir verð, sem er
aðeins tíu af hundraði lægra en
áburðarverð verksmiðjunnar var
á síðasta sumri, komið í skip á
Gufunesi. Nemur verðmæti hins
selda áburðar um 14 millj. kr.,
og er afgreiðsla áburðarins ákveð
inn um og eftir næstu áramót.
Fyrsti desember er dagur Háskólastúdenta.
Hátíðahöld i tilefni
fullveldisd agsins
HÁTÍÐAHÖLD í tilefni full-
veldisdagsins verða eins og
áður á vegum háskólastúd-
enta. Hátíðin hefst kl. 10,30
f. h. með guðsþjónustu í
kapellu háskólans.
Aðalræðu dagsins flytur Guð-
mundur í. Guðmundsson kl. 14,00
i hátíðasal Háskólans, og fjallar
hún um landhelgismálið. Síðasti
liður hátíðahaldanna er fullveld-
isfagnaður í veitingahúsinu Lido,
sem hefst kl. 18,30.
Hátíðahöldunum í Háskólan-
um verður útvarpað og kl. 20,30
hefst kvöldvaka Stúdentafélags
Reykjavíkur. Formaður Stúdenta
félags Reykjavíkur, Matthias Jo-
hannessen, ritstjóri flytur er-
indi og ræður flytja Jóhann S.
Hannesson, skólameistari, og
Halldór Hansen, dr. med. Síðan
hefjast gamanmál, vísnasöngur
og fjöldaáöngur. Kvöldvökunni
lýkur með því að Guðmundur
Jónsson syngur lög við ljóð eftir
Tómas Guðmundsson.
Lumumba týndur
Tshombe býður löndum sínum
einuhugsuðstoð
Elisabetville, Brazzaville og
Nýju Dehli, 30. nóv. —
E N N hefur ekkert spurzt
til Lumumba. Menn óttast
jafnvel, að hann sé ekki
lengur í tölu lifenda. Lum-
umba komst undan mönnum
Mobutu í Leopoldville á
sunnudagskvöldið, eins og
Nasser fær MIG-19
TEL AVIV ,39. nóv. — Arabíska
sambandslýðveldið er að fá mikl
ar vopnasendingar frá Rússum,
sögðu dagblöðin í fsrael í morg-
un. Almennt er talið, að þessi
nýju vopn muni verða til þess
að auka enn á viðsjár fyrir botni
Mió.jarðarhafsins og einmitt þess
vegna veitti þing ísraels stjórn-
10-20 tonn
á dag
JAPANSKUR skuttogari, „Ta-
oyo Maru“, hefur verið á veið
um við Kanaríeyjar síðan í
júní. í október var tilkynnt,
að aflinn hefði verið meiri
en búizt hafði verið við, 10—
20 tonn á dag. Togarinn er
1490 tonn.
inni í gær heimild til þess að
verja sem svarar 15 milljónum
dollara til landvarna umfram
það, sem ákveðið var.
Blöðin i ísrael staðhæfa, að
samningar um auknar vopna-
sendingar til Arabíska sambands
lýðveldisins hafi náðst í viðræð-
um þeirra Krúsjeffs og Nassers,
er þeir hittust í New York á dög-
unum. Meðal vopnanna, sem
Nasser er sagður fá, eru MIG-19
ori/stuþotur, þær fullkomnustu,
sem Rússar framleiða nú. Telja
ísraelsmenn, að frönsku Super-
Mystere þoturnar, sem her þeirra
hafi, standi MIG-19 þotunum að
baki.
Þá er staðhæft, að Amer, vara-
forseti Arabíska sambands lýð-
veldisins, sem nú er farinn til
Moskvu, leiti þar fyrir sér um
kaup á tveimur kafbátum — og
verður kafbátafloti Nassers þá
kominn upp í 12.
kunnugt er, og var förinni
heitið til Stanleyville, sam-
kvæmt frásögn Lumumba
sjálfs. En ekki er vitað til,
að hann hafi komið þangað.
* * *
Er mjög óttazt, að hvarf Lum-
umba geti haft alvarlegar af-
leiðingar. Nehru forsætisráð-
herra Indlands, lét m. a. svo um
mælt í dag, að flótti hans gæti
haft í för með sér borgarastyrj-
öld í Kongó.
Tshombe, forsætisráðherra Kat
anga, sagði á fundi með blaða
mönnum í dag, að Katanga byði
nú öðrum hlutum Kongó efna-
hagsaðstoð. Hann sagði og, að
það hefði sýnt sig, að engin leið
væri að stjórna Kongó frá Leo-
poldville. Hugmynd hans um
sjálfstæða stjórn hinna ýmsu
héraða Kongó og sambandsríki
þeirra væri því i'aunhæf.
Sagði Tshombe, að slíkt sam-
band gæti orðið upphaf að öðru
víðtækara, sem næði til fleiri
landa Afríku og að milli þessara
ríkja yrði mjög náið samstarf,
ekki hvað sizt á sviði efnahags-
mála.
* * *
Var ekki hægt að skilja þetta
öðru vísi, en Tshombe væri þarna
að búa jarðveginn undir væntan
legt þing fulltrúa frönskumæl-
andi Afríkuþjóða, en það hefst
hinn 12. desember.
Hann var spurður álits á hug-
myndinnj um sameiginlegan
fund allra stjórnmálaleiðtoga í
Kongó, til þess að reyna að binda
endi á ógnaröldina í landinu:
Munduð þér taka þátt í slíkum
fundi, ef Lumumba yrði þar
mættur? spurðu blaðamenn.
„Ég tala ekki við geðveikan
mann“, svaraði Tshombe.
Dauðadóniar
SEOUL ,30. nóv. — Fulltrúadeild
þings S-Kóreu samþykkti í dag
frumvarp, sem heimilar að kveðn
ir verði upp dauðadómar yfir
ýmsum af stjórnarstarfsmönnum
Syngman Ree, sem fundnir voru
sekir um svik í þingkosning-
unum 15. marz sl. Ekki er þar
m.eð sagt, að lagaheimildin verði
notuð.
Gripið til
örþriforaða
í áfengisvörnum
PARÍS, 30. nóv. — Franska
stjórnin skar í dag upp her-
ör gegn ofdrykkjunni í land-
inu, en fullvissaði landsmenn |
jafnframt um, að ekki værl
stefnt að algeru banni, því
færi fjarri.
Markmiðið er að breyta
drykkjusiðwm frönsku þjóðar-
innar, því skýrslur sýna, að á
síðasta ári létust 16.500 manns
af völdum áfengisneyzlu i
Frakklandi, helmingi fleiri en
fórust í umferðaslysum. —
Þetta er of há tala, sagði
franska stjórnin. Við verðum
að taka í taumana.
Meðal þeirra ráðstafana,
sem gripið verður til, er: Tak-
mörkun á auglýsingu áfengis,
börn innan 14 ára aldurs fá
ekki keypt áfengi (áður var
takmarkið 12 ára aldur),
menn fá ekki framar áfengi
„í reikning“ í vínstúkum —
og fjöldi vínstúkna verffur nú
íakmarkaður við eina á
hverja 3.000 íbúa. Nú munu
þær vera ein á hverja 173.
IVflao veitir
Castro lán
PEKING, 30. nóv. — Kúbustjórn
og kínverskir kommúnistar hafa
gert samkomulag um víðtæka
efnahagssamvinnu. Var þetta op-
inberlega tilkynnt í Peking í dag,
en Guevara, aðalba;.) astjóri
Kúbu er nú staddur í borginni
ásamt stórum hópi samverka-
manna.
Efnahagssamvinna þessi er m.
a. fólgin í 240 millj. rúbla (59
millj. dollara) vaxtalausu láni,
sem Kinverjar veita Kúbu — og
j^fnframt var gerður vöruskipta
samningur og samkvæmt honum
kaupa Kínverjar eina milljón
tonna af sykri af Kúbu á næsta
ári.
Guevara k«m til Peking frá
Moskvu — og á heimleiðinni
mun hann einnig hafa viðkomu í
Moskvu. f Peking hefur Kúbu-
mönnunum verið tekið með kost-
um og kynjum. Hvarvetna hafa
heiztu ráðamenn verið í fylgd
með gestunum, oftast Mao-Tse-
tung, Sjú-En-lai og Chen Yi, ut-
anríkisráðherra.
4