Morgunblaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 23
Fimmfudagur 1. des. 1960 MOHCTITSHI. 4 ÐIÐ 23 Krúsjeff bíður Keimedýs LONDON 30. nóv. — Haft er eftir kommúnískum sendimönn- um, að Krúsjeff muni hefja skel- eggan áróður fyrir nýjum „topp- fundi“ jafnskjótt og Kennedy taki við forsetaembætti í Banda- ríkjunum. — Segja sendimenn- irnir, að Krúsjeff muni sennilega láta Powers, flugmanninn á U-2 njósnaþotunni lausan, ef Kenn- edy fallist á nýjan fund. Árósar, 29. nóv. (Reuter). — 29 ára pólskur sjómaður, sem var í áhöfn pólsks skips hér í höfn- inni hefur flúið á náðir dönsku lögreglunnar og beðist hælis sem flóttamaður. Gísli Óskarsson, Höfn, Hornafirði Kveðjuorð Fæddur 28. október 1950 Dáinn 16. nóvember 1960 I»að vita fáir vinur minn hve vel þú afbarst sjúkdóm þinn. Þú lézt sem allt þér léki 1 hag, þú lifðir glaður sérhvern dag. Þann elskar Guð, sem ungur deyr og andar Drottins mildi þeyr um vanga hans og vermir hlýtt unz vankar aftur lífið nýtt. Nú falla tár um föla kinn er faðir kveður drenginn sinn, sem Drottins mjúka heilög hönd nú hefur leitt í drauma lönd. Og móður höndin mild og kær sem margar sorgir dulið fær, nú hefur lagt í hinzta sinn að hjarta sínu vanga þinn. Það huggun er og harma bót að hvert sem liggja vegamót við sjáumst aftur seinna þar í sæluríki unaðar. Frá frændsystkinum. H E R eru húseigendur að Njörvasundi 12, hér í bænum. Garðurinn við hús þeirra var fallegasti skrúðgarðurinn í bænum, sumarið 1960, og því gaf Fegnunarfélagið þeim þennan veglega gólfvasa, í viðurkenningarskyni. Garðinn eiga Lárus Lýðsson, sem veit- ir forstöðu Sláturfélagsbúð- inni á Skólavörðustíg og sam- starfsmaður hans þar, Guð- brandur Bjarnason og kona hans Sigríður Gestsdóttir. — Þessi mynd var tekin af þeim um daginn, og eru þau að skoða verðlaunagripinn, Lárus i til vinstri og þau hjónin Guð- / brandur og Sigríður. 1 Æskulýðsleiðtog- ar í Englandsför BREZKA utanríkisráðuneytið bauð hinn 30 þ.m. eftirtöldum æskulýðsleiðtogum til 16 daga kynningarferðar til Bretlands: Séra Lárus Halldórsson, Axel Jónsson, Jón Pálsson, Höskuldur Karlsson. Þeir munu kynna sér æskulýðs starfsemi, íþróttakennslu, notk- un sjónvarps við kennslu, starf- semi tómstundaheimila, notkun kvikmynda við tómstunda- fræðslu o. s. frv. Ennfremur munu þeir ferðast um írland frá 6—10 desember. Þeim til aðstoðar í ferðinni verður Brian D. Holt. Tónleikar AKUREYRI 30. nóv. — Tónlist- arfélag Akureyrar efndi í gær- kvöldi til þriðju tónleika sinna á þessu starfsári. Fóru þeir fram í Nýja Bíó að viðstöddu fjölmenni. Listafólkið, sem að þessu sinni kom fram, voru söngvararnir Sigurveig Hjalte- sted og Árni Jórisson, en undir- leikari var Ragnar Björnsson. Á efnisskránni voru 14 lög og aríur eftir innlenda og erlenda höf- unda. Listafólkinu var forkunn- ar vel tekið og varð að syngja mörg aukalög. Þeim bárust og margir fagrir blómvendir. Listafólk þetta er nú á ferð um Norðurland, og hefir því verið hvarvetna mjög vel tekið. Það væri sannarlega vel þegið hér norðanlands, ef slíkt lista- fólk kæmi oftar í skammdeginu hér norður, og miðlaði okkur, sem búum við heimsskautsbaug- inn, nokkru af þeirri list sem höfuðborgarbúarnir eiga við að búa. Vísað úr Kongó BRUSSEL, 28. nóv. — Búizt var við, að Kasavubu, forseti Kongó, undirritaði í dag brottvísun sendi herra Arabíska sambandslýð- veldisins úr Kongó. Sendiherrann er sakaður um að hafa haft sam vinnu við sendiráð Ghana um að koma Lumumba til valda Hammarskjöld NEW YORK 3«. nóv. Það er al- mælt í aðalstöðvum SÞ, að Hammarskjöld ætli að velja sér 3 ráðgjafa, einn þeirra í hermál- Breytingar í utan- ríkisþjónustunni UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ het. ur ákveðið að sameina embætti fastafulltrúa íslands hjá Atlants hafsbandalaginu og Efnahagssam vinnustofnun Evrópu, embætti sendiherra íslands i París. Hefur Hans G. Andersen fastafulltrúi íslands hjá þessum tveimur al- þjóðastofnunum nýlega verið skipaður til þess að vera jafn- framt sendiherra íslands í París. Eins og áður hefur verið til- kynnt, tekur Agnar Kl. Jónsson, sendiherra við starfi ráðuneytis stjóra utanríkisráðuneytisins. Henrik Sv. Björnsson ráðuneytis stjóri tekur við sendiherraem- bætti í London, en dr. Kristinn Guðmundsson við sendiherraem- bætti í Moskva. Dr. Helgi P. Briem sendiherra í Bonn tekur við starfi hér á landi á vegum utanríkisráðuneytisins, en Pétur Thorsteinsson við sendiherraem- bættinu í Bonn. Breytingar þessar miðast allar við 1. janúar 1961. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 30 nóvember 1960. Bonn, 30. nóv. — Vestur-þýzka stjórnin ákvað í dag, að taka upp viðræður við a-þýzku stjórnina um verzlun milli landanna. um. Verzlunorráð íslands minnir á hádegisfundinn í Lekihúskjallaranum kl. 12 í dag. Guðmundur Jörundsson útgerðarniaður talar um sjávarútvegsmáj. STJÓRNIN. Unglinga vantar til blaðburðar v/ð LYNGHAGA IVIIÐBÆ Kasper & Co aftur í Þjóðleikhúsinu bæjarins. Ákveðið er að sýna „Karde- mommubæinn" aftur í Þjóð- leikhúsinu og munu sýningar hefjast um nýárið. Leikurinn var sýndur 45 sinnum á sl. vetri og var það algert met hjá Þjóðleikhúsinu. Ekkert H T N I R þekktu ræningjar Kasper, Jesper og Jónatan eru nú komnir á jólakort og mun það vera fagnaðarefni hjá hin um mörgu aðdáendum þeirra. Teikningin er gerð af Hall- dóri Péturssyni. Kortin munu nú fást í öllum bókabúðum leikrit hefur náð jafnmiklum vinsældum hjá börnunum hér á landi. Myndin er af Kasper, Jesp- er og Jónatan, en þeir eru leiknir af Ævari Kvaran, Bald vini Halldórssyni og Bessa Bjarnasyni. Sonur okkar gCstaf hinrik hákonssen Hátúni 25 andaðist þann 30. nóv í sjúkrahúsi Hvítabandsins. Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda. Foreldrar hins látna Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu okkur hjálp og hluttekningu í veikindum og við andlát og jarðarför sonar okkar MAGNCSAR Sérstaklega viljum við þakka sveitungum okk&r fyrir alla þeirra ómetanlegu aðstoð. Þóranna Finnbogadóttir og Geir Tryggvason Steinum, Austur-Eyjafjöllum Innilega þökkum við öllum þeim er vottuðu okkur samúð sína við fráfall og útför móður okkar og tengda- móður, ANDREU GUÐLAUGAR KRISTJÁNSDÖTTUR Anna Oddsdóttir, Friðjón Stephensen, Ingibjörg Oddsdóttir, Hörður Þórðarson Kristján Oddsson, Ingunn Runólfsdóttir, Steingrímur Oddsson, Laufey Ingjaldsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.