Morgunblaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 8
8
M O p r r’ v " r ' r f)
Fimmtudagur 1. des. 1960
Skriðdrekar
HVER8 VEGIVIA
nota reynda»r húsmæður
UJDVIG DAVID í KÖIMMUNA
1) Kaffið verður bragðsterkara
og betra
2) Liturinn verður ákveðnari
og fallegri
3) Rekstrarkostnaður heimilisins
lækkar
Jólakort Mið-
bæjarbarna-
skólans uppseld
JÓLAKORTIN, sem Miðbæjar-
barnaskólinn lét gera eftir teikn
ingum tveggja nemanda skólans,
þeirra Ara Guðmundssonar og
Fanneyjar Valgarðsdóttur í 12
ára E, seldust öll upp um miðjan
dag í gær. Kortin voru tíu þús-
und að tölu og skal ágóðanum
varið til hljóðfærakaupa handa
nemendum skólans. Ákveðið hef-
ur verið að láta prenta önnur
tíu þúsund kort til þess að full-
nægja eftirspurninni og halda
áfram að safna í hljóðfærasjóð-
inn.
Tíminn og við"
LEIKFÉLAG Reykjavíkur hefur
að undanförnu sýnt leikntið
„Tíminn og við“ við góða að-
sókn. Hlaut það hinn bezta dóm
gagnrýnenda, sem eftirfarandi
ummæli bera með sér:
Sigurður Grímsson í Morgun-
blaðinu 10. nóv.:
...... Leiksýning þessi var
mjög ánægjuleg, enda var henni
ágætlega tekið ......
Sveinn Einarsson í Alþýðu-
blaðinu 11. nóv.:
.... Minnisstæðast varð sam-
leikur tíu ungra og efnilegra
leikara undir stjórn ungs og
efnilegs leikstjóra: Ég trúi því,
að aldrei áður hafi jafnmikið
af ungum leikhæfileikum verið
samankomið á íslenzku sviði í
einni og sömu sýningunni.......
Ásgeir Bjamason í Þjóðvilj-
anum 11. nóv.:
.... Áhorfendur kunna vel að
meta listrænan áhuga leikend-
anna ungu og ánægjulega sigra,
hlýddu á orð þeirra og athafnir
með óskiptri athygli og guldu
þeim miklar þakkir að lok-
um........
„Den onde hyrde“
ný bók eítir
Jens Björneboe
BLAÐINU hefur borizt skáld-
saga eftir Jens Björneboe, sem
bókaforlag Aschehaugs í Nor-
egi gefur út. Bókin heitir „Den
onde hyrde“ og fjallar um ungan
mann, sem gengur frjáls út í iíf-
ið, eftir að hafa verið lokaður
inni — fyrst í heimavist, síðan í
unglingafangelsi, og að lokum í
almennu fangelsi — meirihluta
ævi sinnar. Hann hefur enga
skólamenntun og enga þekkingu
á nokkurri atvinnugrein, og við
þetta bætist ótti, sálarflækjur og
utangarðstilfinning. Höfundur-
inn hefur persónulegt samband
við marga slíka menn og hefur
góða þekkingu á sálarlífi þeirra
og viðbrögðum gagnvart lífinu
— og viðbrögðum lífsins gagn-
vart þeim. Tilgangur höfundar-
ins með bókinni er greinilega sá
„að verja einstaklinginn gegn ár-
ásum „hinna“, eins og hann orð-
ar það sjálfur.
Gunnar Dal í Tímanum 12.
nóv.:
.... Þessi sýning er stórsigur
fyrir Leikfélag Reykjavíkur. —
Leikritið er afburðavel valið,
leikstjórn Gísla Halldórssonar
snilldarleg og leikur hinna ungu
leikara sá jafnbezti sem hér
hefur sézt í langan tima. Áheyr-
endur sýndu að þeir kunnu að
meta þetta afrek leikfélagsins
og ég hef ekki heyrt jafn inni-
legar undirtektir leikhúsgesta er
þeir hylltu leikara og leikstjóra
í leikslok. Þessi sýning lyftir
leikhúslífinu upp úr þeim öldu-
dal, sem það hefur legið í að
undanförnu, og gefur mönnum
nýja trú á .framtíðina...
GENGINN er í Hæstarétti
dómur í máli sem höfðað var
gegn Landleiðum og Jósep
Smára Guðmundssyni, vagn-
stjóra hjá fyrirtækinu. Bíl
hlekktist á á Hafnarfjarðar-
vegi, og taldi sá sem bílnum
ók að strætisvagn frá Land-
leiðum h.f. bæri ábyrgð á
því óhappi. Bíllinn skemmd-
ist mikið og gerði bíleigand-
inn kröfur um að fá það
tjón bætt að fullu og öllu.
Þetta mál fór þannig í hér-
aði og nú í Hæstarétti, að
maðurinn sem það höfðaði
tapaði því.
Á Á Kópavogsbrúna
Forsaga þessa máls er á þá leið
að Alfreð Hilmar Þorbjörnsson,
Lækjargötu 10 í Hafnarfirði, var
á leið í bíl sínum G-131 frá
Reykjavík suður í Hafnarfjörð.
Þetta var í októberlok 1957, um
kl. 11 um kvöld. Hálka var á
veginum og gekk á með éljum.
Þetta gerðist við Kópavogsbrúna,
en þá kom á móti Hafnfirðingn-
um áætlunarvagn Landleiða, og
var sá á leið til Reykjavíkur.
Kveður Hafnfirðingurinn sig
hafa ekið eins utarlega á sínum
vegarhelming og tiltækilegt var
Bann hefur verið sett við því
að fleiri en þrír menn hópist sam
an á götum úti. Gagnfræðaskól-
um hefur og verið lokað í höfuð
staðnum — og skriðdrekar sjást
nú um alla bórgina. í óeirðunum
undanfarna daga hafa þrír beðið
bana en nær 100 manns særzt.
Tillagan
var felld
ÞIN GSÁLYKTUNARTILLAGA
Framsóknarmanna og kommún-
ista um landhelgismálið, sem út-
varpsumræðan var um sl. föstu-
dagskvöld, kom til atkvæða á
fundi samainaðs Alþingis í gær.
Var tillagan felld með 31 atkvæði
gegn 26 að viðhöfðu nafnakalli.
og hafi strætisvagninum verið
ekið mjög ógætilega. í sama
mund og hinn stóri vagn hafi
brunað framhjá hafi komið mik-
ill stormgustur á bíl Alfreðs, og
af þeim sökum hafi bíllinn svipzt
til á hálkunni og skipti engum
togum að bílinn rakst á Kópa-
vogsbrúna. Varð sá árekstur all-
harður.
★ Á brott án athugunar
Ekki hafði lögreglan í Hafnar-
firði eða Reykjavík látið málið
til sín taka, og engin athugun
fram farið á slysstað áður en
G-131 var fjarlægður af staðn-
um.
Enga lýsingu var að finna, á
skemmdum þeim sem á bílnum
urðu, en reikningar frá bílaverk-
stæði voru einu gögnin þar að
lútandi. Gerði Alfreð sundurlið-
aða kröfu upp á tæpl. 48,000 krón
ur, þar af viðgerðakostnaður kr.
30,000.
-Á Sýknaður
í forsendum dóms undirréttar,
sem Hæstiréttur staðfesti segir
m. a. að stefnanda hafi ekki tek-
izt að færa á það sönnur, að
áreksturinn verði rakinn til
ógætilegs aksturs strætisvagns-
ins. Af því leiði að sýkna beri
stefndu af kröfum í máli þessu.
Var Alfreð gert að greiða máls-
kostnað í héraði og fyrir Hæsta
rétti.
Bílstjórinn bar ekki
ábyrgð á árekstrinum
''felga Valtýsdóttir og Helga Bachmann í hlutverkum sínum
CARACAS, 28. nóv. — Betan-
court, forseti Venezuela, til-
kynnti að afloknum ráðuneytis-
fundi í dag, að frelsi borgaranna
yrði skert á ýmsan hátt í nokkra
daga svo að hernum tækist að
koma reglu á í landinu eftir
óeirðirnar, sem staðið hafa í fjóra
daga. Hinum byltingarsinnuðu
sósialistum mun ekki takast að
koma af stað borgarastyrjöld í
landinu, sagði Betancourt.
. Jqhnson & Kaaber ha