Morgunblaðið - 01.12.1960, Side 3
Fimmtudagur 1. des. 1960
MORCVNBLAÐIÐ
3
t
i Afríku
i HANNOVER í Þýzkalandi
er einn frægasti dýragarður
í heimi. Er hann einkaeign,
rekinn af fjölskyldunni Ruhe.
En jafnhliða honum rekur
fyrirtækið víðtæka verzlun
með villidýr. Gerir það út
mikla leiðangra til Afríku og
Asíu og annarra heimsálfa í
leit að dýrum.
Myndir þær sem hér fylgja
voru teknar nýlega í einum
Afríku-leiðangri hinna þýzku
dýrafangara. Er þetta mynda-
saga, sem sýnir, hvernig ung-
ur gíraffi er veiddur.
Það er hættuverk, því dýrið
getur slegið fast, en eftir að
traustu taki er náð á halan-
um slær það ekki.
STAKSTEINAR
Kommúnistar
og ákvæðisv' ínan
Blað kommúnista er í gær
hrifið af ákvæðisvinnufyrirkomu
lagi í norsku.n frystihúsum. Tel-
ur blaðið að með því fyrirkomu-
lagi fái verkafólkið töluvert
hærra kaup en ella.
I þessu sambandi er það at-
hyglisvert, að hér heima mega
kommúnistar ekki heyra ákvæð-
ísvinnu nefnda. Hér i blaðinu
hefur oft verið á það bent, að
aukin ákvæðisvinna væri ein
þeirra leiða, sem hugsanlegar
væru til þess að koma fram raun
verulegum kjarabótum fyrir
íaunþega. En kommúnistar hafa
talið það hreinan fjandskap við
verkalýðinn. Nú eru þeir allt í
einu orðnir hrifnir af ákvæðis-
vinnufyrirkomulagi í Noregi!
„Gjaldþrot í páfagarði
Framsóknar“
Skutull, blað Alþýðuflokksins
á ísafirði, birtir hinn 18. nóv-
ember sl. grein undir fyrirsögn-
inni „Gjaldþrot í páfagarði
Framsóknar".
Er þar m. a. komizt að orði á
þessa leið:
„Stjórnarandstaða Framsókn-
arflokksins er óábyrg og ofstæk
isfull. Hún fótum treður stað-
reyndir og fyrirlítur heilbrigða
dómgreind, svo að gáfuðustu
menn flokksins fá jafnvel ekki
notið skynsemi sinnar“.
Ljótt er að heyra en líklega
er þetta rétt hjá Skutli.
Fyrsta myndin sýnir, hvern
ig snöru er brugðið um háls
dýrinu. Gíraffafangarinn er á
I bifreið og þarf hún að aka
með 70 km hraða til þess að
draga gíraffann uppi, svo
hratt getur hann hlaupið með
sínum löngu og mjóu löppum.
Snaran er á bambusstön'g.
t Á annarri mynd er búið
/ að herða lykkjuna að herða-
I kambi giraffans. Hjálparmenn
I hlaupa til og grípa í halann.
Gíraffafangararnir safnast
utan um dýrið og halda því.
Þeir bíða eftir vörubíl, sem
kemur með búr.
Síðasta myndin sýnir gír-
affann þegar honum er skip-
að út í höfninni Mombasa i
Kenía á Indlandshafsströnd
Afríku. Nú hefur hann feng-
ið sitt heiti og kallast hinu
virðulega nafni „Sókrates".
Feyðinni er heitið í dýragarð
í Evrópu.
Starfsemi
AÐALFUNDUR félagsins Sölu-
tækni var haldinn 19. nóvember
s.l. Formaður félagsins, Þorvarð
ur J. Júlíusson, flutti skýrslu
stjórnarinnar. Helztu mál ársins
voru: Námskeið og fræðsla í
sölu- og auglýsingatækni, öflun
fræðslukvikmynda í þessu skyni,
lög og réttarreglur um vöru-
merki, löggjöf um varnir gegn
óréttmætum verzlunarháttum,
rannsóknir á vörudreifingu, aug-
lýsingaþáttur í ríkisútvarpinu,
eintakaskráning blaða og tíma-
rita, samvinna við systurfélögin
á Norðurlöndum, undirbúningur
stjórnarfundar norræna sölu-
tæknisambandsins í sumar og
kynnisferð auglýsingamanna og
auglýsingastjóra til Bandaríkj-
anna.
Eintakaskráning
Á starfsárinu hefur verið unn-
fð að því að koma á fót eintaka-
6kráningu blaða og tímarita. Ein-
takaskráningunni er ætlað að
gefa upplýsingar með regluleg-
um fresti um eintakafjölda ís-
lenzkra blaða og tímarita, sem
taka auglýsingar til birtingar.
Slíkar upplýsingar eru auglýs-
endum að sjálfsögðu mikið nauð-
synjamál. Blöðum, tímaritum og
auglýsingaskrifstofum er einnig
mikill akkur að því að geta birt
slíkar upplýsingar, því að þá vita
þau, hvað þau eru í raun og veru
að selja auglýsendum.
Námskeið
1 vor gekkst stjórnin fyrir nám
skeiði fyrir sölumenn og sölu-
Sölutækni
stjóra heildverzlana og iðnfyrir-
tækja.
Eins og kunnugt er, hefur fé-
lagið frá byrjun lagt megin
áherzlu á fræðslustarfsemi í sam
bandi við sölu og auglýsingastörf.
Fyrir tilverknað félagsins hafa
verzlunarskólarnir nú tekið hin
almennu námskeið upp á sína
arma, svo að félagið getur eftir-
leiðis helgað sig betur sérhæfð-
um námskeiðum, svo sem fyrir
stjórnendur fyrirtækjanna.
Síðastliðið haust fóru á vegum
félagsins og fyrir milligöngu Iðn-
aðarmálastofnunar íslands þrír
auglýsingamenn til Bandaríkj-
anna til þess að kynna sér auglýs
ingatækni þar í landi.
Það er skoðun stjórnarinnar,
að það verði eitt af aðalverkefn-
um félagsins i náinni framtíð að
vinna að auknum skilningi á
nauðsyn og gildi rannsókna á
sviði vörudrefingar og stuðla að
því, að slíkar rannsóknir verði
gerðar á vegum félagsins, ef til
vil'l í sambandi við aðra aðila.
í ‘sumar var haldinn í fyrsta
sinn hér á landi, stjórnarfundur
norræna sölutæknisambandsins,
(Præsidiemöde í Nordisk Salgs-
og Reklameforbund.) Fundurinn
var haldinn 2. og 3. júlí s.l., og
var 41. stjórnarfundur sambands
ins Fundinn sóttu fjórir fulltrúar
frá Svíþjóð, þrír frá Danmörku,
þrír frá Noregi og einn frá Finn-
landi. Af hálfu félagsins eiga
sæti í stjórninni, Gylfi Þ. Gísla-
son, Sigurður Magnússon og Þor-
varður Jón Júlíusson. Félagar
sambandsfélaganna eru nú um
13.300. Norræna Sölutæknisam-
bandið hefur beitt sér fyrir mjög
ítarlegri rannsókn á auglýsinga-
kostnaði á Norðurlöndunum,
rannsókn, sem gerð var á sam-
bærilegum grundvelli og leiddi
ýmsar merkilegar niðurstöður í
ljós. Félögin beita sér fyrir nám-
skeiðum og fræðslustarfsemi.
Sambandið á fulltrúa í tveim-
ur nefndum í Alþjóða verzlunar-
ráðinu í París, það er Com-
mission on Advertisirig og Com-
mission on Distribution. Norræni
stjórnarfundurinn þótti takast að
öllu leyti vel, og er það meðal
annars að þakka góðum stuðn-
ingi frá verzlunarsamtökunum
og Morgunblaðinu.
Á fundinum flutti Ásgeir
Júlíusson mjög skemmtilegt og
greinargott erindi um auglýsinga
tækni í Bandaríkjunum.
í félaginu eru nú 59 einstakl-
ingar og 71 fyrirtæki samtals 130.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin en hana skipa: Þorvarður
J. Júlíusson, formaður, Sigurður
Magnússon, Sigurgeir Sigurjóns-
son, Ásbjörn Magnússon, Krist-
ján Arngrímsson, Kristinn Ketils
son og Sveinbjörn Árnason.
Framkvæmdastjóri félagsins er
Gísli V. Einarsson, viðskipta-
fræðingur.
Hjálparbeiðni
UM sama leyti og hjálparbeiðnin
kom í Mbl. vegna brunans í
Laugarnesbúðum átti þriðji elds
voðinn sér stað í öðru hverfi
bæjarins, nú að Suðurlands-
braut 116, og varð þar einnig
mikið tjón. Er því í ráði að
skipta því, er safnast kann hjá
Mbl. vegna þessara eldsvoða
með lögfræðilegri aðstoð í þrja
staði eftir tjóni og öðrum ástæð-
um.
Með þakklæti,
Garðar Svavarsson.
I forystugrein sama blaðs er
Framsóknarflokkurinn gerður
frekar að umræðuefni og er þar
m. a. komizt að orði á þensa
leið:
„Forystuliði Framsóknarflokks
ins á Islandi hefur orðið á
í ofstækisfullri stjórnarandstöðu
sinni að ganga til liðs við komm
únista og taka upp þeirra vopna-
burð í einu og öllu.
Það eru engar hliðstæður
finnanlegar á Vesturlöndum
sambærilegar þessu taumlausa
kommadingli Framsóknar.
Enginn lýðræðisflokkur hefur
nokkru sinni ótilneyddur gengið
svo dyggilega á mála hjá Rússa-
dindlum.“
Pólitískur umskiptingur
í forystugrein Skutuls segir
ennfremur:
„Framsókn er ekki einungis
ábyrgðarlaus með öllu gagn-
vart efnahagsmálum þjóðarinn-
ar, heldur stefnir hún markvisst
að því að æsa þjóðina til óyndis-
úrræða, sem gætu haft hinar al-
varlegustu afleiðingar fyrir efna
hagslíf þjóðarinnar.
Þá lætur ekki þessi pólitíski
umskiptingur sitt eftir liggja að
brigsla andstæðingum sínum um
landráð og svik við land og þjóð,
ásamt óteljandi fleiri glæpum.
Og enda þótt Framsóknarflokk
urinn hafi staðið að öllum samn-
ingum um hersetu á íslandi og
samþykkt aðild íslands að marg-
háttuðum samtökum vestrænna
þjóða, þá gengur hann nú jafn-
vel fram fyrir skjöldu kommún-
ista til þess að flæma ísland úr
tengslum við vestræna sam-
vinnu.
Og allt á þetta að vera af ein-
skærri föðurlandsást, rétt eins
og hjá kommúnistum.
Það verður mörgum á að
spyrja, hvaða ósköp hafi dunið
yfir þennan lýðræðissinnaða
englaflokk, sem einu sinni þótt-
ist vera allra fyrirmynd, svo
laus við allar öfgar og sífellt
vegandi salt á hógværðinni og
ábyrgðarviðleitninni.
Svarið við þeirri spurningu er
ekki langsótt né flókið:
„Framsókn vildi vera áfram í
ríkisstjórn á íslandi". Þetta
sagði Skutull á ísafirði.