Morgunblaðið - 07.12.1960, Page 19

Morgunblaðið - 07.12.1960, Page 19
Miðvikudagur 7. des. 1960 MORcrnsfír 4ðið 19 „Ósýnileg vernd" „ÓSÝNILEG vernd“ heitir ný bók, sem Víkurútgáfan hefur sent á markaðinn. Hún er eftir brezkan mann, Laurence Temple og skýrir hann þar frá æðri hand leiðslu og óvenjulegri andlegri reynzlu. Höfundurinn greinir frá því, hve einkennilega hann komst í ikynní við „ósýnilega vernd“ og hvemig hann öðlaðist iiæmi fyrir ósýnilegum heimi. Á kápu bókarinnar segir: „Sumir álífca, að frásögnin sé til orðin vegna imyndunarafls höf- undar, en aðrir, sem þegar eru sannfærðir um sambönd við fram liðna vilja gjarnan fræðast meira um hagi þeirra, sem farnir eru á undan okkur úr þessum heimi“. „Höfundi er sagt fyrir um marga ókomna atburði og er eft- irtektarvert, hvernig allt rætist í nákvæmri tímaröð. Það eru Æfingaskóli f FRÁSÖGN Mbl. í gær af bygg- ingu væntanlegs æfingaskóla Kennaraskóla fslands, láðist að geta þess að fsak Jónsson hefur um áraskeið verið æfingakennari skólans og í hans ágæfca og vel búna skóla fer kennslan fram. Með fsak Jónssyni starfa þar Björgvin Jósteinsson, sem nú er í orlofi og Helga Magnúsdóttir, kennari, er nú gegnir störfum hans. — Stefna Krúsieffs Frh. af bls. 1. undirrituðu greinargerðina leið- togar allra þátttökulandanna. Tilslakanir Þótt í flestu sé farið sam- kvæmt stefnu Krúsjeffs, ber þó sumsstaðar á tilslökunum vegna Kína. Þannig segir til dæmis varð- andi þriðju heimsstyrjöldina að möguleikar séu á því að útiloka styrjöld í heiminum jafnvel þótt auðvaldsstefnan ráði ríkjum sumsstaðar. En þar segir einnig að meðan heimsvaldastefna sé til, sé grundvöllur fyrir árásar- styrjöld. Þá segir ennfremur í greinargerðinni að friður sé hugs anlegur í heiminum, ekki trygg- ur, og að nauðsynlegt sé að stöðva árásaraðilann í tæka tíð til að fyrirbyggja að styrjöld geti brotizt út. Það sé verkefni komm únista að frelsa mannkynið frá ógnum nýrrar heimsstyrjaldar. Greinargerðin leggur mikla á- herzlu á að vernda beri einingu kommúnistaflokka heimsins. — Adenauer Frh. af bls. 1. sóknir til Lundúna og Parísar í þessum mánuði. MACMILLAN Macmillan, forsætisráð- herra Breta skýrði frá því í dag að hann færi ekki á ráð- herrafund Atlantshafsbanda- lagsins, sem hefst í París eftir 10 daga. Kom þetta fram I svari við fyrirspum í brezka þinginu. — Einn af þingmönnum Verka- mannaflokksins hafði orð á því að æskilegt væri að Macmillan sæti ráðherrafundinn og hvetti aðra leiðtoga NATO-þjóða til að xnæta. Macmillan lýsti því þá yfir að hann teldi ekki tímabært að halda fund leiðtoga Vesturveld- anna aðeins mánuði áður en nýr forseti tekur við völdum í Bandaríkjunum. Eisenhower forseti hefur mætt á ráðherrafundum Atlants hafsbandalagsins í tvö ár ásamt fleiri þjóðaleiðtogúm, en hann mun ekki hafa í hyggju að mæta að þessu sinni. áreiðanlega fáir, sem hafa feng- ið eins nákvæmar leiðbeiningar um það, sem þeim var ætlað að framkværaa." Halldór Sigurjónsson, sem margir þekkja fyrir starf í þágu islénzkra sálarrannsókna, hefur snúið bókinni á íslenzku. Flugfélagið veitir nánisfólki afslátt FLUGFÉLAG Islands hefir á- kveðið að auðvelda skólafólki ferðalög um jólahátíðina með þvi að veifca því afslátt af fargjöld- um með flugvélum félagsins á öllum flugleiðum innanlands. Afsláfctur þessi gildir á tíma- bilinu frá 15. des. til 15. jan. n.k. og verða þeir nemendur, sem ætla að notfæra sér þessi lágu far gjöld að sýna vottorð frá skóla- stjóra, er votti að þeir stundi nám við viðkomandi skóla. Skil- yrði fyrir afslættinum er, að keyptur sé tvímiði og hann not- aður báðar leiðir. Nokkur ár eru síðan Flugfélag íslands hóf að veita skólafólki fargjaldaafslátt um jólin. Það hef ir að vonum mælzt mjög vel fyr- ir og margir notfært sér þau hlunnindi. Vegna þess hve flug- vélar félagsins eru að jafnaði þéttsetnar um jól og áramót, er þeim sem ætla að ferðast um há- tíðirnar ráðlagt að panta far hið fyrsta, því að venjulega eru öll sæti með flugvélum Flugfélags- ins í síðustu ferðum fyrir jól upppöntuð löngu fyrirfram. Þrjár nýjar barna- og unglingabækur KOMNAR eru út þrjár barna- og unglingabækur hjá Iðunni. Tvær þeirrá eru eftir Enid Blyton, „Fimm á ferðalagi", í þýðingu Kristmundar Bjarna- sonar og „Dularfulla kattar- hvarfið“ í þýðingu Andrésar Kristjánssonar, en sú þriðja heitir „Óli Alexander — Fílí- bomm — bomm bomm“ og er í þýðingu Hróðmars Sigurðsson- ar. — „Fimm á ferðalagi" er fimmta bókin í sínum flokki, þar sem skýrt er frá ævintýrum félag- anna fimm, en þau eru hin margvíslegustu, og alls staðar hættur í leyni. „Dularfulla kattarhvarfið“ er önnur bókin í flokki leynilög- reglusagna handa börnum og unglingum. Þar er skýrt frá því hvernig börnin í sögunni keppa við Gunnar karlinn lögreglu- þjón um að upplýsa ýmsa dular- fulla atburði — og standa hon- um ekki að baki. „Óli Alexander“ er fyrir yngstu lesenduma. Þar er sagt frá skemmtilegum snáða, kát- um og fjörugum, sem lendir í ýmsum ævintýrum, því heimur- inn er stór og villugjam fyrir svo lítinn mann. - íbróttir Framh. af bls. 18. um að ræða skemmtifundi, tafl- kvöld o. fl. Handknattleikur Formaður handknattleiksnefnd ar var Guðni Magnússon en þjálf arar Axel Sigurðsson, Sveinn Ragnarsson og Guðni Magnús- son. Á árinu sigraði Fram í 3 mót- um. Meistaraflokkur vann II. deild með yfirburðum og færðist upp í I. deild. Bikar sem bezti handknatt- leiksmaður félagsins hlaut Hilm- ar Ólafsson. Stjómarkosning Fráfarandi formaður, Harald- ur Steinþórsson, baðst undan endurkosningu eftir 5 ára for- mennsku og var honum sérstak lega þakkað mikið og vel unr.ið starf í þágu félagsins. Formaður var kjörinn Jón Magnússon. Aðrir stjórnarmeðlimir eru Hörð ur Pétursson, varaformaður Sæm undur Gislasson, gjaldk., Sveinn Ragnarsson, ritari, Sigurður Hannesson, fjármálaritari, Birgir Lúðvíksson, formaður knatt- spyrnunefndar og Svan Frið- geirsson formaður handknatt- leiksnefndar. í varastjóm voru kosnir: Böðvar Pétursson, Björg- vin Árnason og Gylfi Hinriks- son. Endurskoðendur voru kosn- ir: Jón Jónsson og Kristján Frið- steinsson. micÆ surfaces Plastplötur á: húsgögn, skólaborð, cldhúsborð, veitingaborð, skrifborð, verzlunardiska. Ákjosanlegar fyrir sjúkrahús, rannsóknar- stofur og alla þá staði, sem verða að vera hreinlegir og snyrtilegir. Forðist ódýrari eftirlíkingar. Látið ekki bjóða yður annað en FORMICA, þótt stælingin líti sæmilega út. — Athugið að nafnið FORMICA er á hverri plötu. Umboðsmenn : G. Þorsleinsson & Johnson hf. Grjótagötu 7 Sími 24250 Unglinga vantar til blaðburðar við Hávallagötu Framnesveg Barðavog fffiltittÞliiMfr Móðir mín JÓNlNA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR andaðist að heimili sínu Hlöðutúni þriðjudaginn 6. des. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda. Gnðmnndur Brynjólfsson. Maðurinn minn ÓLAFUR GRlMSSON fyrrv. fisksali, lézt 6. þ.m. Guðrún Árnadóttir. Elsku litla dóttir okkar MARGRÉT ÞÓRUNN sem andaðist 3. des. s.l. að heimili okkar Stigahlíð 18, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 8. des. kl. 11 f.h. Jóna Sigurjónsdóttir, Þórður Adólfsson. Jarðarför sonar okkar HÁKONS HINRIKS fer fram föstudaginn 9. desember kl. 1,30 frá Fossvogs- kirkju. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjálfsbjörg. Þórný og Gústav Hákonsen Þökkum hjartanlega auðsýnda vináttu og samúð við andlát og útför móður okkar og tengdamóður VALBORGAR ELtSABETAR TÆRGESEN Sérstaklega þökkum við hjúkrunarkonum og læknum Landsspítalans fyrir frábæra hjúkrun og umönnun henni auðsýnda. — Guð launi ykkur öllum. Halldóra Sigfúsdóttir, Halldór Stefánsson, Inger Blöndahl, Sighvatnr Blöndahl. Eiginmaður minn og faðir okkar LOFTUR LOFTSSON útgerðarmaður, sem lézt 24. nóv. s.l. verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni fimmtud. 8. þ.m. kl. 1,30. Ingveldur Ólafsdóttir, Inga Heiða Loftsdóttir, Rósa Loftsdóttir Ólafur Loftsson, Loftur Loftsson, Júlíus Loftsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.